Morgunblaðið - 13.02.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982
35
Biblíudagurirm 1982
Þórir Kr. Þórðarson prófessor
við guófræóideild Háskóla íslands
ritaði í Kirkjuritið fyrir nokkru
grein sem heitir: Hvernig lesa á
Biblíuna. Greinir hann þar nokkuð
frá efni hennar og leiðbeinir nokk-
uð um hvernig nálgast má hana og
bendir á hvernig lesandinn notar
hina nýju útgáfu. Verður hér gripið
niður í upphaf greinarinnar:
Hermann Þorsteinsson framkvæmdastjóri HÍB:
Nýju útgáfunni vel tekið
- kostnaður um 2 m króna
Efnið er
erfitt við
fyrstu sýn
segir Þórir Kr. Þórðarson prófessor um Biblíuna
„Biblían er mikið safn 66 bóka
og rita. Hún spannar langa sögu
frá 2. árþúsundi f. Kr. til fyrstu
aldar hins kristna safnaðar og í
henni er að finna bókmennta-
verk er flokkast undir hinar
ólíkustu gerðir bókmennta, svo
sem ljóðabálka, leikrænar sam-
talsbókmenntir, guðspjöll, ætt-
arsögur, prédikanir, bréf, íbúa-
skrár, forna „heimspeki", opin-
berunarrit, skrár helgisiða, bæn-
ir og áköll, lög, skírnarjátningar,
svo eitthvað sé talið.
Það er því augljóst, að nýjum
lesendum og ungu fólki geti þótt
erfitt að átta sig á innihaldi
þessa merkasta safns heims-
bókmenntanna við fyrstu sýn.
Ekki auðveldar það skilninginn,
að sumt efnið er ákaflega fornt
og ber því margt fyrir augu sem
ungu fólki kann að þykja fram-
andlegt við fyrstu kynni. En
smám saman þjálfast skilning-
urinn á lífi forfeðra vorra, og
lesandinn kemur auga á boð-
skapinn, sem á erindi til allra
tíma, einnig liðandi stundar á
ævi ungs fólks á íslandi...
Annað efni óskylt þessu fjall-
ar um þjóðfélagið, þjóðfélagslegt
réttlæti og réttlæti Guðs, hina
miklu framtíðarsýn „spámann-
anna“, sem svo eru nefndir, þ.e.
kennimanna og prédikara. En
síðast en ekki síst uppgötvar þú,
að allt efnið ber þér trúarlegan
boðskap. Einnig hið sögulega
efni. Sagan er sögð til þess að
flytja boðskap, og við lesturinn
spyr þú: Hver er hann, þessi
boðskapur?"
VIÐ HÖFUM notið aðstoðar fjöl-
margra sjálfboðaliða við útgáfu-
starfið og víða fengið ókeypis fyrir
greiðslu hér heima og hjá Samein-
uðu biblíufélögunum, en kostnað-
ur er eigi að síður mikill og hann
er nú kringum 2 milljónir króna,
sagði Hermann Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Hins ísl. biblíu-
félags, er Mbl. ræddi við hann í
vikunni.
— Alls hefur um 1 m.kr. farið
til að greiða kostnað við þýð-
ingar- og endurskoðunarstarfið
gegnum árin og ritun og frágang
handrits fyrir setningu og próf-
arkalestur. Velunnarar félagsins
lögðu fram þetta fjármagn.
Kostnaður við setninguna sjálfa
var um 400 þúsund kr. og lögðu
Sameinuðu biblíufélögin það
fram, en við endurgreiðum það
svo á næstu árum og 600 þús. kr.
kostaði pappír, prentun og band
á fyrstu 8 þúsund eintökum Bibl-
íunnar, sagði Hermann.
Hann sagði myndarleg fram-
lög hafa fengist frá Kristnisjóði
og ríkissjóði og fjármálaráðu-
neytið lánaði einnig nokkra upp-
hæð til að greiða fyrir útkomu
og fyrstu dreifingu Biblíunnar
um landið í haust. Þá leyfðu
stjórnvöld niðurfellingu sölu-
skatts sem kunnugt er og kvaðst
Hr. Pétur Sigurgeirsson biskup:
Hvet menn til að eign-
ast og lesa Biblíuna
„Á nýju ári eru verkefni Biblíu-
félagsins m.a. þau að prenta við-
bótarupplag af Biblíum og gefa út
Nýja testamenti og Davíðssálma í
nýju þýðingunni og leturstærð
verður valin við allra hæfi, ekki
síst hinna elstu og yngstu,“ segir
biskup íslands, hr. Pétur Sigur
geirsson, í bréfi sínu er hann sendi
söfnuðum landsins í tilefni biblíu-
dagsins, sunnudaginn 14. febrúar.
I bréfinu greinir biskup frá
ýmsum atriðum í starfi Hins ísl.
biblíufélags, sem er elsta starf-
andi félag landsins, stofnað 1815.
Segir hann nýja útgáfu Biblí-
unnar sl. ár marka tímamót í út-
gáfustarfi félagsins, tímabært
hafi verið að gera umbætur á
þýðingu textans og gamalt letur
hafi verið slitið. Þá vekur hann
athygli á þeim nýjungum sem í
nýju útgáfunni eru: tilvitnana-
kerfi, hver síða í tveimur dálkum
með kaflafyrirsögnum, aftast sé
viðauki með upplýsingum um öll
66 rit Biblíunnar og orðasafn og
uppdrættir.
„Hjálpargögn þessi, sem
fylgja nýju útgáfunni, eru hin
gagnlegustu til skilningsauka á
efni Biblíunnar. Því hvet ég
mjög til þess að sem flestir eign-
ist þessa Biblíu og lesi hana,“
segir biskup.
Þá getur hann þess að kristnir
menn á Norðurlöndum hyggist
safna fé til að koma einni millj-
ón Biblía til Póllands þar sem
hann segir að sé gífurleg eftir-
spurn eftir henni og hvetur bisk-
up til að ísland leggi sitt fram í
þessu efni. Einnig hvetur biskup
Islands í bréfi sínu til safnaða að
vel verði tekið undir beiðni Bibl-
íufélagsins í ár um fjárstuðning,
kostnaður félagsins sé mikill og
það sé í skuld við Sameinuðu
biblíufélögin sem hafi veitt
margvíslega sérfræðiaðstoð auk
láns vegna nýju útgáfunnar, sem
greiða þarf á næstu árum.
Hermann Þorsteinsson framkvæmdastjóri Biblíufélagsins.
Hermann vilja þakka drengskap
og velvilja ríkisstjórnar. Þá
greindi Hermann nokkuð frá
helstu nýmælum útgáfunnar:
— Guðspjöllin og Postulasag-
an eru endurþýdd úr frumtexta
og fyrri þýðing annarra rita
Nýja testamentisins er endur-
skoðuð. Nokkrar umbætur hafa
verið gerðar á sömu þýðingu
Gamla testamentisins. Efnið er
sett upp í tvo dálka með millifyr-
irsögnum og neðanmáls eru góð-
ar skýringar á einstökum atrið-
um textans.
Hið vandaða tilvitnanakerfi
með lykilorðum er þó meginnýj-
ungin. Það er ómetanlegt fyrir
lesendur sem finna hjá sér þörf
og löngun til að sökkva sér niður
í textann. Þetta tilvitnanakerfi
er það viðamikið að væri það
prentað sérstaklega myndi það
fylla heila bók. Við töldum rétt
að bæta úr brýnni þörf fyrir
hjálparrit með því að taka þetta
upp í nýju útgáfuna. Þá er mikill
fengur að viðaukanum aftast í
bókinni, sem ekki hefur verið áð-
ur, en í honum er að finna mik-
ilvæga ritningarstaði, kynningu
á ritum Biblíunnar, tímatal og
orðaskýringar, kort og staða-
nöfn.
En hvernig hefur útgáfunni
verið tekið?
— Mjög gleðilegt er að verða
svo glöggt var við hve henni er
fagnað. Bóksalar hafa sögur að
segja af því hve glaðir og þakk-
látir nýju biblíueigendurnir eru.
Þeir segja: Biblían nýja er mjög
ódýr bók, hún er ljómandi falleg
og svo er letrið gott og læsilegt,
þótt ekki sé það stórt. Dálkarnir
auðvelda lesturinn. Tilvitnanirn-
ar neðanmáls eru forvitnilegar
og viðaukinn nýi aftast í bókinni
hafsjór fróðleiks og mjög svo að-
gengilegur. Sumir geta þess, að
hinn ljóskremaði pappír sé bæði
fallegur og góður fyrir augun,
betri en hinn skjannahvíti papp-
ír.
Biblían nýja hefur nú dreifst í
um 4 þúsund eintökum og sumar
gerðir bókarinnar hafa verið
uppseldar um tíma, en ný
sending komst í bækistöð Biblíu-
félagsins í Hallgrímskirkju ein-
mitt nú rétt fyrir biblíudaginn,
svo nú er aftur úr mörgum tiD
brigðum bókbands að velja.
Ársfundur HÍB
hjá Ássöfnuði
ÁRSFUNDUR Hins ísl. biblíufé-
lags verður á morgun haldinn hjá
Ássöfnuði. Hefst hann að lokinni
guðsþjónustu, sem hefst kl. 14 að
Norðurbrún 1. Séra Árni Bergur
Sigurbjörnsson sóknarprestur og
stjórnarmaður HÍB prédikar.
Á dagskrá ársfundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf og er
fundurinn opinn velunnurum fé-
lagsins auk félagsmanna. Þá
verður við allar guðsþjónustur í
kirkjum landsins og ýmsum
samkomum tekið við gjöfum til
starfsemi félagsins.
Ijósm.: Nordurmynd Akuroyri
Akureyrarmeistarar í bridge, sveitakcppni, 1982, sveit Stefáns Ragnarssonar.
Aftari röð frá vinstri: Þórarinn B. Jónsson og Páll Jónsson. Fremri röð frá
vinstri: Þormóður Eiuarsson, Stefán Ragnarsson og Pétur Guðjónsson.
Bridfltt
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Akureyrar
Sveitakeppni BA — Akureyr-
armótinu — lauk sl. þriðjudag.
Sigurvegari varð sveit Stefáns
Ragnarssonar sem hlaut 231 stig
en það mun vera einsdæmi í sögu
félagsins að sigurvegarar fái
þetta mörg möguleg stig en mest
var hægt að fá 260.
Sveit Stefáns vann alla sína
leiki og eru þeir félagar vel að
meistaratitlinum komnir, allt
ungir menn og vandvirkir við
græna borðið. Áuk Stefáns eru í
sveitinni: Pétur Guðjónsson,
Páll H. Jónsson, Þórarinn B.
Jónsson og Þormóður Einarsson.
Úrslit í 13. og síðustu umferð-
inni urðu þessi:
Stefán Ragnarsson
— Símon Gunnarsson 20—4
Ferðaskrifstofa Akureyrar
— Stefán Vilhjálmsson 20—0
Sveit Menntaskólans
— Sturla Snæbjörnsson 20—5
Gissur Jónasson
— Anton Haraldsson 20-4
Alfreð Pálsson
— Örn Einarsson 15-5
Páll Pálsson
— Jón Stefánsson 14-6
Kári Gíslason
— Magnús Aðalbjörnsson 11—9
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
Stefán Ragnarsson 231
Jón Stefánsson 192
Páll Pálsson 191
Magnús Aðalbjörnsson 184
Ferðaskrifstofa Akureyrar 176
Alfreð Pálsson 139
Stefán Vilhjálmsson 130
Kári Gíslason 112
Alls spiluðu 14 sveitir. Keppn-
isstjóri var sem fyrr Albert Sig-
urðsson.
Næsta keppni BA er tvímenn-
ingur með barometerfýrirkomu-
lagi þar sem spilin eru tölvugef-
in. Stendur þessi keppni yfir í
3—4 kvöld og hefst 16. febrúar,
þ.e. nk. þriðjudag. Spilað er í Fé-
lagsborg og hefst keppnin kl. 20.
Bridgefélag
Breiðholts
Þegar einni umferð er ólokið í
sveitakeppni félagsins er staðan
mjög jöfn og spennandi en hún
er þessi:
Árni Már Björnsson 113
Fjöibrautaskólinn 112
Baldur Bjartmarsson 111
Gunnar Guðmundsson 103
Keppninni lýkir á þriðjudag-
inn kemur en annan þriðjudag
verður spilaður eins kvölds
tvímenningur en 2. marz hefst
Butler-tvímenningur. Hefst
skráning í þá keppni á þriðjudag
hjá keppnisstjóra.
Spilað er í húsi Kjöts og fisks í
Seljahverfi.
Bridgefélag
Hafnarfjardar
Laugardaginn 6. febrúar var
árleg spilamennska milli Bridge-
félags Akraness og Bridgefélags
Hafnarfjarðar.
l'rslit urðu:
Eirikur Jónsson
— Aðalsteinn Jörgensen 6—14
Alfreð Viktorsson
— Sævar Magnússon 6—14
Hörður Jóhannesson
— Ólafur Torfason 2—18
Guðni Jónsson
— Ólafur Gíslason 7—13
Pálmi Sveinsson
— Sigurður Emilsson 8—12
Úrslit urðu Göflurum afar
hagstæð og þeir vinna á öllum
borðum með samtals 71 stigi
móti 29 stigum. Á sjötta borði
var keppt um sér bikar og þar
tapaði Óskar Ólafsson 20—0
fyrir Kristjáni Haukssyni. Sem
sagt báðir bikararnir í Fjörðinn.