Morgunblaðið - 13.02.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
11
r
Harrie de Kroon: Nafnlaus 1977.
ík og aðeins fyrir það skera þær
sig úr en jafnframt einnig um
frásagnarmáta.
Myndir Seef Peters eru mjög
dulmagnaðar og það er loft-
kenndur malerískur blær yfir
myndum Pieter Mol svo og hin-
um vel útfærðu myndum Harrie
de Kroon. Ger van Elk er mjög
sérstæður á sýningunni og hann
hefur vissulega sérstakan boð-
skap að flytja með myndum sín-
um. Bas Jan Ader tjáir ást sína á
móður jörð í myndum sínum og
það er raunar öllum sameigin-
legt á þessari sýningu. íslend-
ingarnir njóta sín vel í þessum
hópi, þeir eru mjög ólíkir inn-
byrðis en sterkir í tjámiðli sín-
um, — myndir þeirra hafa flest-
ar áður verið sýndar hérlendis
og fjallaði þá undirritaður um
þær.
Sýningin er mjög þess virði að
listunnendur ómaki sig á Ný-
listasafnið og hugsi sinn gang.
Svo ber að þakka hollenzka
menntamálaráðuneytinu er
sendi sýninguna hingað, vel inn
pakkaða og að auki í fylgd
tveggja menningarfulltrúa frá
hollenzka sendiráðinu í London.
asti sprettur Gunnars Arnar orðið
honum sjáanlega til mikils þroska, og
það fer ekki milli mála, að Gunnar
Örn hefur miklu meiri tök á hlutun-
um en áður. Það er engu líkara en
hann hafi losnað úr eins konar álög-
um og orðið miklu léttari og frískari
fyrir bragðið.
Hitt er einnig auðséð, að það vant-
ar nokkuð af hinum fyrri krafti í
þessi verk, og það er ekki eins mikil
togstreita milli litar og forms og þeg-
ar best gekk í fyrri verkum. Hver veit
nema þetta sé á næstu grösum? En að
mínu mati er nokkru ábótavant, þeg-
ar þetta hverfur úr eins góðum mál-
ara og Gunnar Örn er. Danir kalla
það „det maleriske", sem ég er hér að
tala um.
Það eru 63 verk á þessari sýningu í
Listmunahúsinu. Þarna eru teikn-
ingar, blönduð tækni, olíumálverk og
acryl-myndir. Þarna eru portrett,
model og margt fleira, sem verður
listamanninum að yrkisefni. Þarna
kennir margra grasa og því auðvelt
fyrir menn að finna eitthvað við sitt
hæfi. Sýning þessi í heild er falleg og
vel upp sett, hvergi þrengt að neinu,
og léttur tónn einkennir þessa sýn-
ingu, sem sómir sér sérlega vel í þessu
galleríi. Gunnar Örn Gunnarsson má
vel við una með þann árangur, er
hann sýnir á þessum fallegu veggjum.
Það yrði of langt mál að ræða hér um
hvert verk fyrir sig, en það væri sann-
arlega hægt. En ég nefni örfá verk, er
mér fannst sérlega merkileg á þessari
ágætu sýningu: No. 3, 6, 17, 28, 32, 36,
40, 42, allt eru þetta það, sem ég vildi
kalla sérstaklega eftirtektarverð
myndverk.
Upp í rjáfri eru einnig nokkrar
myndir undir gleri og fara þær sér-
lega vel í hinu skemmtilega umhverfi
sem ég held, að sé sérkennilegasta
sýningarpláss á þessu landi og þótt
viðar væri leitað. Það er erfitt að gera
mun á þeim verkum, en samt ætla ég
sérstaklega að benda á nr. 54 og aðra
mynd í sama dúr, sem er þarna undir
súðinni.
Með þessari sýningu sannar Gunn-
ar Örn enn einu sinni, að það er ekki
að ástæðulausu, að sérstakar vonir
hafa verið bundnar við þekkingu hans
og dugnað. Það mætti segja mér, að
við værum ekki á flæðiskeri staddir,
þar scm við eigum unga myndlist-
armenn á borð við Þorþjörgu Hösk-
uldsdóttur, Tryggva Olafsson og
Gunnar Örn. Ég nefni þessi þrjú hér,
vegna þess að mér finnst full ástæða
til að vekja eftirtekt á því, sem vel er
gert í öllu því öngþveiti og sýningar-
fargani, sem við eigum við að búa.
Það er mikil gæfa fyrir okkur að eiga
fólk, sem stundar listgrein sína af
þeirri alvöru og einlægni, sem lesa
má úr verkum Gunnars Arnar.
VELTIR HF
SUÐURLANDSBRAUT 16 SÍMI 35200
Mjög ódýr massív furuhúsgögn
lituð og ólituð
HUSGÖGN
Langholtsvegi 111. Sími 37010 og 37144
Þqð boraar sig
aðvera „ ,
snemma i þvi
aðlqta
yfirfara velina!
V0LV0 PENTA eru úrvals bátavélar.
En jafnvel úrvals vélar þarfnast
reglulegs eftirlits og viðhalds.
Viðhaldsþjónustu Veltis er við -
brugðið enda einvala lið sem hana
annast. En því miðurerekki hægt
að sinna öllum í einu og þess vegna
er áríðandi að hafa tímann fyrir sér
og panta strax.
Jóhann Kárason er þjónustustjóri
Penta vélanna.
Hafið samband við hann eða sam-
starfsmenn hans hið fyrsta.
VÖLVO
{PENTAj