Morgunblaðið - 01.05.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981
25
Halldór Jónsson, verkfræðingur:
„Nú skyldi ég hlægja.
66
Á aðalfundi Flugleiða á dögun-
um lýsti Sigurður Helgason for-
stjóri athyglisverðri staðreynd:
Á meðan ríkið leggur 700 millj-
ónir gkr. í félagið sem hlutafé til
að bjarga því að sagt er, fyrirskip-
ar það 860 milljóna tap á innan-
landsfluginu af því að ríkið er í
vísitöluleik.
Flestum almenningi þætti þetta
broslegt ef ekki fáránlegt revíu-
kennt. Ef þetta væri ekki háalvar-
legt mál.
Hvernig aflar ríkið fjár? Með
því að taka það af þegnunum.
Mest með ofbeldi og helvítis hót-
unum. Einnig með blíðuhótum og
fortölum, svo sem útgáfu verð-
tryggðra spariskírteina, skreytt-
um með vöxtum og happdrættis-
vinningum, öðru nafni kaupauk-
um, sem það refsar öðrum fyrir að
lofa. Verðbæturnar og stofnféð,
svo og enska lánið 2017, eiga
ókomnar kynslóðir að greiða.
Er það móralskt verjandi að sóa
föðurarfi hinna ómáiga og ófæddu
í taprekstur á borð við innan-
Bridge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Síðustu keppni vetrarins, sem
var þriggja kvölda tvímenning-
ur, er lokið. Alls tóku 12 pör þátt
í keppninni og urðu úrslit þessi:
Guðmundur Þorbjörnsson —
Rut Pálsdóttir 505
Sigurrós Sigurjónsdóttir —
Zophanías Benediktsson 500
Jóhann P. Sveinsson —
Theodór A. Jónsson 491
Sigurður Björnsson —
Lýður Hjálmarsson 471
Pétur Þorsteinsson —
Vilborg Tryggvadóttir 454
Meðalárangur 440.
Mánudaginn 4. maí verður
frjáls spilamennska og verð-
launaafhendingar fyrir keppnir
vetrarins. Þá verður boðið upp á
kaffi.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 7. maí hefst
þriggja kvölda tvímennings-
keppni hjá félaginu. Veitt verða
vegleg peningaverðlaun (nýkr.)
og er þetta jafnframt síðasta
keppnin hjá TBK að þessu sinni.
Spilarar tilkynni þátttöku sína
hjá Sigfúsi Erni Árnasyni í síma
71294 eða Sigfúsi Erni Sigur-
hjartarsyni í síma 44988. Spilar-
ar mætið í Domus Medica kl.
19.30 stundvíslega. Allir spilarar
velkomnir.
Bridgefélag
kvenna
Þann 13. apríl var spiluð
fyrsta umferð í hraðsveita-
keppni hjá Bridgefélagi kvenna,
með þátttöku 15 sveita. Spilað
verður fimm kvöld. Að aflokinni
keppni fyrsta kvöldið voru þess-
ar sveitir efstar:
Kristjana Steingrímsdóttir 602
Sigríður Ingibergsdóttir 546
Anna Lúðvíksdóttir 544
Gunnþórunn Erlingsdóttir 529
Unnur Jónsdottir 522
Eftir aðra umferð sem spiluð
var 27. apríl er staða efstu sveita
á þessa leið:
Kristjana Steingrímsdóttir 1155
Sigríður Ingibergsdóttir 1077
Gunnþórunn Erlingsdóttir 1064
Unnur Jónsdóttir 1042
Alda Hansen 1041
Meðalskor eftir tvær umferðir
er 1008 stig.
Bridgedeild Barð-
strendingafélagsins
Mánudaginn 27. apríl lauk 3
kvölda Barometerkeppni (24
pör).
Urslit:
Helgi — Gunnlaugur 213
Ragnar — Þórarinn 140
Hróðmar — Haukur 119
Gísli — Jóhannes 103
Magnús — Þorsteinn 78
Kristinn — Einar 74
Jósef — Guðmundur 74
Sigurður — Edda 72
Ragnar — Eggert 54
Einar — Þröstur 18
Hreyfill - BSR -
Bæjarleiðir
Tveimur umferðum af þremur
er lokið í æsispennandi tvímenn-
ingskeppni hjá bílstjórunum.
Spilað er í tveimur 12 para
riðlum og er staða efstu para
þessi:
Guðjón Guðmundsson —
Hjörtur Elíasson 256
Ellert Ólafsson —
Gísli Sigurtryggvason 254
Cyrus Hjartarson —
Daníel Halldórsson 251
Jón Magnússon —
Skjöldur Eyfjörð 250
Aðalsteinn Stefánsson —
Hrafnkell Björnsson 250
Jón Sigurðsson —
Vilhjálmur Guðmundsson 250
Guðmundur Jónasson —
Örn Ingólfsson 248
Sigurleifur Guðjónsson —
Sveinn Kristjánsson 240
Næst verður spilað á mánu-
daginn í Hreyfilshúsinu og hefst
keppnin kl. 20.
Bridgedeild Skag-
firðingafélagsins
Eins kvölds tvímenningur var
spilaður sl. þriðjudag og spiluðu
14 pör.
Urslit urðu þessi:
Erlendur Björgvinsson —
Sveinn Sveinsson Óli Andreasson — 184
Sigrún Pétursdóttir Kristinn Gústafsson — 183
Þorsteinn Þórðarson Björn Eggertsson — 175
Gestur Pálsson Hjalti Kristjánsson — 175
Ragnar Hjálmarsson Guðrún Hinriksdóttir — 167
Haukur Hannesson Gróa Jónatansdóttir — 166
Kristmundur Halldórsson 163
Þriðjudaginn 5. maí verður
einnig spilaður eins kvölds
tvímenningur í Drangey og hefst keppnin kl. 19.30.
landsflug, þörungavinnslu, Þórs-
hafnartogara, Olíumöl hf. o.s.frv.
Gilda engin siðferðislögmál þegar
opinber fjármál eru annars vegar?
Skiptir í raun engu hversu með er
farið?
Enn er blásið í lúðra algerlega
hertrar niðurtalningarverðstöðv-
unar. Nú eiga allir að gjöra allt úr
engu eins og drottinn sjálfur og
allar ár skulu renna uppí móti ef
Thoroddsen og allaballinn býður.
Ritstjóri Þjóðviljans, Kjartan
Ólafsson, bankaráðsmaður í Iðn-
aðarbankanum, sambanka iðnrek-
enda, iðnaðarmanna og almennins
lýsir aðgerðunum svo í ritstjórn-
argrein 27.04.1981: „Ákvæði hins
nýja lagafrumvarps er ætlað að
bæta úr þessu og ætti að geta
komið að góðu gagni í baráttu við
þann braskaralýð, sem stærsta
sök ber í okkar verðbólgumálum."
Þá vita áðurtaldir sjálfstæðir
atvinnurekendur hvað þeir heita í
hugskoti bankaráðsmannsins,
Kjartans Ólafssonar.
í sjálfu sér má Kjartan hugleiða
það, að ýmsir þeirra sem hann
„smyr“ á þennan orðprúða hátt,
geta, ef út í það er farið, sjálfsagt
rifjað upp ýmis kjarnyrt lýsingar-
og nafnorð um kommúnista frá
götustráksárum sínum ef það
þætti þjóna einhverjum tilgangi
að öskra niður aðra götustráka.
„Fleiri kunnu að láta drepa menn
en Sturla einn,“ mælti Jón Lofts-
son til Hvamms-Sturlu er ofsi
hans keyrði um þverbak. Skipaðist
Sturla nokkuð við þessi tilmæli.
Ekki hafa menn þó þau kynni af
Kjartani að ástæða sé að jafna
honum til Sturlu.
En snúum aftur að innanlands-
fluginu. Hversvegna þarf ríkis-
stjórnin að verðleggja innanlands-
flug þannig, að meira tap verði á
því en það björgunarfé nemur,
sem ríkissjóður er látinn leggja
því til? Hversvegna getur ríkið
ekki látið nægja almenn fyrirmæli
um að innanlandsflug skuli rekið
með 0%, 5% eða 10% tapi og láta
síðan stjórn Flugleiða um að
ákvarða fargjaldið? Hví geta
sömu aðferðir ekki dugað Verð-
lagsstofnun almennt án yfirverð-
lagsstýringar allsherjarrekstrar-
sérfræðinganna í Stjórnarráðinu?
Eru þessir menn svo gjörsneyddir
stærðfræðiskilningi, að þeir geti
ekki skilið, að afskipti þeirra af
verðlagsmálum eru verðbólgu-
hvetjandi? Sjá þeir ekki að 10%
hækkun á verði í byrjun árs gefur
sömu tekjur yfir heilt ár og engin
hækkun fyrstu 6 mánuðina en
20% hækkun seinni 6 mánuðina,
aðeins leiðir síðari leiðin til hærra
verðlags í árslok en fyrra dæmið?
Er ekki samvinnuhreyfingin
trygging fyrir lágu vöruverði? Eða
er Hagkaup líklegra? Við síðustu
verðstýringartilraunir þessa
framsóknaráratugs, er gott að
rifja upp árangurinn: Fyrir laun-
þega; 10% kauphækkun en 1000%
taxtahækkun. Fyrir alla; krónan
fallin úr 87 kr/$ í 670 kr/$ og
dugar vist ekki til. Það hlýtur að
hafa geisað heimsstyrjöld á Is-
landi allan þennan tíma, þó friður
hafi verið sagður ríkja í ná-
grannalöndunum, svo ströng efna-
hagsstjórn með aðhaldi, festu,
niðurtalningu og verðlagshöftum
hefur orðið að ríkja þar, meðan
aðrar þjóðir bjuggu við markaðs-
kerfið eitt. Er það í þágu launþega
og atvinnuöryggis þeirra, burtséð
frá lagahliðinni, að þvinga fyrir-
tæki í taprekstur? „Ja, nú skyldi
ég hlæja væri ég ekki dauður,"
sagði karlinn, hugsar maður í
tilefni nýja frumvarpsins. Lifi
snilli stjórnspekinga vorra og inn-
blásna málgagn sósíalisma, verka-
lýðshreyfingar og þjóðfrelsis,
Þjóðviljinn. Án traustrar útlistun-
ar á spjöldum málgagnsins verður
erfitt fyrir alþýðu að skilja að
kjararýrnun sé kjarabót, sem
fengist hafi í sléttum skiptum
fyrir samningana í gildi.
29. april 1980,
TRS-80 á Islandi
Getum nú útvegað beint frá framleiðanda hinar vinsælu TRS-80
örtölvur
Model II
• 32 eöa 64K. 1—4 diskdrif 8", (500K hvort).
• Tenging viö prentara o.fl. Skermúr 80x24.
• Afkastamikil og fjölhæf.
• Hentar vel meðalstóru fyrirtæki fyrir rekstrar-,
birgða- og launabókhald o.fl. o.fl.
(TiGnmCDFOraCDrmilIBBKBHI
rora<aEUB(Be>»rŒ3____;
Model III
• 4—48K. Segulband eöa 1—4 diskdrif (175K hvort).
• Tenging viö prentara og fl. Skermur 64x16.
• Er nýkomin á markaöinn.
• Hentug til kennslu, rekstrar margvíslegra fyrirtækja,
félagasamtaka, stofnana o.fl. o.fl.
Model I
• Level I 4K. Level II 4—48K.
• Segulband eöa 1—4 diskdrif.
• Tenging viö prentara o.fl. Skermur 64x16.
• Sú sem strax í upphafi „sló í gegn“ og stendur enn
í fremstu röö.
• Einn af mörgum kostum hennar er að hægt er aö
byrja smátt og ódýrt en bæta viö eftir þörfum.
Lit tölva
• 4—16K segulband.
• Tenging, prentari, leikstjórnartæki o.fl.
• Skermur 32x16.
• Sérstaklega fyrir alls konar leiki, auk þess heimilis-
tölva.
Vasa örtölvan
• 1—9K segulband.
® 24 stafa fljótandi kristalsskermur.
• Á stærö víö súkkulaöipakka.
• Getur tekið á móti allt aö 250 Ifna forriti. Geymir forrit
þótt slökkt sé á henni. Tilbúin forrit á segulböndum
fáanleg.
Yfir 1500 forrit á segulböndum og diskettum
(eingöngu gerö fyrir TRS-80) eru fáanleg á
sviöi verzlunar, allskonar viöskipta, félags-
mála, vísinda, fyrir lækna, verkfræöinga,
lögfræðinga o.fl. auk margvíslegra leikja og
kennslu í skólum og heimanámi.
Allar leiöbeiningar fyrir kennara og vinnubæk-
ur fyrir nemendur.
lándij
Radw/haeK
Laugavegi 168, Reykjavík. Sími 18055.