Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 17

Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 17 Verðlaun Skákþings tslands voru afhent í hófi á Hótel Esju sl. miðvikudagskvöld. Hér má sjá nýbakaóan íslandsmeistara, Helga ólafsson, með hinn veglega bikar. sem sæmdarheitinu fylgir. Ljósm. Kristján. Fundum Hafréttarráðstefnunnar lokið: Bandaríkjamenn urðu að láta í minni pokann Sameiginlegur sigur Norðmanna og íslendinga ef samkomulag næst um Jan Mayen-svæðið isbaráttu okkar sé lokið,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson að lok- um. Levnisamningur Dana og Þjóðverja um þorsk- veiðar við A-Grænland? HREZKIR sjómenn halda því fram, að Danir og V-Þjóðverjar hafi gert leynilegan samning um þorskveiðar Þjóðverja við Aust- ur-Gramland. Sjálfir vilja Bretar fá að taka þátt i þessum veiðum. en þeim hefur verið ráðlagt að leggja ekkert til þessara mála að sinni. í viðtali við danska blaðið Jyl- landsposten neitar Karl Hjort- næs, sjávarútvegsráðherra Dan- merkur, því að slíkur leyni- samningur sé til og segir, að við Austur-Grænland stundi Þjóð- verjar alls ekki ólöglegar veiðar. Þýzki togaraflotinn náði ekki að veiða það magn af þorski, sem hann hafði leyfi til, segir Hjört- næs. — Þegar þorskkvótinn var ákveðinn var kveðið á um að veiðunum skyldi ljúka tiltekinn mánaðardag. Um slíka tímasetn- ingu var hins vegar ekki að ræða þegar þorskkvótinn var aukinn. Nákvæmlega er fylgst með veiðum Þjóðverja við Grænland og auk þess hafa Grænlendingar gefið í skyn, að þeir muni aðeins ná að veiða um eitt þúsund tonn af þeim þúsund tonnum, sem EBE heimil- aði að veiða við A-Grænland, þannig að þá eru 2 þúsund tonn eftir, segir Hjörtnæs. Bretar halda því fram, að Þjóð- verjar stundi ólöglegar veiðar við A-Grænland eins og þeir gerðu fyrir réttu ári síðan. Þá veiddu þeir grimmt á þessum slóðum og seldu aflann til Bretlands, en Bretar hafa ekki heimild til að veiða á þessum miðum. í Fishing News segir, að 14 dögum eftir að Þjóðverjar áttu að vera horfnir af Grænlandsmiðum, hafi verið þar 12 þýzkir togarar. Bretarnir vilja fá leyfi til þorskveiða á Græn- landsmiðum og hafa farið fram á það við Peter Walker, sjávarút- vegsráðherra, að hann beiti sér í málinu. Walker telur hins vegar ekki heppilegt að leggja fram slíka kröfu meðan fiskveiðistefna EBE hefur ekki verið mótuð. Saumastofan Höttur hættir rekstri SAUMASTOFAN Ilöttur í Borg- arnesi. sem er eign Samhands islenzkra samvinnulélaga. hefur sagt upp öllum starfsmönnum sinum. 13 að tölu. og ha'ttir rekstri eftir tvo mánuði. Að sögn Hjartar Eiríkssonar, framkvæmdastjóra iðnaðardeild- ar SIS hafa rekstrarerfiðleikar fyrirtækisins verið miklir í tölu- verðan tíma, en saumastofan hef- ur sérhæft sig í saumun úr ofnum dúk. Hjörtur sagði að yfir stæði athugun á, hvort kaupfélagið í Borgarnesi gæti yfirtekið sauma- stofuna, en litlar líkur virtust á að svo gæti orðið. .A SÍÐASTA degi New York- fundarins drógu Bandaríkja- menn i land og féllust á, að framhaldsfundur i Genf i ágúst fengi þau vcrkefni, sem New York-fundinum voru ætluð, en áður höfðu þrir reynt að koma i veg fyrir frekari fundarhöld fyrr en á næsta ári. Standa því vonir til að ráðstcfnunni geti lokið i haust meö gerð hafréttarsátt- mála.“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á ráðstefnunni, i viðtali við Mhl. Hann sagðist telja það sameiginlegan sigur íslendinga og Norðmanna. ef samkomulag na-ðist um sameiginlega nýtingu hafsbotnsins á Jan Mayen-svæð- inu. Sá samningur gæti líka orðið fordæmi við lausn deilunnar um Itockall-sva'ðið, þar sem íslend- ingar, Færeyingar, Bretar og írar þyrftu að semja sin á milli. „Fulltrúar fjölmargra þjóða réðust harkalega að Bandaríkja- mönnum, er þeir reyndu að koma í veg fyrir að störfum Hafréttar- ráðstefnu S.Þ. lyki á þessu ári. Þegar Bandaríkjamenn sáu að þeir voru nánast einangraðir sam- þykktu þeir, að framhaldsfundur yrði haldinn í Genf í ágúst, þar sem reynt yrði að ljúka ráðstefn- unni, enda höfðu þeir áður sagt, að stjórnvöld í Bandaríkjunum þyrftu „nokkra mánuði" til að skoða málin og marka sér stefnu. Þrátt fyrir lélegan og leiöinlegan fund ríkti því bjartsýni í lokin, en allt til síðasta dags höfðu margir óttast að ráðstefnan mundi splundrast, því að mikill hiti var undir niðri í mönnum. Ekkert það gerðist á fundinum, sem bent gæti til að íslenzkum hagsmunum væri hætta búin, enda er nú mest deilt um hafs- botninn utan 200 mílna efnahags- lögsögunnar. Þar eigum við auð- vitað mikilla hagsmuna að gæta á svæðinu vestur af Rokknum og a Reykjaneshrygg, en til hans gera þó engir aðrir tilkall en við. Aftur á móti telja Færeyingar, Bretar og írar rétt sinn mikinn á Rockall- hásléttunni, þar sem við eigum hagsmuna að gæta. Ef miðlína réði mundum við t.d. fá allan vestasta hlutann eða Hatton- bankann. Ef sanngirnissjónarmið mundu mestu ráða mætti e.t.v. semja um sameign fjögurra svæða að þessu svæði eða sameiginlega hagnýtingu, og þá gæti samkomu- lag við Norðmenn um hafsbotninn á Jan Mayen-svæðinu orðið for- dæmi, sem mikla þýðingu hefði og stuðlað að því að tengja nágranna- þjóðirnar traustari böndum, bæði efnahags- og stjórnmálalega. Nú verður því að einbeita kröft- unum að lausn Rockall-málsins, en bæði Færeyingar og Bretar hafa fallist á viðræður um málið og væntanlega myndu írar einnig gera það, enda gætu hatrammar deilur leitt til þess, að enginn fengi neitt, heldur yrði um alþjóð- legt svæði að ræða. Það er því mesti misskilningur að landhelg- Erlendir ökuþórar í heimsókn í júní: Sýna akstur á tveimur hjólum BRESKIR. bandarískir. sænskir og hollenskir ökuþórar og ofur- hugar munu í næsta mánuði sýna listir sinar á Mclavellinum i Reykjavík, en þar er um að ræða sýningarflokkinn „Ilell Drivers". Verður m.a. sýndur akstur á tveimur hjólum á hílum. vélhjóla- kappar stökkva langar leiðir og einnig eru hilar látnir hendast milli stökkbretta. Einnig munu trúðar koma við sögu. Steve Eriksson heitir breskur forráðamaður sýningarflokksins og var hann hér á ferð nýlega og ræddi undirbúning og framkvæmd sýningarinnar við Véladeild SÍS og Kvartmíluklúbbinn, sem koma við sögu. Steve Eriksson sagði hópinn koma til landsins með Smyrli í júní og sýna í Reykjavík dagana 12. til 14. júní, en 16. og 17. júní verður sýnt á Akureyri. Taka 15 manns þátt í sýningunum með 10 bílum og 2 vélhjólum. Flokkur- inn kemur hingað eftir sýningar- ferð um England, Skotland og írland, en heldur síðan til Fær- e^yja. í fyrravetur sýndi hópurinn í Ástralíu og mun næsta vetur sýna á Nýja-Sjálandi, en hér er um atvinnumenn að ræða, þ.e. flokk- urinn starfar að sýningum og æfingum allt árið. Deilurnar í Myndlista- og handíðaskólanum: „Hefur ekki rétt til að gera slíkar breytingar án samráðs við ráðherra“ - segir Ingvar Gíslason menntamálaráðherra „MIG LANGAR ekki til að standa i stórdeilum við Einar Hákonarson. skólastjóra. en hins vegar finnst mér, að ef það er tilfcllið að hann ætli sér. án nokkurs samráðs við mig, að gera þessar róttæku breytingar á stjórn skólans þá eru það stjórn- araðferðir, sem ég tel ekki til fyrirmyndar og ekki aðeins það, heldur er þetta alveg andstætt lögum og venjum. Hann hefur ekki rétt til þess að gera slikar breytingar án þess að samþykki mcnntamálaráðhcrra liggi fyrir,“ sagði Ingvar Gislason menntamálaráðherra i viðtali við Mbl. i gær, en hann var spurður álits á deilum skólastjóra og nemenda Myndlista- og handiða- skóla tslands. Þá sagði Ingvar að honum væri alls ókunnugt um af hverju þessar deilur hefðu komið upp og að sér hefði ekki verið gerð grein fyrir málinu. „Ég er ekkert að hafa á móti því að Einar geri tiilögur um það að breyta skólanum en ég vil að það sé gert með réttum leið- um,“ sagði Ingvar að lokum. Þá hefur Mbl. borist fréttatil- kynning frá nemendafélagi Mynd- lista- og handiðaskólans og segir í henni að hún sé tilkomin vegna fréttar í Mbl. fimmtudaginn 30. apríl. Fer fréttatilkynningin orð- rétt hér á eftir: „Við viljum hér með leiðrétta nokkur atriði í viðtali við Einar Hákonarson sem birtist í blaðinu umræddan dag. 1. Þátttaka í verkfallinu var algjör og er alltof vægt til orða tekið að „nemendur MHÍ mættu margir hverjir ekki til kennslu í gær“, þátttaka nemenda var 100%, þannig að ekki var um neina kennslu að ræða. 2. Þá lætur Einar Hákonarson að því liggja að deildin hafi verið stofnuð á vafasömum forsendum, hið rétta er að deildin var á sínum tíma stofnuð með fullu samþykki skólastjóra og liggja fyrir því skjalfestar heimildir, þ.e. fundar- gerðir o.fl. E.H. hefur aftur á móti ekki séð ástæðu til að fara eðlilega leið í þessu máli, hann hefur neitað að ræða þetta mál í skóla- stjórn eða viljað gera almennum nemendafundum nokkra grein fyrir málinu, þrátt fyrir marg- ítrekaðar tilraunir nemenda og kennara. Þann 28. apríl síðastlið- inn var haldinn almennur fundur þar sem komu nemendur, skóla- stjórn og kennarar. Á þessum fundi átti að gera úrslitatilraun til að fá E.H. til að ræða málið við nemendur og skólastjórn. E.H. neitaði alfarið að mæta á fundinn. Skólastjórn er skipuð 8 kennur- um, 2 nemendum og skólastjóra. Af þeim sex kennurum sem tóku til máls á fundinum var aðeins einn sem studdi ákvörðun skóla- stjóra. Því má ljóst vera að mjög víðtæk andstaða er meðal kennara gegn skólastjóra í þessu máli. Andstaðan er algjör meðal nem- enda. Ennfremur hefur ráðherra staðfest að E.H. hafi farið út fyrir valdsvið sitt og starfsaðferðir hans séu skólanum síst til fram- dráttar."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.