Morgunblaðið - 04.12.1981, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
Líf og list
fatlaðra á
Hótel Borg
„Ég lærði þýskuna smám saman
þ«-gar ég var krakki. Á heimili
mínu var jafnan mikið af þýsku
starfsfólki, ég hlustaði á það tala
saman og fór að velta fyrir mér
hvernig hitt og þetta væri sagt á
þýsku.“ sagði Hulda Hermanns er
við hittum hana í hrókasamræðum
við Carl Billich á þýsku á menning-
arvökunni, Líf og list fatlaðra, á
Hótel Borg sl. þriðjudag en síðasti
dagur menningarvökunnar er í
dag. En Hulda hafði þá nýlokið
söng ásamt þrem öðrum meðlim-
um Sólheimakvartettsins, þeim
Guðlaugu Jónatansdóttur, Krist-
jönu Larsen og Hanný Haralds-
dóttur, þar sem nokkur þýsk lög
voru m.a. á dagskrá. Hulda er eitt
af fjölmörgum fósturbörnum Sess-
elju H. Sigmundsdóttur, en hún
stofnaði Sólheima sem kunnugt er
um 1930.
Sólheimakvartettinn syngur. Frá vinstri Hulda Hermanns, Guiðlaug Jónatansdóttir, Kristjana Larsen og Hanný
Haraldsdóttir.
Litið inn á Menningarvöku
Menningarvakan hefur verið
vel sótt og sögðu þau Hrefna
Þórarinsdóttir, Lovísa Óskars-
dóttir og Friðrik Sigurðsson að-
sókn hafa verið sérstaklega góða
um síðustu helgi, en þau áttu
sæti í undirbúningsnefnd menn-
ingarvökunnar. „Hér koma fram
listamenn ekki vegna þess að
þeir séu fatlaðir, heldur þrátt
fyrir það, margt hér er með því
besta sem fram kemur á lista-
sviðinu."
Á dagskrá þessa dagstund var
auk sönglaga Sólheimakvart-
ettsins tónleikar bræðranna
Arnþórs og Gísla Helgasonar en
þeir léku nokkur lög við góðar
undirtektir.
í anddyrinu voru nokkrir ung-
ir listamenn að spreyta sig. Einn
af föstum liðum vökunnar hefur
verið svonefnd lifandi vinnu-
stofa í myndsköpun, sem Sigríð-
ur Björnsdóttir hefur veitt for-
stöðu, og notið aðstoðar nem-
enda úr kennaradeild Myndlista-
og Handíðaskólans.“ „Hér hefur
mikið verið unnið" og Sigríður
bendir á veggina sem eru þaktir
myndum í öllum litum, stærðum
og gerðum. „Um helgina var sér-
staklega margt' um manninn.
Hingað komu ömmur, afar, og
pabSar og mömmur með börnum
sinum og máluðu hér bæði börn
og fullorðnir. Má segja að hér
hafi farið fram fjölskyldu-
myndsköpun," segir Sigríður og
brosir.
Sigríður Björnsdóttir og hluti af hinni lifandi vinnustofu í myndsköpun. Á
myndinni eru einnig aðstoðarfólk og ungur listamaður.
Þetta unga listafólk heitir Ríkarður; en hann er 11 ára og segist hafa
teiknað 3 myndir í vinnustofunni og Iris, þriggja ára, sem er að mála aðra
mynd sína á staðnum. v
í öðru horni í forstofunni var leiksvæði barna með leiktækjum og kynn-
ingu á leiktækjum.
Jólabasar
í Digranes-
prestakalli
Fjáröflunarnefnd Kirkjufélags-
ins heldur sinn árlega jólabasar í
Safnaðarheimilinu að Bjarnhóla-
stig 26, laugardaginn 5. desember
kl. 2. Á boðstólum verða eins og
jafnan áður fjölbreytilegir bas-
armunir og gómsætar kökur
ásamt fatnaði á góðu verði.
Kirkjufélagið var stofnað fyrir
sex árum til þess fyrst og fremst
að efla safnaðarlíf og safnaðar-
starf innan Digranessóknar. Hefir
starf félagsins alla tíð verið með
blóma og í samræmi við tilgang
þess. Kirkjufélagið hefir lagt fé í
byggingarsjóð væntanlegrar
Digraneskirkju, gefið Kópavogs-
kirkju gjafir, húsgögn, borðbúnað
og ýmsa muni í Safnaðarheimilið
við Bjarnhólastíg. Það hefir ár-
lega afhent mæðrastyrksnefnd
Kópavogs fjárupphæð fyrir jól,
gefi leiktæki á skóladagheimili,
styrkt einstaklinga og Kirkjufé-
lagið er stofnaðili að hjúkrunar-
heimili aldraðra. Má segja, að nú
að undanförnu hafi meginhluti
aflafjárins farið til þess.
Starf félagsins er borið uppi af
tiltölulega fáum einstaklingum og
nýjum liðsmönnum myndi fagnað,
en alla vega vona ég, að margir
leggi leið sína í safnaðarheimilið á
laugardaginn til þess að gera góð
kaup og styrkja um leið menning-
ar- og mannúðarstarf á vegum
safnaðarins.
Þorbergur Kristjánsson
Basar í Fella-
og Hólasókn
KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurnar hafa
basar og kökusölu nk. sunnudag 6.
desember í Fellahelli og hefst kl. 14.
Þar verða á boðstólum margir eigu-
legir munir á góðu verði og mikið
úrval af kökum.
Allur ágóði af sölunni rennur til
kirkjubyggingarsjóðs Fella- og
Hólasóknar. Vonir standa til að
hægt verði að byrja bygginga-
framkvæmdirnar með vorinu, en
kirkjan í svokallaðri „Austur-
deild" í Fella- og Hólahverfi.
Fjallkonurnar vænta þess að
sóknarbörnin fjölmenni í Fella-
helli til stuðnings við kirkjubygg-
ingarsjóðinn.
(Frrtutilk.)
*
Islenzkur lax
veiddist vid
V esturGrænland
NÝLEGA barst Veiðimálastofnun-
inni merki af laxi, sem veiddist í sjó
nálægt Holstensborg á Vestur
Grænlandi á veiðitímanum síðsum-
ars. Laxinn var merktur sem göngu-
seiði í Laxeldisstöðinni I Kollafirði
28. mars 1980 og var sleppt þar í
júnímánuði sama ár.
Við merkingu var laxaseiðið
16,1 sm að lengd og var það eitt af
2000 gönguseiðum, sem merkt
voru í stöðinni með áfestum fisk-
merkjum vorið 1980 og sleppt þar.
Sama vor voru merkt 53.000
gönguseiði með svokölluðum ör-
merkjum og var þeim sleppt á 6
stöðum á landinu. Frá upphafi
merkinga á laxaseiðum af göngu-
stærð hér á landi hafa endur-
heimst samtals sjö áfest merki af
löxum veiddum við Vestur-
Grænland, þrjú af löxum veiddum
við Færeyjar og eitt af laxi veidd-
um við Noreg. Hér á landi hafa á
sama tímabili veiðst um 3000
merktir laxar með áfestum merkj-
um.