Morgunblaðið - 04.12.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
21
Uppbótarkerfi — millifærzla á sköttum:
Gengur þvert á
grundvallar-
hugmyndir verd-
jöfnunarsjóds
Fyrstu nefndarálit frá þingnefndum bárust féttamönnum sl. miðviku-
dag, varðandi frumvarp um Norðurlandasamning um aðstoð í skatta-
málum (staðfesting á viðbótarsamningi) og frumvarp um kosningar til
Alþingis (laugardagskosningar, skýrari rétt námsmanna erlendis o.fl.),
en bæði þessi frumvörp vóru afgreidd frá efri deild til neðri deildar. Þá
fóru fram miklar umræður um stjórnarfrumvarp um ráðstafanir vegna
breytinga á gengi íslenzkrar krónu,
frá 28. ágúst 1981.
í nefndaráliti Lárusar Jónsson-
ar og Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
þingmanna Sjálfstæðisflokks,
kemur fram, að frumvarpið og
breytingartillögur stjórnarliða
fela í sér þrjú meginatriði:
• 1) Ráðstöfun á hluta gengis-
munar útfluttra sjávarafurða,
framleiddra fyrir 1. september sl.
og sjálfdæmi ríkisstjórninni til
handa á því, hvort gengismunur af
einstökum afurðum sé gerður upp-
tækur eða ekki.
• 2) Heimild til fjármálaráðherra
til að ábyrgjast lán að upphæð 42
m.kr. til handa Verðjöfnunarsjóði
fiskiðnaðarins, sem ekki verður
séð sakir skilmála að endurgreið-
ist af sjóðnum og lendi því á ríkis-
til staðfestingar á bráðabirgðalögum
sjóði sem ábyrgðaraðila. Hér er
um að ræða hreint uppbótakerfi,
millifærslu á sköttum, sem síðar
hlýtur að þurfa að leggja á al-
menning til þess „að halda uppi
fölsku gengi", eins og stjórn FFSÍ
segir í áliti sínu.
• 3) Fyrirmæli um eignaupptöku
á endurgreiðslum Seðlabanka ís-
lands af gengisuppfærslu endur-
keyptra afurða— og rekstrarlána.
Bróðurpartur þessarar endur-
greiðslu, sem mun nema 34.2 m.kr.
í heild, á ekki að renna til þeirra
deilda Verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins sem í raun eiga þessar
endurgreiðslur, heldur eru fyrir-
mæli í frumvarpinu um að allt að
29 m.kr. skuli greiddar til freð-
fiskdeildar sjóðsins án tillits til
þess, að endurgreidd gengisupp-
færsla útfluttra sjávarafurða ætti
að skiptast með allt öðrum hætti,
ef hún er reiknuð af hverri afurð
fyrir sig. Með þessari breytingar-
tillögu er verið að ganga þvert á
þá stefnu, sem lá til grundvallar
lagasetningu um Verðjöfnunar-
sjóð fiskiðnaðarin, þ.e.a.s. að hver
deild sjóðsins sé sjálfstæð og að
algjört grundvallaratriði sé að
verðmæti verði ekki færð milli
deilda sjóðsins með mismunun
eins og stefnt er að með þessari
tillögu.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag kvenna
Átta kvölda Barómeter tvímenn-
ingi hjá Bridgefélagi kvenna lauk
síðastliðinn mánudag. Keppnina
sigruðu Halla Bergþórsdóttir og
Kristjana Steingrímsdóttir með
nokkrum yfirburðum. Þær fengu
631 stig, eða rúmum 200 stigum
meira en næsta par.
Röð efstu para var þessi: Inga Bernburg annars
— Gunnþórunn Erlingsd. Steinunn Snorrad. 430
— Þorgerður Þórarinsd. Ingibjörg Halldórsd. 402
— Sigríður Pálsd. Lilja Guðnad. 378
— Þuríður Möller Júlíana Isebarn 296
— Margrét Margeirsd. Ólafía Jónsd. 289
— Ingunn Hoffmann Alda Hansen 276
— Nanna Ágústsd. 243
„Stytt leið til
vinnings bridge“
Komin er á markaðinn í ís-
lenzkri þýðingu bókin Stytt leið
til vinnings bridge eftir Alfred
Sheinwold í þýðingu Sigurjóns
Þórs Tryggvasonar. Þetta er
önnur bókin í bókaflokki sem
Sigurjón kallar Islenzka bridge-
safnið og svipar mjög til fyrstu
bókarinnar hvað útlit varðar.
Alfred Sheinwold er amerískur
ALFRED SHEINWOLD
stytt leió til
vinnings>„.
bridge iS*
íslenska brldgesafnfó-2
heimsfrægur bridgespilari.
Hann tekur fyrir í þessari bók 20
spil um úrspil í grandi, 20 spil
um úrspil í lit, 20 spil um varn-
arspilamennsku, 20 spil um
sagnavandamál og 20 spil um
blekkispilamennsku.
Bókin er 118 blaðsíður og er
hvert spil tekið fyrir á einni síðu
sem gerir lestur bókarinnar
mjög aðgengilegan.
I formála segir Sigurjón m.a.:
„Þegar „Á opnu borði“ kom út,
kom ég einhversstaðar fyrir í
texta þeirrar bókar þeirri klausu
að „ástæðan fyrir þessari bók á
íslenzkan markað er að reyna að
bæta úr brýnni þörf hjá íslensk-
um spilurum fyrir bækur á ís-
lenzku um aðskitjanleg vanda-
mál bridge spilsins. Verði bók
þessari vel tekið munu aðrar
fylgja í kjölfarið eins og um úr-
spilið, sagntækni o.fl.“
Hugmyndin er sú að gefa út
bækur sem bæði eru góðar og
ódýrar og hefur hið síðarnefnda
haft þau áhrif að ódýrasta að-
ferð prentunar hefur verið valin
í þessi tvö fyrstu skipti.
Samt vona ég, verði framhald
á þessari útgáfu, að héreftir
verði bækurnar tölvusettar sem
eyðir þeim vanköntum sem þó
eru í útliti bókanna.
Tvær fyrstu bækurnar lít ég á
sem nokkurs konar tilraunaút-
gáfu og nú þegar sú seinni kem-
ur út á hinn viðsjála íslenska
markað vil ég nota tækifærið og
þakka þeim fjölmörgu sem
studdu við bakið á bók 1: Á opnu
borði. Taki þeir til sín sem eiga.“
Bridgefélag
Reykjavíkur
Að loknum 12 umferðum í að-
alsveitakeppni félagsins er bar-
áttan um efsta sætið enn mjög
tvísýn, en röð efstu sveita er
I þessi:
Jakob R. Möller 167
Sævar Þorbjörnsson 164
Egill Guðjohnsen 159
Sigurður B. Þorsteinsson 147
Örn Arnþórsson 144
Karl Slgurhjartarson 140
Þórarinn Sigþórsson 135
Aðalsteinn Jörgensen 116
Aðeins þrem umferðum er
ólokið og verða 13. og 14. umferð
spilaðar nk. miðvikudag. í 14.
umferð eigast við m.a. sveitir
Jakobs og Egils og sveitir Þórar-
ins og Arnar.
Basar Kvenfélags Grensássóknar
BASAR Kvenfélags Grensássóknar verður í Safnaðarheimil-
inu við Háaleitisbraut laugardaginn 5. des. og hefst han kl.
15.00. Verða þar á boðstólum fallegir og nytsamir hlutir, sem
koma sér vel fyrir jólin, sem gjafir eða annað.
Kvenfélagið hefur frá upphafi fært kirkjunni margar
og góðar gjafir og átt stóran þátt í að fullgera Safnað-
arheimilið. Má nefna kirkjuklukkurnar, silfurbúnað fyrir
altarissakramentið, hökla og fleira.
ÓTRÚLEGT!
Framdrifinn
MAZDA 323 Saloon
árgerð 1982 á kr. 98.700
Gengisskráning 17/11 ’81.
MAZDA
323 Saloon
Aöeins örfáum bílum, sem til eru
ínu er óráðstafað.
Tryggið ykkur því bíl strax.
land-
Já það er ótrúlegt, en fyrir kr. 98.700 getur þú
keypt nýjan MAZDA 323 SALOON 4 dyra i
deluxe útgáfu með margvlslegum aukabún-
aði, svo sem: Plussáklæöi á sætum, niöur-
fellanlegu 60/40 aftursæti, klukku, halogen-
Ijósum, 3 hraða rúðuþurrkum og mörgu
fleiru.
MAZDA 323 er óvenju rúmgóður fjölskyldu-
blll með nægu rými fyrir fjölskylduna og far-
angurinn.
Þetta eru ein beztu bílakaupin í dag !
maZDa UMBODIÐAÍSLANDI: BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23, sími 812 99