Morgunblaðið - 02.09.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
5
Sænsk-finnskur gesta-
leikur í Þjóðleikhúsinu
tJr „Konurnar á Niskavouri“, sænsk-finnska gleðileiknum sem
Þjóðíeikhúsið tekur til sýninga nú næstu helgi.
FYRSTA sýning Þjóðleikhússins
á þessu leikári verður næstu
helgi, þegar Sænska leikhúsið i
Helsinki kemur i fyrsta skipti
með gestaleik til íslands. Leik-
húsið kemur með alþekktan
finnskan gamanleik, „Konurnar
á Niskavouri“ eftir finnsku
skáldkonuna Hellu Woulijoki.
Leikurinn verður fluttur á
sænsku.
Hella Woulijoki er í hópi þekkt-
ustu rithöfunda Finna og meðal
annars kunn af samstarfi við
Bertholt Brecht, en það var frá
henni sem hann fékk hugmyndina
að leikritinu um Puntila og Matta.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Sænska leikhúsið í Helsinki kem-
ur með gestaleik til íslands, en ein
þekktasta leikkona hússins, May
Pihlgren, var gestur Þjóðleikhúss-
ins og Norræna hússins fyrir
tveimur árum.
Ýmsir þekktustu sænskumæl-
andi leikarar Finna taka þátt í
þessari sýningu. í hópnum eru 27
manns með leikhússtjórann Dr.
Carl öhman í broddi fylkingar;
leikstjórinn, Kaisa Korhonen, og
leikmyndateiknarinn, Thomas
Gripenberg, eru einnig með í
hópnum.
Sýningar geta aðeins orðið
tvær, laugardaginn 5. og sunnu-
daginn 6. september kl. 20.00.
Miðasala hefst fimmtudaginn 3.
sept. kl. 13.15.
FYRSTI vinnudagur Gunnars
Bergsteinssonr, hins nýskipaða
forstjóra Landhelgisgæslunnar
var í gær.
Enda þótt Gunnar hafi tekið
við nýju starfi þá þurfti hann
aðeins að færa sig um eina hæð,
til að komast inn á forstjóra-
skrifstofu Landhelgisgæslunnar,
þvi Sjómælingar ríkisins, scm
Gunnar hefur veitt forstöðu eru í
sama húsi.
Það varð lika svo, að Gunnar
kom við á sinni gömlu skrifstofu
hjá Sjómælingum klukkan átta i
gærmorgun, ekki aðeins til að
heilsa upp á mannskapinn heldur
líka til að gæta skyldustarfa
sinna. því Gunnar er ennþá
settur forstjóri Sjómælinga ríkis-
ins til áramóta, hvað svo sem
síðar verður.
Hvernig fannst Gunnari að taka
við hinu nýja starfi sínu?
Gunnar Bergsteinsson. nýskipaður forstjóri Landhelgisgæslunnar.
ásamt einkaritara sínum. Lilju Laxdal, á sínum fyrsta starfsdegi.
Hér er mér fátt ókunnugt
„Hér á skrifstofunni er mér fátt
ókunnugt, því ég hef unnið hjá
Landhelgisgæslunni áður. Fyrst
var ég á varðskipunum eða í
kringum 1950 og síðar við sjómæl-
ingar og fulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar til ársins 1970. Eftir að ég
fór til Sjómælinga ríkisins, þá hef
ég komið við hér á skrifstofunni
öðru hvoru, því þessar tvær stofn-
anir eiga sameiginlegra hagsmuna
að gæta, sem þurft hefur að ræða.“
Hvað var það sem olli því að þú
sóttist eftir starfi forstjóra Land-
helgisgæslunnar?
„Þar eð ég hef áður unnið hjá
Landhelgisgæslunni þá hef ég
fengið áhuga á störfum hennar,
auk þess sem þetta er umfangs-
meira starf en ég hef áður verið í.“
Hvað er svo framundan?
„Störf Landhelgisgæslunnar
- segir Gunnar
Bergsteinsson
nýskipaður
forstjóri Land-
helgisgæslunnar
markast af lögum um hana frá
árinu 1967 en síðan fer það eftir
fjárveitingum Alþingis til stofn-
unarinnar, hve langt er farið út í
að ná þeim markmiðum, sem
stofnuninni eru sett.“
„Störf Landhelgisgæslunnar eru
margþætt og þörfin fyrir hana
hefur aukist eftir því sem land-
helgin hefur stækkað. Við þurfum
fyrst og fremst að gera öðrum
þjóðum ljósan eignarrétt okkar,
auk þess sem ýmsar tillögur, sem
koma fram á Hafréttarráðstefn-
unni hafa áhrif á störf Landhelg-
isgæslunnar, til dæmis eftirlit
með ferðum erlendra rannsókn-
arskipa, sem fengið hafa leyfi hjá
íslenskum stjórnvöldum, til rann-
sókna innan efnahagslögsögu
okkar."
Eru einhverjar breytingar fyrir-
hugaðar, hjá Landhelgisgæslunni,
Gunnar?
„Það er ekki gott að segja svona
í byrjun úthalds. En mér líst
ágætlega á þetta starf og þekki
margt af góðu fólki sem vinnur
hjá „gæslunni" en auðvitað byggir
Landhelgisgæslan ekki aðeins á
því, sem ég geri heldur því sam-
starfsfólki, sem ég hef, gerðum
þess og framkomu.“
í fullum
gangi í
Öll herraföt og stakir
jakkar meö 15% af-
slætti.
verzlunum
samtímis
Útsölur okkar hafa ávallt slegið í gegn
og nú sem áður bjóðum við viðskiptavinum
okkar ótrúlega mikið úrval af nýjum og
nýlegum fötum fyrir börn, unglinga,
herra og dömur.
Herraullarbuxur
Dömuullarbuxur
Kakhi buxur
Fínflauelsbuxur
nú 290,-
nú 250,-
nú 190,-
nú 250,-
Einstætt tækifæri sem enginn
hefur efni á aö láta fram hjá sér fara.
afsláttur
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
yS^KARNABÆR
G ARB0 ##B0N AP ARTE#B0N ANZA
KARNABÆR mm LAUGAVEGI 66
GLÆSIBÆSAUSTURSTRÆTI 22