Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, slmi 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið. Baráttukveðja r Ahátíðisdejíi verkalýðsins hlýtur athyglin að beinast að atvinnuKrundvellinum sjálfum, þeim skilyrðum, sem atvinnu- fyrirtækin búa við ojí mestu ráða um afkomu launþega. I jafn fámennu þjóðfélagi og okkar, sem á afkomu sína að langmestum hluta undir sjávarútvegi, ætti ekki að vera mjög erfitt að átta sig á því, hvers er að vænta í afkomu þjóðarbúsins. Setningin svipull er sjávarafli er í jafn miklu gildi og áður. Hins vegar höfum við íslendingar með útfærslu lögsögu okkar í 200 sjómílur á árinu 1975 treyst úrslitavald okkar sjálfra yfir dýrmætustu auðsuppsprettu þjóðarbúsins. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Til dæmis hefur þorskaflinn tvöfaldast, ef miðað er við árið 1972 og sömu sögu er að segja um aflaverðmætið. Markaðir fyrir sjávarafurðir eru góðir nú um stundir og á fyrstu mánuðum þessa árs hefur fiski verið mokað á land í mörgum stærstu verstöðvum. Stefna ríkisstjórnar Ronald Reagans í Bandaríkjunum hefur treyst stöðu dollarsins og þar með einnig aukið raunverulegt verðmæti íslenskra sjávaraf- urða. Sjávarútvegurinn býr við góðæri, engum blöðum er um það að fletta, og þegar haft er í huga, að á síðasta ári komu 75% útflutningstekna frá honum, ætti góðærisins að gæta um þjóðarbúið allt. Því miður dugar ekki að líta á þessa einföldu mynd, þegar hagur íslenskra launþega er metinn. Þar kemur fleira til en flest er það á valdsviði okkar sjálfra. Svartsýnin, sem setur svip sinn á viðhorf manna til þjóðarhags, er ekki með öllu ástæðulaus. Þar ræður mestu úrræðaleysi stjórnvalda. Síðustu áform þeirra í efnahags- málum staðfesta, að ekki er fyrir hendi nein framtíðarstefna. Hið eina, sem ráðherrar fást við, er að finna ráð til að leika á vísitöluna, krukka í kaupið með einum eða öðrum hætti. Það er tímanna tákn til dæmis, að verkalýðsfélögin í Hafnarfirði skuli setja fram kröfuna um samningana í gildi í tilefni 1. maí 1981, þegar tæp þrjú ár eru liðin frá því að þeir menn komust til valda, sem náðu meirihluta með þessa kröfu á vörunum. Vísitöluleikur stjórnvalda felst bæði í því að rýra kjör manna og öryggi launþega með því að þrengja að atvinnufyrirtækjunum. Viðureignin við verðbólguna byggist á því að setja fyrirtækjum afarkosti með verðlagshöftum. Skuggalegasta afleiðing efnahags- stefnu Margaretar Thatchers er hið mikla atvinnuleysi í Bretlandi. Breska stjórnin hefur þrengt að atvinnurekstrinum með því að takmarka peningaframboð. Samhliða atvinnuleysinu hefur dregið úr verðbólgunni og þar er ekki um það deilt, að útrýming verðbólgunnar sé varanleg. Fréttir frá Bretlandi benda til þess, að ýmsir telji nú ljósglætu við sjónarrönd. Samkeppnishæfni fyrir- tækja hafi batnað, framleiðsla muni aukast á heilbrigðum grundvelli og þar með atvinnutækifæri. Um þessar spár skal ekkert fullyrt hér, en því er þessi mynd dregin upp, að aðför ríkisstjórnar dr. Gunnars Thoroddsens að atvinnufyrirtækjum með beitingu verðlagsákvæða kann auðveldlega að hafa sömu áhrif og stefna Margaretar Thatchers á atvinnustigið. Sá er þó hinn mikli munur, að í Bretlandi er ekki verið að safna í neitt verðbólgulón, eins og gert er með verðstöðvuninni hér. Öllum er ljóst, að hvorki með lögregluvaldi né öðrum ráðum, sem núverandi stjórn lætur sér til hugar koma, er unnt að mynda nægilega öflugan stíflugarð við verðbólgulónið, fyrr en síðar kemur verðhækkanaskriðan af fullum þunga og þá verða þeir verst úti, sem minnst mega sín. Sé þjóðarbúinu skipt í þrennt: launþega, atvinnufyrirtæki og ríkishítina, og metið hverjum þessara þremenninga hefur verið hlíft í átökunum við verðbólguna, blasir ótvírætt við, að þar er hlutur ríkishítarinnar bestur. Ríkisforsjármennirnir, sem landinu ráða, sjá til þess, að aðgerðir þeirra bitni sem minnst á óskabarni þeirra, ríkishítinni. Það er svo sannarlega tími til þess kominn, að launþegar og atvinnufyrirtæki verði sett á gullstólinn. Um leið og það yrði gert, myndi athyglin beinast frá misjafnlega haldlitlum félagsmálapökkum til raunverulegra verðmæta, sem launþegar sjálfir hefðu til eigin ráðstöfunar. Sjálfsbjargarviðleitnina má ekki drepa niður með lamandi afskiptum ríkishítarinnar. Fjöldi vinnufúsra handa eykst ár frá ári hér á landi. Mikilvægt er, að hver hönd fái verkefni við sitt hæfi og bæti eigin hag og þjóðarinnar í heild með starfi sínu. Góðærið í sjávarútveginum nú um sfllndir á að vera okkur hvatning til að sækja fram á nýjum sviðum. Orkuframkvæmdir og stóriðja í tengslum við þær, þar sem mannshugurinn sigrast á náttúrunni til sveita eins og hann hefur gert til sjávar, eru verðugustu verkefni stórhuga manna í íslenskri samtíð. Það er tímanna tákn, að afturhaldssemi kommúnista ræður þar ferðinni á æðstu stöðum. Á síðum Morgunblaðsins í dag kynnast lesendur þess viðhorfum fólksins, sem er bakhjarl átaksins í atvinnulífinu. Fátt er því og þjóðinni í heild hættulegra en tilbúnir múrar, sem reistir eru af atvinnumálsvörum, mönnum, sem hafa framfæri sitt af því að segja til skiptis — eftir því hverjir sitja í ríkisstjórn — að nú sé allt gott og blessað eða að fara fjandans til. Þegar úr þeim vef er greitt, kemur í Ijós heilbrigt og skynsamlegt viðhorf borgara þessa lands, sem vilja sækja fram í krafti eigin dugnaðar en ekki undir pilsfaldi þeirra, sem taka ríkishítina fram yfir manngildið. Byltingin í Póllandi mun leiða til eins konar „Finn landiseringar“ landsins * - segir tengiliður Samstöðu, sem staddur er á Islandi Innrás Sovét- ríkjanna þýddi stríð og langt, blóðugt hernám Jakuh Swieciciki á fundi með hlaðamönnum á Ilótel Borg i gær. staða Póllands yrði smám saman svipuð stöðu Finnlands, það er innanríkismál væru að mestu eða öllu leyti í höndum Pólverja sjálfra, en á alþjóðavettvangi yrðu litlar breytingar. í Póllandi sagðist hann búast við að yrði einsflokks kerfi, þar sem í stað núverandi kommúnistaflokks kæmi lýðræðislega upp byggð hreyfing eða flokkur. Fjölflokka- kerfi sagði hann á hinn bóginn ekki vera í augsýn í landinu, þó ekki væri hægt að segja hvað gerðist í framtíðinni í þeim efnum, fremur en öðrum. Sagði hann pólskan almenning og leið- toga Samstöðu telja óraunhæft að ætla að slíta sambandinu við Sovétmenn. Slíkt myndu þeir aldrei leyfa, enda væru slíkir hagsmunir á ferðinni að Sovét- ríkin stæðust ekki missi Pól- lands. Benti Swieciciki meðal annars á herflutninga um Pól land til Austur-Þýskalands í þessu efni, einnig á hina efna- hagslegu heild sem Pólland væri hluti af í Austur-Evrópu og fleiri atriði. Lýðræðið í landinu sagði hann þó ald>-ei geta þróast í þá átt að kapítalískt þjóðskipu- lag yrði í landinu. Ástæða þess væri að engir kapítalistar væru fyrir hendi, menn ættu ekki þann auð til að geta rekið fyrirtæki og hugtök á borð við verkamenn sem andstæðu vinnuveitenda gætu því ekki komið upp í landinu. „BYLTINGIN í Póllandi, núverandi ástand er bylt- ingarástand, mun að okkar mati leiða til nokk- urs konar „Finnlandiser- ingar“ Póllands, þar sem stjórnarfarið innanlands mun færast í frjálsræðis- átt, en staða landsins á alþjóðavettvangi og af- staðan til Sovétríkjanna verður óbreytt,“ sagði Jakub Swiecisiki, félagi í KOR í Póllandi og tengi- liður við Samstöðu á Norðurlöndum, á blaða- mannafundi í Reykjavík í gær. Swieciciki mun dvelja hér á landi í nokkra daga, taka þátt í fyrsta maí-hátíðahöldun- um og hitta ýmsa aðila að máli ok skýra þjóðfélags- þróunina í Póllandi und- anfarna mánuði. Swieciciki hefur verið búsett- ur í Svíþjóð síðan árið 1973, en á blaðamannafundinum í gær kvaðst hann hafa ferðast oft til Póllands síðan. Ekki hefði verið lagt bann eða hömlur á ferðir hans fyrr en siðastliðið haust, en þá var honum synjað um farar- leyfi til heimalands síns vegna ólgunnar sem þá var að koma upp á yfirborðið í landinu. Swi- eciciki kvaðst því ekki hafa verið í heimalandi sínu síðan fyrir verkföllin í fyrra, þó hann hefði fylgst náið með því sem hefur gerst. Swieciciki sagðist vilja taka það fram að hann væri ekki talsmaður hinna óháðu verka- lýðsfélaga, þó þau hefðu veitt honum heimild til að skýra málstað þeirra á Vesturlöndum. En yfirlýsingar gæfi hann ekki fyrir hönd Samstöðu. Swieciciki var á fundinum spurður um álit á síðustu frétt- um frá Póllandi, um breytingar og brottvikningar á æðstu stöðum í kommúnistaflokknum. Sagði hann þessar breytingar athyglisverðar og óvenjulegar í stjórnkerfi Austur-Evrópu, en hann kvaðst á hinn bóginn ekki telja þær ýkja mikilvægar, eða að mannaskiptin sem slík hefðu mikil áhrif. Mun athyglisverðari væri sú þróun sem nú yrði æ greinilegri, að breytingar á stjórnkerfinu kæmu neðan frá, frá hinum almenna borgara. Hann sagði kosningar þegar hafnar til þings kommúnista- flokksins í sumar, og krafa um breytingar þar myndi koma „að neðan", en ekki frá forystu- mönnum í flokknum. Að þessu leyti væru atburðirnir gjörólíkir atburðunum í Tékkóslóvakíu 1968, er forysta kommúnista- flokksins hafði forystu um breytingar á stjórnarfarinu í landinu. Swieciciki var nánar spurður út í fullyrðingu hans, um að ástandið í Póllandi væri „bylt- ing“. Sagði hann ekki hægt að kalla atburðina þar öðru nafni, nú væri verið að umbylta þjóð- félaginu, ekkert yrði eins og áður, á hvern hátt sem lyktir yrðu. Innrás Sovétríkjanna, sem vissuléga væri raunhæfur mögu- leiki, gæti ekki einu sinni fært ástandið til fyrra horfs. Því væri sama hvað gerðist, ekki yrði um sama þjóðféiag að ræða í Pól- landi framvegis og var fyrir verkföllin og myndun Samstöðu. Byltinguna sagði hann vera án ofbeldis, og sagði hann ekki líklegt að það breyttist. Innrás Sovétmanna myndi þó að sjálf- sögðu breyta því í stríðsástand. Swieciciki sagðist hafa trú á því að pólski herinn snerist gegn innrás Sovétmanna, pólskir her- menn væru eins og annað fólk í landinu, andvígt afskiptum Sov- étríkjanna af innanlandsmálum. I æðri stöðum innan hersins sagði hann að vísu menn hlið- holla Sovétmönnum, en það dygði varla til að snúa hernum gegn pólsku þjóðinni. Því yrði stríð í landinu kæmi til innrásar, ólíkt því sem varð í Tékkóslóv- akíu 1968. Hernám Sovétríkj- anna, sem fylgdi í kjölfar inn- rásar, sagði hann einnig myndu verða erfitt og blóðugt, og lík- lega myndu Sovétmenn ekki finna neina Quislinga til að taka við stjórnartaumunum líkt og í Ungverjalandi 1956 og Tékkó- slóvakíu eftir innrásina 1968. „Innrás Sovétríkjanna myndi leiða til stríðs og síðan langrar, blóðugrar hersetu," sagði Swiec- iciki. Þó hann segðist ekki hafa trú á að Sovétríkin ryddust inn í landið, ítrekaði hann að það væri ekki útilokað. Vissulega væri ljóst að Sovétríkin ættu mikið á hættu ef þau gerðu innrás, en jafnframt yrði að hafa í huga að þau ættu einnig mikið á hættu ef þau hefðust ekki að. Nú væri vegið að því kerfi, sem byggt hefði verið í Austur-Evrópu í kjölfar byltingarinnar 1917, og erfitt væri fyrir Rússa að sætta sig við það. Sem fyrr segir sagðist hann þó halda að þróun- in héldi áfram án innrásar, og Um þessar mundir sagði hann miklar umræður fara fram í Póllandi um á hvern hátt bæta megi efnahagslífið, sem sé í molum. Sagði hann þessar um- ræður einkum beinast að auknu lýðræði í stjórnun fyrirtækj- anna, auk þess sem hver starfs- maður beri aukna ábyrgð á rekstri þeirra. Að sumu leyti mætti líkja þessu við efnahags- kerfið í Júgóslavíu og Ungverja- landi, sem um margt væri á annan veg skipulagt en annars staðar í Austur-Evrópu. Þar hefðu þó einnig komið fram ýmsir gallar sem ekki dygði að taka upp í Póllandi óbreytta. Pólland sagði Swieciciki vera gjaldþrota ríki, sem yrði að fá aðstoð frá Vesturlöndum. Þaðan yrðu lán að koma, af þeirri einföldu ástæðu að Sovétríkin ættu ekki fé aflögu handa bandalagsþjóðum sínum. Talið barst einnig að leiðtoga Samstöðu, Lech Walesa. Swiecic- iki sagði hann vera mann sem hafist hefði af sjálfum sér, og að hann hefði hvorki mikla reynslu né skólamenntun. Hann væri hins vegar fæddur leiðtogi, með einstaka hæfileika, og dag frá degi bætti hann við sig mikilli reynslu er gerði hann hæfari til þess að stjórna verkalýðsfélög- unum. Ekki sagðist hann hafa trú á því að Walesa yrði ríkis- leiðtogi Póllands. Vald hans væri þó um margt meira en æðstu manna ríkisins, en jafn- framt háð allmiklum takmörk- unum. Swieciciki sagði í lokin, að þegar óigunnar varð fyrst vart í Póllandi, og áður, hafi hann ekki haft neina trú á því að núverandi staða gæti komið upp. Slík hefði þó orðið raunin, og ef til vill ættu fjölmörg önnur atriði eftir að breytast, svo sem varðandi stjórnarfarið og stöðu Póllands meðal þjóða heimsins. Ekki hefði hann þó trú á því, og það væri ekki það sem Samstaða stefndi að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.