Morgunblaðið - 19.07.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1981
35
Aðalfundur Samtaka psoriasis
og exemsjúklinga:
Þarf að f jölga ferð-
um á heilsustöðvar
AÐALFUNDUR Samtaka psori-
asis- ok excmsjúklin«a á íslandi
var haldinn 14. mai síðastliðinn.
Segir meðal annars í fréttatil-
kynningu af fundinum, að félagið
hafi sent 20 manna hóp tvisvar á
ári til heilsustöðvar á Lanzarote
undanfarin tvö ár. Hafi þessi
lækningaraðferð reynst mörgum
mikil heilsulind, en fjölga þyrfti
ferðum þangað, svo fleiri geti
komist. Segir ennfremur, að sam-
kvæmt samþykkt Tryggingaráðs
séu þessar ferðir ókeypis fyrir
sjúklinga, enda ákaflega mikil-
vægur þáttur í baráttunni við að
halda sjúkdómnum í skefjum.
Stjórninni var falið að velja tvo
menn í stjórn Rannsóknarsjóðs,
sem stofnaður var á vegum sam-
takanna árið 1975 og stuðlar að
rannsóknum og menntun lækna
varðandi psoriasis, og tilnefndi
hún þá Pál Guðmundsson og Gísla
Kristjánsson, en af hálfu gefenda
Sléttuhreppsfé-
lagið á ísafírði:
Hópferð í
Fljótavík
Sléttuhreppsfélagið á ísafirði
efnir til hópferðar i Fljótavík á
Ströndum 24. tii 27. júli nk.
Ölium er heimil þátttaka.
Lagt verður af stað föstudaginn
24. júli kl. 10 árdegis með Fagra-
nesinu frá höfninni á ísafirði. í
förinni verða fararstjórar sem
kunnugir eru á þessum slóðum.
Farið verður í göngu- og kynnis-
ferðir í umhverfi Fljótavíkur.
Dvalið verður í tjöldum og verður
fólk sjálft að hafa með sér útbún-
að.
Átak:
Bréf send
til velunnara
samtakanna
STJÓRN Átaks hefur sent öllum
stofnfélögum og velunnurum
samtakanna bréf með áskorun og
hvatningu um að efla nýstofnaða
Átaksdeild i Útvegsbankanum og
stuðla þannig að framgangi
þeirra áhugamála, sem samtökin
berjast fyrir.
Megintilgangur Átaks er:
Að starfrækja sérstaka upplýs-
ingaþjónustu og ráðgjöf fyrir þá
sem erfiðlega gengur að ná áttum
í fjármálakerfi nútíma þjóðfélags,
aldraða og sjúkra.
Að lána fé til hinna ýmsu aðila,
er berjast við áfengisvandamálið.
Að lána fé til einstaklinga, sem
alkóhólismi og sjúkdómar hafa
leikið illa, í því skyni að hraða
þeim til sjálfsbjargar á ný.
Að veita námslán þeim, er
stunda nám og huga að störfum
við áfengisvandamálið.
Að veita lánafyrirgreiðslu í því
skyni að fjölga atvinnutækifærum
fyrir alkóhólista og aðra sjúkl-
inga.
var Eiríkur Ásgeirsson valinn í
stjórn sjóðsins.
Aðalfundurinn samþykkti til-
lögu um styrk til Ellenar Mooney,
læknis í Atlanta í Georgíu, vegna
fyrirhugaðrar rannsóknarstarf-
semi hennar hér á landi. Ellen
hyggst kanna útbreiðslu á psorias-
is meðal íslenskra barna.
Ný stjórn var kosin á fundinum
og fráfarandi formaður, Gísli
Guðmundsson, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Núverandi stjórn
skipa: Valdimar Ólafsson formað-
ur, Gísli Kristjánsson varafor-
maður, Páll Guðmundsson ritari,
Örn Marinósson gjaldkeri, Ágústa
Haraldsdóttir meðstjórnandi.
Varamenn: Erna Arngrímsdóttir,
Unnur Ágústsdóttir. Endurskoð-
endur: Ásgeir Ásgeirsson og Guð-
jón Guðjónsson.
Frá afhendingu sjónvarpstækisins. Frá vinstri:
Gróa Sigurðardóttir og Björk Bjarkadóttir.
Ásgeirsson, Jóna
Gáfu sjónvarp
fyrir kvenfanga
Akureyri, 16. júli.
FÉLAGASAMTÖKIN Vernd hafa
gefið kvennafangelsinu á Akureyri
iitsjónvarpstæki af Hitatchi-gerð
og notið til þess fjárstuðnings
nokkurra aðila i Reykjavik.
Tvær konur úr stjórn Verndar,
Jóna Gróa Sigurðardóttir og Björk
Bjarkadóttir, afhentu tækið í gær í
lögreglustöðinni á Akureyri, en
Ólafur Ásgeirsson varayfirlögreglu-
þjónn þakkaði fyrir hönd fangelsis-
yfirvalda.
Tækinu verður komið fyrir, þar
sem kvenfangar geta notið þess, sér
til fróðleiks og dægrastyttingar.
—Sv.P.
Náttúrulækninga-
félag íslands:
Sænskar mat-
ráðskonur
til starfa
DAGANA 20. júlí til 3. ágúst
verða hér á landi á vegum
Náttúruiækningaféiags ís-
iands, tvær matráðskonur, sem
starfa á sænsku náttúrulækn-
ingahæii er nefnist Föilingegár-
den og er skammt frá Óster-
sund í Svíþjóð.
Matráðskonurnar munu starfa
á matstofu Náttúrulækningafé-
lags íslands vikuna 20.—27. júlí
og m.a. halda kvöldnámskeið í
matreiðslu jurtafæðis.
Jafnframt er í ráði að starf-
andi læknir á Föllingegárden
komi til landsins í september og
mun hann halda fyrirlestra fyrir
almenning á meðan hann dvelst
hér.
Aflinn skiptirekld mestu máli.
Ánægjan fylgir með í ferðinni!
ÍSLANDSREISA
íslandsreisur Flugleiða eru sumarleyíislerðir
innanlands íyrir íslendinga. Nútíma ierða-
mcrti. Flogið er til aðaláíangastaðar og ferða-
mannaþjónusta notuð, rétt eins og þegar
(arið er til útlanda.
SJÓSTANGAVEIÐI
Það þarf enginn að láta sér leiðast í íslands-
reisu Flugleiða. Möguleikamir sem fást með
Reisupassanum eru fjölmargir. Þú fœrð flug-
ferð, gistingu og t.d. bflaleigrubíl á sérstöku
verði. Svo geturðu íarið í skoðunar- og
skemmtiferðir, hvort sem þú ferð til Húsavíkur,
Homaf jarðar eða Reykjavíkur. Ein vinsœlasta
afþreyingin er sjóstangaveiði. Á Húsavík, til
dœmis. er haegt að fara til sjóstanga-
veiða með skemmtilegum bátum,
en aðeins 10 mínútna sigling
er á fengsœl íiskimið. Þar er
aflinn að visu ekki aðal-
atriðið, heldur ánasgjan.
Góð útivist við fjöruga sjóstangaveiði er holl
fyrir unga sem aldna.
REISUPASSINN
Flugmiðinn í íslandsreisumar nefnist Reisu-
passi. Hann veitir eiganda sinum aðgang að
ýmis konar þjónustu á sérstöku verði. Reisu-
passa er hœgt að kaupa til Akureyrar. Egils-
staða, Homafjarðar. Húsavíkur, Ísaíjarðar,
Sauðárkróks, Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
Ef millilenda þarf í Reykjavík er gefinn 50%
afsláttur af fargjaldi þangað.
DVALARTÍMI
Lágmarksdvöl í íslandsreisu er 4 dagar, nema
Reykjavík þar sem lágmarksdvöl er 6
dagar. Hámarksdvöl er aftur á
móti 30 dagar í öllum tilfellum.
gildistíminn er til l .október
nœstkomandi.
FLUGLEIÐIR
AK.l.YSINHASIMINN KR:
22480
ÓSA