Morgunblaðið - 04.12.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
11
Gamanmál og endurminning-
ar í Borgfirskri blöndu
NÝLEGA er komin út hjá Hörpuút-
gáfunni á Akranesi fimmta og síð-
asta bókin í safnritinu Borgfirzk
blanda. Af efni bókarinnar má
nefna endurminningar Benedikts í
Skuld, sem nú líta dagsins Ijós í
fyrsta sinn. Þar er brugðið upp mynd
af húsakynnum og mannlífi á Akra-
nesi um aldamótin síðustu og sagt
frá einstökum dugnaði og fórnar
lund við kröpp kjör og erfiðar að-
stæður. Einnig er stór syrpa af gam-
anmálum, þar á meðal hinar frægu
Pungavísur Olafs í Brautarholti og
Þorláks Kristjánssonar. Þá eru í
Blöndunni, auk Gamanmála og þjóð-
lífsþátta, frásagnir af slysförum,
endurminningar og fróðleikur af
ýmsu tagi.
Bragi Þórðarson, bókaútgefandi
á Akranesi, hefur safnað efninu í
þessar fimm bækur og sjálfur
skráð hluta af því eftir frásögnum
fólks og samtíma heimildum. Auk
hans eiga eftirtaldir höfundar efni
í bókinni: Asgeir Bjarnason frá
Knarrarnesi, Benedikt Tómasson
Akranesi, Björn Jakobsson frá
Varmalæk, Guðbrandur Magnús-
son Alftá, Hallfreður Guðmunds-
son fv. hafnsögumaður, Júlíus
Bjarnason Leirá, Júlíus Þórðarson
Akranesi, Karl Benediktsson
Akranesi, Magnús Sveinsson frá
Hvítsstöðum, Oskar Þórðarson frá
Haga, Páll Helgason frá Knarr-
arnesi, Petra Pétursdóttir frá
Skarði, Ragnar Olgeirsson Odds-
stöðum, Sigurður Guðmundsson
frá Kolsstöðum, Sigurður Jónsson
frá Haukagili, Sigurður Vigfússon
Akranesi, Sveinbjörn Beinteins-
Júlíus Baldvinsson og Hafrún Víglundsdóttir við stjórnvölinn í nýju verzlun-
inni á opnunardaginn. Ljósm. Arnór.
Verzlunum í Garðinum
fjölgar um helming
(■ardi 28. nóvember.
í MORGUN var opnuð ný verzlun að
Lyngbraut 2. Heitir hún Verzlunin
Rún og eru eigendur hjónin Júlíus
Baldvinsson og Hafrún Víglunds-
dóttir. A boðstólnum eru ritföng,
leikföng og gjafavörur alls konar.
Aðspurður sagði Júlíus að þeim
hjónum hafi þótt vanta verzlun af
þessu tagi í byggðarlagið. Reyndar
vantaði alla þjónustu nema hvað
hér er ein matvöruverzlun og
benzinsala með viðeigandi
„sjoppu". Þau hefðu fengið leyfi
hjá hreppsnefnd og hefði það verið
auðsótt. Þá hefir frúin starfað
lengi að verzlunarrekstri og fékk
hún verzlunarleyfi út á sína
reynslu.
Verzlunin er í hluta íbúðarhúss
þeirra hjóna en hugmyndin er að
komast í hentugra húsnæði ef
bæjarbúar og aðrir Suðurnesja-
menn taka þessu framtaki þeirra
hjóna vel. Þá er hugmyndin að
auka við vöruvalið mjög fljótlega
en að sjálfsögðu fer framvindan
eftir móttökunum, sagði Júlíus að
lokum.
Arnór.
Jólabasar í Njardvíkum
SYSTRAFÉLAG Ytri-Njarðvíkur
kirkju heldur jólabasar næstkom-
andi laugardag 5. des. kl. 3 e.h. í
safnaðarsal kirkjunnar.
Félagskonur hafa haft einn til
tvo vinnufundi í viku í vetur og
búið til aðventukransa, borð- og
veggskreytingar, óróa, málað ker-
amik og fleira.
Þá verður á boðstólum kaffi og
með því, í fundarsal.
En það koma fleiri við sögu. Kór
Tónlistarskólans, undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur syngur í kirkj-
unni kl. 3.30 og kl. 4.00 og er kirkj-
an öllum opin á meðan. Svo er líka
búist við skemmtilegri uppákomu
áður en basarinn hefst.
Það mun veita öllum mikla gleði
að koma í kirkjuna á laugardaginn
og eiga þar góða stund um leið og
kirkjunni er veittur stuðningur.
(Frétt frá systrafélaginu)
Basar hjá FEF á laugardag
LAUGARDAGINN 5. des. heldur Félag einstæðra foreldra jólabasar í
Fáksheimilinu og hefst hann kl. 2 e.h. Þar verður á boðstólum úrval
gjafavara, brúður, dúkar, jólaskraut, blóm og kökur o.fl.
8 til 10 stiga hiti
um allt land
— vída vegaskemmdir vegna vatnagangs
Bragi Þórðarson
son Draghálsi, Sveinn Sæmunds-
son frá Sigtúnum, Vaigarður L.
Jónsson frá Miðfeili, Þorsteinn
Guðmundsson Skálpastöðum.
Borgfirzk blanda 5 er 248 bls. í
stóru broti. Fjöldi mynda er í bók-
inni. Prentverk Akraness hf. hefur
annast setningu, prentun og bók-
band. Káputeikningu gerði Ragn-
ar Lár.
ÓVENJUHEITT hefur verið í veðri
hér á landi síðustu daga og á há-
degi í gær var hitastig um allt land
8 til 10 gráður. Þessum hlýindum
hefur fylgt talsverð úrkoma og hafa
vegir víða skemmzt vegna þcss og
meðal annars lenti kartöflubíll í
hvarfi á vegi í Þykkvabænum í gær
með þeim afleiðingum að hann valt
og nokkuð af kartöflunum
skemmdist.
Að sögn veðurstofunnar eru
hlýindi sem þessi ekki mjög óal-
geng, þó svo langt sé liðið á árið.
Þau stafi af samspili hæða og
lægða, sem veita þá hingað heitu
lofti langt sunnan úr löndum.
Hins vegar munu landsmenn
ekki njóta þessara hlýinda miklu
lengur, því veðurfræðingar spá
því, að í dag fari kólnandi og á
morgun verði komin norðanátt
og kuldi um allt land.
Hjá vegaeftirlitinu fengust
þær upplýsingar, að mikið
vatnsveður hefði verið á Vest-
fjörðum, sem og víðar og hefðu
vegir þar skemmzt nokkuð af
vatnagangi og aurbleyta væri
komin í þá, sérstaklega á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Því
hefðu verið settar þungatak-
markanir á veginn úr Þorskafirði
og að vegamótum Flateyrarveg-
ar. Þá hefði orðið eitthvað um
minniháttar vegaskemmdir vest-
aniands og sunnan. Að öðru leyti
væru flestir vegir, aðrir en hæstu
fjallvegir, færir.
'Augaö er leið
að hiartanu
Pessi írábœru litsjónvarpstœki írá LUXOR
haía svo sannarlega sannað tilverurétt
sinn hér á landi, því það er komin 15 ára
reynsla á þeim.
Eí þú ert að hugsa um litsjónvarpstœki,
lítil eða stór, með ótrúleg litgœði enda-
lausa endingu, tóngœði og íallegt útlit
þá velur þú þér LUXOR.
LUXOR gœdi, LUXOR þjónusta. Verö írá kr. 9.300.
HLJÓMTÆKJADEILD
UXOR KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999