Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
19
Leirlistamenn
stofna félag
LEIRLISTAMENN hafa nú bund
ist samtökum. Félag íslcnskra
leirlistamanna var stofnaö þann
27da mars síðastliðinn ok voru
stofnendur ellefu talsins. Leirlista-
menn se«ja helstu markmið með
stofnun félaKsins að efla leirlist á
íslandi otc kynna íslendinKum sem
og útlendinKum islenska leirlist.
Félagsmenn a'tla sér að stofna til
sambanda við útlend söfn ok út-
lenskar sýninKar — komast i
samband við umheiminn, eins ok
þeir orðuðu það á fundi með
blaðamönnum. FélaKÍð mun cinnÍK
vinna að ýmsum haKsmunamálum
leirlistamanna ok stuðla að mciri
samvinnu þeirra á meðal.
En hvernig skyldi leirlista-
mönnum ganga að lifa af sinni
leirlist? Haukur Dór sagði sér hefði
gengið prýðilega vel: Hann byggi í
einbýli á Arnarnesi — en yfirleitt
væri það nú svo, að leirlistamenn
ættu bágt með að lifa af sinni
leirlist. Mjög erfitt væri að komast
af stað, af því stofnkostnaður væri
mikill: — Þetta er svipað og að
koma upp tannlæknastofu, sagði
einhver. En þetta er allt afskaplega
skemmtilegt þó vinnudagurinn sé
oft langur. — Það skiptir mestu að
komast að samkomulagi við efnið,
sagði Gestur Þorgrímsson og kona
hans, Sigrún, tók þá að vitna í
útlenda og kannski löngu dauða
menn og sagði, að leirlist væri ekki
atvinnugrein, heldur sjúkdómur.
Þar höfðu blaðamenn það. Svo
sögðu leirlistamenn að mjög mikill
áhugi væri fyrir leirlist meðal
íslendinga, þó hans gætti nú ekki í
innkaupum Listasafns íslands!
Leirlistamenn ætla að halda
samsýningu á verkum sínum á
listahátíð 1982, og þeir ætla líka að
safna heimildum um sögu leirlistar
á Islandi, en leirbrennslur hófust
hér uppúr aldamótum. Félagsmenn
hafa mikinn áhuga á því að koma
upp yfirlitssýningu íslenskra leir-
muna. Steinunn Marteinsdóttir
mun hafa umsjón með söfnun
heimilda um leirlistarsögu og skulu
þeir sem eitthvað þekkja til leir-
brennslu á fyrri hluta aldarinnar
snúa sér til hennar.
Stofnendur hins nýja félags eru
þau BorKhildur Óskarsdóttir, Edda
Óskarsdóttir, Elísabet Haraldsdótt-
ir, Gestur Þorgrímsson, Guðný
Magnúsdóttir, Haukur Dór Stulu-
son, Jóna Guðvarðardóttir, Jónína
Guðnadóttir, Kolbrún Björgólfs-
dóttir, Sigrún Guðjónsdóttir og
Steinunn Marteinsdóttir.
I stjórn Félags íslenskra leirlista-
manna voru kjörnar þær Edda
Óskarsdóttir, Jónina Guðnadóttir
og Steinunn Marteinsdóttir. — Það
bíða okkar ótal skemmtileg verk-
efni, segja leirlistamenn.
Stofnendur Félags íslenskra leirlistamanna á svölunum hjá Gesti og
Rúnu. Á myndina vantar Guðnýju Magnúsdóttur og Kolbrúnu
Björgólfsdóttur. Ljósm. Ól.K.M.
Nokkrir þátttakenda í meistarakeppni Klúbbsins og Útsýnar. Myndin var tekin á fimmtudagskvöldið
áður en undankeppnin hófst. Ljósm. Kmiiía.
Meistarakeppni Klúbbsins og Útsýnar:
Um 70 manns tóku
þátt í undankeppninni
ÞAÐ VAR margt um manninn f
veitingahúsinu Klúhbnum sið-
astliðið fimmtudagskvöld, en þá
stóð þar yfir undanúrslitakeppni
fyrir danskeppnina sem þar mun
fara fram í kvöld. sunnudags-
kvöld. Klúbburinn hefur um ára-
bil vcrið leiðandi aðili i dans-
keppnum af ýmsu tagi og hafa
danskeppnir þar oftast verið
haldnar í samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Útsýn og hina ýmsu
dansskóla í Reykjavik.
Að þessu sinni er um nýstárlega
keppni að ræða, „Meistarakeppni í
samkvæmisdönsum", sem haldin
er í samvinnu við Útsýn og
nokkra dansskóla í Reykjavík. Er
keppt í rúmbu, jive og jassballet
og einnig í svokölluðu „free style
disco". í samkvæmisdönsunum er
um að ræða parakeppni en para-
hópkeppni í jass-ballett og „free
style disco“.
Keppni þessi er með töluvert
öðru sniði en fyrri danskeppnir á
vegum Klúbbsins. Fer keppni nú
fram á 4. hæð þar sem ljósagólfið
á jarðhæðinni hentar ekki fyrir
samkvæmisdansa. Þar hefur nú
verið sett upp sérstakt discotek til
að flytja tónlistina fyrir keppend-
ur.
Mikil þátttaka var í undan-
keppninni á fimmtudaginn og
kepptu þá rúmlega 70 manns.
Voru þrjú pör valin til að taka
þátt í úrslitakeppninni í sam-
kvæmisdönsum, þrír hópar til að
keppa til úrslita í jass-ballett og
tveir hópar til að keppa til úrslita
í „free styie disco“.
Urslitakeppnin fer svo fram í
kvöld kl. 21.00 sem áður segir.
Dómnefndina skipa: Guðrún Páls-
dóttir, Hermann Ragnar Stef-
ánsson, Iben Sonne, Ingibjörg
Jóhannsdóttir og Órn Guð-
mundsson. Ferðaskrifstofan Út-
sýn veitir sigurvegurunum rausn-
arleg verðlaun og nema þau sam-
tals kr. 10.000,00.
SPARNAÐAR TÍMABIL DÆMI UM MÁNAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR í LOK TÍMABILS IÐNAÐARBANKINN LÁNAR ÞÉR RÁDSTÖFUNAR- FÉ MEÐ VÖXTUM MÁNAÐARLEG ENDURGREIÐSLA ENDURGR. TÍMABIL
3 , man. 700.00 1.000.00 1.500.00 2.100.00 3.000.00 4.500 nn 2.100.00 3.000.00 <• cnn nn 4.277.50 6.130.00 741.60 1.059.40
2.0CC.0Ö 6.000.00 t.JWV.UV 6.000.00 12.260.00 TT5®9!lí 2.118.80 man.
5 , man. no DW.. _ 1.000.00 1.500.00 2.000.00 3.000.00 jnoo.oo 7.500.00 10.000.00 3.000.00 5.000.00 7.500.00 ÍC.000.00 6.217.50 10.362.50 15.541.25 20.725.00 653.95 1.089.95 1.634.95 2.179.90 5 . man.
9 , man. 800.00 1.000.00 1.500.00 2.000.00 7.200.00 9.000.00 13.500.00 18.000.00 7.200.00 9.000.00 13.500.00 18.000.00 15.638.00 ,5.177.50 28.763.75 38.355.00 922.21 1.152.75 1.729.15 3.306.10 9 . man.
HÆKKUN í FLOKKUM.
VERÐTRYGGING EF ÞÚ VILT
Hæsta innborgun á mánuði er nú 2000
krónur. Stysta innborgunartímabii er
3 mánuðir. Að öðru leyti velur þú bæði
innborgunarupphæð og lengd
innborgunartímabils. Allt eftir þínum
eigin þörfum.
Svo höfum við stofnað nýjan lánaflokk:
Verðtryggð IB-lán. Þau eru fyrir þá sem
verðtryggja vilja innborgun sína, sem og
lánið. Þau gilda fyrir sparnað í lengri
tíma. Þá bætist verðtrygging við í
hverjum mánuði. Þannig hefur þú til
ráðstöfunarað loknu innborgunartímabili:
Sþarnað þinn + verðbætur + vexti og IB-lán.
Samtals aeta he«2 Oröio vSrL'íe2ar
upphæðir.
Athugaðu að þú mátt hækka
innborganir og lengja sparnaðartíma.
Einnig getur þú geymt þér réttinn til
lántöku. Allt eftir efnum og ástæðum.
Því segjum við aftur:
Það býður enginn annar IB-lán.
Bankiþeirra, sem hyggja aó framtlóinm
Iðnaðarbankinn
Akureyri: Glerárgata7 Reykjavík:
Hafnarfjörður: Strandgata 1 Dalbraut 1, Drafnarfell 14-16
Selfoss: Austurvegur38 Háaleitisbraut 58-60, Lækjargata 12
1!