Morgunblaðið - 04.12.1981, Síða 1
56 SÍÐUR
266. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Spánverjum
boðið í Nató
Madríd, BrusHel, Haag, 3. desember. AP.
BÚIST ER VIÐ því að utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins
(NATO) bjóði Spánverjum aðild að bandalaginu þegar þeir koma saman til
fundar í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel næstkomandi fimmtudag, en
Spánverjar sóttu formlega um aðild að Atlantshafsbandalaginu í gær.
Aðildarbeiðni Spánverja var vel
tekið í stöðvum NATO í gaer og
verði beiðni þeirra samþykkt,
verður Spánn fyrsti nýliðinn í
samtökunum frá því Vestur-
Þýzkaland gerðist aðili að banda-
laginu 1955.
Spánverjar hafa þegar hafist
handa við að létta vegatálmum á
vegum til Gíbraltar, klettsins um-
deilda sem Bretar og Spánverjar
hafa deilt um lengi, og búist við að
þeir leyfi ferðir um hafnir sínar og
vegi til Gíbraltar um og upp úr
næstu áramótum.
Litið er á þessa ákvörðun sem
merki um batnandi sambúð Breta
og Spánverja og vilja þeirra til að
leysa deiluna um Gíþraltar með
samningum og forða því að
ágreiningurinn um Gíbraltar
verði að ásteitingarefni á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins.
ekki nema virða fyrir sér landa-
kort til að komast skjótt að þeirri
niðurstöðu. Spánn væri á suð-
vesturhorni Evrópu, lengra frá
Sovétríkjunum en öll önnur Evr-
ópuríki Atlantshafsbandalagsins.
Litlar sem engar líkur væru á sov-
ézkri árás á Spán af landi sökum
legu landsins. Staðsetning Spánar
yrði bandalaginu hernaðarlega
mikilvæg með tilliti til liðsflutn-
inga á sjó, sem auðveldara yrði að
verja á stríðstíma.
Rúmlega 250 þúsund hermenn
eru í landher Spánar og lofther
landsins er búinn nútímatækjum,
þ.á m. 177 bandarískum og frönsk-
um orrustuþotum. Þá hafa
spænsku flotastöðvarnar mikla
hernaðarlega þýðingu, en í sjóher
Spánar eru m.a. átta kafbátar, 11
tundurspillar, 16 freigátur og
flugmóðurskip.
Útfor leikkonunnar Natalie Wood sem drukknaði við strendur Kaliforníu á sunnudagskvöld var gerð í
Westwood Memorial Park í Hollywood í gær, að viðstöddum um eitthundrað manns. Meðfylgjandi símamynd
AP-fréttastofunnar var tekin við útfórina og sýnir eiginmann leikkonunnar, Robert Wagner, kyssa kistu
leikkonunnar áður en hún var greftruð.
Sjá nánar frétt á bls. 15.
Árásin upphaf hörku
af hálfu stjórnvalda
\ arsjá, 3. desember. AP.
LEIÐTOGAR Samstöðu sögðu stjórnvöld og leiðtoga pólska
kommúnistaflokksins hafa gert út um vonir um sameiginlegt átak
pólsku þjóðarinnar til að komast út úr aðsteðjandi örðugleikum með því
að efna til árásar lögreglu á skóla slökkviliðsmanna í Varsjá í gær, en
mikil reiði ríkti í Póllandi í dag í kjölfar árásarinnar.
Deildir Samstöðu í Varsjá og Gdansk reiddust árásinni og lýstu í gær
verkfallsviðbúnaði á svæðum sínum og kröfðust aðgerða af leiðtogum
Samstöðu, sem íhuguðu í dag allsherjarverkfall á fundi sínum í Radom.
Tilkynnt var á Spáni í dag, að
Calvo Sotelo forseti færi 8. janúar
næstkomandi í opinbera heimsókn
til Lundúna til viðræðna við
Margréti Thatcher forsætisráð-
herra Breta.
Max van der Stoel utanríkis-
ráðherra Hollands sagði í dag að
Hollendingar myndu draga stuðn-
ing sinn við aðild Spánar að
NATO til baka ef einhver röskun
yrði á lýðræði þar í landi. Stoel
kvað aðild Spánar að bandalaginu
ekki mundu raska hernaðarjafn-
væginu milli austurs og vesturs
svo neinu næmi.
Fróðir menn sögðu að land-
fræðileg lega Spánar hefði meiri
þýðingu fyrir bandalagið en her-
styrkur Spánverja, menn þyrftu
Gull og
dollar
hækka
London, 3. de.sember. AP.
VERÐ á dollar og gulli hækkaði á
gjaldeyrismörkuðum í Evrópu og í
Japan í dag. Hækkaði gullúnsan frá
níu og upp í 13 dollara, en dollarinn
um fáein sent.
Þessar verðhækkanir urðu m.a.
vegna aukinnar spennu í Póllandi
og í Miðausturlöndum þar sem
bardagar Irana og Iraka hafa
harðnað verulega síðustu daga.
Skýringin á batnandi stöðu doll-
arans er sögð sú, að brezkir bank-
ar og vestur-þýzki seðlabankinn
lækkuðu í dag vexti á útlánum um
hálft prósent. Þá kvisaðist það út í
Wall Street síðdegis í gær að
Reagan Bandaríkjaforseti hefði
fengið hjartaslag, og þrátt fyrir að
þeim orðrómi væri vísað á bug af
hálfu Hvíta hússins, átti þessi
gróusaga sinn þátt í þeirri skjótu
hækkun sem varð á gulli í morgun.
Gefin var í dag út yfirlýsing í
Radom þar sem sagt var að alls-
herjarverkfall væri hugsanlegt
svar af hálfu Samstöðu, ef þing
Póllands veitti landsstjórninni
völd til að banna verkföll.
Árás lögreglunnar á skóla
slökkviliðsmanna þykir til
marks um það að stjórnvöld
hyggist taka hart á verkföllum,
en þær raddir gerast æ hávær-
ari í pólska kommúnistaflokkn-
um, að banna beri verkföll í
landinu og brjóta þau á bak aft-
ur með hörku ef þurfa þykir.
Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, gerðist harðorður í garð
yfirvalda í dag vegna lögreglu-
árásarinnar og sagði stjórnvöld
vart geta ætlast til skilnings
þjóðarinnar á aðsteðjandi örð-
ugleikum og þolinmæli hennar,
meðan yfirvöld gerðu sig sek um
jafngrófa framkomu og eðli-
legar kröfur um úrbætur í
skólamálum væru hundsaðar
með þessum hætti. Walesa sagði
þó að ekki væri rétti tíminn nú
að efna til átaka við stjórnvöld.
Látnir voru lausir úr haldi í
dag 34 féiagar í Samstöðu er
teknir voru fastir í lögreglu-
árásinni. Þeir voru allir yfir-
heyrðir meðan þeir voru í haldi,
en látnir lausir án ákæru.
Pólskur læknir sagði á fundi
með fréttamönnum í Svíþjóð í
dag, að „mörg börn“ hefðu dáið í
Póllandi síðustu misseri vegna
lélegs tækjabúnaðar í sjúkra-
húsum. Mörg sjúkrahús hefðu
ekki efni á því að kaupa vara-
hluti í tæki sín, sem væru í raun
og veru langt á eftir tímanum,
og mörg dæmi væru um að
sprautunálar, sem jafnan væri
fleygt eftir notkun, hefðu verið
notaðar aftur og aftur í tvö ár.
Waldheim dregur sig í hlé
Sameinuðu þjóðunum, 3. dettember. AP.
KURT WALDHEIM framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur
ákveðið að draga sig í hlé og sækjast ekki eftir útnefningu á ný í starf
framkvæmdastjóra SÞ, að sögn formælanda SÞ í dag.
Waldheim hefur tilkynnt Ör- hefur setið lengur en tvö kjör-
yggisráðinu þessa ákvörðun sína
og óskað eftir því við ráðið að
nafni hans verði sleppt við
næstu atkvæðagreiðslu um nýj-
an framkvæmdastjóra.
Formælandi SÞ kvaðst ekki
geta sagt um hvort Waldheim
mundi hafna því ef honum yrði
boðið að halda framkvæmda-
stjórastarfinu áfram. Hann
bauð sig nú fram í þriðja sinn en
enginn framkvæmdastjóri SÞ
tímabil.
Farið hafa fram 16 árangurs-
lausar atkvæðagreiðslur í Ör-
yggisráðinu um nýjan fram-
kvæmdastjóra SÞ. Keppinautur
Waldheims, sem setið hefur tvö
fimm ára kjörtímabil í
framkvæmdastjórastólnum, við
þessar atkvæðagreiðslur var
Salim Ahmed Salim utanríkis-
ráðherra Tanzaníu.
Kínverjar beittu jafnan neit-
unarvaldi gegn Waldheim, en
þeir segjast ekki ætla að styðja
nema fulltrúa þriðja heimsins til
starfans. Bandaríkjamenn beittu
og neitunarvaldi sínu gegn Sal-
im, sem er 39 ára, þar sem hann
er kunnur fyrir stuðning við
ýmsar öfgastefnur í þriðja heim-
inum.
Olara Otunnu sendiherra Ug-
anda hjá Sameinuðu þjóðunum,
en hann situr í forsæti Öryggis-
ráðsins í desember, sagði í dag
að hann hefði beðið Waldheim
og Salim að draga framboð sín
til baka. Waldheim hefði nú orð-
ið við bón sinni og kvaðst hann
vonast til að heyra fljótlega frá
Salim.