Morgunblaðið - 13.02.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
9
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson______________,134. þáttur
Áður en Víkingur Guð-
mundsson er kvaddur með
þökk og virktum, skulum við
aðeins hyggja að orðasam-
bandinu skarður hlutur, sem
hann minnti okkur á. Þetta er
nú algengast í myndhverfa
orðtakinu að bera skarðan hlut
frá borði.
Orðtakið merkir að bera lít-
ið út býtum, bíða ósigur eða
eitthvað þvíumlíkt. I þessu
sambandi, ætlar prófessor
Halldór Halldórsson, að hlut-
ur merki aflahlutur, og væri
orðtakið þá runnið frá þeirri
athöfn, er sjómenn skipta með
sér afla. I einhvers konar refs-
ingar eða smánarskyni kynni
þá einhver þeirra að hafa bor-
ið skarðan hlut frá borði
(borðstokk) í bókstaflegri
merkingu.
Ég styð Víking eindregið í
þeirri viðleitni að varðveita
hið fagra lýsingarorð skarður.
Ég sé enga ástæðu til þess að
láta önnur lýsingarorð, eins og
t.d. frændyrðið skertur, út-
rýma því. Skarður er að sjálf-
sögðu skylt nafnorðinu skarð
og sögninni að skerða, skarður
er sá sem skarð hefur mynd-
ast í eða orðið fyrir skerðingu.
I ævafornum kvæðum er að
finna góð dæmi um lýsingar-
orðið skarður. Eyvindur
Finnsson skáldaspillir, höfuð-
skáld Norðmanna á 10. öld,
kvað:
Sátu döglingar
með sverð of togin,
með skarða skjöldu
og skotnar brynjur.
Hér hafa konungar beðið
ósigur og sitja með sverð dreg-
in úr slíðrum, en skildir þeirra
hafa verið skemmdir og brynj-
urnar skotnar í sundur. Hall-
freður Óttarsson vandræða-
skáld hefur þetta orð einnig á
hraðbergi, er kunnast er það
líklega úr hinni stórglæsilegu
vísu Völundarkviðu, sem eng-
inn veit höfund að:
l>að spyr Níðuður,
Njára dróttinn,
að einn Völundur
sat í Úlfdöium.
Nóttum fóru seggir,
negldar vóru brynjur,
skildir bliku þeira
við inn skarða mána.
í síðari hluta þessarar vísu
er svo mikill hraði og mynd-
vísi, að sérhver tilraun til
endursagnar er dæmd til að
mistakast.
Útfrá myndinni af hinum
skarða mána í Völundarkviðu
kemur mér í hug vísa, ein af
mörgum, sem Örn Snorrason
orti handa nemendum sínum,
þeim til minnis. Skarður máni
er vaxandi, þegar broddarnir
vísa í austur, en tungl er
minnkandi, er til vesturs snýr.
Örn (Aquila) kvað:
lieiðgult himinfé,
höfði kinkandi.
Alveg eins og c,
er því minnkandi.
Einar Sigurðsson skáld,
kenndur við Eydali, höfuð-
skáld Vísnabókar Guðbrands
Þorlákssonar (frumprentun á
Hólum 1612) gerði sér ljóst,
eins og Guðbrandur, að bundið
mál var minnisstæðara og
áhrifameira en óbundið. Hann
kvað:
Kva'ðin hafa þann kost með sér,
þau kennast betur og læra ger,
en málið laust úr minni fer;
mörgum að þeim skemmtun er.
Margar af kennsluvísum
Arnar Snorrasonar eru gerðar
af þeim léttleika og þeirri
íþrótt sem ein dugir í þessu
sambandi og að svo stöddu læt
ég tvær slíkar fylgja hér á eft-
ir:
„Blessaður", sagði Bangsimon
og bauð mér kaffi:
„l*að er aldrei ypsilon
á eftir vafn.“
Snorri fékk hinn félausi
fullan sekk með Herdísi.
Vel hann bjó á Borginni.
Burt fór svo að Reykholti.
Bréf hefur þættinum borist
alla leið frá Svíþjóð, og skrifar
það góðkunningi minn fyrr á
árum, Sigurður V. Sigurjóns-
son læknir (Angantýsgranni)
Angantyrs Gránd 2 í Lundi.
Sigurður er að velta þvi
fyrir sér, hvort ekki sé réttara
að gera ráð fyrir því, að kon-
ungsheitið harri og tökuorðið
herra sé skylt hárr í merking-
unni gráhærður fremur en hár
í merkingunni hávaxinn, en ég
mun hafa getið þess til. Herra
væri þá eftir kenningu Sigurð-
ar einnig skylt höss = grár,
sbr. Hösmagi (grábotnóttur
hrútur) og mannsnafnið
Höskuldur, en það er talið
merkja grákollur.
þegar ég tek að fletta þessu
upp í orðabókum, sýnist mér
að Sigurður hafi að minnsta
kosti eins mikið til síns máls
og ég og kveð hann með þakk-
læti fyrir bréfið og gamlar,
góðar stundir.
Vonda prentvillu i síðasta
þætti þarf svo að leiðrétta.
Þar stendur: „Áður hef ég
oftar en einu sinni minnst á
þau undur að lýsingarorðið var
er í máli margra orðið eins í
öllum kynurn." Hér hefur j
fallið brott. Að sjálfsögðu á
þetta að vera öllum kynjum.
Stílgalla í sama þætti, runn-
inn frá sjálfum mér, læt ég
lesendur eftir að finna og lag-
færa.
Fjáröflun til
kristniboðs
í kvöld, laugardag 13. febrú-
ar kl. 20:30, verður haldin sér-
stök fjáröflunarsamkoma í
Betaníu við Laufásveg í
Reykjavík. Er hún á vegum
Kristniboðsfélags kvenna í
Reykjavík. Lilja Kristjánsd-
óttir lfytur kristniboðsþátt,
Helga Magnúsdóttir syngur
einsöng og Guðlaugur Gunn-
arsson talar. Þá verður ha-
ppdrætti og rennur ágóði
kvöldsins til starfsemi Sam-
bands ísl. kristniboðsfélaga í
Eþíópíu og Kenýa.
rV0Nl«IS7«IK-----------
*Wö M flfl w m WoU
VlóSfR ^ðfl/ií W VIÆKK090 SvííflST1'
ÞIMiIIOLT
Fasteignasala — Bankastræti
fsími 2945531nur
Opið í dag
| 2JA HERB. ÍBÚÐIR
k Austurgata Hf. ca. 50 fm jarö-
2 hæö. meö sér inngangi.
H Vesturberg 65 fm á 2. hæö. Af-
hendist eftir mánuð. Utb. 390
^ þús.
* Mariubakki 70 fm vönduö á
^ fyrstu hæö. Þvottahús innaf
h eldhusi. Verö 560 þús.
Spóahólar Ca. 60 fm á 2. hæö.
J Utb. 400 þús.
Q Týsgata 50 fm í kjallara. Utb.
k 360 þús.
k Engjasel Falleg 83 fm á 4. hæö.
™ Suöur svalir. Utb. 460 þús.
3JA HERB. ÍBÚÐIR
| Hlióarvegur. 82 fm i tvíbýlishúsi.
k Verö 650 þús.
1 Irabakki 90 fm á 2. hæö. Verö
720 þús.
4 Sörlaskjól ca. 65 fm ibúö i risi.
k Verö 550 þús.
^ Ferjuvogur 107 fm á jaröhæö i
™ tvíbýlishúsi meö bilskúr. Utb.
^ 600 þús.
k Æsufell 87 fm á 6. hæö meö
2 útsýni.
1 Hófgerói Góö 75 fm ibúð i kjall-
3 ara. Ný eldhúsinnrétting. Verö
k 590 þús.
,? Kaldakinn 85 fm risibúö í þrí-
^ býlishúsi. Sér hiti. Verö 610 þús.
| Reynímelur Ca. 70 fm í kjallara,
b meö sér inng. Laus 1. apríl.
2 Orrahólar Vönduö 90 fm á 1.
^ hæö. Góöar innréttingar. Útb.
h 500 þús.
w Hraunbær 87 fm á 3. hæö.
® Herb. í kjallara fylgir. Útb. 510
9 þús
h Mosgerði Ca. 65 fm risibúó i tví-
bylishusi. Talsvert endurnyjuö.
™ Verö 580 þús
^ Sólheimar Ca. 100 fm á 11.
h hæö. Tvennar svalir. Útb. 570
2 þus.
1 Spóahólar á 1. hæö 85 fm. Útb.
^ 560 þús.
k Suöurgata Hf. meö sér inngangi
2 ca. 75 til 80 fm á jaröhæð. Upp-
^ ræktuö lóö. Utb 470 þús.
1 4RA HERB. ÍBÚÐIR
Tjarnargata 120 fm hæö auk 3
h herb. i sameign. ibúöar- eöa at-
2 vinnuhúsnæöi. Verö tilboð.
í Engjasel Sérlega góö 108 fm á
tl fyrstu hæð meö bilskýli. Til af-
ks hendingar strax.
2 Hverfisgata Nystandsett íbúö á
4 2. hæö í steinhúsi. Allt nýtt á
|| baöi. Ny teppi. Laus. Bein sala.
k Snæland 110 fm á 1. hæó,
2 vandaöar innréttingar, þvotta-
^ hús á hæóinni.
h Þverbrekka Falleg 5 herb. ibúö
^ á 117 fm á 6. hæð. Mikiö útsýni.
2 Útb. 640 þús.
^ Vesturberg Mjög góö 110 fm á
h 3. hæö. Akv. sala.
^ SÉRHÆÐIR
k Austurborgin 3 glæsilegar
2 hæöir, ásamt bílskúrum. Skilast
^ tilbunar undir tréverk.
Í EINBÝLISHÚS
Malarás 350 fm hús á tveimur
k hæóum, skilast fokhelt og púss-
2 aö að utan. Möguleiki á séríbúö.
I Flúðasel Vandaö raöhús, tvær
(1 hæöir + kjallari ca. 230 fm. Bíl-
k skýli. Skipti möguleg á sérhæö.
J Mýrarás
æ Botnplata. 154 og bílskúr. Verð
550—600 þús.
Jóhann Davíðsson,
kh sölustjóri.
, Sveinn Rúnarsson.
Friðrik Stefánsson,
viðskiptafr.
w
usava
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Vefnaðarvöruverslun
Til sölú vefnaöarvöruverslun í
Kópavogi hentar vel sem fjöl-
skyldufyrirtæki.
Bújörð
Til sölu vel hýst góö fjárjörð í
Vestur-Húnavatnssýslu. Lax- og
silungsveiði. Skipti á fasteign i
Reykjavík æskileg.
Lögbýli
Hef kaupanda aö litlu lögbýli.
Parhús — Túngata
Til sölu parhús á góðum stað
við Túngötu í Reykjavík. Á
fyrstu hæð er dagstofa, borö-
stofa og eldhús. Á efri hæð eru
3 rúmgóð svefnherb., baðherb.,
og svalir. I kjallara 2 stór íbúð-
arherb., eldhús, snyrting,
þvottahús og geymsla. Sér inn-
gangur í kjallara. Bilskursréttur.
Eignin er í góðu standi. Ræktuð
lóð. Húsið er ákveðið í sölu.
í Vesturbænum
4ra herb. nýstandsett ibúð laus
strax.
Einbýlishús óskast
Hef kaupanda að rumgóðu ein-
býlishúsi, sem hefur í útb. 1,5
millj. Þarf helst að vera laust 1.
júlí nk.
Helgi Ólafsson
löggiltur fasteignasali,
kvöldsími 21155.
OPIÐ í DAG
VITASTÍGUR
5 herb. risíbúð í steinhúsi. Tvær
stofur 3 svefnherb. svalir. Verð
750 þús.
GAMLI BÆRINN
4ra herb. íbúð á 2 hæðum, 86
fm. Sér inngangur, sér hiti. Verð
600 þús.
ENGIHJALLI KÓP.
3ja herb. 94 fm í þriggja hæða
blokk. Suðursvalir. Ekki að fullu
frágengin. Verð 700 þús.
SNÆLAND
4ra herb. íbúð á 1. hæð., 110
fm. 3 svefnherb.
VESTURBÆR
Ný uppgerð 4ra herb. ibúð, 95
fm 2 svefnherb. 2 samliggjandi
stofur. Verð 800 þús.
MIÐBÆR
Góð 4ra herb. risíbúð. 3
svefnherb. og rúml. 100 fm.
Verð 780 þús.
LUNDARBREKKA
3ja herb. íbúð á 3. hæð. Góð
íbúð. Verð 700—750 þús.
HRAUNBÆR 3JA HERB.
3ja herb. íbúð á 3. hæð ásamt
aukaherb. í kjallara. Verð 680
þús.
HRAUNBÆR
2ja herb. íbúð á 1. hæð. 65 fm.
Verð 550 þús.
FLYÐRUGRANDI
2ja herb. 67 fm ibúð á jarðhæð.
Fæst í skiptum fyrir 3ja herb.
íbúð við Flyðrugranda.
NJÁLSGATA
2ja herb. standsett kjallaraibúð.
Ósamþykkt. Verð 260 þús.
EYJABAKKI 2JA HERB.
2ja herb. ibúð á 2. hæö í góðu
ásigkomulagi. 68 fm. Verð 560
þus.
Höfum einbýlishús í Keflavik og
Hveragerði og öðrum stööum á
landinu.
Óskum eftir öllum stærðum
fasteigna á söluskrá.
Erum fluttir á Skólavöröustíg
18, 2. hæð.
HÚSEIGNIN
Pétur Gunnlaugsson lögfr,,
Skólavörðustíg 18, 2. hæó.
Símar 28511 28040 28370