Morgunblaðið - 04.12.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
Mjólkurfræðingar hafna ASI-samkomu-
laginu og boða verkfall:
Mun fijótlega hafa
áhrif semjist ekki
MJÓLKURFRÆÐINGAFÉLAG íslands hefur boðað til verk-
falls og hafi samningar ekki tekist byrjar verkfall mjólkur
fræðinga um allt land annan mánudag, þann 14. desember.
Einn fundur hefur farið fram um kröfugerð mjólkurfræðinga
hjá sáttasemjara ríkisins, en ekkert miðaði í samkomulagsátt
á þeim fundi og því ákváðu mjólkurfræðingar að boða til
verkfalls, en þeir hafa hafnað samningi á grundvelli ASÍ-
samkomulagsins við vinnuveitendur. Talið er að áhrifa verk-
falls mjólkurfræðinga, ef af því verður, muni gæta fljótlega
eftir að það skellur á.
Samningar mjólkurfræðinga
voru lausir 1. nóvember síðastlið-
inn og var kjaradeilu þeirra við
Vinnuveitendasamband Islands og
Vinnumálasamband Samvinnufé-
laga vísað til sáttasemjara fyrir
nokkrum dögum. Fyrsti formlegi
samningafundurinn var haldinn í
fyrradag og þar rætt um kröfur
mjólkurfræðinga, sem byggjast á
því, að við þá verði gerður kjara-
samningur eins og hjá mörgum
öðrum hópum.
Guðlaugur Björgvinsson, for-
stjóri Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík, sagði að í kröfum sín-
um færu mjólkurfræðingar fram á
þennan kjarasamning, en auk þess
að þeir héldu ákveðnum greiðsl-
um, sem nú eru inni í kjara-
samningum þeirra. Sagðist Guð-
laugur meta kröfur mjólkurfræð-
inga til 21-27% launahækkana
mismunandi eftir því hve langt
nám mjólkurfræðingar hafa að
baki.
Mjólkurf^æðingar hafa rætt um
skammtímasamning eins og ASI
gerði á dögunum með 3,25%
launahækkun á samningstíman-
um. Hafa þeir hafnað slíku
samkomulagi. Guðlaugur Björg-
vinsson sagði að kröfur mjólkur-
fræðinga kæmu vart til greina og
ekki væri hægt að semja allt öðru
vísi við mjólkurfræðinga en aðra
launþega í landinu.
Stálu peninga-
boxum úr
stöðumælum
STÖÐIJMÆLAR í Tryggvagötu voru
á þriðjudag spenntir upp og höfðu
þjófarnir á brott með sér peninga-
box, sem í mælunum voru. Alls eyði-
lögðu þjófarnir fimm stöðumæla og
höfðu peningaboxin úr þeim á brott
með sér. Ekki hefur tekist að hafa
hendur í hári þjófanna.
„Þú og ég“ slá
í gegn í Japan
NÚ er komin út á Japansmark-
aði 12 laga plata, „You and 1“
(Þú og ég), með þeim Helgu
Möller og Jóhanni Helgasyni.
I>ar syngja þau lög eftir íslenzka
hljómlistarmenn og hefur plöt-
unni þegar verið tekið mjög vel í
norðurhluta Japans og hafin er
kynning á henni í suðurhlutan-
um.
Að sögn Steinars Berg ís-
leifssonar, hljómplötuútgef-
anda, gengur sala plötunnar nú
þegar mjög vel og lag Gunnars
Þórðarsonar „We Are the
Love“ (Þú og ég) er orðið
geysivinsælt í norðurhluta
Japans, þar sem kynning plöt-
unnar hófst. Þá sagði hann að
byrjað væri að kynna plötuna í
Tokyo og væru markaðshorfur
mjög góðar. Og nú eftir helgina
yrði gerð sjónvarpsauglýs-
ingamynd með þeim Helgu og
Johanni, þar sem þau syngju
lagið, og yrði hún send til Jap-
ans. Þá sagði Steinar að platan
hefði þegar verið auglýst á
miðopnu í stærsta tónlistar-
blaði Japans og kvaðst hann
vera bjartsýnn á að góður ár-
angur næðist þar, en enn hefði
hann ekki fengið neinar tölur
um sölu.
Ný Ijóðabók Jóns
úr Vör komin út
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefíð út nýja Ijóðabók eftir
Jón úr Vör. Heitir hún Regnboga-
stígur og flytur 53 kvæði, 28 frumort
en 25 þýdd.
Frumortu Ijóðin skiptast í þrjá
flokka sem bera fyrirsagnirnar
llringlcikar, Káðgjafinn og Von-
arstræti. Höfundar þýddu kvæðanna
eru skáldkonurnar Guðrið Helmsdal
Nielsen, Aslaug Listad Lygre, Birgit
Filskov, Maria Wine og Edith Söd-
ergran.
Um höfundinn og skáldskap
hans segir á bókarkápu: „Jón úr
Vör gerðist ungur frumherji um-
deildrar formbyltingar í íslensk-
um nútímakveðskap en hefur
löngu tryggt sér virðulegt sæti á
skáldaþingi. Fyrri bækur hans
eru: Ég ber að dyrum (1937), Stund
milli stríða (1942), I>orpið (1946),
Með hljóðstaf (1951), Með örvalaus-
um boga (1951), Vetrarmávar
(1960), Maurildaskógur (1965),
Mjallhvítarkistan (1968), Vinarhús
(1972) og Altarisbergið (1978).
Regnbogastígur er ellefta ljóðabók
Jóns úr Vör, og enn sem fyrr reyn-
ist hann trúr sérstöðu sinni: ein-
földum en einlægum boðskap
skálds er finnur sárt til með öllu
Jón úr Vör
sem berst og líður og þarf á
mannrænum skilningi að halda til
þess að njóta sín. Ljóðin í bókinni
eru rökrétt framhald af fyrri
kvæðum þessa hreinskilna skálds
sem telst hófsamur en einarður
boðberi kröfunnar um betra og
fegurra mannlíf".
Regnbogastígur er 108 bls. að
stærð. Káputeikningu gerði Snorri
Sveinn Friðriksson, en bókin er
sett, prentuð og bundin í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar.
Stolið hjá herstöðvaandstæðingum
UM 1500 KRÓNUM í peningum var stolið á skrifstofu herstöðvarand-
stæðinga á Skólavörðustíg la. Ekki er Ijóst hvenær peningunum var
stolið, en um kl. 18 á miðvikudag var peninganna saknað. Hvort þeim var
stolið á miðvikudeginum, eða aðfaranótt miðvikudagsins, er ekki Ijóst.
Aðfaranótt fimmtudags var
brotist inn í Safnarabúðina á
Frakkastíg 7. Þaðan var stolið um
200 kassettum og útvarpstæki.
Þjófurinn fór inn um glugga. Tals-
verðar skemmdir voru unnar í
verzluninni og var allt á rúi og
stúi þegar að var komið.
>0
r
\
Víð þurfum ekkí
að tala undir rós. PHILIPS 20" IHasjónvarpstækin
kosta ekki nema9.485 krónur!
Það er ótrúlegt en alveg satt. Nýju litasjonvörpin hafa / Philips litasjónvörpin eru til í mörgum stærðum og
sjaldan verið á betra verði. Tökum til dæmis / / gerðum. Annað dæmi um góð kaup eru til dærois
vinsælustu sjónvarpstækin frá Philips, falleg litasjón- f J Philipstækin með 20“ skermi, sem kosta
varpstæki með 26“ skermi og og fjarstýringu. Þau j / aðeins »185 .- krónur, sé miðað við staðgreiðslu.
kosta 14.135 .- krónur, heimsend og stillt. Þetta verð
er miðað við staðgreiðslu, en auðvitað koma ýmsir /
greiðslumátar til greina, þá með mismunandi verði l J
eftir greiðslugetu þinni. Þá er einnig rétt að geta þess, ^
að þu getur fengið 26“ litasjónvarp án fjarstýringar
fyrir kr. 12257.- miðað við staðgreiðslu. j
PMIðJPS
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 204S5 - SÆTUN 8 - '5655
Þetta eru frabær litasjónvörp í einu orði sagt. Philips
hefur getið sér mjög gott orð fyrir vöruvöndun og
framleiðslugæði. Þetta kemur ekki síst fram í
myndgæðum og góðu verði. Sölumenn okkar veita þér
fiíslega frekari upplýsingar um litasjónvarp, sem hæfir
heimili þínu.
Nú er tíminn til aö IHvæÓast fyrir veturinn!
y.