Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAI 1981 11 1. MAI VIÐA UM LAND Reykjavík í Reykjavík stendur fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík ásamt BSRB að hátíðarhöldum á alþjóðlegum baráttudegi verka- lýðsins 1. maí. Dagskráin hefst við Hlemm kl. 13.30 og er ætlunin að ganga þaðan kl. 14 niður á Lækj- artorg þar sem verður útifundur. Á útifundinum halda ræður þau Helgi Guðmundsson, formaður Menningar- og fræðslusambands alþýðu, og Elsa Eyjólfsdóttir frá stjórn BSRB og Jóna Sveinsdóttir, formaður Öryrkjabandalags Is- lands, flytur ávarp. Fundarstjóri verður Stella Stefánsdóttir frá Verkakvennafélaginu Framsókn. Á útifundinum mun Bergþóra Árnadóttir syngja og Lúðrasveit verkalýðsins og lúðrasveitin Svan- ur munu leika á fundinum sem í göngunni. Að fundinum loknum verður upplestur og harmoníkuleikur í Listaskála alþýðu að Grensásvegi 16, 3ju hæð, og þar verða veitingar á boðstólum. í kvöld klukkan 21 hefst sam- koma í veitingahúsinu Sigtúni. Þar leikur Lúðrasveit verkalýðs- ins, sýndur verður leikþátturinn „Vals“ eftir Jón Hjartarson, Berg- þóra Árnadóttir og Aðalsteinn Sigurðsson syngja, Texastríóið skemmtir, og hljómsveitin Brimkló leikur fyrir dansi til klukkan 3 eftir miðnætti. Rúllu- gjald verður á samkomu þessari. Þá mun borgarstjórn Reykja- víkur bjóða þeim sem verða 70 ára á þessu ári og eru enn starfandi í Höfða, svo sem undanfarin ár. Rauð verkalýðseining gengst fyrir kröfugöngu og útifundi 1. maí. Utifundur verður á Hlemmi klukkan 13.15 og mun dagskrá hans helguð „frelsisbaráttu al- þýðu“ í E1 Salvador, og flutt verður ávarp herstöðvaandstæð- inga. Um tvöleytið verður haldið niður Laugaveg og gengið að Miðbæjarskóla þar sem Birna Þórðardóttir flytur ræðu sína og Hjördís Hjartardóttir ávarpar fyrir hönd Rauðsokkahreyfingar- innar. Þá mun fulltrúi Iðnnema- sambandsins flytja ávarp á fund- inum, sem Hildur Jónsdóttir stjórnar. Hafnarfjörður í Hafnarfirði standa fulltrúaráð verkalýðsfélaganna þar í bæ og Starfsmannafélag Hafnarfjarðar fyrir dagskrá lsta maí. Safnast verður saman í kröfugöngu kl. 13.30 við fiskiðjuver BÚH, og þaðan verða gengnar nokkrar göt- ur bæjarins undir blæstri Lúðra- sveitar Hafnarfjarðar. Þegar kemur að Lækjarskóla verður staðnæmst og settur útifundur af Hermanni Guðmundssyni, for- manni fulltrúaráðsins. Ræður dagsins flytja þeir Grétar Þor- leifsson, formaður félags Bygg- ingariðnaðarmanna í Hafnarfirði, og Ólafur Brandsson, fulltrúi Starfsmannafélags bæjarins. Þá verður merkjasala í bænum og verða merki afhent sölubörnum klukkan 10 árdegis á skrifstofu Verkakvennafélagsins Framtiðar að Strandgötu 11. Akranes Á Akranesi standa öll verka- lýðsfélögin á staðnum fyrir hátíð- arhöldunum, sem hefjast með lúðrablæstri Lúðrasveitar Akra- ness á Akratorgi klukkan 14 og þar verður safnast saman í kröfu- göngu. Kröfugöngunni lýkur við BíóhöIIina, þar sem verður hátíð- ardagskrá fram eftir degi. Ræðu dagsins flytur Auður Guðbrands- dóttir, þá verða flutt ávörp verka- lýðsfélaganna, og ýmislegt verður til skemmtunar, svo sem einsöng- ur, hljóðfæraleikur, þáttur í ljóða- og frásögustíl o.fl. Áætlað er að dagskránni í Bíóhöllinni ljúki um hálffimmleytið. Ólafsvík Ólafsvíkingar halda 1. maí há- tíðlegan í kvöld kl. 20 í félags- heimili Ólafsvíkur. Þar mun Jón Baldvin Hannibalsson flytja ræðu, og Sigurður Björnsson og Sieg- linde Kahman syngja við undir-, leik Agnesar Löve og loks munu Ragnar Bjarnason og Bessi Bjarnason skemmta. Stykkis- hólmur í Stykkishólmi byrjuðu 1. maí hátíðarhöldin í gærkveldi með dansleik, en í dag hefur Lúðrasveit Stykkishólms leik sinn í Félags- heimilinu klukkan 15. Sturla Böðvarsson flytur ræðu dagsins, nokkur ávörp verða flutt, svo verður rifjuð upp stofnun fyrsta verkalýðsfélagsins, þá skemmtir Leikfélagið Grímnir, og Daníel Jónsson les frumsamda sögu, og einnig verður söngur. Að loknum hátíðarfundinum verður opnuð sýning í Gagnfræðaskólanum á ljósmyndum frá MFA og ber sú sýning yfirskriftina „Öryggi og hollusta á vinnustöðum". I gagn- fræðaskólanum sýnir einnig Jón Gunnarsson málverk sín. ísafjörður ísfirðingar minnast 1. maí í Alþýðuhúsinu. Þar hefst dagskrá kl. 14. Lúðrasveit tónlistarskólans leikur, og Magnús Jónsson syngur við undirleik Skúla Halldórssonar. Ræður munu flytja Rannveig Guðmundsdóttir, frá Félagi opin- berra starfsmanna á Vestfjörðum, Gunnar Þórðarson, formaður Sjó- mannafélags ísafjarðar, og Elísa- bet Þorgeirsdóttir, verkalýðsfélag- inu Baldri. Ókeypis kvikmynda- sýning verður fyrir börn kl. 17 í Alþýðuhúsinu. Siglufjörður Á Siglufirði hefst 1. maí dagskrá kl. 14 í Nýja bíói. Þar mun Benedikt Sigurðsson flytja ávarp og dixieland-sextett skemmta, kór grunnskólans á Siglufirði syngur undir stjórn Elíasar Þorvaldsson- ar og upplestur verður í höndum Önnu Magnúsdóttur. Guðmundur Þór Kristjánsson flytur ávarp, og karlakórinn Vísir mun syngja undir stjórn Guðjóns Pálssonar. Meðan á fundinum stendur verður dansleikur fyrir börn í Alþýðuhús- inu. Akureyri Hátíðardagskrá verkalýðsfélag- anna á Akureyri á 1. maí hefst kl. 13.30. Þá verður safnast saman í Þórunnarstræti við Dvalarheimil- ið Hlíð og síðan gengið inn á Ráðhústorg, þar sem verður úti- fundur. 1. maí-ávarp verkalýðsfé- laganna á Akureyri heldur Sigurð- ur P. Randversson, en ræður munu flytja Guðmundur Hjalta- son, rennismiður, Rögnvaldur Rögnvaldsson, húsvörður, og Guð- mundur Sæmundsson, verkamað- ur. Theodór Júlíusson leikari mun kynna og Lúðrasveit Akureyrar leikur í göngunni og á fundinum. Að loknum útifundinum verður kaffisala í Alþýðuhúsinu. Þá verð- ur barnasamkoma klukkan 15.30 í Sjálfstæðishúsinu, og fjölbreytt skemmtiatriði þar. Húsavík Húsavík, 30.4.1980. Svo sem fram kemur á öðrum stað í blaðinu í dag er Verkalýðs- félag Húsavíkur 70 ára um þessar mundir, en hátíðarhöldin 1. maí verða með hefðbundnum hætti. Aðalræðu dagsins flytur Ásmund- ur Stefánsson, forseti ASÍ. Lúðra- sveit Húsavíkur mun leika og Margrét Pálmadóttir og Helgi R. Einarsson syngja einsöng. Auk þessa fer Hákon Aðalsteinsson með gamanefni og Leikfélag Húsavíkur flytur leikþátt. Fréttaritari Eskifjörður Eskfirðingar byrja daginn með því að opna málverkasýningu í félagsheimilinu Valhöll þar sem sýnd verða verk úr Listasafni alþýðu, en um miðjan dag verður þar kvikmyndasýning fyrir börn. Kvöldvaka verður í félagsheimil- inu og þar flytja ræður Aðalheið- ur Bjarnfreðsdóttir og Sigríður Rósa Kristinsdóttir. Stella Hauks- dóttir mun syngja og einnig verð- ur upplestur. Að kvöldvöku lok- inni verður slegið upp balli og dansað fram eftir nóttu. Neskaup- staður Á Neskaupstað hefst 1. maí dagskráin kl. 16 með fundi í Egilsbúð. Þar verður flutt 1. maí ávarp verkalýðsfélaganna á Nes- kaupstað, nokkrar verkakonur munu syngja, Stella Hauksdóttir fer með frumsamin lög og texta, og Magnús Guðmundsson les upp. Ræðumaður dagsins verður Arn- mundur Bachmann. Keflavík og Njarðvík I Keflavík og Njarðvíkum hefst kröfuganga kl. 13.30 frá félags- heimilinu Vík með blæstri Lúðra- sveitar Tónlistarskólans í Njarð- víkum. Kröfugöngunni lýkur við Félagsbíó um kl. 14 og þá flytur Jóhanna Sigurðardóttir ræðu dagsins, og Ágúst Jóhannesson ávarp. Einnig verða flutt nokkur stutt ávörp, Karlakór Keflavíkur mun syngja, sagðar verða sögur og farið með gamanmál, Gunnar Guðmundsson leikur á harmoníku og Helgi Maronsson syngur ein- söng, fluttir verða leikþættir og karlakórinn stýrir loks fjöldasöng. Klukkan 16 verður opið hús og kaffiveitingar í hinu nýja félags- heimili Verslunarmannafélags Suðurnesja að Hafnargötu 28 og um fimmleytið fá börn ókeypis aðgang að kvikmyndasýningu í Félagsbíói. Klukkan 20.30 mun karlakórinn syngja þar og fluttur verður kabarett, en klukkan 22 hefst dansleikur í Stapa, þar sem hljómsveitin Pónik leikur. Tilboö óskast í M.S. Sigurbáru VE-249 í því ástandi sem skipið er nú í og þar sem þaö liggur í Elliðárvogi hjá Björgun h/f. Fyrir liggja tilboð í skrokkviögerð, sem hugsanlegur kaupandi getur gengiö inn í. Frekari upplýsingar gefur Björgun h/f. og þangað skulu tilboð hafa borizt eigi síðar en kl. 10.00 f.h. þriðjudaginn 5. maí 1981. Björgun h/f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.