Morgunblaðið - 02.09.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
19
þjóðmálabaráttunni, m.a. verið í
framboði á Snæfellsnesi til Al-
þingis (1949), og setið í stjórn
Fiskimálasjóðs 1951—’56. Hann
var í stjórn Rímnafélagsins um
skeið, og ennfremur sat hann í
stjórn átthagafélags Snæfellinga í
Reykjavík og var þar í útgáfu-
stjórn. Hann hefur verið meðlim-
ur í Vísindafélagi íslendinga frá
1961. Á árunum 1972—’74 annað-
ist Lúðvík fyrir Alþingi uppsetn-
ingu á minningarsafni um Jón
Sigurðsson í hinni gömlu íbúð
forsetans við Austurvegg í Kaup-
mannahöfn. Ber safnið þess ljós-
lega merki, hversu gjörkunnugur
hann er þessum efnivið.
Á 70 ára afmæli Háskóla ís-
lands í júní sl. sæmdi heimspeki-
deild Lúðvík einni æðstu lær-
dómsnafnbót, sem Háskólinn hef-
ur yfir að ráða, — útnefndi hann
heiðursdoktor fyrir vísindastörf
hans. Um það þarf ekki að fara
frekari orðum, hversu verðskuld-
aður sá heiður var. Fræðimaður-
inn frá Stykkishólmi, sem fékk um
hríð, án stúdentsprófs, sæti á
háskólabekk með mörgum dokt-
orsefnum á sinni tíð, reyndist sem
sagt enginn eftirbátur skóla-
bræðra sinna, heldur í öllu jafn-
ingi þeirra að andlegu atgervi.
Lúðvík hefur ekki staðið einn í
lífsbaráttunni. Hann kvæntist 30.
október 1936 Helgu Jónsdóttur
Proppé, verzlunarstjóra í Ólafs-
vík, og konu hans, Guðrúnar
Bjarnadóttur. Börn þeirra eru tvö:
Véný, húsfreyja og kennari í
Hafnarfirði, og Vésteinn, rithöf-
undur. Sonur Lúðvíks og Guð-
bjargar Hallvarðsdóttur frá Fá-
skrúðarbakka er Arngeir, verzlun-
armaður.
Helga Proppé hefur stutt mann
sinn með ráðum og dáð, og hefur
þar ekki sízt munað um liðsinni
hennar við það mikla ritverk, sem
hann nú vinnur að. Á menningar-
legt heimili þeirra í Hafnarfirði
hefur verið gott að koma og
blanda geði við þessi vel gerðu
hjón.
Sá, sem þessar línur ritar, hefur
haft persónuleg kynni af Lúðvík
Kristjánssyni í rúmlega tvo ára-
tugi og á honum margt að þakka.
Eins og að líkum lætur átti Lúðvík
sem eldri maður frumkvæði að
þeim kynnum. Þótt hann væri þá
innan við fimmtugt, var hann
orðinn þekktur fræðimaður og
rithöfundur, sem menn á mínu
reki litu þá upp til og virtu mikils.
Það var mér því óneitanlega
gleðiefni og raunar mikilsvert, að
slíkur maður sem hann skyldi gefa
því gaum, sem ungur maður var
þá að fást við, leiðbeina honum
óbeðið, sýna honum traust og
skapa þar með grundvöll að kynn-
um, sem ég vil ætla, að hafi síðan
leitt til vináttu, sem muni vara
meðan báðir lifa. Frá þessum tíma
hafa leiðir okkar legið saman að
meira eða minna leyti; við höfum
átt margvíslega samvinnu og bor-
ið saman bækurnar, þar sem
áhugasvið hafa tengzt. Hann hef-
ur frá fyrstu kynnum komið mér
fyrir sjónir sem heilsteyptur og
traustur persónuleiki á nákvæm-
lega sama hátt og verk hans hafa
borið vitni um.
Það er mér óblandið fagnaðar-
efni á sjötugsafmæli Lúðvíks
Kristjánssonar að eiga þess kost,
— bæði persónulega og fyrir hönd
Sögufélags — að senda honum og
fjölskyldu hans hugheilar heilla-
óskir með afmælisriti, sem út
kemur í dag. Það ber nafnið
„Vestræna“ og hefur að geyma
nokkrar ritgerðir hans, en Sögufé-
lag hefur þann heiður að gefa það
út. Jafnframt votta þar vinir
Lúðvíks og aðrir samferðamenn
honum virðingu og þakklæti fyrir
ritstörf hans, svo og ánægjuleg
samskipti.
Megi hann lifa vel og lengi við
góða heilsu og fá lokið mörgum
hugstæðum verkefnum á hinum
frjóa akri íslenzkra fræða, sem
hann hefur erjað af trúmennsku
og elju frá unga aldri til þessa
dags.
Einar Laxness
um rannsóknir og vinnuaðferðir
Lúðvíks Kristjánssonar. Sá sem
fræddi mig var Sverrir Krist-
jánsson sagnfræðingur og ég man
að hann lagði áhersluna á, að
Lúðvík leitaði allt til rótar þegar
hann kannaði félagslega eða at-
vinnulega þætti íslenskrar sögu.
Síðan þetta gerðist er liðinn
meira en aldarfjórðungur. Fræði-
mennska Lúðvíks Kristjánssonar
er að verða eign alþjóðar, því að
rit hans um íslenska sjávarhætti
er komið inn á fjölmörg heimili í
landinu og menn bíða eftir fram-
haldinu sem er væntanlegt á
næstu árum. Með því verki hefir
hann gert meira en að marka og
draga í land dýrmæta þekkingu á
því lífi sem var við sjávarsíðuna
allt frá því að landið var numið.
Hann hefir bjargað úr tímans
Stórasjó mörgu því sem gleymsk-
an var að verpa sandi og hylja um
alla eilífð. í þetta mikla björgun-
arstarf hefir ævinni verið varið
allt frá unglingsárum.
Hér hefir verið unnið mjög
tímafrekt og lýjandi starf. ís-
lenskir sjávarhættir eru eljuverk í
sönnustu merkingu þess orðs, en
fýsnin til fróðleiks og skrifta gaf
höfundinum enga ró fyrr en landi
var náð og við þessi tímamót í ævi
hans er skammt í farsælan endi á
þessu tröllaukna verki. Lúðvík
Kristjánsson hefir lifað eftir heil-
ræðum frænda síns, dr. Jóns
Þorkelssonar þjóðskjalavarðar,
sem kvað:
Kyrrlát önn skal klungrin crja
kafa til alls. þótt djúpt só aö «rafa.
en hann hefir hlotið þau laun
erfiðis síns að í verkum hans
sjáum við
LandiA fullt af lifi og yndi
lá ok straumar ok vötnin bláu.
.Ktæðum og bólstrum]
-gömul húsgögn. Gott;
úrva! af áklæðum
Þrýstimælar
Allar stæröir og geröir
Ég ætla að það hafi verið á
öldurhúsi úti í Kaupmannahöfn að
ég var leiddur í allan sannleika
SfltmuíMygjtyF
Vesturgötu 16, sími 13280
Persónulega vil ég færa þeim
hjónum þakkir fyrir margar og
góðar samverustundir, og þar ber
hæst ferð um Snæfellsnes fyrir
nokkrum árum, veðurguðirnir
fögnuðu okkur hið besta með
sólfari og fegurstu fjallasýn og
Lúðvík og Helga létu ekki sitt eftir
liggja til að gera ferðina ógleym-
anlega. Ég vil að lokum endurtaka
þakklæti mitt og flyt afmælis-
barninu hugheilar árnaðaróskir.
Aðalgeir Kristjánsson
Lóö á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
óskast fyrir einbýlishús. Uppl. í síma 43559 eftir kl. 19
á kvöldin.
Lúðvík Kristjánsson verður í
dag staddur á heimili Vénýjar,
dóttur sinnar, og tengdasonar að
Miðvangi 116, Hafnarfirði, og tek-
ur þar á móti gestum.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Lipurogpersonuleg
þjónusta,
á besta stað í bœnum
og nóg af bílaslœðum
Ef þetta eru atriði sem þú metur mikils að
peningastofnunin þín uppfylli, er Sparisjóður
vélstjóra eitthvað fyrir þig.
Sparisjóður vélstjóra starfar ( nýju og rúm-
góðu húsnæði að Borgarúni 18 og hefur frá
upphafi verið í fararbroddi í tölvuvæðingu og
hagræðingu. Þess vegna getum við tryggt
viðskiptavinum okkar hraða og örugga af-
greiðslu.
Ef þú hefur reglubundin viðskipti við okkur,
áttu svo að sjálfsögðu möguleika á lánafyrir-
greiðslu þegar hennar er þörf.
? SPARISJOÐUR
VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18, s. 28577
ÞITT EIGIÐ
RAFMAGN
Nú er rétti tíminn
skammdegið er skammt undan
Getum útvegað allt frá 50 - 750 kw. rafstöðvar
með stuttum fyrirvara.
PRISMA