Morgunblaðið - 12.04.1981, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
t
Útför sonar okkar og bróöur,
ÞÓRDAR PÁLS HARÐARSONAR,
Furugrund 10, Kópavogi,
sem lést sunnudaginn 5. apríl á Barnadelld Landspítalans, veröur
jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Bára Þóröardóttir, Höröur Sveinsson,
Magnea Ingigerður Harðardóttir.
t
Elskulegur sonur okkar og bróöir,
GUNNAROLAFSSON,
Hraunbæ 13,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. apríl kl.
10.30 f.h.
Guöríóur Jónsdóttir,
Jóna Ólafsdóttir,
Ólafur Gunnarsson,
Hafdís Ólafsdóttir.
I
t
Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaöir,
GUÐFINNUR ÞORBJÖRNSSON,
Víöimel 38,
veröur jarösunginn frá Neskirkju á morgun, 13. apríl, kl. 13.30.
Marta Pétursdóttir,
Vigdís Guöfinnsdóttir, Loftur J. Guöbjartsson,
Pétur Guöfinnsson, Stella Sigurleifsdóttir,
Þorbjörn Guðfinnsson.
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
OLGA
andaöist í Landspítalanum 7. apríl. Útför hennar fer fram fró
Dómkirkjunni miövikudaginn 15. apríl kl. 10.30. Jarösett veröur í
Fossvogskirkjugaröi.
Gunnar Árnason og börn,
Grundarstíg 8, R.
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem velttu okkur
ómetanlega hjálp og auösýndu okkur samúö og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar,
GUNNARS H. STEFÁNSSONAR
flugumferóarstjóra.
Þóra Ólafsdóttir,
Ólafur Gunnarsson,
Anna María Gunnarsdóttir,
Stefén Gunnarsson,
Vigdís Gunnarsdóttir,
Þóra Rósa Gunnarsdóttir.
t
Útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
JÓNS BERGMANNSJONSSONAR
fré Litla-Langadal,
fer fram frá Breiöabólstaöarkirkju á Skógarströnd, þriöjudaglnn
14. apríl kl. 14.00.
Sigurfljóó Jónsdóttír,
Margrét Jónadóttir,
Þorleifur Jónsson,
Guómundur Jónsson,
Jón Jónsson,
Ingunn Jónsdóttir,
ögmundur Sigurðsson,
Siggeir Björnsson,
Jakob Jónason,
Guöríóur F. Guöjónsdóttir,
Olafía Þorsteinsdóttir,
Oddur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
RAGNA MATTHÍASDÓTTIR
fré Holti,
Ljósheimum 20, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunnl í Reykjavík, þrlöjudaginn 14.
apríl kl. 3 e.h.
Ragnheiður Indrióadóttir,
Bírgir Indrióason,
Baldvin Jóhannesson
og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afl,
JÓN B. BENEDIKTSSON,
Skipholti 28,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaglnn 14. apríl kl.
16.30.
Blóm vinsamlega afþökkuö.
Sigríður Björnsdóttir,
Björn Ómar Jónason,
Friörik Jónsson,
og barnabörn.
Sólveig Jónsdóttir,
Kristbjörg Þóröardóttir,
Sigrún Guómundsdóttir
Guðfinnur Þorbjörns-
son - Minningarorð
Fæddur 11. janúar 1900.
Dáinn 4. apríl 1981.
Einn þeirra manna er uppi hafa
verið hér á landi og lengi mun
minnst að öllu góðu, er Guðfinnur
Þorbjörnsson, forstjóri. Hann féll
frá 4. apríl sl. eftir mjög erfiða
sjúkdómslegu. Guðfinnur hefir
orðið mörgum manni harmdauði
fyrir sakir mannkosta og góðrar
viðkynningar.
Er skarð fyrir skildi. Hinn
ógleymanlegi velgjörðarmaður
minn átti þann höfuðkost góðra
kennara, að geta vakið hjá nem-
endum sínum lifandi og varan-
legan áhuga á námsgreinum
þeirra.
Auk margs annars má undirrit-
aður minnast Guðfinns með
þakklæti fyrir góð áhrif, hlýja
vináttu fyrr og síðar.
Guðfinnur Þorbjörnsson var
fædcjur í Víðinesi á Kjalarnesi,
finimtudaginn 11. janúar 1900.
Hétu foreldrar hans, hjónin, Þor-
björn Finnsson frá Álftaóf, Dyr-
hólahr. V-Skaft. og Jónína Jóns-
dóttir frá Helliskoti í Mosfells-
sveit.
Mannsefni hið bezta mun Guð-
finnur þegar hafa þótt á uppvaxt-
arárunum. Hann stundaði nám í
járnsmíði hjá Guðmundi járn-
smíðameistara Jónssyni í Reykja-
vík 1920—23 og í Iðnskólanum s.á.
Vélstjórapróf 1925. Vélstjóri á
togurum 1925—26, síðan undir-
vélstj. á e.s. Esju (1) til ág. 1928.
Rak verkstæði á Eskifirði 1928—
30, síðan aðstoðarmaður hjá Gísla
Jónssyni skipaeftirlitsm. 1930—
34. Verkstjóri í Vélsm. Héðni
1934—39. Stofnandi Vélsm. Keilis
hf. og forstjóri þar 1939—1947.
Verksm.stj. S.R. á Siglufirði
1948—50 og á Ingólfsfirði 1951.
Einn af stofnendum Verkstjórafél.
Þórs og Meistarafél. járniðnað-
arm. í Reykjavík.
Vélsmiðjan Keilir var fyrst til
húsa á Nýlendugötunni, en flutti
síðan inn á Gelgjutanga, er þótti
langt út úr borginni, þar vildi
hann stofna Skipanaust, en því
miður, annarleg öfl í stjórnmálun-
um stöðvuðu málið. Guðfinnur
hannaði og teiknaði af mikilli
framsýni fyrsta stálbátinn á ís-
landi, ennfremur má minnast á
+
Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÁSLAUGAR I. ÁSGEIRSDÓTTUR,
Langageröi 2,
fer fram frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 14. apríl kl. 3 e.h.
Jarösett veröur í Hafnarfiröi.
Hafdis Gísladóttir, Gísli Þór Gíslason,
Ingibjörg S. Gísladóttir, Sveinbjörn Óskarsson
og barnabörn.
+ Móöir okkar og tengdamóöir,
ANNA MARÍA GÍSLADÓTTIR,
Lönguhlíö 25,
andaöist í Landspítalanaum 10. apríl.
Karitas Guömundsdóttir, Þóra Hannesdóttir,
Guöjón A. Guömundsson, Gunnar Magnússon,
Borghildur Guömundsdóttir, Kristín G. Fenger, Geir Fenger.
t
Hjartans þakkir til allra þelrra sem auösýndu samúö og hlýhug
vegna andláts konu minnar
KRISTÍNAR BJÖRNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarllös Vífilsstaöaspítala fyrir
góöa umönnun.
Guö blessi ykkur ötl.
Péll Þorgilaaon.
+
Hjartkær dóttir mín, systir og mágkona,
MARGRÉT KARLSDÓTTIR,
Granaskjóli 27,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þrlöjudaginn 14.
apríl kl. 13.30.
Kristjana Baldvinsdóttir,
Sígríóur Karlsdóttir, Júlí Sæberg,
Kriatjana Sæberg,
Grétar Karlsson,
Haraldur Karlsson,
Hreiðar Karlsson,
Karl Sæberg,
Elísabet Björnsdóttir,
Ingibjörg Arnadóttir,
Elín Gestsdóttir.
Lokað frá hádegi
mánudaginn 13. apríl vegna jaröarfarar Jóns Þ.
Árnasonar framkvæmdastjóra.
Fiskifélag íslands.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 81960
davíðurnar, útbúnaðinn til varð-
veizlu bátsins Gísla Johnsen
björgunarbáts Slysavarnafél. ís-
lands, þegar báturinn er ekki í
notkun.
Þeir, sem eitt sinn gjörðust
viðskiptavinir Guðfinns, hurfu
eigi frá aftur. Fékk hann strax í
upphafi starfsferils síns hið bezta
orð sem áreiðanlegur og réttlátur
maður. Fannst flestum, sem við
hann skiptu, að það að þekkja
hann og kynnast honum væri
sama og að láta sér verða vel til
hans.
Guðfinnur var frábær völundur
á tré og járn. Guðfinnur Þor-
björnsson gaf sér all-lítinn tíma
til hvíldar og næðis. Um hann
virtist enginn hafa neitt nema
gott að segja. Viðmótið veitti
tiltrú til mannsins, þegar við
fyrstu viðkynningu, ég sem þessar
línur skrifa varð þess þegar var, er
ég hóf störf hjá honum á lagern-
um í Keili hf. og síðar lærlingur
hans, að hann hafði góðan mann
að geyma.
Það var eins og hann hugsaði
gott eitt og hefði því ávallt gott
eitt að leggja til mönnum og
málefnum. Guðfinnur var maður
orðvar og fáskiptinn um annarra
hagi. Þyrfti einhver á að halda,
var hann hinn raunbezti og höfð-
ingi í lund í hvívetna. Allt gott var
hann ávallt boðinn og búinn til að
styðja með örlæti og risnu.
Guðfinnur kvæntist 27. des.
1926 Mörthu Pétursdóttir skip-
stjóra og hafsögumanns Þórðar-
sonar. Börn þeirra eru; Vigdís
húsfreyja, g. Lofti J. Guðbjarts-
syni bankastjóra við útibú Útvegs-
banka íslands Kóp.; Pétur fram-
kvæmdastj. Stjónvarps, kv. Stellu
Sigurleifsdóttur; Þorbjörn renni-
sm. ókv.
Heimilið á Víðimel 38, en það
hús reisti Guðfinnur, sérlega
vandað, snoturt og vel frá því
gengið að ðllu leyti sem bezt
mátti.
Vinum þeirra hjóna og barn-
anna var yndi að koma til þeirra, í
híbýlaprýði þeirra og dást að, en
beztar voru ávallt viðtökurnar
sjálfar og hjartalagið, hið ástúð-
legasta af allra hálfu. Sól er í hug
og hlýindi í hjarta, er ég minnist
vinar míns Guðfinns Þorbjörns-
sonar.
Guð blessi minningu hans.
Birgir Þorvaldsson
Frændi minn, Guðfinnur Þor-
björnsson, járnsmíðameistari og
vélstjóri, er látinn, og verður útför
hans gerð frá Neskirkju á morgun,
13. apríl 1981.
Guðfinnur Þorbjörnsson var
fæddur í Víðinesi á Kjalarnesi 11.
janúar 1900, og var hann því
rúmlega 81 árs, er hann lézt.
Foreldrar hans voru hjónin Þor-
björn Finnsson, ættaður frá
Alftagróf í Mýrdal og Jónína
Jónsdóttir, fsedd í Elliðakoti í
Mosfellssveit, en móðurætt sína
rakti hún austur á Síðu. Þorbjörn
Finnsson var löngum kenndur við
Ártún við Eliiðaár, en þar bjó
hann lengstum, eða frá 1906 til
1930, og þar ólst Guðfinnur upp í
foreldrahúsum fram til tvítugs-
aldurs.
Miklar og örar breytingar áttu
sér stað á uppvaxtarárum Guð-
finns í atvinnumálum þjóðarinn-
ar, einkanlega við sjávarsíðuna,
þar sem fiskiflotinn var að vél-
væðast. Fékk Guðfinnur mikinn
áhuga á þeim málum öllum og
ákvað að hasla sér völl á því sviði.