Morgunblaðið - 13.02.1982, Side 45

Morgunblaðið - 13.02.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982 45 Geysisnefnd: Var meðmælt því að borað væri í hverinn - Orðsending til frú Birnu G. Bjarnleifsdóttur Bauð fisk til sölu á allt of háu verði Sveitakona skrifar: „Kæri Velvakandi. Sunnudaginn 31. jan. sl. var fisksali nokkur á ferð í uppsveit- um Arnessýslu og væri það svo sem ekki í frásögur færandi ef þessi maður hefði ekki boðið til sölu fisk á alltof háu verði að mínu mati. Spurði ég hann hvort þetta væri sama verð og í fiskbúðum og sagði hann það vera, þ.e.a.s. 30. kr. kílóið af ýsuflökum. Og þegar hann sagði sex frekar lítil flök vera 8 kg gerði ég athugasemd því að mér þótti ansi dýrt að kaupa sex ýsuflök á 240 krónur. Fisksal- inn sagði þá að allur fiskur hefði nýlega hækkað um 30%. Ég svar- aði á móti að ég hefði heyrt í frétt- um daginn áður að þorskur hefði hækkað um rúmlega 19% og ýsan um 12,2%. Brást hann þá hinn reiðasti við með dónaskap og frekju og sagði mig ljúga. Ég keypti að sjálfsögðu ekkert af hon- um en kynnti mér fiskverð í versl- un á Selfossi og kom þá í ljós að kíló af ýsu kostar kr. 22,85 í versl- unum þar. Mig langar því með þessum skrifum að vara fólk við svona sölumönnum, því þótt ég hafi var- að mig og ekki látið pretta mig er ekki víst að allir hafi gert það.“ Hákon Bjarnason skrifar: „Fyrirspurn frú Birnu G. Bjarnleifsdóttur til mín varðandi stutta grein um Geysi í Haukadal, þar sem ég hrósaði Þóri Sigurðs- syni fyrir framtak hans við skál- arraufina, olli mér smávegis heilabrotum. Ég hef ávallt reynt að tala og skrifa á þann veg að almenningur skilji mál mitt. Eftir lestur fyrir- spurnarinnar sá ég í hendi mér, að annaðhvort hefði mér fipast fram- setningin, eða að frú Birna hefði misskilið allt, sem sagt var í greininni. I grein minni er skýrt fram tek- ið, að Þórir hafi aðeins gert það, sem Geysisnefnd hefði yfirsést að gera árum saman. Verk hans var aðeins nauðsynlegt viðhald á hvernum, dýpkun og víkkun á gamalli rauf. Mér og fleirum finnst hann eigi verðskuldað lof skilið. Hvergi í grein minni örlar á því, að hver og einn megi -taka sér bor í hönd og renna honum ofan í Geysi. Þar stendur hinsvegar skýrum stöfum svo að ekki verður um villst, að ég voni að Geysis- nefnd taki rögg á sig og láti bora í Geysi. Éngan skyldi furða á því, að ég beini þessum tilmælum til nefnd- arinnar. Geysisnefnd var á sínum tíma meðmælt því að borað væri í hverinn samkvæmt ráðum okkar færustu manna. Hún hefði eflaust staðið fyrir borun, ef þáverandi náttúruverndarráð hefði ekki spyrnt við fótum af lítilli þekk- ingu. Nefndin getur því varla verið á móti því, sem hún hefur áður mælt með, nema hún hagi sér líkt og segir í Alþingisrímum og er ekki til fyrirmyndar: Flokkurinn þakkar fogrum orðum fyrir það að gera þetta, sem hann þakkaði forðum að þá var látið vera. Að endingu aðeins þetta: ég skil ekki þá samlíkingu, sem frú Birna virðist finna á milli þess að Geysisnefnd láti bora í Geysi og að einhverjir óviðkomandi taki sér fyrir hendur að fella furutré á Þingvöllum. Ég get ekki fundið neitt rökrétt samhengi þar á milli og gefst því upp á að svara." Þessir hringdu . . Strætisvagna- skýlið er staðarprýði Á.T. hringdi og hafði eftir- farandi að segja: — Mér líst ljómandi vel á nýja strætis- vagnaskýlið við Landspítal- ann. Ég nota mikið strætis- vagna, og þar af leiðandi skýl- in líka. Þessi nýja gerð þeirra þykir mér horfa til mikilla bóta frá því sem var. Gömlu skýlin eru bæði ljót og leiðin- leg, og maður þarf sífellt að vera að kíkja eftir vagninum og passa upp á að bílstjórinn bruni ekki fram hjá. Auk þess er staðarprýði að þessu nýja skýli við Landspítalann og verður svo hvar sem slíku mannvirki verður fyrir komið. Góð lausn. ITrho Kaleva Kekkonen Hefur ekki kynnt sér þetta nægilega vel Katrín Vilhjálmsdóttir Eyr- arbakka, hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Það er auðsætt að skrifum Tuomas Járvelá, þar sem hann gerir athugasemd við grein Ólafs M. Jóhannessonar vegna finnsku kvikmyndarinnar „Tulipáá", að Tuomas hefur ekki kynnt sér nægilega vel þetta tímabil í sögu þjóðar sinnar. Það sem Ólafur segir í skrifum sínum og hefur m.a. eftir Helga Skúla Kjartanssyni sagnfræðingi, kemur alveg heim og saman við það sem ég veit sannast og réttast. Finnland var svo sann- arlega ekkert sæluríki á þess- um tíma, og stoðar það Tuom- as lítt að reyna að gera lítið úr rússneskum áhrifum í því sambandi. Svo langar mig til að leiðrétta nafn forsetans fyrrverandi, sem rangt er með farið í Velvakandapistli Ólafs M. Jóhannessonar, en hann heitir Urho Kaleva Kekkonen. Kammersveit Reykjavíkur: Stravinsky-tónleikarn- ir í Gamla Bíói á morgun SUNNUDAGINN 14. febrúar efn- ir Kammersveit Reykjavíkur til tónleika, sem helgaðir eru tón- skáldinu Igor Stravinsky. Á þessu ári eru liðin hundrað ár frá fæð- ingu hans. Á tónleikunum verður flutt úrval kammerverka Strav- insky, allt frá einsöngs- og ein- leiksverkum upp í verk fyrir kammerhljómsveit, Dumbarton Sænskur prestur í Adventkirkjunni Bengt Lillas, sænskur fyrirlesari og prestur, er hér í heimsókn á vegum aðventsafnaðarins. Sunnu- daginn 14. febrúar talar hann á tveim stöðum, kl. 17.00 í Aðvent- kirkjunni, Ingólfsstræti 19, Reykjavík, og kl. 20.30 að Gras- haga 11, Selfossi. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nýtt Dokaf lex m loftaundirsláttur. 7 1 s Kynnist hagkvæmu kerf- ismótunum frá daka BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitid nánari upplýsinga aöSigtúni7 Simii29022 — Einfaldur — Traustur — Hagkvæmur. Oaks. Öll verkin að einu undan- skildu heyrast nú í fyrsta sinn á tónleikum í Reykjavík. Á tónleik- unum koma fram 20 hljóðfæra- leikarar og söngkonurnar Sigrún Gestsdóttir og Rut Magnússon. Stjórnandi á tónleikunum verður bandaríski fiðluleikarinn og stjórnandinn Paul Zukofsky. Tónleikarnir verða haldnir í Gamla bíói og hefjast kl. 16. Miða- sala verður í Gamla bíói frá kl. 14. (Krt-ualilktnning.) Blað- burðar- fólk óskast Austurbær Laugavegur 101—171 Þingholtsstræti Flókagata 53—69 Úthverfi Hjallavegur Hringið í síma 35408 Jfl o x*$unblnb i b Mínar innilegustu þakkir sendi ég starfs- fólki Rafmagnsveitna ríkisins, RARIK- kórnum, Leikfélagi Olafsvíkur, frændum og vinum, er heiðruðu mig með gjöfum og heimsóknum á 70 ára afmælisdegi mín- um, 3. febrúar sl. Elías Valgeirsson, Efstasundi 55, Reykjavík. Opió til kl. 7 í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.