Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.12.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981 Stadfesting Jan Mayen-samkomulags: Nauðsynlegt að ná hlið- stæðu um Rockallsvæðið Ólafur Jóhannesson utan- ríkisráðherra mælti sl. fimmtudag fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að staðfesta, fyrir Islands hönd, samkomulag milli íslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli íslands og Jan Mayen, sem undirritað var í Osló 22. október 1981. Eyj- ólfur Konráð Jónsson (S) og Benedikt Cröndal (A) lýstu yfir stuðningi Sjálfstæðis- flokks og AlþýðuBokks við samkomulagið og töldu það hagstætt fslendingum og til fyrirmyndar fyrir aðrar þjóð- ir, hvern veg leysa megi ágreiningsmál þjóða í milli. Olafur R. Grímsson (Abl) gerði athugasemdir við ní- undu grein samkomulagsins og taldi meðferð málsins í utanríkisnefnd afgerandi um hver yrði endanleg afstaða sín til þess. • Benedikt Gröndal (A) taldi samninginn hagstæðan íslend- ingum og fyrirmynd um, hvern veg vinaþjóðir eigi að leysa ágreiningsmál. Hér væri um mál að ræða, sem þýtt gæti innlegg þeirrar kynslóðar, er nú byggir landið, til eftirkomenda. • Kyjólfur Konráð Jónsson (S) tók í sama streng. Hann minnti á þingsályktun frá haustþingi 1978, sem leiddi til umræðna við Norðmenn og þeirra farsælu lykta, sem nú hefðu náðst. Þetta samkomulag, sem hér væri til umfjöllunar, styrkti kröfuna um helmingsrétt íslendinga á móti Norðmönnum á umræddu svæði. Mikilvægt væri að halda áfram hliðstæðum viðræðum við Breta, Færeyinga og íra um Rockall- svæðið, þar sem bæði olía og gas kynnu að finnast, en hagsmunir okkar tengdust einnig botnlæg- um dýrum og ekki sízt að þetta svæði yrði ekki þann veg nýtt í framtíðinni að mengun gæti stafað af fyrir íslenzk fiskimið. • Olafur Ragnar Grímsson (Abl) gagnrýndi, hvern veg staðið hefði verið að samningum við Norð- menn og lét í ljós efasemdir um 9. gr. samkomulagsins, sem fjall- ar um skiptingu landgrunns- svæðisins. Hann lét að því liggja, að umfjöllun utanríkisnefndar og hvern veg tiltekin ákvæði yrðu túlkuð, gæti ráðið afstöðu sinni til þessa máls. „Tekjuskattur dregur úr framtaki og vinnuvilja“ MÞinGI Jón Þorgilsson (S), sem sat fyrir skemmstu á Alþingi í forfollum Eggerts Haukdal, flutti sína fyrstu þingræðu (jómfrúrræðu), er hann mælti fyrir tillögu, sem hann flutti um afnám tekjuskatts af almennum launatekjum. Jómfrúrrædan fer í heild hér á eftir. Ég hefi leyft mér að flytja á þingskjali 79 svohljóðandi tillögu: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að leggja fyrir næsta ATþingi frumvarp um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt, þar sem tekjuskattur verði af- numinn af almennum launatekj- um.“ A undanförnum árum hefur far- ið fram mikil umræða um tekju- skattinn, kosti hans og ókosti. Fjölda margir fundir félaga og flokka hafa ályktað og samþykkt mikinn fjölda ályktana og tillaga, þar sem þess er óskað eða krafist, að tekjuskattur sé ýmist lækkaður stórlega eða afnuminn með öllu. Öll þessi umræða er ekki óeðlileg þar sem tekjuskatturinn, eins og hann er nú, snertir hagsmuni svo til hvers einasta vinnandi manns í landinu og veldur að margra dómi miklu misrétti milli fólks. Höfuð tilgangur allrar skatt- heimtu er að afla fjár í sameigin- lega sjóði landsmanna og færa fjármuni milli þegnanna til jöfn- unar. Það síðarnefnda á alveg sér- staklega við um stighækkandi skatta eins og tekjuskattinn. Tekjuskatturinn eins og aðrir skattar er vissulega leið til tekju- öflunar, en hann er ekki það tæki til jöfnunar, sem sumir kunna að halda, heldur þvert á móti. Hann er beinlínis valdur að miklu meira misrétti en hægt er að sætta sig við. Hafi tekjuskatturinn einhvern tíma verið leið til tekjujöfnunar, virðast þær forsendur ekki vera lengur fyrir hendi, nema þá að litlu leyti. Nú vill svo vel til í okkar þjóð- „Jómfrúrræða“ Jóns Þorgils- sonar á Alþingi félagi, að fyrir hendi eru ýmsar leiðir til jöfnunar á aðstöðu milli fólks. Fyrst og fremst almanna- tryggingakerfið, ódýr eða ókeypis opinber þjónusta, t.d. í heilbrigð- ismálum og skólamálum, niður- greiðsla á almennum neysluvör- um, trygging lágmarkstekna, barnabætur og persónuafsláttur til greiðslu á útsvari. Það sem hér hefur verið nefnt eru allt miklu árangursríkari leiðir til tekjujöfn- unar en sá stighækkandi tekju- skattur sem við búum nú við. Ekki virðist óeðlilegt að spurt sé, við hvað sé átt með orðunum almennar launatekjur. I þeirri til- lögu, sem hér er til umræðu, er átt við almennar launatekjur, séu þær tekjur eða sama fjárupphæð og rauntekjur, meiri hluta launafólks og sambærilegar tekjur hjá öðrum en launþegum. Tekjuskatturinn í núverandi mynd virðist koma þyngst niður á fólki með meðaltekjur eða ríflega það. Þetta fólk virðist eiga hvað erfiðast með að inna þessar álögur af hendi. Að ekki sé nú minnast á þá sem eru að byggja yfir sig eða greiða skuldir vegna íbúöarkaupa. Stundum heyrist raunar að fólk eigi ekki að leggja það ofurkapp, sem margir hafa gert, til að eign- ast íbúð. Heppilegra sé að byggja og búa í svokölluðum félagsíbúð- um. Félagslegar íbúðir eru góðar, út af fyrir sig, og jafnvel bráð- nauðsynlegar að vissu marki, en það er mikið talað um skort á íbúðarhúsnæði um þessar mundir. Farsælasta og jafnframt fljót- virkasta leiðin til úrbóta í því efni er að nýta það afl og þann vilja, sem í einstaklingunum býr til að eignast eigin íbúð kvaðalaust. Allir þekkja mörg dæmi um það, að fólk, og alveg sérstaklega ungt fólk, hefur lagt á sig mikla vinnu til tekjuöflunar í þeim til- Jón Þorgilsson, sveitarstjóri Hellu. gangi að eignast eigin íbúð og jafnframt neitað sér um flest það, sem telst til svokallaðra lífsgæða til að ná settu marki. Þessu fólki hefur tekjuskattur- inn verið fjötur um fót og það kemur engum vörnum við. Því meira sem menn afla, því harðara sem menn leggja að sér, því gír- ugri verður skattheimtan vegna þessa háa og stighækkandi tekju- skatts. Nú eru nýir kjarasamningar launafólks á næsta leiti. Eins og oft áður er mikið talað um nauð- syn þess að bæta kjör þeirra lægst launuðu. Æði mörgum sýnist þó ekki svigrúm til mikilla kjarabóta. Helst staðnæmast menn við einn þátt öðrum fremur, þ.e. lækkun skatta. Þær eru orðnar æði marg- ar samþykktirnar, sem búið er að gera, þar sem farið er fram á, að tilteknar tekjur verði undanþegn- ar tekjuskatti og fylgir þá með að í því felist verulegar kjarabætur launþegum til handa. Eitt nýjasta dæmið í þessa átt mun vera sam- þykkt um að undan þiggja tekju- skatti yfirvinnu við fiskvinnslu. Enginn vafi er á því að stig- hækkandi tekjuskattur dregur úr Samdráttur í iðnaði á Suðurlandi: 19% verðjöfnunargjald á raforku Kram hefur verið lagt stjórnarfrumvarp um framlengingu 19% verðjöfnunar gjalds á raforku til ársloka 1982. Af því skal verja allt að 3% (af seldri raforku 1982) til að greiða kostnað Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða vegna keyrslu diesel vararafstöðva vegna rafmagnsskorts á sl. vetri, samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra. Heimilt er, skv. frumvarpinu, að endurgreiða Kafveitu Siglufjarðar verðjöfnunargjald af raforku sem nemi allt að þeirri upphæð sem innheimt verður af raforkusölu veitunnar. Atvinnutækifæri á Suðurlandi Sigurður Oskarsson og Guðmundur Karlsson, þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, flytja þingsályktunartil- lögu um opinberar aðgerðir til að tryggja ný atvinnutækifæri á Suður- landi, m.a. með ákvörðunum er tryggi staðsetningu orkufreks iðnað- ar á Suðurlandi, með því að hlutast til um gerð iðnþróunaráætlunar fyrir landshlutann og með ítarlegri könnun á möguleikum hefðbundinna atvinnugreina. I greinargerð kemur fram að áhrif nær óslitinnar virkjanagerðar í hálf- an annan áratug á Suðurlandi hafi m.a. komið fram t því að afkoma hundraða heimila hafi meira og minna tengzt þessum framkvæmd- um. Framkvæmdir við þessar stór- virkjanir hafi stuðlað að sveitfesti fjölda fólks, sem og fjárfestingu í íbúðarhúsnæði, m.a. í þeirri von að möguleikar samfara þessum virkj- unum yrðu nýttir til atvinnusköpun- ar á Suðurlandi. Ljóst sé af skýrsl- um, sem byggðar eru á könnun iðn- ráðgjafa Suðurlands, að stöðnun, jafnvel samdráttur, hafi átt sér stað í iðnrekstri í Rangárvallasýslu og Vestmannaeyjum. Undantekning frá þessu sé aðeins í 5 af 60 iðnfyrir- tækjum með 440-497 starfsmenn, sem könnunin náði til. Þegar stórvirkjanatímabilinu lýk- ur, eða eyður skapast í það, hlýtur vinnuframboð umfram eftirspurn að skapa vandamál, ef ekkert verður að gert. Nauðsynlegt sé að fyrirbyggja í tíma vanda af þessu tagi. Flutningsrád ríkisstofnana Helgi Seljan og Ólafur Ragnar Grímsson, þingmenn Alþýðubanda- lags, endurflytja frumvarp til laga um Flutningsráð ríkisins, skipað 7 mönnum, er Alþingi kjósi til eins kjörtímabils. Hlutverk Flutningsráðs ríkis- stofnana skal vera: a) að vera Alþingi, ríkisstjórn, ráðu- neytum og einstökum ríkisstofn- unum til ráðuneytis um staðarval og flutning ríkisstofnana, þar með taldar deildir og útibú slíkra stofnana, b) að gera tillögur um staðarval nýrra ríkisstofnana og breyt- ingar á staðarvali eldri stofnana, c) að annast a.m.k. einu sinni á ára- tug heildarendurskoðun á stað- setningu ríkisstofnana og gera á grundvelli þeirrar endurskoðunar tillögur um breytingar, sbr. b-lið, d) að fylgjast með framkvæmd ákvarðana um flutning ríkis- stofnana og staðsetningu nýrra stofnana og stuðla að því að auð- velda aðgerðir á þessu sviði. • Ólafur Jóhannesson utanrík- isráðherra þakkaði jákvæðar undirtektir. Misskilningur væri hjá Ólafi Ragnari Grímssyni að Norðmenn hefðu túlkað þetta samkomulag á annan veg en við. Ekki væri búið að fastsetja næsta formlegan viðræðufund við Breta (sem Eyjólfur hafði spurt um) um Rockallsvæðið, en málinu væri haldið vakandi, þó formlegar umræður hefðu aðeins farið fram, enn sem komið væri, á einum fundi. framtaki manna og vinnuvilja. Þegar svo er komið að meira en önnur hver króna, sem aflað er, fer í opinber gjöld, fara margir að hugsa sig um hvort það borgi sig að vera að vinna. Þessa hugsun- arháttar verður æði víða vart. Þjóðfélagsgerð sem beinlínis leiðir til hugleiðinga um hvort það borgi sig að vinna er ekki viðunandi, hvorki vegna þeirra einstaklinga sem þannig hugsa og ekki siður vegna þess að svona hugsunar- háttur er skaðlegur fyrir þjóðfé- lagið í heild, ekki síst vegna þess að oftast er það dugmesta fólkið sem á í hlut. Af mörgum ókostum við háan og stighækkandi tekjuskatt og hér hefur nokkurra þeirra verið getið, er sá ótalinn, sem verstur er. Það er sá möguleiki, sem alltof margir hafa til að koma sér undan þessum skattgreiðslum og raunar ákveða skatta sína sjálfir án tillits til raunverulegra tekna. Það er al- kunna að margir eru haldnir þeirri áráttu, að koma sér undan því að greiða gjöld í sameiginlega sjóði landsmanna. Aðstaða manna til raunverulegra framkvæmda í þessu efni er ákaflega misjöfn. Þetta þekkja allir og því ætti ekki að vera þörf á að fara þar um mörgum orðum. Því er ekki að neita að vegna þessa aðstöðumun- ar m.a. hefur tekjuskatturinn oft verið nefndur launamannaskatt- ur. Ekki er við hæfi að ganga fram hjá því, að af hálfu stjórnvalda hefur ýmislegt verið gert, til að reyna að draga úr undanskotum frá tekjuskatti, en árangurinn af öllu því starfi og þeim kostnaði, sem því fylgir hefur orðið sorglega lítil. Ég held að allar ríkisstjórnir á síðustu tveimur áratugum a.m.k. hafi haft á sinni stefnuskrá að auka aðhald með skattframtölum, herða skattaeftirlit og þyngja refsingar fyrir brot. Þrátt fyrir öll fögur fyrirheit í þessu efni hefur lítið miðað í réttlætisátt. Ég tel því að rétt væri, af þessari ástæðu einni, að reyna að breyta um stefnu og koma efni þessarar til- lögu til framkvæmda og fækka skattgreiðendum þar með veru- lega. Skattheimta er aldrei vinsæl at- höfn og flestir eru þeirrar skoðun- ar að skattar þeirra séu allt of háir. Óvinsælastur af öllum skött- um mun tekjuskatturinn þó vera. Ástæðan er vafalaust það mis- rétti, sem menn telja að hann valdi og eru æði oft fundvísir á dæmi um slíkt. Af þessari ástæðu er eðlilegt að draga úr þessari skattheimtu. Undanfarin tvö ár hafa farið fram miklar umræður um 59. gr. tekjuskattslaganna og sýnist sitt hverjum um hversu réttmæt ákv. hennar séu og þá ekki síður um framkvæmd hennar. Ef efni þess- arar tillögu nær fram að ganga, er skoðun mín sú, að ákv. 59. greinar- innar séu að mestu óvirk og ágreiningurinn um ákvæði hennar og framkvæmd, ætti þar með að vera úr sögunni a.m.k. að mestu leyti. Þótt tekjuskatturinn hafi ekki þungt vægi miðað við heildartekj- ur ríkissjóðs, er flutningsmanni ljóst, að nái efni þessarar tillögu fram að ganga, er líklegt að ein- hverjir telji að það tekjutap, sem ríkissjóður yrði fyrir með fram- kvæmd hennar, yrði hann að fá bætt með öðrum hætti. Tillagan gerir einmitt ráð fyrir þeim möguleika, þar sem áhrif af samþykkt hennar koma ekki til framkvæmda fyrr en á árinu 1983.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.