Morgunblaðið - 31.01.1982, Síða 43

Morgunblaðið - 31.01.1982, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982 43 Þeir kunna sitt fag Það verður ekki af þeim piltum í kanadísku rokksveitinni Loverboy skafiö, aö þeir kunna sitt fag og það út í ystu æsar. Þessi fimm manna flokkur hefur náð að festa sig traustlega í sessi hjá poppunn- endum vestanhafs, en vinsældirnar austan megin Atlantsála hafa til þessa látið á sér standa. Ástæðan er vafalítið sú að tónlistin, sem Loverboy hefur fram að færa er eins „Amerísk" og hugsast getur. Á nýju plötu flokksins, Get lucky, er að finna níu tónsmíðar, sem allar falla undir sama rammann. Flest laganna renna Ijúflega á milli ham- ars og steðja í eyrnabotnum hlust- andans og mörg þeirra hafa þenn- an dæmigerða metsölulagastimpil á sér. i öllum tilvikum nema ef vera skyldi í laginu, Take Me to the Top, er um þráðbeint og rökrétt fram- hald að ræða frá fyrstu plötu flokksins. Sannast sagna er undir- ritaður hreint ekki frá því að þaö sé eitt besta lag plötunnar. Tónlist Loverboy er hreint og klárt iðnaðarrokk. Þó er ekki sama væmnin til staðar og er farin að hreiðr illilega um sig hjá hljómsveit- um á borð við Foreigner, Kansas, Styx, Survivor og öllum hinum á sömu linu. Lögin eru fersk, jafnvel þótt ekki sé verið að troða hrein- dýraslóöir. Til þessa hefur Loverboy náð að halda sínum sérstaka stil. Þó má greina hugmynd úr Queen-laginu Another One Bites the Dust í Lucky Ones. Önnur áberandi utanaðkom- andi áhrif er ekki gott aö finna. Fyrir þá, sem heyrt hafa fyrstu plötu Loverboy, er rétt að verða sér út um Get Lucky. Hún er á flestan haft heilsteyptari og um margt „frum- legri", ef leyfist að nota það lýs- ingarorö um þessa tegund tónlist- ar. — ssv. Sá gamli gefur sig ekki Það vekur jafnan athygli þegar Rod Stewart sendir frá sér plötu. Þótt árin færist yfir kappann lætur hann engan bilbug á sér finna og sendir jafnt og þétt frá sér plötur þrátt fyrir misheppnuð ástarævin- týri. Hin siðari ár hafa framlög hans þótt vera fremur slök en karlinn hefur þó alltaf lætt einu og einu metsölulagi með. Nýjasta plata hans, Tonight l'm Yours, leit dags- ins Ijós fyrir skennmstu. Þar er á ferð plata, sem er dæmigerð fyrir poppara, sem man timana tvenna. Stewart er þó það meðvitaður um stööu sína í hinum valta heimi poppgoðanna að hann gerir tilraun til að bæta upp gamla rokk og rólið sitt með áhrifum, ætt- uðum úr nýrómantik og rokkabillý. Það sem meira er: honum tekst bara bærilega upp. Sem afþreyingarplata er Tonight l’m Yours prýðileasti gripur. Þar er hins vegar ekki verið að brydda upp á neinum byltingarkenndum nýj- ungum, enda er þetta fyrst og fremst söluvara. Stewart býöur að- dáendum sínum upp á tvö lög, sem eru undir nýrómantískum áhrifum. Þau eru þó næsta væg, en hljóm- borösleikur setur svip sinn á bæöi titillagiö, svo og Young Turks. Tear it up er ekta rokkabillýlag í anda Shakin’ Stevens. Sá gamli svikur tryggustu að- dáendurna ekki alveg. Tora, Tora Tora en besta lag plötunnar. Eins ekta Stewart lag og þau gerast i seinni tíð. Jealous er ekki ósvipað Do Ya Think l’m Sexy. Til að tryggja góða útkomu hefur karlinn smellt á plötuna tveimur góðum og gildum ballöðum. Annað lagið er How Long, sem Ace gerði frægt hér á sínum tíma, og hitt er Just Like a Woman, sem farandgoðið Bob Dyl- an söng á bestu árum sínum. Meö- ferð Rod á báðum lögunum er prýðileg og í heildina séð er þessi plata hans eigulegasti gripur. ssv Sjónvarp- ið kemur á óvart - von á tveimur poppþáttum innan skamms „Það er ekki enn búið að fastá- kveöa hvaöa hljómsveitir þetta verða, en við höfum þegar rætt viö Purrk Pillnikk og Grýlurnar,” sagöi Tage Ammendrup, fulltrúi dag- skrárgerðarstjóra Sjónvarpsins, er Pokahorn innti hann eftir þvi hvort rétt væri að von væri á tveimur poppþáttum í sjónvarpinu áður en langt um liði. Að sögn Tage hafa þegar veriö ákveðnir tveir 20 mínútna þættir, sem báðir verða teknir up „live“ með áhorfendum i sjónvarpssal. Líklegast þykir að valdar verði þessar tvær áöurnefndar hljóm- sveitir. Þá var tekinn upp 20 mín- útna þáttur með Nýja kompaníinu á fimmtudagsmorgun, en sú sveit leikur jazz af fingrum fram. Talsvert er nú liðið frá því sjón- varpið bauö upp á islenska popp- þætti í einhverri mynd. Líkast til hefur Rokkveita Ríkisins, en svo nefndist þáttaröð, verið síðasta framlag sjónvarpsins í þá átt. Rétt þykir að fagna þessu fram- taki sjónvarpsins, en i spjallinu viö Tage benti hann á að allsendis óvíst væri um framhald á þessari nýbreytni. Stofnuninni væri þröngt sniðinn stakkur í fjármálum og hefði þvi ekki mikiö bolmagn til þáttageröa af þessu tagi. Þættirnir tveir, sem hér um ræð- ir, verða teknir upp í febrúarbyrj- un, en sýningardagar eru enn óákveðnir. — SSv. Einar Örn og Bragi. Purrkurinn í sjónvarpið Flokkseigendafclag Þursaflokksins í stúdíóinu góða, Grettisgat. Frá vinstri: Þórður, Ásgeir, Egill, Júlíus og Tómas. Myndir: Krisiján. Innst inni bíðum við alltaf eftir þeim stóra Pokahornió ræðir við Pursana á heimavelli þeirra á Grettisgötunni „Ætli við nefnum þaö bara ekki Grettisgat," sagði Tómas Tómasson, bassaleikari Þursanna, er Pokahornið heimsótti hann og félagana í æfinga- og upptökulókali flokksins viö Grett- isgötuna. Nafngiftin kemur líkast til þaðan. Hljótt hefur verið um Þursa- flokkinn um nokkurt skeið og síðustu tónleikar hans voru skömmu fyrir jól. Þótt aðgerðir þeirra fari ekki hátt þessa dagana sitja þeir félagar siður en svo auðum höndum. Stjórnklefi Grettisgatsins. Plata í bígerö Þursaflokkurinn hefur starfaö um fjögurra ára skeið — á reyndar fjög- urra ára afmæli nú um þessar mundir — og óhætt er aö segja aö þeir félag- ar haldi sig við efnið. Fjórða hljóm- plata Þursaflokksins er nú i vinnslu og fjórða hringferö hljómsveitarinnar hefst i febrúarlok. Pokahornið innti Tómas eftir því hvernig efnið yrði á plötunni, sem nú er veriö að vinna að. „Þetta er fyrst og fremst efni, sem við vorum meö á hringferðinni í fyrra. Það er ekki splunkunýtt í sjálfu sér en mjög ólíkt því sem Þursaflokkurinn hefur verið að gera á þeim þremur hljómplötum sem hann hefur sent frá sér. Við vorum fyrst með þetta efni á miöju ári í fyrra og reyndum það síð- an í hringferöinni. Það fékk ágætar viðtökur.” — Þið hafið þá sagt skilið viö þjóðlagarokkið að sinni? „Já, þaö var ekki ætlunin að halda þvi áfram lengur. Það var aöeins hugsað sem skammtimaverkefni en entist gott betur. Þetta var skemmti- legt tímabil en því er nú lokið. Við gáfum út þrjár plötur með þessu efni og ég held að það sé ágætt.” Þess má geta hér i leiðinni að plötur Þursa- flokksins seldust ekki nema þokka- lega þótt undarlegt megi virðast. Lætur nærri að meöalsalan hafi verið i kringum 3000 eintök. Það eru þvi greinilega engin uppgrip i poppinu — jafnvel hjá færustu hljóðfæraleikurum landsins. Sígild saga Húsnæði þaö, sem Þursarnir hafa innréttað á Grettisgötunni, er einkar hentugt. Fremur lítið, en framúrskar- andi notalegt. I rauninni hefur maður það ekki á tilfinningunni aö þarna sé á ferðinni 8 rása stúdió. En hvað kom til að Þursarnir fóru út í þessar fram- kvæmdir? „Það er sama sígilda sagan; vand- ræði með æfingahúsnæði, svo og staðreyndin að okkur hefur alltaf langað til að koma okkur upp ein- hvers konar lókali þar sem við gætum dundað okkur við upþtökur. Þetta varð útkoman. Upphaflega ætluöum við okkur að eyða um mánuði i að koma þessu upp, en þeir eru nú orðn- ir þrir og kostnaöurinn er oröinn ær- inn. Ætli efniskostnaöur einn sér sé ekki um 40.000 krónur," sagöi Tómas og stundi. „Það hafa allir okkar fjár- munir farið í þetta undanfarið og hér er árangurinn." Ekki er hægt aö segja annað en vel hafi tekist til því hús- næðiö er einkar smekklega innréttað. „Við erum sem betur fer að mestu lausir við þetta dauöa „sánd", sem oftast myndast i stúdióum," bætti hann viö. Ekki minni möguleikar Pokahornið spurði Tómas að því hvort ekki væru minni möguleikar í 8-rása stúdíói, en t.d. 16 eöa 24 rása. „Nei, það þarf alls ekki að vera. Það hefur meira að segja færst í aukana aö hljómsveitir taki upp í 8-rása stúd- iói. Það, að hafa 24 rásir, virkar stundum þrúgandi á tónlistarmenn. Þeir hafa þaö þá á tilfinningunni að þeir verði að nýta allar rásirnar og fyrir vikið verður tónlistin hjá þeim e.t.v. ofhlaðin. Það, sem mestu máli skiptir í þessu, er að kunna að nota tækin rétt. Þetta er spurning um úr- vinnslu og framsetningu.” — Hversu mörg lög eruö þið búnir aö taka upp? „Viö erum búnir að taka upp grunna í 6 lög hérna hjá okkur, en líkast til tökum við upp ein 3—4 til viðbótar. Þó er alls ekki vist að við notum öll lögin á plötuna. Viö erum ekki bunir að fullmæla lengdina á þeim svo að það gæti allt eins farið svo að við yrðum að sleppa ein- hverju." — Hvenær áætlið þiö að platan komi út? „Líklegast og vonandi verður það um mánaöamótin febrúar/marz. Við förum reyndar i hljómleikaferð um landið á svipuðum tíma, sem hefst 28. febrúar. Ætlunin er að leika á ein- um 13 stöðum. Við munum byrja á Húsavík og halda síðan vestur um land og til Reykjavíkur. Siðan tökum við okkur hlé í 2—3 daga. förum sið- an austur á Egilsstaöi og vinnum okkur í hina áttina til Reykjavíkur á ný“ Beðið eftir þeim stóra A milli þess sem við spigsporuðum um husnæðið ræddum við áfram um allt og ekkert. „Við gefum plötuna út sjálfir," sagði Tómas. „Eða öllu heldur Þursabit, en það er fyrirtækið að baki flokknum. Þetta er allt saman rekið á hlutafélagsgrundvelli. Julli Agnars er fimmti meðlimurinn í því." Við rædd- um áfram um væntanlega plötu og annað, sem henni viðkemur. „Ein hljómplata hefur gífurlega peningaumsetningu i för með sér. Samt eru hljómlistarmennirnir þeir síðustu til að sjá einhverja aura af vinnunni. Það er lagt svo mikið i alla aðra þætti Upptakan verður að vera fullkomin, umslagið i lit. textablað að fylgja og guð má vita hvað. Þegar upp er staðið er harla lítið eftir handa hljómlistarmönnunum sjalfum. Mark- aðurinn hér er ekki svo stór." Það er Egill Ólafsson, sem á þessi orð. Og hann heldur áfram: „Það ríkir ruglað gæðamat hjá fólki her á landi. E.t.v. hafa menn fengið glýju i augun af velgengni poþpara erlendis, en þetta er svo ólíkt hér. Hér verður eng- inn ríkur á aö spila popptónlist. Tón- listarmenn hafa ákaflega litla samúð almennings, hvað þá hins opinbera.” „Já, hvers vegna skyldum við ekki fá aðflutningsgjöld og tolla niðurfellda af okkar hljómtækjum?” skaut Tómas inn i. „Rétt eins og leigubifreiöastjór- ar. Þetta eru okkar atvinnutæki rétt eins og bilarnir þeirra.” „Tónlistar- menn eru hópur, sem nýtur engra rettinda. Ekki getum við farið i verk- fall,” sagði Egill. „Það má eiginlega flokka okkur með laxveiðimönnum. Við erum i þessu ánægjunnar vegna fyrst og fremst. en innst inni biðum við alltaf eftir þeim stóra. Við ættum kannski að stofna hagsmunasamtök með þeim." — SSv.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.