Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 19

Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 19 asta þing og var þar samþykkt sem lög, fylgdi sérfræðileg álits- gerð um vatnsmiðlun fyrir lands- kerfið frá Verkfræðistofu Helga Sigvaldasonar hf. Þar segir, að „miðlunarstig núverandi kerfis sé um 0,16 sem verði að teljast frekar lágt“. Þetta merkir, að of litlu er safn- að í lón af vatnsframleiðslu vors og sumars og geymt til vetrar- mánaðanna þegar vatnsfram-' leiðslan er í lágmarki. Af þessum mikla ágalla núverandi orkukerfis stafaði skömmtunin síðla síðasta vetrar m.a. til orkufreks iðnaðar. I þessari álitsgerð er einnig tal- ið, að miðlunarstigið 0,30 sé hæfi- legt fyrir landskerfið til að ekki þurfi að óttast rafmagnsskömmt- un. Með tilkomu Hrauneyjafoss- virkjunar og Blönduvirkjunar með stærstu miðlun næst á eftir, mundi miðlun landskerfisins að- eins hækka úr 0,16 í 0,21, eða 0,24 ef Ármótastífla og Stórkvíslaveita kæmu einnig til. Þetta merkir það, að öll land- eyðing við Blöndu vegna stærsta miðlunarlóns nægir ekki til að tryggj a nauðsynlegt miðlunarstig í landskerfinu. Komi Fljótsdals- virkjun hins vegar inn í myndina á undan Blöndu, næst miðlunar- stigið 0,30 samkvæmt framan- greindum útreikningum. Og samkvæmt sömu útreikning- um gæfi Blanda aðeins 25 Gwh eða 3,2% minni orkuframleiðslu með lítilli miðlun, en með stærstu miðlun, ef Fljótsdalsvirkjun væri komin á undan til að tryggja miðl- unina í landskerfinu. Nú veit bóndinn og landbúnaðarráðherr- ann, Pálmi Jónsson, manna best, hvernig þessi þjóð hefur gengið um garða á gróðurlendi landsins allt frá landnámstíð. Ef hann, með þá vitneskju að bakhjarli, ætlar að verða forvígismaður þess í sæti landbúnaðarráðherra að kaffæra og eyðileggja jafn mikið og í sjálfu sér verðmætt gróðurlendi og um er að ræða við Blöndu, fyrir jafn litla eftirtekju og framangreint dæmi sýnir, þá held ég að síðari tíma kynslóðir eigi ekki eftir að syngja honum mikið lof. Að lifa við hótun Ur annarri átt hafa verið hafðar uppi hótanir: um að fella núver- andi ríkisstjórn, um stórkostlegt atvinnuleysi og landflótta verði ekki fram haldið sívirkjunum á Þjórsár-Tungnársvæðinu. Um þesskonar málflutning er ekkert að segja annað en það, að það getur engin þjóð lifað við hót- anir, svo vel sé. Það dæmi gengur ekki upp í menningarþjóðfélagi nútímans, að sá hluti þjóðarinnar. sem með góðum og gildum rökum hefur búið best um sig í landinu og fleytt rjómann af því, sem þjóðfé- lagið hefur best upp á að bjóða, haldi því stöðugt áfram, án þess að þeir, sem við skarðastan hlut hafa búið, fái rétt hann annað slagið og þannig rétt af þá slag- síðu, sem myndast hefur í þjóðlíf- inu. Það er enginn vegur til þess, að þeir sem búa fjærst höfuðborg- arsvæðinu, sætti sig við það til frambúðar að vera annars eða þriðja flokks fólk, með tilliti til fjölbreytni í atvinnutækifærum, tekjumöguleikum, né almennri þjónustu menningarþjóðfélags. Ef þeim er ætlað það hlutskipti til frambúðar, dynur holskefla fólksflóttans yfir eins og reynslan hefur kennt okkur. Lokaorð Af því, sem að framan er rakið, tel ég, að enn sé í fullu gildi sú hugmynd, að Norðlendingar og Austfirðingar setjist niður og ræði málin af ró og skynsemi, og freisti þess að ná samkomulagi um skipan þeirra „að bestu manna yf- irsýn", og með hliðsjón af þeirri þróun, sem fyrirsjáanleg er í nán- ustu framtíð. Það liggur ljóst fyrir, að þjóð- inni er bráð nauðsyn að draga úr sókn í fiskstofnana. Eins og mál standa nú, getur engin atvinnugrein önnur en iðn- aður, sem byggir á innlendri orku, tekið við því vinnuafli, sem losnaði við fækkun fiskiskipa, auk þess nýja fólks, sem við bætist á vinnu- markaði árlega. Trúlegt er, að við höfum farið okkur of hægt um áframhaldandi átök í beislun orkulinda og tilkomu nýrra iðn- greina og, að snarpari handtök þurfi i þeim efnum á allra næstu árum. I mínum huga eru engar efa- semdir um það, að það sé nauðsyn- legt fyrir velferð þjóðarinnar, að á næstu 8 árum eða svo, verði virkj- að bæði í Fljótsdal og við Blöndu og, að iðnfyrirtæki, sem noti um helming orkunnar eða meir, rísi bæði á Austurlandi og Norður- landi eystra og vestra. Hvort fyrr verður virkjað innan þessara tímamarka í Fljótsdal eða við Blöndu á svo að ákvarðast af því, hvernig haganlegast verði staðið að heildarverkefninu, með hliðsjón af hámarksárangri og lágmarkstil- kostnaði og fórnum. Norðlendingar og Austfirðingar verða að gera sér grein fyrir því, að lífshagsmunir þeirra verða nánar samtengdir í framtíðinni en menn hafa e.t.v. látið sér enn til hugar koma. Og þá er best að leggja undirstöður traustrar og góðrar samvinnu sem allra fyrst. Bergur Sigurbjörnsson Melka Akkja Hinir sívinsælu kuldajakkar: -með vindþéttu vatnshrindandi ytrabyrði. -fóðraðir með einangrandi vatti. —dregnir saman í mittið með snúru. -með stóra rúmgóða vasa. -með hettu, innrennda í kragann. -með inná-vasa með rennilás. Nú er Melka-vetur í HERRAHÖSINU. BANKASTR/ETI 7 AÐALSTRÆTI4 NÝ RÓMANTÍSK STEFNA í LISTSKÖPUN Steinblóm frá Glit Ósnortin íslensk náttúra greypt í steinleir. Merkasta nýjungin í íslenskum listiðnaði. Hönnun: Eydís Lúðvíksdóttir, myndlistakona og Þór Sveinsson, leirlistamaður STEINBLÓM VASAR PLATTAR SKÁLAR Tryggið ykkur verk á meðan verðið er enn hagstætt. láUut LAUGAVEGI40 REYKJAVÍK SÍMI 16468

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.