Morgunblaðið - 12.04.1981, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
33
Tillaga Davíðs Oddssonar og Alberts Guðmundssonar í borgarráði:
Ekkert réttlætir byggð
norðan Rauðavatns
Þessar myndir voru teknar á
föstudaginn. Önnur sýnir
svæöiö norðan Rauöavatns og
sjást snjóskaflar í hálendinu,
þar sem hin nýja byggð á að
rísa samkvæmt hugmyndum
vinstri manna. Hin sýnir Breiö-
holtshverfiö og þar sést eng-
inn snjór. Breiðholtsmyndin er
þó tekin yfir noröausturhliðar
en Rauöavatnsmyndin yfir suö-
urhlíöar.
Sjö aðfínnslur Sjálfstæöismanna við skipulagshugmyndir:
Tómstundum, útivist
og friðun úthýst
„SkipulaxstillaKan «erir ráð
fyrir því að verulegur þáttur i
uppbygginKU Reykjavikur á allra
næstu árum fari fram á heiðum
uppi norðan Rauðavatns. Bornar-
ráð tclur að enn séu enitar þær
forsendur fyrir hendi sem réttlæti
að Kera ráð fyrir því svæði sem
byKKÍngarlandi fyrir Reykjavik á
næstu árum og rcyndar sé flest sem
til þess bendi að þetta svæði komi
aldrei til álita sem byggingarland
fyrir borgina. Þessum þætti tillog-
unnar er því visað frá.“
Þannig hljóðar tillaga.sem borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þeir
Davíð Oddsson og Albert Guð-
mundsson lögðu fram í borgarráði
föstudaginn 10. apríl. Flutnings-
menn rökstyðja þá skoðun sína, að
ekki beri að.„skipuleggja byggð á
heiðum uppi norðan Rauðavatns
með ítarlegri greinargerð. Er hún
hér birt í heild:
Vatnsvernd
Forsendur skipulagsins á Rauða-
vatnssvæðinu eru m.a. þær að létta
megi af þeirri vatnsvernd sem sveit-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu
hafa komið sér saman um og stað-
fest er af félagsmálaráðherra 28.
febrúar 1969. Talið var nauðsynlegt í
ágúst 1980 að setja á laggirnar
sérstakan vinnuhóp vísindamanna
til að kanna áhrif þess, að leggja
vatnsbólin Bullaugu niður sem
neyzluvatnsból, á vatnasvið Elliða-
ánna. Fram hefur komið með óyggj-
andi hætti, að þessar athuganir séu
ekki enn hafnar í raun. Því eru enn
ekki neinar forsendur þess að létta
vatnsvernd af Bullaugnasvæðinu og
setja allt neyzluforðavatnsbúr borg-
arinnar á einn stað, Heiðmerkur-
svæðið. Engar viðræður hafa átt sér
stað við nágrannasveitarfélögin sem
eru aðilar að hinu staðfesta sam-
komulagi um vatnsverndina og því
ekkert um þeirra sjónarmið vitað.
Ljóst er að vatnsvernd verður ekki
létt af nema að um það náist
samkomulag við nágrannasveitarfél-
ögin. Örugg og næg neyzluvatnsból
eru einn höfuðlandkostur hverrar
byggðar og neyðin þarf að vera mikil
til þess að réttlætanlegt geti verið að
taka einhverja áhættu í þeim efnum.
Sprungusvæði
Jarðfræðilega er Rauðavatns-
svæðið ekki rannsakað svo fullnægj-
andi sé. Þannig hafa til að mynda
ekki átt sér stað þær jarðvegs
rannsóknir sem unnar voru í sam-
bandi við undirbúning aðalskipu-
lagsins 1977 á norð-austursvæðinu.
Þó er alvarlegra, að fram hafa komið
aðvaranir þeirra jarðvísindamanna
sem gleggst þekkja til varðandi
Rauðavatnssvæðið sem gera það
óverjandi að ætla á þessu stigi að
það svæði verði það framtíðarbygg-
ingaland borgarinnar, sem grípa á
til á allra næstu árum. Vísindamenn
telja að svæðið sé eitthvert þéttriðn-
asta sprungusvæði landsins og hafa
áréttað að umfangsmiklar rann-
sóknir þurfi til að koma, áður en að
hægt sé að taka ákvörðun um að
koma byggð fyrir á svæðinu. Yfirlýs-
ingar þeirra sem að lítt athuguðu
máli kasta því fram, að vel megi
„Við borgarráðsmenn Sjálfstæð-
isflokksins fluttum á föstudaginn 8
tillögur á fundi ráðsins. þar sem
mótmælt er þeim atriðum, scm við
teljum sérstaklega ámælisverð i
skipulagstillögum vinstri meiri-
hlutans i borgarstjórn,“ sagði Dav-
ið Oddsson, oddviti borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna, þegar
Mbl. sneri sér til hans.
„Mest hefur verið rætt um Rauða-
vatnssvæðið og annmarka á því,“
byggja á svæðinu þrátt fyrir hina
miklu óvissu um sprungur og mis-
gengi sýna mikla léttúð og ábyrgð-
arleysi sem á ekki við þegar höfuð-
borg landsins tekur sínar stærstu
ákvarðanir. Ekki er verjandi að ætla
framtíðarbyggð á svæði sem er
slíkum jarðfræðilegum annmörkum
háð, þegar nægir aðrir kostir eru
fyrir hendi.
Veðuríar
Ekki er um það deilt að Rauða-
vatnssvæðið er veðurfræðilega
miklu óhagstæðari kostur sem bygg-
ingarsvæði en þeir kostir sem byggja
á því, að meðfram ströndinni verði
byggt. Fyrir utan stórkostlegt veður-
fræðilegt óhagræði, sem væntan-
legum íbúum kæmi vissulega í koll,
er ljóst að umframkostnaður borgar-
innar vegna snjómoksturs og hálku-
eyðingar yrði gífurlegur við það að
beina byggð upp í þessa hæð inn í
landinu einsog skipulagstillagan
gerir ráð fyrir. Veðurfarskort af
svæðinu sýna verulegan mun Rauða-
vatnssvæðunum í óhag og er reyndar
ljóst að veðurfar þar er mun erfiðara
en á Breiðholts- og Selássvæðum,
sem þó hefur valdið verulegum
erfiðleikum einsog alkunna er.
17 milljörðum gkr. dýrari
Fram hefur komið af hálfu gatna-
máladeildar borgarverkfræðings-
embættisins að kostnaður við að
gera Rauðavatnssvæðið byggingar-
hæft er a.m.k. 170 milljón krónum
(17 milljörðum gkr) meiri en að gera
þau svæði sem bent hefur verið á
norðaustanvið núverandi byggð.
Fram hefur komið af hálfu gatna-
deildarinnar, að þessar tölur séu
varlega áætlaðar, svo að skekkjur
sem á slíkum útreikningum kunna
að vera, séu Rauðavatnssvæðinu í
óhag.
Léttvæg mótrök
Þessir annmarkar sem að framan
eru raktir eru stórkostlegir. Það eina
sem nefnt hefur verið til mótvægis
þessum annmörkum og til að rétt-
læta tillögugerðina er að þessi svæði
séu nær núverandi byggð í Árbæ og
Breiðholti og geti sótt þangað þjón-
ustu og því þurfi ekki að koma henni
fyrir á hinum nýju svæðum, a.m.k.
ekki fyrst um sinn. Þessi mótrök eru
vissulega harla léttvæg, jafnvel þótt
þau stæðust, sem þau gera ekki. Allt
að 15000 manna byggð sem ætluð er
á Rauðavatnssvæðunum hlyti frá
upphafi að þurfa að búa við eigin
innri þjónustu. Hana gætu væntan-
legir ibúar ekki sótt um alllangan
veg yfir mestu hraðbraut landsins,
Suðurlandsveginn, yfir í Árbæjar og
Breiðholtshverfin. Skipulagsmál
borgarinnar hafa nú verið tafin um
nær þriggja ára skeið. Þær tafir
munu valda borginni óbætanlegu
tjóni. Öllu verra er þó, að með því að
gefa til kynna í aðalskipulagstillögu
að Rauðavatnssvæðið eigi að vera
aðalbyggingarkostur Reykvíkinga í
næstu framtíð, er verið að stefna
uppbyggingu borgarinnar í óefni um
langa hríð. Borgarráð hlýtur því að
grípa í taumana og koma í veg fyrir
slík mistök.
hélt Davíð áfram. „I því sambandi
hefur sérstaklega verið vakið máls á
vatnsvernd, sprungumyndun og veð-
urfari. Til viðbótar þessum alvarlegu
annmörkum er nú ljóst af fyrirliggj-
andi útreikningum frá gatnamála-
deild borgarverkfræðings, og með
samanburði á kostnaði við byggð
annars vegar uppi til heiða norðan
Rauðavatns og hins vegar meðfram
ströndinni í áttina að Korpúlfs-
stöðum, að það kostar 170 millj. kr.
(17 milljarða gkr.) meira að gera
Samhliða þvi, sem borgarráðs-
menn Sjálfstæðisflokksins lögðu
fram mótmæli sin gegn þvi, að
byggð væri skipulögð á heiðum
uppi norðan Rauðavatns, mótmæltu
þeir öðrum þáttum í skipulagstil-
lögum vinstri meirihlutans. Eru
þau mótmæli i 7 liðum og birtast
hér á eftir.
Sjónarmið hestamanna
Borgarráð samþykkir að fela
skipulagsnefnd að breyta skipulags-
tillögunni svo, að fullt tillit verði
tekið til sjónarmiða hestamanna við
afmörkun byggðar í Selási eins og
frekast er kostur. Verði í því sam-
bandi höfð hliðsjón af þeirri skipu-
lagstillögu saem skipulagsnefnd
Fáks hefur kynnt fyrir borgaryfir-
völdum, m.a. í þeim tilgangi að sjá
fyrir þeim þjónustusvæðum, sem þar
Rauðavatnssvæðið byggingarhæft
en strandsvæðið, en eins og kunnugt
er, viljum við sjálfstæðismenn, að
byggt verði við ströndina. Þessi háa
tala tekur auðvitaö ekki mið af
kostnaði við snjómokstur, hálkueyð-
ingu o.fl, sem fylgir erfiðum land-
kostum í hálendinu.
Það er þannig ekki eitt, heldur
allt, sem mælir gegn því að byggt
verði norðan Rauðavatns,* sagði
Davíð Oddsson að lokum.
er gert ráð fyrir ásamt nokkru svæði
sem geri hestamönnum kleift að
þróa þetta mikilvæga útivistar-,
tómstunda- og íþróttasvæði í fram-
tíðinni.
Golfvöllurinn
Borgarráð samþykkir að golfvöll-
urinn í Grafarholti skuli ekki skert-
ur. Er því skipulagsnefnd falið að
endurskoða tillögur sínar hvað hann
snertir, bæði varðandi ytri mörk
hans og eins varðandi þá starfsemi
sem nú er gert ráð fyrir við
vesturenda hans og er líklegt til að
þrengja verulega að honum í fram-
tíðinni.
Suðurhólar
Borgarráð samþykkir að fella
niður þær tengingar sem bersýnilega
verða til þess að Suðurhólarnir
verða gerðir að mikilli umferðaræð.
Breytir engu hvað slíkt braut er
kölluð á korti, eðli hennar er hið
sama. Þessi tenging er ekki í sam-
ræmi við áður samþykktar hug-
myndir um Breiðholtshverfin og
uppbyggingu þeirra.
Útvistarsvæði
við Árbæ
Borgarráð samþykkir að svæði í
Árbæjarhverfi meðfram Bæjarhálsi
og Hraunbæ verði ekki atvinnusvæði
eins og skipulagstillagan gerir ráð
fyrir. Svæði þetta verði einvörðungu
hugsað til útivistar eða annarra
beinna afnota íbúa Árbæjarhverfis.
Borgarráð samþykkir að láta þegar
kanna sérstaklega kostnaðinn við að
koma núverandi háspennulinum í
jörð á þessu svæði.
Friðun Elliðaáardals
Borgarráð samþykkir að vísa frá
þeirri tillögu skipulagsnefndar, sem
gerir ráð fyrir íbúða- og stofnana-
byggð við Stekkjabakka niður undir
Elliðaám. Þessi tillaga skipulags-
nefndar gengur þvert á hugmyndir
um friðun Elliðaáardals. Jafnframt
samþykkir borgarráð að gert verði
ráð fyrir því í aðalskipu-
lagstillögunni að tenging norðan
Stekkjabakka við Höfðabakkabrú
komi á skipulagstímabilinu, þvi ella
er stefnt að því að Stekkjabakkinn
verði mun meiri umferðaræð en
nokkru sinni var gert ráð fyrir.
Veikt samninKsstaða
um Kcldnaland
Borgarráð telur að skipulagstil-
lagan veiki stórkostlega samnings-
stöðu borgarinnar varðandi svonefnt
Keldnaland, enda éru tillögurnar
gerðar í samræmi við tillögur sem
ljóst var að myndu aldrei ná sam-
þykkt borgarráðs eða borgarstjórn-
ar. Því felur borgarráð skipulags-
nefnd að miða skipulag á þessu
svæði við hagsmuni borgarinnar,
sbr. tillögu borgarstjóra frá 23.
janúar sl. um málefni Keldna.
Aðfinnsla skipulags-
stjórnar ríkisins
Fram hefur komið í skipulags-
nefnd að fulltrúi skipulagsstjórnar
ríkisins telur að tillögur skipulags-
nefndar varðandi skilgreiningu at-
vinnuhúsnæöis í íbúðarhverfum og
jafnframt varðandi tengibrautir
gatnakerfis brjóti í bág við þá
reglugerð sem skipulagsstjórn ríkis-
ins starfar eftir og séu því ekki
hæfar til samþykkis. Felur borgar-
ráð skipulagsnefnd að bæta úr þess-
um annmörkum, áður en hún sendir
tillögurnar til endanlegrar staðfest-
ingar í borgarstjórn.
Davíð Oddsson um skipulagstillögur vlnstrí manna:
170 milljón króna auka-
kostnaður við Rauðavatn