Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 30

Morgunblaðið - 22.10.1981, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 NorðurSuðurviðræðurnar: Búist við djúpstæðum ágreiningi á leiðtogafundinum í Cancun NORÐUR-Sudnr vidræðurnar svoncfndu, fundur lcidtoga 22ja þróunarlanda og iðnadarríkja, hcfjast í dag á mcxíkiinsku ferda- mannaeynni ('anrun og lýkur þcim væntanlcga annad kvöld. A fund- inum munu lciðtogarnir ræda vandamál þróunarríkja og fjalla um lciðir til að minnka bilið sem cr milli ríkra þjóða og snauðra. Miðað við yfirlýsingar hinna ýmsu lciðtoga að undanförnu má húast við umtalsvcrðum ágrciningi í við- ræðunum, og að samkomulag náist aðcins um það citf að cfna til nýrra viðræðna að ári. Kngin sameigin- leg yfirlýsing verður gefin út í fundarlok, og þykir það benda til þess að skoðanir lciðtoganna um lciðir til að sigrast á vanda þróun- arríkjanna séu of skiptar. I»ó er við því búist að Jose lx)pez l’ortillo, forseti Vlexíkó, gefi út eigin yfir lýsingu í fundarlok, þar sem hann mun draga saman árangur við- ræðnanna. Fundurinn er sá fyrsti sinnar tegundar, og þykir að því leyti sögulegur, en hann er haldinn að tilstuðlan óháðrar nefndar, sem Willy Brandt fyrrum kanzlari Vestur-Þýzkalands veitti for- stöðu. Nefndin fjallaði um örðugleika þróunarríkja og sagði í skýrslu sem hún sendi frá sér í fyrra, að vandamálin væru þess eðlis, og efnahagsástandið svo mismunandi, að viðræður af þessu tagi væru nauðsynlegar. í iðnaðarríkjunum væri að finna 80% framleiðslunnar, en aðeins fjórðungur mannkynsins byggi þau. Auðinum væri misskipt og bilið milli snauðra þjóða og ríkra ykist frekar. Til fundarins í Cancun koma leiðtogar átta iðnaðarríkja, Bandaríkjanna, Vestur-Þýzka- lands, Japan, Kanada, Stóra- Bretlands, Frakklands, Svíþjóð- ar og Austurríkis. Þróunarlönd- in, sem fulltrúa eiga í viðræðun- um eru Alsír, Bangladesh, Brasilía, Fílabeinsströndin, Fil- ipseyjar, Guyana, Indland, Júgó- slavía, Kína, Mexíkó, Nígería, Saudi-Arabía, Tanzanía, og Venezuela. Yfirvöld hafa fyrirskipað stranga öryggisgæzlu á Cancun- eynni, enda morðið á Anwar Sadat forseta Egyptalands enn í fersku minni. Hermt er að fimm þúsund lögregluþjónar og her- menn muni gæta leiðtoganna. Sex varðskip hafa þegar tekið sér stöðu við eyna og lóna fram og til baka skammt undan ströndinni. Hermenn reika um í fjörunni og köfunarsveitir hers- ins skyggnast undir yfirborð sjávar á grynningum, einkum framundan Sheraton-hótelinu þar sem leiðtogarnir gista og ræða saman. Vandi þróunarlandanna Vandamál þróunarlandanna, einkum þó þeirra er ekki hafa yfir olíulindum að ráða, eru í stuttu máli þau, að þau eiga við versnandi efnahagskreppu að etja. A sama tíma og verð á út- flutningsvörum þeirra hefur staðið í stað eða jafnvel lækkað í verði, hafa innflutningsvörur hækkað í verði, einkum olía og fullunnar vörur. Löndin hafa lít- ið sem ekkert bolmagn haft til að auka framleiðni í iðnaði og landbúnaði, og hafa þurft að taka gífurleg erlend lán til þess að forðast efnahagshrun. A fundinum í Cancun verður rætt hvort og með hvaða hætti hajgt sé að minnka bil ríkra þjóða og snauðra. Leiðtogar þróunarlanda halda því fram, að orðugleikar landanna eigi rætur að rekja í „meingölluðu heims- hagkerfi", eins og þeir vilja nefna það. Fara þeir fram á að núverandi efnahagssamstarf og viðskipti á jarðarkringlunni verði endurskoðuð og í fram- haldi af því settar á fót stofnan- ir, er hafi því hlutverki að gegna að miðla réttlátlega tækni og fjármunum til þróunarlandanna. I þessu sambandi fara leiðtog- arnir fram á eins konar heims- ráðstefnu. Leiðtogar þróunarlandanna munu fara fram á það í Cancun, að iðnaðarríkin í norðri veiti þróunarlöndunum meiri beina aðstoð, og hins sama yrði krafist á umræddri heimsráðstefnu. Nefndin, sem Brandt veitti for- stöðu, lagði t.d. til að framlög til umbóta í landbúnaði í þróunar- löndunum yrðu aukin um átta milljarða dollara. Þá verður þess krafist, að komið verði á fót kerfi er tryggi bæði verðhækkun á hráefni sem þróunarlöndin fiytja út og verð- stöðugleika. Þróunarlöndin eru að verulegu leyti háð útflutningi á einni eða tveimur tegundum hráefnis, og er það mat leiðtoga þeirra að þau séu of lágt metin til verðs. Einnig vilja þróunarlöndin að iðnríkin aðstoði þau við að finna leiðir til að þróa eigin orku- vinnslu, einkum með framlögum úr 30 milljarða dollara sjóði sem verður í vörzlu Alþjóðabankans. Þeirri hugmynd hefur Banda- ríkjastjórn ekki tekið vel. Auk þessa krefjast þróunar- löndin aukinna áhrifa í alþjóð- legum peningastofnunum og að tollar á útflutningsvörum þeirra í iðnríkjunum verði lækkaðir. Einnig að markaðir fyrir út- flutning þróunarlanda verði opnaðir meira en verið hefur. Mikill ágreiningur Ljóst þykir, að mikill ágrein- ingur verði um leiðir út úr vanda þróunarlandanna, einkum milli Ronalds Reagan, Bandaríkjafor- seta, annars vegar og annarra leiðtoga iðnríkja hins vegar. Þó er við því búist að Margrét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, geti tekið undir skoð- anir Reagans að verulegu leyti, en ýmsar ástæður gera það að verkum að hún á ekki jafn auð- velt með að afneita þróunarað- stoð og Reagan. Arileifð ný- lendutímans gerir t.d. þetta að verkum, og einnig neyddist Thatcher til að samþykkja svo- kallaða Melbourne-yfirlýsingu á nýafstaðinni Samveldisráð- stefnu fyrir skömmu, þar sem segir að taka þurfi á vandamál- um þróunarlanda með sam- ræmdu átaki allrar heimsbyggð- arinnnar. Þá er Thatcher einn af full- trúum Efnahagsbandalagsins í viðræðunum, og leiðtogar margra ríkja bandalagsins taka ekki undir skoðanir Thatcher og Reagans um ágæti lögmála hins frjálsa markaðar. Er hún því knúin til að virða afstöðu EBE- ríkja til þróunarlanda, og því bú- ist við að Thatcher leiki fyrst og fremst hlutverk diplómatsins í Cancun, á sama tíma og búast má við því að Reagan verði talsvert herskár. Talið er að athyglin muni fyrSt og fremst beinast að Reag- an, sem lagt hefur blessun sína yfir núverandi „heimshagkerfi" og látið í ljósi efasemdir um ágæti hugmyndarinnar um heimsráðstefnu um vanda þróunarlandanna og nýja skipan viðskipta og efnahagssamstarfs. Afstaða Reagans mælist illa fyrir Reagan hélt því fram fyrir skömmu, við litlar vinsældir leiðtoga ýmissa þróunarlanda og leiðtoga margra iðnríkja, að „að- dáunarverðar" framfarir hefðu orðið í þróunarlöndunum á einni mannsævi og uppgangur þar mikill. Hann sagði að meðaltekj- ur á mann hefðu hækkað stór- lega á stuttum tíma, og iðn- framleiðsla og útflutningur stór- aukist á tveimur til þremur ára- tugum. „Það er sama við hvað er miðað, við höfum orðið vitni að umtalsvcrðum framförum í þróunarlöndunum, framförum sem viðkomandi þjóðir geta ver- ið stoltar yfir. Það er aðdáunar- vert hversu þessar þjóðir hafa nýtt þau tækifæri sem þau hafa fengið," sagði Reagan. Reagan sagði að vissulega væri ástandið í heiminum og skipan efnahagsmála ekki full- komin. Það væri þó ekki leiðin út úr vandræðum þróunarlandanna að riðla skipaninni og veikja efnahag iðnríkjanna, þróunar- löndin hefðu meira gagn af því að lönd eins og Bandaríkin styrktust enn frekar efnahags- lega. Því væri raunhæfara að vinna saman að því að styrkja stöðu iðnríkjanna, en ýmsir ráðamenn í Washington hafa látið í ljós ótta um að heims- ráðstefna um vanda þróunar- landa og tilraunir til að knýja fram breytta skipan viðskipta og efnahagssamstarfs, myndu bitna á iðnaðarveldunum. Við þetta tækifæri sagði Reag- an, að það væri engin lausn að auka verulega þá upphæð sem Bandaríkin og önnur iðnaðarríki veittu til þróunaraðstoðar. Hann sagði.að gefa þyrfti frekar einkaaðilum tækifæri til að hasla sér völl í viðkomandi ríkj- um og skapa þar athafnafrelsi. Framfarir gætu aðeins orðið ef þar ríkti efnahagsfrelsi. Þangað leitaði fjármagnið sem ekki væri fyrir miðstýring alls efnahags- og atvinnulífs. Frjálsir menn kysu lögmál hins frjálsa mark- aðar, þau hvettu til aukinna at- hafna og afkasta, og þar með bættrar afkomu. “Treystum mönnunum, látum hæfileika þeirra njóta sín. Lykil- in að framförum er að finna í fólkinu sjálfu. Það er til lítils að gefa hungruðum manni bita í dag, því hann verður svangur á morgun. Kennum honum að afla sér fanga og hann svengir ekki aftur," sagði Reagan. Hann sagði að þróunaraðstoð kæmi að engu gagni, hvað svo sem hún væri mikil, fyrr en viðkomandi lönd hefðu komið röð og reglu á eigin fjár- og efnahagsmál. Mitterrand og Keagan á öndverðum meiAi Þótt Thatcher geti tekið undir orð Reagans þegar leiðtogarnir 22 hittast fyrir luktum dyrum í dag og á. morgun, þá hefur t.d. Mitterrand Frakklandsforseti deilt hart á Reagan. „Það verður óafsakanlegt ef þarna verður að- eins skiptst á skoðunum," sagði hann. „Þarna nægja ekki yfirlýs- ingar um velvilja og góð fyrir- heit. Við munum leggja til og berjast fyrir að þarna verði gert samkomulag um raunhæfar að- gerðir og sættum okkur því ekki við hvað sem er,“ sagði Mitterr- and í viðtali við blöð í Mexíkó fyrir skömmu. Ljóst þykir að það verða fyrst og fremst Mitterrand og Reagan sem deila á fundinum, því af- staða franskra og bandarískra yfirvalda til málefna þróunar- landanna er gjörólík. Á sama tíma og Reagan og bandarískir embættismenn vilja viðhalda núverandi ástandi og telja að það styrki frekar þróunarlöndin að iðnríkin eflist enn frekar, hef- ur t.d. Claude Cheysson, utanrík- isráðherra Frakka, nýverið lýst því yfir fyrir hönd frönsku stjórnarinnar, að efnahags- endurbygging í þróunarlöndun- um sé brýn, og til þess þurfi iðnríki heims að leggja tugi milljarða dollara af mörkum. Hefur Cheysson með öllu hafnað kenningum Reagans um að lögmál markaðsfrelsisins geti reist efnahag þróunarlandanna við. Leiðtogar þróunarlandanna munu vafalaust einnig reyna sannfæra Reagan um að nauð- synlegt sé að fara aðrar leiðir til að minnka bil snauðra þjóða og ríkra en þær sem Bandaríkja- forseti hefur haldið á lofti. Fjár- málaráðherra Bangladesh, fá- tækasta ríkisins sem fulltrúa mun eiga á fundinum, sagði ný- lega, að þróunarlöndin væru arð- rænd í stórum mæli, rétt eins og á tímum nýlenduveldanna. Auð- æfin streymdu enn sem fyrr til ríkari þjóða, þrátt fyrir að mannkynið lifði á öld mikilla tæknilegra-, efnahagslegra- og félagslegra framfara. Þrátt fyrir þetta byggju t.d. 850 milljónir manna við frumstæð skilyrði og krappari kjör en flestir gerðu sér í hugarlund. Ástæðuna mætti fyrst og fremst rekja til órétt- látra viðskiptahátta og óréttláts efnahagssamstarfs. Búast má við því í viðræðunum, að leiðtog- ar þróunarlandanna muni reyna skella skuldinni á iðnríkin,. að þeim verði um kennt að bilið milli snauðra þjóða og ríkra, hefur breikkað síðustu áratugi. Kússar ekki með Sovétríkin eiga ekki fulltrúa á viðræðufundinum í Cancun þar sem þeir halda því fram að vandi þróunarlandanna sé þeim óvið- komandi og eigi rætur að rekja til nýlendutímabilsins. Reyndar lýstu Kremlverjar því yfir í vik- unni, að viðræðurnar í Cancun væru liður í tilraunum nýlendu- sinna á Vesturlöndum til að arð- ræna þjóðir þriðja heimsins enn frekar. Á sama tíma veita Rúss- ar þó sína eigin efnahags- og þróunaraðstoð til erlendra ríkja, aðstoð sem þó einkum er í formi hergagna og takmarkast við ríki kommmúnista og leppríki í þriðja heiminum. Árið 1979 veittu Rússar jafnvirði 910 millj- óna dollara til annarra mála en hermála, en það var innan við fimm af hundraði allrar aðstoð- ar til þróunarmála það árið. Á sama tíma veittu Bandaríkin t.d. 0,9 milljarða dollara til þróunar- mála. AP. Observer. Ronald Reagan og Francois Mitterrand um borð í Margrét Thatcher getur tekið undir skoðanir Reagans á frönsku freigátunni DeGrasse í Yorktown í Virginíu- vanda þróunarlandanna, en verður þó í hlutverki dipl- fylki í síðustu viku. ómatsins í ('ancun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.