Morgunblaðið - 02.09.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
15
Frá blaðamannafundinum: Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri RKÍ situr innst við borðið og honum á hægri hönd Sigurður H.
Guðmundsson ritari RKÍ. Fremst á myndinni eru Sigurður Magnússon, starfsmaður RKÍ (t.h.) og Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri
Útsýnar.
Samstarf tekst með RKÍ og Útsýn um vetrarferðir fyrir aldraða:
Oldrunarráð Islands
stofnað fyrir for-
göngu Rauða krossins
„NÁMSSTEFNA um öldrun-
armál“ verður haldin á vegum
Rauða kross íslands dagana 11.
og 12. september. Er starfs-
mönnum allra hinna 43 deilda
RKÍ, sem starfa að öldrunar-
málum um allt land, boðið til
ráðstefnunnar. bar verða mál-
efni aldraðra hér á landi tekin
til meðferðar, boðið uppá
kennslu og starfsþjálfun varð-
andi þau og síðast en ekki sist
gerð tilraun til að samræma
stefnu RKÍ-deildanna varðandi
hagsmunamál aldraðs fólks.
Á blaðamannafundi sem
Rauði kross íslands efndi til kom
fram, að hinn 10. október nk. er í
ráði að stofnað verði Öldrunar-
ráð íslands fyrir forgöngu RKÍ.
Verður hlutverk ráðsins að
skapa samræðugrundvöll fyrir
hin ýmsu félög er. starfa að
málefnum aldraðra en þau eru
sem kunnugt er fjölda mörg;
félagssamtök, landssamtök og
opinberir aðiljar.
Þá hefur RKÍ nú tekið upp
samstarf við ferðaskrifstofuna
Útsýn, um sex vikna vetrarferðir
aldraðra til Spánar í vetur. Er
mikill áhugi á því innan RKÍ að
vegur slíkra ferða verði meiri í
framtíðinni, ekki aðeins á vet-
urna heldur allt árið um kring.
Ódýrar 6 vikna
vetrarferðir
TEKIST hafa samningar milll Rauða kross íslands og ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar um ferðir fyrir aldrað fólk til Spánar á komandi vetri.
Að sögn Jóns Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra RKÍ hefur Útsýn
tekist að ná hagstæðum samningum á Spáni fyrir þessar ferðir og
bjóði þær Rauða krossinum með töluverðum afslætti. Undanfarin ár
hafa félagsmálastofnanir átt frumkvæði að skipulagningu ferðalaga
fyrir aldrað fólk bæði innan lands og utan. Þá hafa ferðaskrifstofur að
eigin frumkvæði skipulagt fcrðir fyrir aldraða og hefur t.d.
ferðaskrifstofan Útsýn verulega reynslu i skipulagningu slikra ferða.
Á blaðamannafundi sem Rauði
kross íslands boðaði til, kom fram
að vinsældir þessara ferða hafa
sannað nauðsyn þess, að sem
oftast séu í boði ferðir sem
skipulagðar eru þannig að aldrað
fólk eigi auðvelt með þátttöku í
þeim. Hefur RKÍ kannað mögu-
leika á samvinnu við ferðaskrif-
stofur um skipulagningu hag-
kvæmra ferða fyrir ellilífeyris-
þega eða afslætti frá því verði sem
aðrir ellilífeyrisþegar verða að
greiða fyrir ferðir. Nú er t.d. verið
að kanna möguleika á að bjóða
slíkar ferðir á sumri komanda —
vill RKI í þessum efnum sem
öðrum eiga góða samvinnu.við alla
sem vilja koma til samstarfs um
þetta áhugamál, að auka mögu-
leika á hagkvæmum ferðalögum
fyrir ellilífeyrisþega.
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, tók til máls á
fundinum og sagði að sér sem
starfsmanni Útsýnar væri það
mikil ánægja að hafa hafið sam-
starf við RKÍ að hagsmunamálum
aldraðra og vildi koma á framfæri
þakklæti til RKÍ fyrir að samstarf
skyldi komast á. Kvað hann þessar
vetrarferðir fyrir aldraða vera
tímabærar, en vetrarferðir til
Spánar væru nýmæli, þó hefði
Útsýn haft slíkar ferðir fyrir
aldraða á boðstólnum til Kanarí-
eyja um nokkurra ára skeið. Væri
það mjög útbreytt í nágrannalönd-
um okkar að bjóða öldruðum
slíkar ferðir á góðum kjörum og
hefðu Islendingar, sem byggju við
erfitt veðurfar og skammdegis-
myrkur, þó meiri þörf á að not-
færa sér hið milda loftslag á Spáni
en þessar þjóðir — hér legðist
skammdegið eins og farg á fólk,
ekki síst þá sem ættu við heilsu-
leysi að stríða. Með þessum hætti
gæfist eldra fólki kostur á að
stytta veturinn og njóta jafnframt
félagslegrar þjónustu.
Þá sagði Ingólfur að það væri
síður en svo fyrir neina slembi-
lukku að Útsýn hefði tekist að
bjóða þessar ferðir á svo góðum
kjörum — Útsýn hefði nú verið í
viðskiptum á Spáni í 23 ár sam-
fleytt og nyti þar af leiðandi
viðskiptakjara sem ógerningur
væri að ná öðruvísi en á löngum
tíma. Sagði hann, að þessar ferðir,
sem eru sex vikur, kostuðu sam-
kvæmt gildandi verðskrá á Spáni
14.350 kr., en Útsýn hefði tekist að
bjóða RKÍ þær frá 6.430 kr. Væri
það mikill árangur miðað við að
nokkur kostnaður væri af sérþjón-
ustu sem hópunum verður veitt, en
þeim mun fylgja hjúkrunarkona
ásamt tveimur leiðsögumönnum.
I vetur verður alls um að ræða 4
brottfarir í ferðum RKÍ og Útsýn-
ar fyrir aldraöa, og er alls um að
ræða 500 sæti. Sagði Ingólfur að
varla yrði um hagnað að ræða hjá
ferðaskrifstofunni a.m.k. ekki ef
einblínt væri á peningahliðina.
Hefði RKI verið veittur afsláttur
af þessum ferðum að upphæð alls
250.000 kr. og gæfi það augá leið
að varla yrði um afgang að ræða,
er allur kostnaður af ferðunum
hefði verið greiddur. Hins vegar
benti hann á að þeir sem nú væru
í fullu fjöri stæðu í mikilii þakk-
arskuld við hina öldnu kynslóð og
teldi hann það vissulega hagnað
að geta rutt brautina að þessu
mikla hagsmunamáli eldra fólks,
jafnvel þó nokkur fjárhagsleg
áhætta væri tekin. Hefði Utsýn
áður farið inn á nýjar brautir
undir sinni stjórn og tekist vel —
áratuga reynsla væri nú fengin í
rekstri fyrirtækisins og þótt smátt
væri farið af stað með þessar
ferðir stæðu vonir sínar til að hér
væri um að ræða vísir að um-
fangsmikilli nýbreytni í ferðamál-
um Islendinga.
Leiðrétting
Með mynd af skipstjóra, vélstjóra
og fyrrverandi skipstjóra á MS
Álafossi, hinu nýja skipi Eim-
skipafélagsins, var sagt að fyrr-
verandi skipstjórinn, sem heitir
Alan Thorsland, væri Jón Þór
Karlsson fyrsti stýrimaður. Er
beðist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Éyflyt ættingjum og vinum mínum alúdarþakkir fyrir
gjafir og hlýjar kveöjur, sem mér bárust á sextugs-
afmæli mínu 21. ágúst sl.
Kærar þakkir. Pétur Pétursson.
Veður
Akureyri 17 skýjaó
Amsterdam 19 heiðskírt
Aþena 33 heiðskírt
Barcelona 26 skýjað
Berlín 18 skýjað
BrUssel 52 skýjað
Chicago 30 rigning
Denpasar vantar
Dublin 20 heiðskírt
Feneyjar 19. þokumóða
Frankfurt 22 heiðskírt
Faereyjar vantar
Genf 27 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Hong Kong 31 heiðsklrt
Jerúsalem 30 Keiðskírt
Jóhannesarborg 15 heióskírt
Kairó 32 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Las Palmas 25 lóttskýjað
Lissabon 25 heiðskirt
London 21 skýjað
Los Angeies 30 skýjað
Madrid 29 skýjað
Malaga 24 skýjað
Mallorka 20 léttskýjað
Mexicoborg 24 heiðskirt
Míami 34 skýjað
Moskva 14 heiðskirt
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
ROTTERDAM:
Arnarfell ......... 9/9
Arnarfell ......... 23/9
Arnarfell ......... 7/10
Arnarfell ........ 21/10
ANTWERPEN:
Arnarfell ......... 10/9
Arnarfell ......... 24/9
Arnarfell ......... 8/10
Arnarfell ....... 22/10
GOOLE:
Arnarfell ......... 7/9
Arnarfell ........ 21/9
Arnarfell ......... 5/10
Arnarfell ........ 19/10
LARVÍK:
Helgafell ......... 8/9
Helgafell ........ 22/9
Hvassafell ....... 28/9
Hvassafell ....... 12/10
GAUTABORG:
Helgafell ......... 9/9
Helgafell ........ 23/9
Hvassafell ....... 29/9
Hvassafell ....... 13/10
KAUPMANNAHÖFN:
Helgafell ........ 10/9
Helgafell ........ 24/9
Hvassafell ....... 30/9
Hvassafell ....... 14/10
SVENDBORG:
Dísarfell ......... 7/9
Hvassafell ........ 9/9
Helgafell ........ 11/9
Helgafell ........ 25/9
Hvassafell ........ 1/10
Dísarfell ......... 9/10
Hvassafell ....... 15/10
HELSINKI:
Dísarfell ......... 2/10
HAMBORG:
Dísarfell ........ 30/9
GLOUCESTER, MASS:
Jökulfell ........ 10/9
Skaftafell ....... 30/9
HALIFAX, KANADA:
Jökulfell ........ 14/9
Skaftafell ........ 2/10
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101