Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 1

Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 1
MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 48 SÍÐUR 40. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Oflug sprenging í miðri Teheran Keirúl. 22. febrúar. Al’. GEYSILEGA ÖFLUG sprenging varð 15 manns að bana og 61 slasaðist af völdum hennar í Teheran snemma í morgun. Sprengjan var falin í sorptunnu og var svo öflug, að bíll, sem stóð rétt hjá, tættist í sundur. Skemmdir urðu á húsum og bflum í allt að 500 metra fjarlægð. Sprengingin varð rétt við eða í herbúðum islamskra byltingavarða. Meðlimum skæruliðahreyfingarinnar Mujahedeen Khalq hefur verið kennt um sprenginguna. Þau samtök hafa verið sökuð um morð á meira en 1000 háttsettum ráðamönnum. Fregnir af sprengingunni eru frek- ar óljósar. A meðal þeirra, sem létust, voru þrír byltingarverðir, a.m.k. tvö skólabörn og starfsmenn við sorp- hreinsunardeild borgarinnar. Með- limir Mujahedeen Khalq hafa um langt skeið þrengt að byltingarvörð- um islamskra, staðið fyrir fjölda Viðræður um Times mistókust l/ondon, 22. febrúar. Al*. Samningaviðræður eigenda The Times og verkalýðsleiðtoga sigldu í strand seint í gærkvöld. Rupert Murdoch, eigandi blaðsins, tilkynnti þá einhliða uppsögn 210 starfsmanna blaðsins. Hann lét ekki verða af þeirri hótun sinni að loka blöðunum Times og Sunday Times og bað annað starfsfólk að mæta til vinnu á morgun eins og venjulega. Leiðtogar prentara og skrifstofumanna höfnuðu aðgerðum Murdoch og kváðust mundu grípa til eigin aðgerða. sprengjutilræða og drepið marga þeirra. „Sé það rétt, að almennir borgarar hafi látið lífið í sprengjuárásinni, hefur hún ekki verið á okkar vegum,“ sagði talsmaður Mujahedeen Khalq við fréttamann AP í París. „Þessu hefur aðeins verið komið í kring til að geta skellt skuldinni á okkur," bætti hann við. „Engin framsækin baráttu- hreyfing stæði þannig að verki.“ Hópar fólks flykktust út á götur í Teheran eftir atburðinn og hrópuðu ókvæðisorð í garð skæruliða Khalq. Talsmaður stjórnarinnar í Teheran lét hafa eftir sér í útvarpi skömmu eftir atburðinn, „að skæruliðar legð- ust nú svo lágt að fela sprengjur sínar í sorpi og drepa saklausa og bláfá- tæka verkamenn". Flest fórnarlamb- anna í sprengingunni voru að bíða eftir almenningsvagni á leið til vinnu sinnar. Þannig var umhorfs eftir sprenginguna í Teheran þar sem 15 létu lífið og rúmlega 60 slösuðust. Harðnandi árásir á Walesa og aðra verkalýðsleiðtoga Varsjá, 22. febrúar. AP. HERSTJÓRNIN í Póllandi þyngdi enn ásakanir sínar í garð leiðtoga Samstöðu í dag. Segir þar að Lech Walesa hafi fylgt róttæklingum innan verkalýðshreyfingarinnar að málum, en þeir vildu hefja aftökur embætt- ismanna kommúnista að sögn yfirvalda. Fundu 70 kg af heróíni New York, 22. febrúar. AP. LÖGREGLAN komst í dag í mestu heróínbirgðir í sjö og hálft ár er hún fann 70,5 kg af efninu hjá ítölskum verslunareiganda. Verð- mæti þess er talið nema um 70 milljónum Bandaríkjadala á al- mennum markaði. Heróínið var falið inni i kaffivélum, sem komu frá Napólí. Fréttabréf Samstöðu sögðu frá því á sama tíma að ásakanir þess- ar í garð leiðtoga Samstöðu væru falsaðar. Væri látið líta svo út, að gögn, sem færa ættu sönnur á sekt leiðtoganna, hefðu fundist við yf- irtöku skrifstofa Samstöðu. í einu fréttabréfanna er þess getið að Samstaða hafi alls ekki byltingu í huga né hafi hreyfingin áhuga á að komast til valda í landinu með ofbeldi. Fréttabréfum þessum hefur verið smyglað út úr Póllandi og útdrættir úr þeim siðan birtir í fjölmörgum útvarpsstöðvum í Evrópu. Þau hafa stappað stálinu í fulltrúa Samstöðu, einkum þá yngri. í viðtali í Varsjárútvarpinu, sagði lögreglufulltrúi að með þessu vildi Samstaða láta líta svo út sem um neðanjarðarhreyfingu væri að ræða í landinu. Pólsk blöð greindu frá því í dag, að Wojciech Jaruzelski, forsætis- ráðherra landsins, færi í heim- sókn til Sovétríkjanna í næsta mánuði, aðeins viku eftir mið- stjórnarfund kommúnistaflokks- ins, sem hefst á miðvikudag. Jaruzelski verður þar með fyrsti pólski ráðamaðurinn, sem fer til Sovétríkjanna síðan í janúar- byrjun er Jozef Czyerk utanríkis- ráðherra var þar á ferð. Belgar hafa nú ákveðið að setja bann á ferðir ráðherranna til Pól- lands og Sovétríkjanna til að mót- mæla setningu herlaga í desem- ber. I banninu felst m.a. að belg- ískum ráðherrum er ekki leyft að ferðast til landanna tveggja og ennfremur að hætt verður viðræð- um á því hvernig megi ráða fram úr skuldum Pólverja við Belga. Pólverjar skulda Belgum nú um 250 milljónir Bandaríkjadala. Á fimmti hluti þeirrar upphæðar að greiðast á þessu ári. Hins vegar hefur bannið engin áhrif á þátt- töku Belga í lagningu hinnar 3600 löngu gasleiðslu frá Síberíu. Tilkynnt hefur verið í Póllandi að fyrir dyrum standi a.m.k. þre- föld stækkun á leyfilegri landar- eign bænda. Hámarksstærð land- areigna hefur til þessa verið 15—20 hektarar, en verður fram- vegis 50—100 hektarar. Er ætlun- in með aðgerðum þessum að reyna að sporna gegn þeirri óheilla- þróun, sem verið hefur í pólskum landbúnaði. Flest bændabýli í Póllandi eru í einkaeign. Laker fær stuðning frá Bandaríkjunum Viðbrögð keppinautanna mismunandi l/ondon, 22. febrúar. AP. „ÞETTA tekur sinn tíma og er ekki nokkuð, sem menn Ijúka af á einum degi,“ sagði Sir Freddie Laker við fréttamenn er hann sneri heim cftir dvöl í Bandaríkjunum, þar sem hann lcitaði eftir fjárstuðningi við nýja flugfélagið, sem hann hyggst stofna. Ég hef þegar gert það ljóst, að ég hef fengið fjárhagsstuðning. Það er útilokaö fyrir mig að greina frá öllu því sem ég er að gera, þá vissu allir hvert mitt fótmál," sagði Lak- er ennfremur. Hann ferðaðist til og frá Los Angeles á frímiða á fyrsta farrými með Pan American. Ekki eru þó öll flugfélög honum svo vinveitt. British Caledonian, stærsta flugfélagið í einkaeign á Bretlandseyjum, gerir nú allt sem í þess valdi stendur til að stöðva Laker. Hefur flugfélagið lagt það til við bresku flugumferðarstjórn- ina, að Laker fái ekki flugleyfi á leiðinni London — Los Angeles. British Airways, ríkisrekna flugfélagið, og helsti keppinautur Lakers á enn í stöðugum vandræð- um með allt Evrópuflug sitt. Rúmlega 2000 starfsmenn Heath- row-flugvallar ákváðu á fjölda- fundi í gær að halda verkfallsað- gerðum áfram í a.m.k. viku. Freddie Laker við komuna til London eftir ferð hans til Los Ang- eles, þar sem hann leitaði eftir fjárhagsstuðningi bandarískra að- ila. Gengið fellt í Danmörku og Belgíu: Staða Ankers verri en áður Kriissel of| Kaupmannahófn, 22. febrúar. AP. GENGI belgíska frankans og dönsku krónunnar var í morgun fellt um 8,5 og 3% í kjölfar fundar fjár málaráðherra Efnahagsbandalags- ríkjanna. Fjármálaráðherra Belga, Willy de Clerq, sagði í dag, að nú hæfíst nýr kafli efnahagslegs jafn- vægis í landinu. í Danmörku voru viðbrögðin ekki alveg á sama veg. Talið er, að gengisfellingin muni að- eins grafa enn frckar undan Anker Jörgensen forsætisráðherra. Danir vildu upphaflega fella gengið um 7% og fylgja því eftir með kaup- og verðstöðvunum í því augnamiði að halda aftur af verð- bólgunni. Danskir stjórnmála- menn tóku misjafnlega í gengis- fellinguna, allt eftir því hvort um stjórnarsinna eða stjórnarand- stæðinga var að ræða. „Til hvers í ósköpunum að lækka gengið um 3% þegar 7% lækkunar var þörf,“ var haft eftir einum andstæðinga stjórnarinnar. Gengisfellingin kemur sérlega illa niður á dönsk- um landbúnaði. Þykir ljóst, að skuldabaggi danskra bænda er- lendis muni þyngjast enn frekar þar sem þeir fá ekkert til viðbótar í sinn hlut. Belgar hafa búið við mesta at- vinnuleysi innan Éfnahagsbanda- lagsríkjanna til þessa. Gengisfell- ingin þar var sú fyrsta síðan 1949. Belgar vildu fella gengið um 12%, en urðu að sættast á minna, eins og Danir. Ráðamenn í Luxemborg hafa lýst yfir óánægju með geng- isfellinguna, en skráning Luxem- borgarfrankans hefur verið sú sama og þess belgíska. Fjármálaráðherra Luexmborg- ar, Jacques Santer, sagði, að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem geng- isfelling belgíska frankans hefði ekki verið rædd við Luxemborg- armenn og hann krefðist þess að slíkar aðgerðir væru tilkynntar fyrirfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.