Morgunblaðið - 04.12.1981, Síða 32
TUDOR
rafgeymar
. já þessir meó 9 líf
íKORRI HF
Laugavegi 180, sími 84160
iKgtironlitafrft'
Demantur M
æðstur éðalsteina
éltil & áHlfur
Laugavegi35
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981
20
dagar
til jóla
Eins manns flokkur þrí-
klofínn í borgarstjórn
VIÐ UMRÆÐUR í borgarstjórn í gœr jns Keðjunnar, varðandi beimild til
kveldi um umsókn myndbandaklúbbs-
lagningar jarðstrengja um borgina,
velti Sigurjón Pétursson forseti borgar
stjórnar því fyrir sér hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn yrði samkvæmur sjálfum
sér í máli þessu. En borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði
með umsókn fyrirtækisins Videoson
um sama efni.
Davíð Oddsson sagði varðandi
þetta, að Sjálfstæðisflokkurinn
myndi vera sjálfum sér samkvæmur,
en hinsvegar vekti það athygli að
tekist hefði að gera bullandi ágrein-
ing um málið í borgarstjórnarflokki
Framsóknarflokksins sem ekki væri
í nema einn maður! Sagði Davíð að
Kristján Benediktsson hefði greitt
atkvæði með leyfisveitingu til Vid-
eoson á sínum tíma, en setið hjá við
atkvæðagreiöslu um leyfi til Keðj-
unnar.
En varaborgarfulltrúar
Framsóknarflokksins, þau Eiríkur
Tómasson og Gerður Steinþórsdóttir
væru mjög á móti leyfisveitingum af
þessu tagi, einkum Eiríkur, sem lýst
hefði því yfir að hér væri um lögbrot
að ræða og talað langt mál þar um.
Davíð Oddsson:
Nokkrir fulltrúar í viðræðunefndunum ganga af stuttaralegum viðræðufundi í gær. Ljósm. Mbi. rax.
Viðræðurnar við Alusuisse:
Svisslendingarnir lögðu
fram gögn í súrálsmálinu
Sjálfstæðismenn munu bera fram
tillögur um lækkun fasteignaskatta
- * mnaiTliT m I i _ _ 1I-__
ENN HÆKKAK fasteignamatið hlutfallslega meira en tekjur
manna og það kemur mér á óvart að svo skuli vera nú annað eða
þriðja árið í röð og ég held að fasteignagjöldin eigi eftir að verða
mörgum stórkostlega erfið, sagði Davíð Oddsson oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn í samtali við Mbl. í gær.
— Á hverju ári eftir að
vinstri meirihlutinn tók við í
Reykjavík höfum við sjálf-
stæðismenn flutt tillögur um
að álagning á fasteignir verði
lækkuð, því sjálfstæðismenn
hafa álitið fasteignaskattana
vera of háa, sagði Davíð
ennfremur. — Álagningin
verður nú ákveðin í framhaidi
af þessari niðurstöðu Fast-
eignamats ríkisins og við höf-
um ekki enn mótað tillögur
okkar til lækkunar, en þær
munu koma fram þegar borg-
arstjórn fjallar um álagningu
fasteignagjalda. Þessi sífellda
og mikla hækkun fasteigna-
skattanna er mjög erfið fyrir
fólk og minna má á að hún
bitnar ekki síður á leigjend-
um, því þann kostnað reikna
húseigendur inn í húsaleig-
una.
Coopers & Lybrand
formleg tillaga hefur komið þar að
lútandi, en sem kunnugt er kom
það fram í samþykkt frá ríkis-
stjórninni í júlí sl. að kanna bæri
möguleika á slíkri verksmiðju. I
viðræðunum nú hefur ekkert verið
fjallað um nýja raforkusamninga
eins og iðnaðarráðherra hefur gef-
ið í skyn, en Svisslendingarnir
hafa afdráttarlaust neitað að
ræða annað í viðræðunum en þau
ágreiningsmál sem uppi eru milli
fyrirtækisins og íslenzkra stjórn-
valda og þá aðeins miðað við
framkvæmd hins upphaflega
samnings aðilanna.
Viðræður aðilanna halda áfram
í dag.
Telja að þau hnekki niðurstöðum í skýrslu
SAMNINGAVIÐRÆÐUR íslenzkra
stjórnvalda og Alusuisse hófust í
Reykjavík í gær um ágreining aðila
varðandi súrálsverð, rafskautafram-
leiðslu og fleira. f skoðanaskiptum
aðila á fundinum stóð „járn í járn“.
Svisslendingarnir lögðu fram á fund-
inum álit tveggja sérfræðinga í súr
áli og einnig lögfræðilegt álit sem
þeir telja að hnekki niðurstöðum í
skýrslu brezka endurskoðunarfyrir-
tækisins Coopers & Lybrand sem
telur að Alusuisse skuldi íslenzka
ríkinu skatta. Var skipst á skoðun-
um um þessi atriði, en íslenzka
nefndin sem á fyrri fundum var köll-
uð viðræðunefnd, heitir nú
samninganefnd um álverið með til-
skipun frá Hjörleifi Guttormssyni
iðnaðarráðherra. í samtali við iðnað-
arráðherra í gærkvöldi sagðist hann
ekkert vilja tjá sig um þessar við-
ræður enda lægi ekkert fyrir sem
fólk ætti að fá að vita um.
í viðræðum nefndanna hefur
nokkuð verið fjallað um þann
möguleika að byggja rafskauta-
verksmiðju hér á landi, en engin
Kannar áhrif
fíkniefnadóma
Skipaður af Svavari Gestssyni
SVAVAR Gestsson, heilbrigðisráð-
h<'rra, hefur skipað llrafn Pálsson,
félagsráðgjafa, til að kanna hvaða
áhrif fíkniefnadómar, scm féllu árið
19H0, hefðu haft á líf þeirra sem
da-mdir voru. Hvort viðbrögð þjóð-
f. lag .ins væru á einhvern hátt til
Blaðamenn
Dagblaðsins & V ísis:
Gera kröf-
ur um „rösk-
unarbónus“
BLAÐAMENN Dagblaðsins &
\ ísis hafa lagt fyrir forráðamenn
blaðsins kröfur um bætur vegna
ymiss konar óþæginda er þeir
hlutu þegar Dagblaðið og Vísir
voru sameinuð. Hér er um að
ræða kröfu um greiðslu á 50% af
mánaðarlaunum hvers blaða-
manns og komi greiðslan til
framkvæmda hinn 15. desember
nk.
í dag er ráðgerður fundur
fulltrúa starfsfólks með for-
ráðamönnum Dagblaðsins &
Vísis vegna krafna þessara.
Mun stjórnendum blaðsins
verða gefinn fjögurra daga
frestur til að svara kröfunum.
L'ndanfarna daga hafa blaða-
menn rætt sín á milli hvort og
þá hvernig ætti að fara fram á
bætur vegna þeirra óþæginda
er starfsmenn telja sig hafa
orðið fyrir vegna hinnar
óvæntu sameiningar Vísis og
Dagblaðsins.
góðs og hvort fylgni sé milli dóms og
breyttrar hegðunar viðkomandi eftir
dóminn.
„Mér var falið að kanna hvaða
áhrif dómar hefðu haft á viðkom-
andi. Hvort þeir hefðu breytt ein-
hverju í lífi þessara einstaklinga,
hvort þeir hefðu haft heilsufars-
lega breytingu í för með sér, til
líkama og sálar," sagði Hrafn
Pálsson, félagsráðgjafi, í samtali
við Mbl.
„Með áhrifum dóma á ég við,
hvort fólk hefur látið af neyzlu
fíkniefna, hvort fólk hefur farið í
felur með neyzlu fíkniefna, hvort
því finnist meðferð á sér réttlát
eða ranglát. Hvort jákvæðar eða
neikvæðar hugarfarsbreytingar
hafi átt sér stað. Þessi könnun er
gerð með heilbrigðissjónarmið í
huga.
Leiða má getur að því, að tals-
vert margir hafi neytt fíkniefna
hér á landi, en þetta fer leynt og
erfitt að meta nákvæmlega. Fólk,
sem neytt hefur fíkniefna, er vart
um sig og hrætt við að gefa upp-
lýsingar. Það er ljóst, að mun
fleiri neita fíkniefna en almenn-
ingur veit um.
Markmiðið með þessari könnun
er að fá yfirsýn yfir neyslu þess-
ara efna hér á landi og þeir sem
hlutu dóm 1980 urðu fyrir valinu,
en alls munu þeir vera um 280
talsins. Talið er, að af fíkniefnum
sé hass mest neytt hér á landi og
spurningin er, hvort eigi að leggja
að jöfnu fólk, sem neytir hass eða
þeirra sem sprauta sig með nál,
eða einhverju öðru. Hópar verða
síðan teknir til viðmiðunar og ég
vona, að þessi vinna leiði til heil-
brigðrar umfjöllunar um þetta
málefni í heild sinni," sagði Hrafn
Pálsson.
Verkalýðs- og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar:
Samningarnir sam-
þykktir með einu atkvæði
Ká-sknjósfirði 3. desember.
FUNDUR í Verkalýðs- og
sjómannafélagi Fáskrúðsfjarðar,
sem haldinn var í gærkvöldi, sam-
þykkti nýgerða kjarasamninga
milli AS! og VSÍ með einu atkvæði
gegn engu þar sem aðrir fundar-
menn sátu hjá. Reyndar var um
tíma útlit fyrir að samningarnir
féllu á jöfnu, 0:0, þar sem í upp-
hafi vildi enginn samþykkja
samningana. Þá var borin fram
tillaga þar sem mótmælt var
harðlega frammistöðu samninga-
nefndar ASÍ og var hún samþykkt
samhljóða. Albert.