Morgunblaðið - 31.01.1982, Síða 44

Morgunblaðið - 31.01.1982, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1982 Síðdegissýning á Kisuleik LEIKRITIÐ „KISULEIKUR" eftir ungverska skáldið Istvan Örkeny, sem Þjóðleikhúsið sýnir nú á Litla sviðinu hefur vakið umtalsverða athygli og er jafnan uppselt á sýningarnar. Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á síðdegissýningu á þessu verki. Verður sú sýning nk. sunnu- dag kl. 16. Offrambod á áfengi Varsjá. PÓLSKIR embættismenn ákvæöum mega Pólverjar hafa áhyggjur af 4,5 millj- velja á milli vodka og ón lítra offramboði á létt- léttra vína og þar sem um vínum, sem á rætur þeir eru Pólverjar velja sínar að rekja til áfeng- þeir venjulega vodka. Þess isskömmtunarinnar og vegna liggur létt vín undir dálætis Pólverja á vodka. skemmdum í geymslum Samkvæmt skömmtunar- ríkisáfengisfyrirtækisins. spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hér fara á eftir spurningar, sem lesendur Morgunblaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um skattamál, og svörin við þeim. Þjónusta þessi er í því fólgin, að lesendur geta hringt í síma 10100 kl. 13 til 15 á mánudögum til föstudaga og borið upp spurningar sínar um skattamál. Mbl. leitar síðan til Skattstofunnar í Reykjavík um svör og birtast þau í þessum þætti að nokkrum dögum liðnum. Tekið skal fram að skilafrest- ur skattframtals einstaklinga er á miðnætti miðvikudagsins 10. febrúar 1982. Sigurður Þorkelsson, Grundar firði: Liður 50 á framtalseyðublaði snertir frádrátt vegna stofnunar hjónabands. Gildir þessi frá- dráttur aðeins ef stofnað er til hjónabands, en ekki ef stofnað er til sambúðar? Svar: Aðeins þeir, sem gengið hafa i hjónaband, eiga rétt á þessum frádrætti. Dýrleif Kristjánsdóttir: Á framtali er í T 14 C fjallað um frádrátt og skal færa á rekstraryfirlit frádráttarliði aðra en vaxtakostnað og fyrn- ingar. Spurt er, hvað má þá færa til frádráttar, er það rafmagns- kostnaður, fasteignagjöld o.fl? Svar: Spurningin er ekki nógu ljós, en fyrirspyrjanda er bent á „Leiðbeiningar ríkisskattstjóra" neðst á bls.4. Árni Björnsson: Eg er öryrki og fékk í fyrra fellda niður skatta. Spurning mín er hvort ég þarf í ár að greiða hina lögboðnu fyrir- framgreiðslu, sem gjaldendum er gert að greiða? Hafði ég nokkrar tekjur sl. ár frá fyrri vinnustað, en síðan aðeins trygg- ingabætur. Svar: Það veltur á því hverjar tekjur sl. árs voru. Spyrjanda er bent á að snúa sér til viðkomandi skatt- stjóra þegar framtal 1982 hefur verið fyllt út og leita þar svara um hvort heimilt er að breyta fyrirframgreiðslu skv. reglugerð nr. 1/1982. H.G., Reykjavík: Spurning mín er um frádrátt vegna lánakostnaðar við íbúða- kaup. Tók ég 1.5.1981 100.000 kr. lífeyrissjóðslán með láns- kjaravísitölu og 2% vöxtum, fyrsti gjalddagi 1.5. 1982. Tók 1.7. 1981 50.000 kr. vaxtaaukalán með 40% vöxtum, fyrsti gjald- dagi 1.2. 1982. í árslok er áfallin vísitala fyrra lánsins komin í 22.175 kr. og vextir þess eru 1.425 kr. Síðara lánið var um liðin ára- mót 8.333 kr. hærra vegna vaxt- anna. Hvað má færa til frádrátt- ar, er það aðeins vextir eða einn- ig hækkun á láninu vegna láns- kjaravísitölunnar, þ.e. þessar 22.175 kr.? Svar: Til frádráttar vaxtagjalda vegna íbúðakaupa teljast vextir og gjaldfallnar verðbætur á af- borganir og vexti. Á kvittunum kemur væntanlega fram fjárhæð vaxta og þær verðbætur, sem heimilt er að draga frá skv. framanrituðu. . \ i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.