Morgunblaðið - 12.04.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
25
Nýja Galleríið
Að Laugavegi 12. á annarri
hæð, hefur verið opnaður nýr
sýningarsalur er hefur hlotið
nafnið „Nýja galleríið“. Mér er
fullkomlega ókunnugt um að-
standendur þess og þá stefnu er
þeir hyggjast marka sér. En það
er rétt og skylt, að geta þess er
nýir sýningarsalir opna í mið-
borginni því að slíkir ættu að
geta stuðlað að því að gera
borgarbraginn mannlegri. Húsa-
kynnin eru lítil en snotur og vel
mætti koma þar fyrir ágætum
sýningum ef vel yrði á málum
haldið, en það er mikill vandi að
reka sýningarsal svo vel fari í
höfuðborginni. — Að sjálfsögðu
óskar maður sýningarsalnum
alls góðs í framtíðinni og svo er
að bíða og sjá hvað fram kemur.
— Það er ungur nýliði,
Hreggviður Hermannsson, sem
sýnir um þessar mundir og
kemur hann undirrituðum fyrir
sjónir sem dæmigerður tóm-
stundaföndrari í listinni. Hér er
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
um teikningar að ræða, sem eru
hvergi nærri nógu tæknilega
útfærðar né traustlega byggðar
upp. Hér ráða tilviljanir og
hugdettur svo sem einkennir þá
er fleyta sér á yfirborðinu og
eiga langt í land til þess áfanga
að ná að tengja vinnubrögð sín
innri lífæðum listsköpunar.
Engu er hægt að spá hér um
framtíðina — hún liggur í hönd-
um gerandans sjálfs, vinnu-
brögðum hans og þrautumgleði
við að skóla sig og mennta.
Rissmynd af kirkjunni og safnaðarheimilinu.
Sr. Sigurður Pálsson:
Selfosskirkja 25
Selfosskirkja var vígð á pálma-
sunnudag 1956. Hafði undirbún-
ingur þeirrar hátíðar þá staðið í
23 ár. Margar hindranir urðu á
þeirri leið. Eins og venja er
sýndist sitt hverjum um það efni.
Sumir töldu að kirkjubygging
væri ótímabær. Hér vantaði skóla,
félagsheimili og sjúkrahús. Og
vissulega vantaði allt þetta þá.
Samt varð það úr að kirkjan var
reist á 4 árum eins og hún er nú.
Og hvað hefur gerst í bæjarmál-
um síðan? Skólar hafa risið miklu
meiri en nokkurn mann dreymdi
þá um. Sjúkrahús er risið og
félagsheimili í byggingu. Bygging
þess hefur þó mætt afgangi, vegna
þess að hér voru önnur hús, sem
bættu að verulegu leyti úr þörfum
fyrir það. Hér hefur risið eitt
fullkomnasta íþróttahús landsins,
sem engan dreymdi þá um. Lítil-
fjörlegum fótboltavelli, sem þá
var að verða til, hefur verið breytt
í fullkomið íþróttasvæði. Er þá
ótalið það stórvirki að endur-
byggja nær allar götur bæjarins
og leggja á þær slitlag, nema
nýjasta hverfið. Þá var það svo
fjarlæg hugsun að menn töluðu
ekki um það nema í hljóði, til að
forða sér frá að verða að athlægi.
íbúatala staðarins hefur meira
en tvöfaldast og hann hefur fengið
bæjarréttindi. Sá tími er að hefj-
ast að forysta bæjarmála er að
komast í hendur innfæddra Sel-
fyssinga og mun það hafa í för
með sér meiri festu í bæjarmálum.
Það er ekki venja hér á landi að
hrósa sveitarstjórnum eða veita
þeim óflokksbundið hrós.
Þegar við lítum yfir sögu Sel-
foss síðastliðin 25 ár, með þessar
staðreyndir í huga, er skylt að
ára
viðurkenna að margt hefur verið
vel gert hér þrátt fyrir mistök á
sumum sviðum. Þökk sé þeim, sem
hér hafa verið að verki.
Þetta yfirlit sýnir áþreifanlega,
að ekki þarf ein framkvæmd að
standa í vegi fyrir annarri þegar
hagsýni og framtak vinna saman.
Þegar kirkjubyggingin hófst,
var orðið vandræðaástand hér
með að geta framkvæmt helgiat-
hafnir. Varð að leita til annarra
kirkna, en þær voru þá of litlar til
að geta bætt úr þessum vanda. Og
nú er ástandið orðið líkt. Hin
mikla fólksfjölgun með vaxandi
vandamálum kallar á aukna fé-
lagslega starfsemi i söfnuðinum,
sem engin tök eru að sinna nema
með auknum húsakosti.
Mörgum er óljóst að lausn þessa
vanda hvílir á almenningi. Margir
halda að þetta sé mál ríkis og
sveitarfélaga en svo er ekki. Hin
árlegu kirkjugjöld sem ríkisvaldið
heimilar að leggja á sóknarfólk
eru svo lág að þau duga ekki fyrir
hita og hirðingu kirkjuhúsanna
nema hjá stóru söfnuðunum. Fé til
allra framkvæmda verður söfnuð-
urinn að safna með öðru móti og
er þá eina leiðin að safna gjöfum.
Nú er hafin ný framkvæmda-
lota. Árið 1978 var steyptur
grunnur undir safnaðarheimili,
turn og forkirkju. Síðastliðið
sumar voru veggir safnaðarheim-
ilisins steyptir upp og nú er
bráðnauðsynlegt að geta haldið
áfram.
Þetta virðist mikið átak en
verður mjög létt ef allir sameinast
um það. Verðugt er að Selfossbú-
ar, krýni undangengið framfara-
tímabil með því að hrinda þessu
máli í framkvæmd og til stuðnings
hollu menningarlífi framtíðarinn-
ar. Vænta má þess að ungir og
gamlir allir sem einn leggi fram
gjafir sínar á þessu afmælisári
kirkjunnar.
ófriðar dregur. í hverra þágu eru
allar þessar staðhæfingar?"
Kjarnorku-
vopnalaus
Nordurlönd
Innan vinstri flokka á Norður-
löndunum hafa menn af og til
dustað rykið af þeirri hugmynd,
sem Uhro Kekkonen, forseti
Finnlands, nefndi fyrst 1963 um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndunum. Vinstrisinnar
hafa oftar en einu sinni hreyft
þessu máli á Norðurlandaráðs-
þingum nú síðast í Kaupmanna-
höfn. Tilgangurinn með talinu um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
er í raun að slá ryki i augu
almennings og þjónar það því
sama tilgangi og blaður her-
stöðvaandstæðinga um kjarnorku-
vopn í tengslum við ísland. Hvergi
á Norðurlöndunum eru kjarnorku-
vopn, það er staðreynd. Á það
hefur hins vegar verið bent, að í
næsta nágrenni Norðurlanda, við
landamæri Noregs og Finnlands,
hafa Sovétmenn kjarnorkuvopn og
einnig um borð í sex kafbátum af
Golf-gerð, sem hafa bækistöð á
Eystrasalti. Yfirlýsing um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á norður-
hveli jarðar í Evrópu ætti ekki að
takmarkast við Norðuriöndin
heldur ætti hún einnig að ná til
eina kjarnorkuveldisins í þessum
hluta heims, Sovétríkjanna.
Gegn þessum rökum segja nor-
rænir vinstrisinnar næsta lítið en
halda áfram að berja hausnum við
steininn, ekki endilega vegna þess
að þeir séu fullir sannfæringar í
málflutningi sínum heldur telja
þeir það málstað sínum til fram-
dráttar að ala á hræðslu fólks með
tali um kjarnorkuvopn. Á norræn-
um vettvangi eins og hér á landi er
hræðsluáróðurinn haldreipi mestu
sérvitringahópanna til vinstri.
Sovétmenn leggja þessu fólki
ótrauðir lið sitt og nú hafa' þeir í
fyrsta sinn gengið svo langt, að
taka undir það með herstöðvaand-
stæðingum á íslandi, að hér á
landi kunni að leynast kjarnorku-
vopn.
Boöskapur
Novosti
Hér á landi starfrækir sovéska
sendiráðið áróðursskrifstofu undir
heitinu Novosti og gefur hún
meðal annars út ritið Fréttir frá
Sovétríkjunum með liðssinni
þeirra Maríu Þorsteinsdóttur og
Hauks Más Haraldssonar, blaða-
fulltrúa ASÍ. Þegar mikið liggur
við taka þau sig einnig til og
skrifa „friðargreinar" í þágu
Sovétríkjanna í blöð eins og
Dagblaðið og Þjóðviljann. Novosti
sendir til fjölmiðla og annarra
ýmislegt efni, sem endurspeglar
auðvitað allt skoðanir og stefnu
húsbændanna í Kreml. í kringum
24. mars barst Morgunblaðinu
grein frá Novosti eftir Ilja Baran-
ikas „fréttaskýranda" um Norður-
löndin og kjarnorkuvopnalaus
svæði.
í þessari grein er því haldið
fram, að Noregi, Danmörku og
íslandi megi á svipstundu breyta í
kjarnorkuárásarstöðvar á Sovét-
ríkin (kenning Ólafs R. Grímsson-
ar). Um ísland segir „fréttaskýr-
andinn“ samstarfsmaður Maríu og
Hauks Más hjá Novosti:
„Hvað ísland snertir, þá eru
öllum kunnar ráðagerðir um
stækkun bandarísku herstöðvar-
innar í Keflavík. Þar er ráðgert að
byggð verði þrjú flugskýli fyrir
„Fantom“-flugvélar. Þessar flug-
vélar bera kjarnorkuvopn. Það er
talið mjög sennilegt, að kjarn-
orkuvopn séu til staðar á tslandi.
Á síðast liðnu ári birtust í dag-
blaðinu „Þjóðviljinn" ljósmyndir
af hinu svokallaða Patton-svæði á
Keflavíkurflugvelli, og af þeim
mátti draga þá niðurstöðu að til
staðar væri varnarbúnaður, sem
venjulega er notaður þar sem
kjarnorkubirgðastöðvar eru.
Margir hernaðarsérfræðingar
telja og þar á meðal eru banda-
rískir, að kjarnorkuvopn séu stað-
sett á íslandi."
Langt er siðan gleggra dæmi um
lygafréttamennsku eða það, sem á
erlendum málum er nefnt „disin-
formation" og vitað er, að Sovét-
menn ástunda af miklu kappi,
hefur birst um ísland. í þessari
klausu er öllúm hefðbundnum
aðferðum lygafréttamannsins
beitt. Eins og Sovetskaja Rossyia
gerði 27. mars vitnar „fréttaskýr-
andi“ Novosti auðvitað í Þjóðvilj-
ann, þegar hann spinnur lygavef
sinn.
Kröftug
mótmæli
Ekki er að efa, að herstöðvaand- ,
stæðingar gleðjast yfir því, að með |
brölti sínu hefur þeim loks tekist
að draga athygli vina sinna í
Sovétríkjunum að áróðri sínum
hérlendis. Þeir hafa áorkað því,
sem Morgunblaðið og Tíminn vör-
uðu sérstaklega við á síðasta
sumri, að fá Sovétmenn til að taka
fremur mark á stuðningsmönnum
sínum hér en íslenskum stjórn-
völdum. „Fréttaskýrandi" Novosti
lætur þess auðvitað að engu getið í
lygafrétt sinni, hvað Ólafur Jó-
hannesson og aðrir stjórnmála-
menn íslenskir en úr röðum
kommúnista sögðu um þessi mál á
síðasta sumri. Lygafréttamennsk-
an þolir auðvitað ekki staðreyndir
og þær eru bannorð í kokkabókum
KGB. Hvernig væri, að Íslend-
ingar á launum hjá Novosti
reyndu að koma hinu sanna um
land sitt og þjóð á framfæri við
yfirboðara sína? Ólíklegt er, að
þau María Þorsteinsdóttir og
Haukur Már Haraldsson kveðji
sér hljóðs út af þessu máli, enda er
það aðalatriðið í „friðarboðskap“
þeirra, að kjarnorkuárás verði
gerð á ísland, og þau fagna því
vafalaust, að Sovétmenn eru að
fikra sig í þá átt, að þeim finnist
réttlætanlegt að gera slíka árás.
í kjarnorkuumræðunum á síð-
asta sumri hélt Ólafur Jóhannes-
son fast á málstað íslands gagn-
vart Bandaríkjastjórn til að fá í
eitt skipti fyrir öll málin á hreint.
Nú þarf utanríkisráðherra og
ráðuneyti hans að mótmæla kröft-
uglega við Sovétrikin út af lyga-
frétt, sem út er gefin á ábyrgð
sovéska sendiráðsins í Reykjavík.
„Fréttaskýrendur“ Novosti segja
ekki annað en það, sem samþykkt
hefur verið á æðri stöðum, því að
þeir eru eins og allir aðrir þegnar
Sovétríkjanna starfsmenn hús-
bændanna í Kreml. Hafi Sovét-
stjórnin skipt um skoðun síðan
Kosygin flutti ræðu sína í sept-
ember 1977, þarf að upplýsa það á
opinberum vettvangi, hvaða
ástæður liggja þar að baki. Ekki á
að láta staðar numið í mótmæla-
aðgerðum gagnvart Sovétstjórn-
inni, fyrr en fyrir liggur skrifleg
og opinber viðurkenning hennar á
því, að „fréttaskýrandi" Novosti
fari með rangt mál. Við fram-
kvæmd stefnu sinnar í þessu máli
má íslenska ríkisstjórnin ekki láta
neinn bilbug á sér finna. Eða
hefur ríkisstjórn íslands sam-
þykkt flutning kjarnorkuvopna til
landsins síðan utanríkisráðherra
gaf yfirlýsingu sína 11. ágúst
.síðastliðinn?