Morgunblaðið - 19.07.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.07.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1981 45 Úr Eyjafirði Jakob Ó. Pétursson, Peli. orti á)?ætar stökur og eru hér teknar nokkrar upp úr Visnabálki hans. Kveða óð af miklum móði menn og fljóðin góð. Andans gróður á í sjóði okkar ljóða-þjóð. Þetta er ein af mörgum ágætum stökum sem Peli, Jakob Ó. Pétursson, kastaði fram í Vísnabálki, sem hann skrifaði um áratugi í íslending. Jakob var einn af prúðustu blaðamönnum landsins á sinni tíð, drengilegur í mál- flutningi og jafnvígur í sókn og vörn. Ekki man ég til þess, að honum hafi verið brigzlað um að fara með rangt mál. íslendingur var á ritstjóraárum hans með þjóðlegu yfirbragði og ótaldar voru þær greinar, þar sem hvatt var til ræktarsemi við tunguna eða rifjaðir upp fróðleiksmolar úr sögu lands og lýðs. Jakob Ó. Pétursson átti mikið vísnasafn og hafði náið samband við fjölmarga hagyrðinga og skáld, enda ágætur hag- yrðingur sjálfur og stökur hans lands- fleygar margar hverjar. I Vísnabálki rakst ég á þessa fallegu braghendu: Blessuð lóan syngur sætt og segir „dýrðin". Það var hennar þakkargjörðin þegar hún kom í Eyjafjörðinn. Bragi Jónsson frá Hoftúnum kallar þessa stöku „Ferðalok til Eyjafjarðar": Leið til norðurs lokið er lyndi glatt því hlýt ég. Alltaf birtir yfir mér Eyjafjörð þá lít ég. Þankabrot Jóns í Grófinni voru jafnan skemmtileg í ritstjóratíð Jakobs. Þar segir frá broti úr þulu, sem rifjaðist upp, er vinstri stjórnin féll í upphafi jólaföstu 1958, — og þótti spásögn um þá atburði og lýsa stjórnmálaástandinu: Hver er kominn úti? Björn á brotnu skipi. Hvað vill hann Björn? Biðja um nálar. Hvað er um nálar? Sauma að segli. Hvað er að segli? Slitið af veðri. Hvað gerðirðu af nálunum sem ég fékk þér í fyrragær? Ég fékk Haka bróður. Og hvað gerði Haki bróðir af? Hann kastaði út á miðjar götur og sagðist skyldi brenna á baki þeim sem ætti. í Þankabrotum Jóns í Grófinni var út frá því gengið, að Haki bróðir væri kommúnistarnir. Vel gætu hagir menn enn í dag fundið líkingu með þessari gömlu barnaþulu og ástandi þjóðmála. Eitt sinn kom Peli í sumarleyfi sínu til Vopnafjarðar í einstöku blíðviðri, „þar sem ríkti sól yfir sundum og blámi fjallanna blasti við, hvert sem litið var. Á fellsbrúninni ofan við kauptúnið varð honum þessi vísa af munni: Yfir bæinn allan sést, út um sæ og gjögur, seiðir á daginn sumargest sveitin ægifögur." Það hefur legið vel á Pela, þegar hann sagði: Orka vaknar ei hjá mér unga snót þótt finni. Lítið var, — en lokið er lífshamingju minni. Hér er gamall húsgangur: Handakuldi heimi í hefur mig gert pína. Virða mikils verð ég því vettlingana mína. Hannes Pétursson skáld orti um verð- launahestinn Blesa á Sauðárkróki: Þegar Blesi þýtur hjá þyrlast mold og steinar bresta. Allir vildu eiga ’ann þá Orminn langa, — meðal hesta. Um ríkisstjórnina orti Nói árið 1958: Finnst mér vera af flestu sneitt fornar dyggðir víkja á nú stjórnin ekki neitt eftir til að svíkja? Engin kelda er svo breið eða botnlaust díki að hún hopi hót úr leið og henni framhjá víki. Sitt hún heldur sama strik situr fast við stýri, þar er ekki á horfi hik hindrar ei fen né mýri. Guttormur J. Guttormsson segir í Kanadapistli: Ég átti ekki stélfrakka í eigu til en aðeins þelstakk og hettu, að etja við helblakkan hríðarbyl á heimsins Melrakkasléttu. Hér eru svo þrjár Pelavísur: Ég er orðinn ýmsu vanur, alltaf get því sofið rótt, þótt hvítur hrafn og svartur svanur sitji um mig hverja nótt. Annar hugsar helzt um það, hvort ei mætti linna því, sem hinn er alltaf að ætla manni að vinna. Enn hefur skálkur á þér níðzt, er það gömul saga. Mikið er, hve mörgum líðst mannsins hrygg að naga. Ekki verður meira kveðið að sinni. Halldór Blöndal. Nú, í byrjun áratug-P^ arins, er sívaxandiieftirspurn eftir bílum með lífgandi og þó einfaldan svip, sem eyða litlu án þess fórnað sé öryggi eða aksturs- hæfni. Nýju ISUZU Gemini bílarnir fullnægja þessum kröfum að öllu leyti. Þeireru stílhreinir og nýtískulegir í útliti, loftmótstaða enlítil, og hægt er að velja um 1584 cm eða 1817 cm vél með ofanáliggjandi knastás. Og þetta er ekki það eina Nýju Geminibílarnir eru búnir ýmsum nýjlmgum, sem auðvelda aksturinn og gera hann skemmtilegri. Að ekw'i sé minnst á fallega innréttingu og frábært útsýni. Komið og reynsluakið Gemini! A rmúla 3 Reykiavík Sími38 900

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.