Morgunblaðið - 04.12.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
KGB hótar þátttakendum í mótmæla-
verkföllum atvinnumissi og málaferlum
SVENSKA DAGBLADET skýrir frá því sl. þriðjudag, að sovézka leynr
þjónustan KGB hafi á skipulegan hátt varað við þátttöku í hálftíma
mótmælaverkfallinu sem boðað var til í ýmsum borgum á sovézku yfir
ráðasvæði, einkum í Eystrasaltslöndunum. Verkfallið átti að vera í mót-
mælaskyni við sovézk yfirráð, en upptökin að þessum mótmælaaðgerðum
munu hafa verið í Tallin í Eistlandi.
Mauno Koivisto, forsætisráð-
herra Finna og forseti í forfollum
Kekkonens. I grein um finnsku
forsetakosningarnar fyrir nokkr
um dögum birtist mynd af Kalevi
Sorsa, formanni finnskra jafnað-
armanna, en átti að vera af Koiv-
isto. Sú er ástæðan fyrir því að
hann trónar hér einn.
Fréttaritari Svenska Dagblad-
et í Moskvu sagði frá því á
mánudag að sovézk yfirvöld
væru farin að hindra erlenda
fréttamenn í því að komast til
Eistlands og útlagar frá Eystra-
saltslöndunum, búsettir í
Stokkhólmi, höfðu þá sögu að
segja að beint símasamband við
Eystrasaltslöndin hefði verið
rofið í síðustu viku. Sú skýring
hefði verið gefin að viðgerðir
færu fram á símakerfinu, en út-
lagarnir segja að símtöl sem
fara í gegnum símstöðvar séu
hins vegar afgreidd.
KGB og aðrar sovézkar stofn-
anir, sem hafa það verkefni að
fylgjast með og koma í veg fyrir
hvers konar mótmæli eða að-
gerðir sem eru í andstöðu við
stefnu Sovétstjórnarinnar, hafa
komið viðvörunum sínum á
framfæri með þeim hætti að á
vinnustöðum hefur verið dreift
orðsendingum, þar sem þátttak-
endum í mótmælaverkfalli er
gerð grein fyrir því að þeir eigi
það á hættu að missa atvinnu
sína og jafnvel að verða stefnt
fyrir rétt.
Eftir því sem næst verður
komizt er það einkum ungt fólk í
Eistlandi sem stendur fyrir
skipulagningu þessara mót-
mælaaðgerða. Flugritum hefur
verið dreift víðsvegar um landið.
Þar er skorað á fólk að halda að
sér höndum fyrsta vinnudag í
hverjum mánuði, í fyrsta sinn
þriðjudaginn 1. desember. Eins
og fram hefur komið í fréttum
var nær engin þátttaka í þessu
fyrsta mótmælaverkfalli, en hið
næsta verður 4. janúar.
Fyrsta flugritið kom fram í
sumar. Þar krefst nýstofnuð
Lýðræðisfylking sovézkrar al-
þýðu þess að:
1. Sovézkt herlið verði kallað
heim frá Afganistan.
2. Hætt verði íhlutun í pólsk
innanríkismál.
3. Útflutningur á matvælum
verði stöðvaður.
4. Horfið verði frá viðskipta-
háttum sem leiða af sér ein-
okun og forréttindi.
5. Allir pólitískir fangar verði
látnir lausir og útlegðardóm-
ar verði ógiltir.
6. Herskyldutími verði styttur
um hálft ár.
7. Staðið verði við ákvæði í
mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna og Hels-
inkisáttmálanum um frjálsar
kosningar.
Flugrit þetta hefur á síðustu
mánuðum verið þýtt á fjölda
tungumála sem töluð eru í Sov-
étríkjunum, þar á meðal eistn-
esku, lettnesku og litáísku, og
hefur því verið dreift víðsvegar.
Módel KARAT 6500, 18/8 stél, pólerað með
harðgljéa.
"\
Módel ALASKA 8300, 18/8 stél, pólerað með Módel TOLEDO, 18/8 stál, pólerað með
harðgljéa. harðgljéa og 23ja karata gyllingu.
Módel ALT HEIDELBERG 5500.
Framtíöar
eign! “K-
Hinn heimsþekkti
þýski stálboröbúnaður, margar
gerðir, fagurlega hannaður og unninn,
er sannkölluð framtíðareign.
18/8 stál pólerað með harðgljáa.
Verð frá kr. 1.065.-
30 stk. í gjafakassa
RAHMAGERÐ1N
Sendum í póstkröfu
um allt land
Hafnarstræti 19
)
Ecevit í
fangelsi
Ankara, 3. denember. Al*.
BULENT Ecevit, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Tyrkja, hóf í dag að af-
plána fjögurra mánaða fangelsis-
dóm, sem herréttur dæmdi hann til
vegna ögrana við herforingjastjórn-
ina. Ktuðningsmenn hans fjöl-
menntu við heimili hans þegar hann
var fluttur í fangelsið og hrópuðu til
hans hvatningarorð.
Ecevit var dæmdur fyrir að
ræða við erlenda fréttamenn í
Ankara og gagnrýna stjórnarfarið
í landinu en gildandi herlög banna
pólitíska starfsemi og umræðu af
þeirri tegund.
í stuttu spjalli við erlenda
fréttamenn nokkru áður en hann
var færður í fangelsið sagðist Ec-
evit virða dóm réttarins. „Frelsið
fæst ekki endurgjaldslaust ... og
þetta er það gjald, sem ég verð að
greiða nú,“ sagði hann.
Sotelo gerir
breytingar á
ríkisstjórninni
Madrid, 3. nóvember. Al*.
CALVO Sotelo, forsætisráðherra
Spánar, hefur gert breytingar á rfk-
isstjórn sinni og stjórnmálasér
fræðingar líta svo á að þetta sé
önnur tilraun Sotelo til að halda
ríkisstjórninni saman. Dyggir fylg-
ismenn Sotelo voru skipaðir nýir
ráðherrar og ein kona, Soledad
Becerril, 37 ára gömul, var skipuð
mcnningarmálaráðherra. Það er í
fyrsta sinn síðan 1937 að kona er
ráðherra á spáni.
Tilkynnt var um breytingar á
stjórninni eftir að Sotelo hafði
verið á fundi hjá Juan Carlos
Spánarkonungi.
Aukinn klofningur er innan
Lýðræðisbandalagsins sem Sot-
elo veitir forystu og er hann
sakaður um að hafa reynzt alltof
hægrisinnaður í stjórn sinni.
Vinstrimenn og frjálslyndir hafa
haldið uppi mikilli gagnrýni á
hann og innan bandalagsins hef-
ur ánægjan með hægristefnuna
verið blendin.
Perez Llorca er áfram utanrík-
isráðherra, Alberto Oliart varn-
armálaráðherra heldur enn stöðu
sinni og Jose Roson er áfram inn-
anríkisráðherra.
ERLENT