Morgunblaðið - 12.04.1981, Page 26

Morgunblaðið - 12.04.1981, Page 26
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? 26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981 ALÞ YÐULEIKHUSIÐ: Stjórnleysingi annað kvöld SKÓLAKÓR GARÐABÆAR: Vortónleikar í Bæjarbíói í kvöld sýnir Alþýðuleikhúsið Stjórnleysingi ferst af slysförum ok er það næst-síðasta sýninií fyrir páska. en StjórnleysinKÍnn verður einnig sýndur að kvöldi skírdags. Þar segir frá dára nokkrum sem villist í hendurnar á lögreglunni í Mílanó, en brátt má ekki á milli sjá hver hafi lent í höndum hvers, því dárinn heldur uppi sprelli miklu. Hann fær lögregluna til að trúa því að hann sé rannsóknar- dómari, sendur frá höfuðstöðvun- um í Róm. Svo slysalega vildi til nokkru áður, að stjórnleysingi sem var í yfirheyrslu á lögreglu- stöðinni flaug skyndilega út um glugga á fjórðu hæð og lét lífið og var lögreglan tví- og jafnvel þrí- saga hvernig þetta hafði getað gerst. Dárinn ákveður að rann- saka málið. Bjarni Ingvarsson hefur nú tek- ið aftur við hlutverki sínu, en Borgar Garðarsson hefur leikið það meðan Bjarni var í leikför með Pæld’íðí. Aðrir leikendur eru Þráinn Karlsson, Viðar Eggerts- son, Arnar Jónsson, Björn Karls- son og Elísabet Þórisdóttir. Eiríkur Árni við eina af myndum sínum Sýningu Eiríks Arna að Ijúka í dag lýkur sýningu Eiríks Árna Sigtryggssonar sem haldin er á vegum Hafnfirsku menningarvökunnar, og er opið í dag frá kl. 14—22. Á sýningunni sem er til húsa að Reykjavíkurvegi 66, Hafnar- firði, eru 58 olíumálverk og 10 vatnslitamyndir. Þetta er áttunda einkasýn- ing Eiríks Árna, en hann hefur starfað að tónlistar- og mynd- listarmálum á íslandi og í Svíþjóð, þar sem hann starfar nú við tónlistar- og myndlist- arkennslu. Hann var um 5 ára skeið stjórnandi karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði. Vortónleikar Skólakórs Garða- bæjar verða haldnir í Bæjarbiói í Hafnarfirði á morgun og hefjast kl. 17.15. Á efnisskránni eru alls 28 lög, mörg þeirra eftir tónskáld frá 16. og 17. öld og nokkur eftir síðari tíma tónskáld. Þá eru á söng- skránni sex íslenzk þjóðlög í útsetningu Jóns Ásgeirssonar, í dag verða haldnir tónleik- ar í Grindavíkurkirkju og hefjst þeir kl. 15. Þar mun Sigurður Pétur Bragason tenórsöngvari, Árni Róberts A. Ottóssonar og Sigur- sveins D. Kristinssonar. Loks eru á efnisskránni sjö lög frá Norður- löndum en kórinn fer í söngferða- lag til Noregs og Svíþjóðar í næsta mánuði í boði norræna félagsins í Asker og Heggedal- Barn- og ungdomskor og íslendingafélag- anna í Svíþjóð. Stjórnandi Skóla- kórs Garðabæjar er Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Sighvatsson baritónsöngvari, Haraldur Árni Haraldsson básúnuleikari og Úlrik Ólason orgelleikari flytja verk eftir ýmsa höfunda, bæði innlenda og erlenda. Pissani (Bjarni Ingvarsson) og lögreglustjórinn (Arnar Jónsson) reyna að hafa stjórn á félaga sínum Bertozzo (Viðar eggertsson). Dárinn (Þráinn Karlsson) hefur gaman af. Vorsýning Myndlist- arskólans í Reykjavík Skólakór Garðabæjar Tónleikar í Grindavíkurkirkju VORSÝNING Myndlistarskólans í Reykjavík verður opnuð í dag, og stendur hún til 20. apríl. Það er orðinn árlegur viðburður að nemendur Myndlistarskólans sýni verk sín í páskavikunni. Að þessu sinni er lögð megináherzla á módelteikningu. dúkristu og vatnsliti. Módelteikning er kennd í fjór- um deildum skólans, og eru kenn- arar Hringur Jóhannesson, Ragn- ar Kjartansson og Sigurður Þórir Sigurðsson. Dúkrista er nú sérstök deild, en var áður einungs kennd innan unglingadeildar — kennari í dúkristu er Valgerður Bergsdóttir. Vatnslitadeild tók aftur til starfa í vetur eftir nokkurt hlé en þar kennir Gunnlaugur Stefán Gísla- son. Þá hefur skólinn alla tíð lagt ríka áherzlu á höggmyndadeildir og var til skamms tíma eini skólinn á landinu er sinnti slíku. Myndlistarskólinn í Reykjavík tók til starfa árið 1947 og var þá rekinn af Félagi fristundamálara. Fijótlega var hann þó gerður að sjálfseignarstofnun og fékk styrk frá ríki og borg. Skólinn var lengst af í Ásmundarsal en haustið 1978 fluttist hann að Laugavegi 118 og var þá fyrst hægt að sinna að fullu eftirspurn eftir skólavist. Hlut- verk skólans er margþætt — hann annast fullorðinsfræðslu í ríkum mæli á ýmsum sviðum mynd- mennta og undirbýr nemendur undir frekara myndlistarnám. Þá eru barna- og unglingadeildir skólans fjölmennar. Nemendur greiða sem samsvarar 'A af rekstrarkostnaði en að öðru leyti er reksturinn fjármagnaður af ríki og borg. Kennarar í vetur eru 16 talsins en deildir 21. Skólastjóri Myndlistatskólans í Reykjavík er Katrín Briem. Kiíbönsk mynd í Regnboganum Á morgun. mánudag. hefjast i Regnhoganum sýningar á kúbönsku kvikmyndinni „Lucía“ eftir Humberto Solás. Mynd þessi var gerð árið 1968 og er 'ein þekktasta kvikmynd Kúbumanna til þessa. Hún hiaut á sínum tíma fjölda verð- launa á alþjóðlegum kvik- myndahátíðum víða um lönd. Lucía er löng mynd, sýn- ingartíminn er u.þ.b. þrír tímar. Hún er samsett úr þremur hlut- um og fjallar hver hluti um ákveðið tímabil í kúbanskri sögu. Kona er aðalpersóna í hverjum hluta, og heita allar konurnar Lucía. Hin fyrsta Lucía er uppi skömmu fyrir aldamót, og lifir frelsisstríð Kúbumanna gegn Spánverjum. Hún er af ríku fólki komin og flækist inn í atburði styrjaldar- innar vegna þess að biðill henn- ar er Spánverji, en bróðir henn- ar er í uppreisnarhernum. Næsti hluti gerist árið 1933. Enn er barist fyrir sjálfstæði Kúbu. Harðstjóra er steypt af stóli og við tekur framfarasinnuð stjórn, sem verður þó fljótlega spilling- unni að bráð. Lucía þess tíma er einnig af borgarastétt, en verður ástfangin af uppreisnarmanni og segir skilið við stétt sína til að fylgja honum. Þriðji og síðasti kaflinn gerist svo eftir 1960. Þar er Lucía alþýðustelpa, sem vill fá að læra að lesa og skrifa en fær það ekki fyrir afbrýðisömum eiginmanni, sem lokar hana inni til að hafa hana fyrir sig einan. í öllum sögunum þremur er verið að fjalla um konuna og hlutskipti hennar, þátt hennar í baráttunni fyrir betra samfé- lagi. Hverju söguskeiði eru gerð afar sannfærandi skil, bæði leikrænt og myndrænt. Leikkon- urnar þrjár, sem leika Lucíu, eru hver annarri betri: Raquel Revu- elta, Eslinda Nunez og Adela Legrá. Lucía er svart-hvít mynd, sýnd með spönsku tali og ensk- um skýringartextum. Hún verð- ur aðeins sýnd í nokkra daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.