Morgunblaðið - 22.10.1981, Síða 1
236. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fnrvrti jTc/*| nfÍG f l\fnmcfi F°rset* íslands, Vigdís FinnbogadóUir, komur til opinberrar veizlu í höll Noregskonungs í
-* Sdl JJ 1 T l/i vgl gærkvöldi. Fremst ganga forsetinn og Ólafur Noregskonungur, en fyrir aftan þau sér í
Sonju krónprinsessu, Astrid prinsessu og Harald ríkisarfa. Sjá ræður forseta og konungs á bls. 21 og frásögn bladamanns Morgunblaðsins á miðopnu.
Varnarmálaráðherrar NATOríkjanna:
Vilja nýjar varnarflaugar
í Evrópu á komandi árum
iiondon, 21. októÍH'r. Al*.
VARNARMALARAÐHERRAR ríkja Atlantshafsbandalags-
ins lýstu í dag á fundi í Gleneagles í Skotlandi yfir stuðningi
við fyrri áform bandalagsins um að koma fyrir nýjum, banda-
rískum kjarnorkuflaugum í Evrópu, þrátt fyrir vaxandi mót-
mæli í ýmsum löndum gegn þessum áformum.
einum rómi, enda þótt af hálfu
Hollands og Belgíu hafi um
nokkurt skeið verið látinn í
ljós efi um, hvort heimilað
skyldi að koma vopnunum
fyrir í þessum löndum.
Weinberger sagðist ekki
telja, að háværar raddir um
einhliða afvopnun í ýmsum
Evrópulöndum, ættu hljóm-
grunn meðal ábyrgra stjórn-
valda í löndunum
Mexíkó:
Ráðstefna
ríkra þjóða
og snauðra
að hefjast
< 'ancun, Mexíkó, 21. októlHT. Al\
RÁHSTEFNA leiðtoga ríkra þjóða
og snauðra hefst í ('ancun á morg-
un, fimmtudag. Til fundarins eru
komnir þjóðarleiðtogar og stjórn-
málamenn frá 22 ríkjum til að
ræða um hvernig helst megi vinna
bug á fátæktarvanda þróunarland-
anna og brúa bilið milli ríkra
þjóða og hinna snauðari, norðurs
og suðurs.
Reagan Bandaríkjaforseti var
meðal þeirra sem komu til Canc-
un í dag. Hann sagði við brott-
förina frá Washington, að vandi
þróunartandanna yrði ekki
leystur á einni nóttu, heldur
væri um að ræða alvarlegt og
djúpstætt vandamál. Reagan
lagði áherslu á hlutverk frjálsr-
ar samkeppni og frjálsra alþjóð-
legra viðskipta við lausn
vandans og nauðsyn þess að efla
einstaklingsframtak í ríkjum
þriðja heimsins. Hann hét
stuðningi Bandaríkjanna við að
hjálpa „frjálsu fólki að byggja
upp frjálsa markaði".
Búist er við því að ágreiningur
verði mikill á fundunum í Canc-
un. Meðal þátttakenda eru Zhao
Zidyang, forsætisráðherra Kína,
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, forseti Nígeríu og
starfsbræður hans frá Júgóslav-
íu, Filippseyjum og Tanzaníu,
auk leiðtoga frá Kanada, Braz-
ilíu, Frakklandi, Svíþjóð, Ind-
landi, Guyana, Saudi-Arabíu og
fleiri löndum. Kurt Waldheim,
Tramkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, tekur einnig þátt í
fundunum. Gestgjafi er Jose
Lopez Portillo, forseti Mexíkó.
Sjá ennfremur grein á
bls. 30 í Mbl. í dag.
Stjórn Papandreous
tekin við í Grikklandi
Weinberger, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna,
greindi frá því á fundi ráð-
herranna, að Bandaríkjastjórn
myndi reyna að semja um það
við Sovétríkin í væntanlegum
Aukakosning
í Bretlandi
l/ondon, 21. októlHT. Al\
AUKAKOSNINGAR í litlu kjör
dæmi í útjaðri London, sem fram
fara á fimmtudag, eru taldar geta
verið prófsteinn á framtíð hins nýja
jafnaðarmannaflokks í Bretlandi og
kosningabandalags hans og Krjáls-
Ivnda flokksins.
Síðustu skoðanakannanir benda
til þess, að kosningabandalagið fái
35% atkvæða, en Ihaldsflokkur-
inn, sem haldið hefur þessu kjör-
dæmi í Croydon Northwest frá ár-
inu 1955, 32%. Verkamannaflokk-
urinn fær 31% samkvæmt skoð-
anakönnuninni.
samningum um samdrátt her-
afla, að allar kjarnorkueld-
flaugar verði fjarlægðar frá
Evrópu.
Ákvörðun varnarmálaráð-
herranna 13 er staðfesting á
samkomulagi, sem bandalags-
ríkin gerðu með sér árið 1979
um að koma fyrir 572 kjarn-
orkueldflaugum í Vestur-
Þýzkalandi, Ítalíu, Bretlandi,
Hollandi og Belgíu á komandi
árum. í yfirlýsingu ráðherr-
anna segir, að uppsetning
SS-20-kjarnorkuflauga Sov-
étmanna, sem hæft geta hvaða
skotmark sem er í Evrópu,
hafi hrundið úr jafnvægi
hernaðarstöðunni í álfunni, og
við því verði að bregðast. Segir
í yfirlýsingunni, að Sovétríkin
hafi komið upp 1100 kjarn-
orkuflaugum, sem beint sé
gegn Evrópu, þar af 750 af
gerðinni SS-20.
Að sögn Weinbergers var
ákvörðun ráðherranna tekin
\ þ<-nu. 21. oltlólHT. Al\
ANDREAS Papandreou sór í dag
cmbættisciða fyrir sig og rfkisstjórn
sína, fyrstu ríkisstjórn sósíalista í
Grikklandi. Alls veróa 39 ráðherrar í
ríkisstjórn Papandrcous.
Papandreou mun auk forsætisráð-
herrastarfsins veróa varnarmálaráó-
herra í hinni nýju ríkisstjórn, en
stjórnin er aó mestu leyti skipuð
mönnum, sem verió hafa nánir sam-
starfsmenn Papandreous um langt
árabil.
Leikkonan Melina Mercouri
verður menningarmálaráðherra í
stjórninni, en auk hennar eru
tvær konur aðrar í ráðherrastöð-
um. Fjármálaráðherra verður
Melina Mercouri, hinn nýi ráðherra
menningarmála í Grikklandi.
Emmanuel Drettakis, og utanrík-
isráðherra Ioannis Haralambo-
poulus, sem er fyrrum liðsforingi í
her landsins og þingmaður.
Stjórnmálaskýrendur segja, að
líklegast hafi Papandreou kosið að
fara með varnarmálin til að geta
f.vlgst vel og náið með her lands-
ins.
Forsætisráðherrann hvatti
ráðherrana við embættistökuna
til að taka til hendinni við endur-
reisn Grikklands, eins og hann
orðaði það. Hét hann og hvatti
aðra ráðherra til að skera niður
kostnað við stjórnsýslu og auka
framlög til menntamála, heil-
brigðismála og til landbúnaðar-
mála.