Morgunblaðið - 17.05.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ1981
M/s Akranes, stærsta
skip flotans, afhent
NÝTT skip bættist i islenska kaupskipaflotann 15. mai sl., þegar
Nesskip tók vió nýju skipi m/s Akranes i Hamborg. M/s Akranes er
4834 rúmlesta bulk-flutningaskip með samtals 7500 tonna burðargetu.
Akranesið er stærsta skip íslenzka flotans, nokkru stærra en Selnes,
sem Nesskip gerir ennfremur út.
Skipið er byggt hjá Lúrssen
Werft í Vestur Þýskalandi, undir
eftirliti Det Norske Veritas, árið
1979 en á árinu 1977 var sett ný
aðalvél í skipið og það lengt og
endurbætt.
Fjögur lestarrými eru í skipinu,
samtals 386.000 rúmfet að stærð
og eru botnar lestanna sérstaklega
styrktir til þungaflutninga og los-
unar með gröbbum en skipið er
búið fjórum 7 tonna gröbbum til
losunar.
A stjórnpalli eru öll venjuleg
siglingatæki til langsiglinga.
Sjálfvirkni og aðvörunarkerfi er
fyrir allan vélbúnað skipsins svo
vélarrúm getur verið mannlaust í
16 klst. á sólarhring og því engin
næturvarðstaða i vélarrúmi á sigl-
ingu.
Kaupverð skipsins er 21,5 millj-
ónir íslenskar krónur. Skipið er
sérstaklea útbúið til siglinga upp
skipastigana miklu til vatnanna í
Kanada og til flutninga á járn-
blendimálmi í lausu formi.
I sinni fyrstu ferð mun skipið
lesta fullfermi af járnblendimálmi
frá verksmiðju Elkem Spigerverk-
*
Islenzk framleiðsla:
et í Bremanger og Salten í Noregi
og flytja það til Eire upp á
vatnasvæði Kanada, en fara þarf
17 skipastiga frá sjófleti í Mont-
real.
M/s Akranes mun aðallega
verða í flutningum milli hafna
erlendis en getur auk þess farið í
hráefnisflutninga fyrir íslenska
Járnblendifélagið ef með þarf en
félagið hefur þá flutninga á sinni
hendi.
Skipstjóri á m/s Akranesi er
Gunnar Magnússon og yfirvél-
stjóri Haraldur Sigfússon.
Nesskip gerir nú út fimm flutn-
ingaskip, Suðurland, Vesturland,
ísnes, Selnes og Akranes en sam-
anlögð burðargeta þessara skipa
er 20.800 tonn. Hjá félaginu starfa
nú 100 manns til sjós og lands.
Nafn fermingar-
barns féll niður
í LISTA yfir fermingarbörn i
Ólafsfirði, em fermast eiga í
dag, féll niður nafn Sigurgeirs
Svavarssonar, Hlíðarvegi 67.
Símalás sem aðskilur
útlend og innlend samtöl
ÞEGAR beint símasamband komst á milli íslands og útlanda
var ekki hægt að setja lás á simtöl til útlanda nema að loka
einnig fyrir samtöl milii landshluta innanlands. Mörg
fyrirtæki og einstaklingar vildu hins vegar hafa möguleika
til þess að hafa lás á samtölum til útlanda, en opið fyrir
innanlandssamtöl og nú hafa fyrirtækin Rafis og Rafagna-
tækni lokið hönnun á símalás sem er lás sérstaklega til
útlanda eða fyrir innanlandssamtöl og einnig er hægt að
læsa sima til ákveðinna svæðisnúmera innanlands.
Verið er að undirbúa fram-
leiðslu á tækinu innanlands og
mun þriðji aðilinn annast sam-
setningu og viðhald, en gert er
ráð fyrir að verð á tæki fyrir
hverja línu verði um 1500 kr.
Þá mun hægt að smíða sér-
staklega tæki fyrir skiptiborð
með mörgum línum og lækkar
kostnaður þá verulega. Sam-
kvæmt upplýsingum Stefáns
Guðjohnsen hjá Rafís verður
símalásinn kominn á markað
Leiðrétting
í Morgunblaðinu í gær, þar sem
skýrt var frá því að Ragnar
Ragnarsson héraðsdýralæknir í
Norðausturlandsumdæmi, taki við
rekstri Dýraspítala Watsons, er
sagt að þetta muni vera fyrsta
sinni, sem dýralæknir starfi
sjálfstætt á íslandi. Þetta mun
hins vegar ekki rétt, þar sem
Kirsten Henriksen dýralæknir
hefur um árabil starfað sjálfstætt
í Reykjavík.
INNLENT
fyrir haustið, en Póstur og sími
mun annast uppsetningu á
tækjunum, sem eru ekki mikil
fyrirferðar.
68 málverk
á uppboði
Klausturhóla
SEXTÍU og átta málverk verða
boðin upp á Hótel Sögu á
þriðjudaginn á uppboði Klaust-
urhóla.
Meðal verka, sem boðin
verða upp, eru olíumálverk
eftir Gunnlaug Scheving, Jón
Engilberts, Jón Stefánsson, Jó-
hannes Geir, Barböru Árna-
son, Þorvald Skúlason, Svein
Þórarinsson, Emil Thoroddsen,
Tryggva Magnússon, Jóhannes
Kjarval, Alfreð Flóka, Pétur
Eirík, Sigurð Sigurðsson, Vet-
urliða Gunnarsson og Guð-
mund Einarsson.
Myndirnar verða til sýnis í
dag, sunnudag, hjá Klaustur-
hólum milli klukkan 14 og 18.
I
vertíðaricMs
líta menn í kringum sig eftir staö til hvíldar og
skemmtunar, feröalögum til merkra staöa —
einhverri tilbreytingu frá amstri vetursins.
ALLT ÞETTA FÁIÐ ÞIÐ Z _ . f
í VORFERDUM ÚTSÝNAR TIL: f #f f ff
Mallorca «. Júgóslavíu
Lignano
Sabbiadoro
— Gullna ströndin
Gisting ( Luna Residence -
íbúðir, bjartar og rúmgóöar.
Brottför 22. maí — 3 vikur
Brottför 29. maí — 2 vikur
50%
afsláttur
fyrir börn
innan 10 ára.
MALLORCA
— Palma Nova
Gísting í hlnu glæsilega íbúðar-
hóteli PORTONOVA.
Brottför 27. maí — 3 vikur.
PORTOROZ
— Höfn rósanna
Gististaöir: Hótel Roza, Hótel
Slovenija meö hálfu/fuílu fæði.
Brottför 29. maí — 2 eða 3 vikur.
Hagstæðustu ferðakaup
JÚGÓSLAVÍA
ELDRI BORGARAR
Feröaskrifstofan Útsýn efnir til hópferöar fyrir eldri borgara til
PORTOROZ í Júgóslavíu 29. maí nk. í 3 vikur. Dvalist verður á Hótel
ROZA með fullu fæði — fyrsta flokks hótel.
Verö kr. 7.800.-
(Greiðsluskilmálar).
Sérstakur fararstjóri og hjúkrunarfræöingur veröa í feröinni. Ferðin
er opin eldri borgurum — 60 ára og eldri — úr öltum sveitarfélögum
landsins, meöan pláss leyfir.
PORTOROZ er fornfrægur heilsuræktarstaöur vegna hins frábæra
loftslags — aldrei of heitt — notaleg golan gælir viö líkamann.
Heilsuræktarþjónustan í Portoroz er mjög góö og hafa margir fengiö
bata viö gigt og öörum kvillum, sem hrjá okkur hér í skammdeginu.
Fjölskrúöugt mannlíf — skemmtilegir útiveitingastaöir, þar sem dansað
er öll kvöld undir stjörnubjörtum himni í heitri hafgolunni.
sumarsins
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17,
símar 20100 og 26600.
Okkar kjörorð:
Það besta er ódýrt í Utsýnarferð