Morgunblaðið - 04.12.1981, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
Tveimur tonnum
meira af smjöri
- vegna framleiðslu léttmjólkur í október
LÉTTMJÓLK hækkadi í verði á þriðjudag eins og þær landbúnaðarvörur,
sem sexmannanefndin ákveður verð á. Hver lítri af léttmjólk kostar nú 6,65
krónur og er sama verð á léttmjólkinni og venjulegri mjólk.
Léttmjólk kom á markað í
október og hefur verð hennar fylgt
verði á nýmjólk síðan. Rætt hefur
verið um að framleiðsla léttmjólk-
ur kunni að lækka verð á rjóma
eða smjöri er fram í sækir, en
ákvörðun um slíkt hefur ekki verið
tekin.
í októbermánuði er talið, að sú
fita, sem féll til við framleiðslu
léttmjólkur, svari til rösklega
tveggja tonna af smjöri eða fitu.
Léttmjólkin kom á markað í
október eins og áður sagði, en lík-
legt er, að talsvert meira hafi ver-
ið framleitt og selt af léttmjólk
heldur en í októbermánuði.
Vínveitingaleyfið til Broadway rætt í borgarstjórn:
Sjöfn vildi binda leyfi
því skilyrði að nafni
hússins yrði breytt
SJÖFN Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi Alþýðuflokksins lagði það til á fundi
borgarstjórnar í gærkveldi, að vínveitingaleyfi til handa veitingahúsinu Broadway
yrði bundið því skilyrði að veitingahúsinu verði valið „viðeigandi íslenskt nafn“.
Þessi tillaga borgarfulltrúans hlaut aðeins atkvæði hans sjálfs og því ekki na gan
stuðning.
Sagði borgarfulltrúinn í ræðu
sinni að sér fyndist nafnið ósmekk-
legt og illa valið, eins og raunar nafn
annars veitingahúss sem eigandi
Broadway ætti. Veitingahús það
heitir Hollywood. Sagði Sjöfn það
hinn mesta ósið, að velja íslenskum
fyrirtækjum erlend nöfn og óþarft
með öllu „og er skemmst að minnast
hins fagra nafns, sem veitingahúsið
Óðal ber,“ sagði Sjöfn. Þá sagði hún
að fyrirhugað væri að opna kvik-
myndahús á sama stað og ætti það
að heita Dallas. „Finnst mér að
borgarstjórn eigi að grípa hér inn í
og gera þá skilyrðislausu kröfu að
kvikmyndahúsi þessu verði valið ís-
0'
INNLENT
lenskt nafn, enda bera öll hin kvik-
myndahúsin hér í Reykjavík íslensk
nöfn,“ sagði Sjöfn.
í umræðum um tillögu Sjafnar
kom það fram hjá Davíð Oddssyni
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
að menn þyrftu að vita með vissu
hvort hægt væri að binda vínveit-
ingaleyfi skilyrði sem þessu. Enn-
fremur sagðist hann ekki vita hvort
rétt væri að krefjast þess að nöfnum
veitingahúsa verði breytt. Albert
Guðmundsson borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins sagði, að hvar sem
menn ferðuðust kæmi í ljós að nöfn
staða sem þessara væru tekin héðan
og þaðan. Sagði Albert að það væri
engin málhreinsun að því að skyida
fólk til þess að láta fyrirtæki bera
ákveðin nöfn. Kvaðst Albert hafa
ferðast víða um heiminn og hvergi í
veröldinni hefði hann séð betur
hannaðan skemmtistað. Albert sagði
að það væri útkjálkaháttur að vilja
ekki að fyrirtæki sem þetta bæru
erlend nöfn, enda væri nafn fyrir-
tækisins í samræmi við þá starfsemi
sem þar færi fram.
Jólatréssalan hefst eftir helgi
Jólatréssala Landgræðslusjóðs hefst eftir helgina, en verið er að undir
búa söluna og koma jólatrjám til söluaðila. Endanlegt verð hefur enn
ekki verið ákveðið að sögn starfsmanns Landgræðslusjóðs þar sem papp-
írar vegna innfluttra trjáa eru ekki enn komnir. Ljtm. Krístján.
ASV hyggur á að-
gerðir eftir áramótin
FUNDIJR hefur ekki verið
haldinn í kjaradeilu Alþýðu-
sambands Vestfirðinga og
Vinnuveitendafélagsins um
nokkurn tíma. Jóhann T.
Bjarnason, sem er fulltrúi
sáttasemjara í þessari deilu
Birgir Ottósson ráðinn fulltrúi í húsnæðisdeild Félagsmálastofnunar:
Alþýdubandalagið vændi
menn um „starfsbannsár-
áttu“ og „kvenfyrirlitningu“
- vildu ráða Birnu Þórðardóttur í starfið
BORGARSTJÓRN samþykkti í gærkveldi að ráða Birgi Ottósson í sUrf
fulltrúa í húsnæðisdeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Hlaut Birg-
ir 8 atkvæði, Birna bórðardóttir 5 atkvæði, Jóhannes Konráðsson 1 atkvæði
og Birgir Þorvaldsson 1 atkvæði.
Talsverðar umræður urðu í
borgarstjórn um ráðningu þessa og
upplýstist það á fundinum að tekið
hefði meirihlutann 3 mánuði að
fjalla um málið. í umræðum kom
það fram að Alþýðubandalagið
lagði þunga áherslu á að Birna
Þórðardóttir stjórnmálafræðingur
yrði ráðin til starfans og töldu
borgarfulltrúar Alþýðubandalags-
ins að hún væri eini vel hæfi um-
sækjandinn. Sagði Þorbjörn
Broddason varaborgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins og lektor við Fé-
lagsvísindadeild Háskóla íslands
að Birna hefði próf í félagsfræði og
reynslu af skrifstofustörfum og
einnig hefði hún setið í stjórn
Leigjendasamtakanna. Sagði hann
að engin rök hefðu komið fram
gegn Birnu og kvaðst hann gruna
starfsmenn Féiagsmálastofnunar
um að hafa ekki mælt með ráðn-
ingu Birnu af annarlegum ástæð-
um. Sagði hann að hér væri um
„starfsbannsáráttu" að ræða sem
beindist gegn pólitískum andstæð-
ingum. Ennfremur sagði hann
ástæðu þess að Birna væri ekki
vaiin vera „kvenfyrirlitningu" og
væri veiting starfsins til annars en
hennar brot á jafnréttislögum.
Vegna þessara ummæla Þorbjörns
kom fram á fundinum að í félags-
málaráði, þar sem atkvæði voru
greidd um umsækjendur, eiga 5
konur sæti, en einungis 2 karlar.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sagði, að það
væri óskiljanlegt hve langan tíma
það hefði tekið meirihlutann í
borgarstjórn að ganga frá ráðn-
ingu starfsmanns í þetta starf, en
starfsmaðurinn ætti að taka laun
samkvæmt 12. launaflokki. Af
þessu mætti sjá í hvílíkum ógöng-
um stjórn borgarinnar væri, þegar
svona langan tíma tæki að ráða
mann í starf sem þetta. Davíð
spurði hvort nauðsynlegt væri að
ráða stjórnmálafræðing í starf
fulltrúa í húsnæðisdeildinni, en
fulltrúi væri í raun aðstoðarmaður
húsnæðisfulltrúa. Að sínu mati
væri ekki þörf á stjórnmálafræð-
ingi i þetta starf. Sagði Davíð að
húsnæðisfulltrúi hefði bent á hæf-
asta umsækjandann til að annast
starfið, sem m.a. fælist í húsvörslu,
og rétt væri að fara að umsögn
hans.
Gerður Steinþórsdóttir vara-
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins upplýsti að starfssvið umrædds
fulltrúa væri þríþætt; að vera
tengiliður húsnæðisstofnunar, að
hafa eftirlit með búslóðum og að
hafa eftirlit með flutningstilkynn-
ingum. Sagði hún að stjórnmála-
fræðingur ætti ekki heima í þessu
starfi.
Albert Guðmundsson borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði
að greidd væru laun samkvæmt 12.
launaflokki í starfinu. Hins vegar
hefði það komið fram að Birna
Þórðardóttir vildi fá laun sam-
kvæmt 17. launaflokki, umsækj-
andinn væri þegar farinn að gera
launakröfur. Þá sagðist Albert
telja að þetta starf væri ekki við
hæfi kvenna miðað við starfslýs-
ingu.
sagði í samtali við Mbl. að
fundur hefði ekki verið
boðaður að höfðu samráði
við aðila.
Pétur Sigurðsson, formaður
ASV, sagði í samtaii við blaðið, að
ekki væri hægt að sætta sig við
svar stjórnvalda um úrbætur í
jöfnun orku- og hitakostnaðar og
fleiri atriði, sem ASV hefði rætt
um við forsætisráðherra. — Við
förum okkur hins vegar hægt og
höldum vonandi gleðileg jól hér
fyrir vestan, en förum síðan af
stað eftir áramót, sagði Pétur. —
Mér sýnist að þessi litla kaup-
hækkun, sem samið var um á dög-
unum, sé þegar nánast uppétin og
hækkanirnar dembast yfir þessa
dagana.
Bókin um Ólal’
Thors þrotin
hjá forlaginu
Önnur prentun væntanleg
FYRSTA upplag bókarinnar um Ólaf
Thors eftir Matthías Johannessen,
sem Almenna bókafélagið gefur út,
er nú þrotið hjá forlaginu. Brynjólfur
Bjarnason framkvæmdastjóri þess
tjáði Mbl. að síðustu eintökin hefðu
selst sl. þriðjudag og væri önnur
prentun væntanleg í næstu viku.
Brynjólfur Bjarnason sagði að
bókin hefði hlotið mun skjótari
sölu, en vonast var til. Fyrir verk-
fa.ll prentara hefði tekist að ná því
upplagi, sem nauðsynlegt var talið
og strax eftir verkfallið var séð að
viðbótarupplags var þörf og önnur
prentun því sett af stað. Væri
hennar von í næstu viku.
Verslanir al-
mennt opnar til
kl. 16 á morgun
VERSLANIR verða almennt
opnar á morgun, laugardag, til
klukkan fjögur síðdegis, en eins
og kunnugt er er opnunartími
þeirra jafnan framlengdur á
laugardögum í desember.
Annan laugardag, þ.e. 12.
desember, verða búðir opnar til
kl. 18 og iaugardaginn 19. des.
til kl. 22. Þá er búðum heimilt
að hafa opið til kl. 23 á Þor-
Iáksmessu og til hádegis á að-
fangadag.
Saltfiskur hækk-
ar um 15% í dag
RlKISSTJÓRNIN hefur staðfest
heimild Verðlagsráðs um \5% hækk-
un á saltfiski og tekur hækkunin því
gildi í dag.
Verðlagsráð samþykkti þessa
hækkun fyrr í vikunni, en hún
þurfti að fara fyrir ríkisstjórn, þar
sem um var að ræða meiri hækkun
en 10%. Verðlagsstjóri hefur heim-
ild til að staðfesta hækkanir, sem
eru 10% eða minni.
Athugasemd
frá Sjálfstæð-
isflokknum
VEGNA fréttar í dagblaðinu Tíman-
um þann 01.12/81 og 03.12/81 um
fjölda ógildra atkvæða í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um
síðustu helgi, óska ég að eftirfarandi
komi fram á síðum dagblaðsins:
Þátttakcndur í prófkjörinu voru
5.917, ógild atkvæði voru 76 og auðir
seðlar 8.
Umsókn myndbandaklúbbsins Keðjunnar:
Akvarðanatöku var
frestað í borgarstjórn
BORGARNTJÓRN samþykkti í gærkveldi að fresta ákvarðanatöku um erindi
frá myndbandaklúbbnum Keðjunni, en myndbandaklúbbur þessi fer fram á
heimild til lagningar jarðstrengja um borgina vegna myndbandaútsendinga.
Máli þessu var frestað til þess að hægt væri að binda leyfið því skilyrði, að við
lagningu jarðstrengja yrði fylgt reglum sem borgarverkfræðingur setur.
hefðu verið sett áður en þessi tækni
I umræðum um erindi þetta kom
það fram hjá Sigurjóni Péturssyni
borgarfulltúa Alþýðubandalagsins
og forseta borgarstjórnar, að tæp-
ast væri hægt að hafna erindi
þessu, þar sem fordæmi væri komið
á um leyfisveitingu sem þessa. Sig-
urjón sagðist vera á móti þessu eins
og áður, kvaðst hann hafa greitt at-
kvæði gegn erindinu í borgarráði.
Ennfremur kvaðst hann telja að
hér gæti verið um grín að ræða, þar
sem meðlimir í klúbbnum væru
víðsvegar um borgina og í umsókn
væri ekki talað um að tengja heim-
ili meðlima saman með jarð-
strengjum, heldur þá sjálfa.
Albert Guðmundsson sagði að
menn yrðu að fá að nýta þá tækni
sem fyrir hendi væri, útvarpslög
hefði komið til sögunnar og þeim
yrði að breyta. Sagði Albert að heil
borgarhverfi og jafnvel heilu
byggðarlögin vildu versla við
myndbandafyrirtæki og borgin ætti
ekki að leggja stein í götu þeirra.
Markús Örn Antonsson sagði að
vera mætti að hér væri um grín að
ræða, en þetta mál yrði að taka
sömu tökum og önnur sem bærust
borgarstjórn. Sagði hann sína af-
stöðu í málinu þá sömu og verið
hefði, hann væri hlynntur leyfis-
veitingu. Hins vegar yrði að setja
reglur um það hvernig staðið yrði
að lagningu jarðstrengjanna, til
þess að borgin væri ekki sundur-
grafin vegna lagnanna.