Morgunblaðið - 23.02.1982, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982
Búist við að Græn-
lendingar haíni
aðild að EBE
(irænlendingar ganga að
kjörborði í dag og ákveða
hvort þessi stærsta eyja
heims dregur sig út úr Efna-
hagsbandalagi Evrópu
(EBE). Á kjörskrá eru 32.500
manns, kosið verdur á 122
stöðum meðfram tæp 39 þús-
und kílómetra langri strand-
lengju, og er við því búist, að
meirihluti kjósenda hafni að-
ild áð EBE, en fari úrslit á
þann veg, má segja, að
sjálfstæðisbarátta Grænlend-
inga, í þjóðlegum og efna-
hagslegum skilningi, taki
nýja stefnu.
„Það er tími til kominn, að við
hættum að láta stjórna okkur frá
Evrópu," safjði Jonathan Motz-
feldt forsætisráðherra heima-
stjórnarinnar, þegar hann hratt
af stað baráttunni fyrir úrsöKn
úr EBE. Síðustu mánuði hefur
hann ferðast um landið þvert og
endilanjít, jafnvel krækt til fjar-
læjíra oj{ afskekktra veiðimanna-
þorpa, í þeim tiljrangi að sann-
færa landsmenn um nauðsyn þess
að Grænlendinjjar losni „úr fjötr-
um EBE“.
Stuðninjjsmenn aðildarinnar
að FIBE hafa haldið því fram, að
úrsöjín úr EBE mynda skilja
Grænland eftir í efnahaj{slej{um
tómarúmi, oj{ hamla verulej{a
allri framþróun, stijpð yrði skref
áratuj{i afturábak með úrsöKn.
Grænlendinj{ar fenj{u heima-
stjórn 1979, að því undanskildu
að Danir fóru áfram með varn-
armál oj{ utanríkismál þeirra, en
öll stjórn Grænlandsmála hafði
þá verið um aldir í Kaupmanna-
höfn, sem er í 3.500 kílómetra
fjarlægð. Grænlendinj{ar urðu
aðilar að EBE með innKöngu
Dana í bandalaj{ið fyrir áratuj{. A
þessu tímabili hafa Grænlend-
inj{ar notið 800 milljóna danskra
króna efnahaj{saðstoðar frá EBE,
oj{ er varla til það þorp á Græn-
landi, sem ekki hefur notið þess á
einn eða annan veg, reistar hafa
verið rafstöðvar, bryj{j{jur byggð-
ar og fiskvinnslustöðvar o.fl. Þeg-
ar tekið er tillit til höfðatölu hef-
ur engin þjóð á svæði Efnahags-
bandalagsins notið jafn ríkulega
og Grænlendingar. Og á þessu ári
er ákveðið að veittar verði 180
milljónir króna í efnahagsaðstoð
til Grænlendinga.
Báðar fylkingarnar, andstæð-
ingar aðildarinnar að EBE og
hinir, hafa leitt hjá sér að nefna
aðskilnað frá Danmörku í kosn-
ingabaráttunni, og jafnvel for-
dæmt framferði lítils hóps að-
skilnaðarsinna, sem látið hafa
hátt í sér heyra. Motzfeldt hefur
lagt á það áherzlu, að ekki sé ver-
ið að kanna afstöðu grænlenzku
þjóðarinnar til Atlantshafs-
bandalagsins eða til herstöðva og
ratsjárstöðva Bandaríkjanna á
Grænlandsjökli. „Það er hvorki
ætlun okkar né áhugamál, að
skapa ójafnvægi alþjóðaörygg-
ismálum," sagði Motzfeldt.
Danska stjórnin hefur heitið að
taka tillit til óska Grænlendinga
varðandi niðurstöður kosn-
inganna, en Anker Jörgensen,
forsætisráðherra hefur hins veg-
ar lýst því afdráttarlaust yfir við
Grænlendinga, að þeir þurfi ekki
að búast við því, að Danir bæti
þeim upp þá efnahagsaðstoð, sem
þeir fenjýu með aðild að EBE. Þá
hafa danskir embættismenn látið
í Ijós þær áhygjyur, að hafni
Grænlendingar aðild að EBE,
kynni það að leiða til ýmissa
vandkvæða í samstarfi Dana og
Grænlendinga.
Lars Chemnitz leiðtogi Attas-
ut-flokksins, sem barist hefur
fyrir áframhaldandi aðild að
EBE, óttast að hafni Grænlend-
ingar aðild að EBE í dag, sé það
„upphafið að endalokum" banda-
lagsins við Danmörku. Chemnitz
er einnig þeirrar skoðunar, að því
betra sem sambandið við Evrópu-
þjóðir sé, því tryggara verði ör-
yggi Evrópuþjóða. Rússar hafi
mikinn áhuga á hafsvæðinu aust-
ur af Grænlandi til njósna, og
telji sig þar heimakomnari ef úr-
sögnin úr EBE yrði samþykkt.
Sömu skoðunar eru fulltrúar í
stöðvum Atlantshafsbandalags-
ins í Brussel.
Jonathan Motzfeldt hefur þó
reynt að fullvissa Vesturveldin
um, að samstarf við þau í varn-
armálum muni halda áfram þótt
Grænlendingar fari úr EBE. Líta
mætti á Grænland sem stökkpall
milli Evrópu og Norður-Ameríku,
er tryggði jafnvægi á norðurhöf-
unum og verndaði Vesturveldin
frá ótilhlýðilegum áhrifum úr
hvaða átt sem væri.
Chemnitz lítur þetta öðrum
augum. „Hér í landi eru herstöðv-
ar sem Bandaríkjamenn reka, og
ef við verndum ekki traust bönd
okkar við Vestur-Evrópu, megum
við búast við auknum bandarísk-
um áhrifum. Af þeim sökum
kunna svo Rússar að hafa meiri
áhuga á Grænlandi,“ sagði hann.
Þrátt fyrir allt þetta líta
Grænlendingar þó fyrst og
fremst á kosningarnar sem tæki-
færi til að koma fram hefndum,
því tveir af hverjum þremur
Grænlendingum höfnuðu aðild
1972, en þá var þeirra mót-
atkvæðum blandað við atkvæði
danskra skoðanabræðra þeirra,
og höfðu því ekkert gildi.
í kosningabaráttunni nú mynd-
aði flokkur Motzfeldt, Siumut,
sem hefur 13 sæti af 21 á lands-
Þjóðleikhúsið:
„Sögur úr Vínarskógi“
verður frumsýnt næstu helgi
„StKitlK úr Vínarskógi,4* er leikrit sem hjódleikhúsió frumsýnir fóstudaginn
26. febrúar nk. Það er eftir Ödön von llorváth (1901 — 1938), en hann var af
austurrísk-ungverskum a'ltum. I.eikritið er alvarlej[s eðlis með kómísku ívafi.
Það gerist í Vín og næsta umhverfi árið 1931 þar sem brugðið er upp mynd af
almenningi og AllH’rti nokkrum sem er auðnuleysingi og flöktir frá einni konu
til annarrar. Þar á meðal Maríönnu, sem er ung stúlka, sem sér í Alberti von
um að geta brotið af sér fjötra kúgunar. Fjölbreytilegt samsafn manngerða litar
þetta þema og undir úlgar hugboðið um voveiflega heimsviðburði, eins og
komist er að orði í frétt frá Þjóðlcikhúsinu.
Fjöldi leikara tekur þátt í sýning-
unni, 22 eru nafngreindir, þar sem
fara með aðalhlutverkin Hjalti
Rognvaldsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Rúrik Haraldsson og Helga
Bachmann. Þýðingu leiksins annað-
ist Þorsteinn Þorsteinsson en
söngtexta þýddi Böðvar Guð-
mundsson. Lýsinguna sér Kristinn
Daníelsson um, en leikmynd og
búninga gerir Alistair Powell, en
hann er Skoti sem þrisvar áður hef-
ur unnið við sýningar Þjóðleikhúss-
ins. Síðast var hann í Noregi þar
sem hann vann við leikgerð Faust.
Iæikstjóri leikritsins „Sögur úr
Vínarskógi" er Haukur Gunnars-
son, en hann er búsettur í Osló og
starfar við leikstjórn á Norðurlönd-
unum. Hann setti upp sýninguna
„Kirsiblóm á Norðurfjalli" 1979.
Það voru tveir japanskir einþátt-
ungar en Haukur lærði einmilt m.a.
í Japan. Tónlist eftir Johann
Strauss er leikin í leikritinu.
Eftir höfundinn Ödöns von Horv-
áth liggur fjöldi leikrita, sem flest
vóru frumsýnd á fjórða áratugnum
í Berlín. Nokkur leikrita hans voru
bönnuð að undirlagi nasista og ekki
frumsýnd fyrr en eftir stríð.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi sem þjóðleikhússtjóri, Sveinn
Einarsson, hélt til kvnningar á lcik-
ritinu, að á sl. 20 áruin hafa verk
Horváths verið mikið Ieikin og sagt
er að verk hans séu leikin meira í
V-Þýskalandi en sjálfs Brechts. Ein
ástæðan fyrir þessari Horváth
„vakningu" er sögð sú að honum
takist mætavel að lýsa lífi og hugs-
unarhætti almennings á tímum
kreppu og yfirvofandi ofbeldis.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Sigríður Þorvaldadóttir. Myndin er tekin á æf-
ingu.
Borgarstjórn samþykkir:
Kanna kaup á 7
strætisvögnum
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum, sl. nmmtudagskvöld,
tiliögu meirihlutans um kaup á 7
strætisvögnum, en þessi tillaga er
santhljóða tillögu sem þeir Albert
Guðmundsson og Davíð Oddsson
lögðu fram í borgarráði fyrir
skömmu.
Tillagan er svohljóðandi:
Borgarráð samþykkir í sam-
ræmi við samþykkt borgarstjórn-
ar frá 17. 4. 1980, um kaup á 40
strætisvögnum, að láta nú kanna
kaup 7 strætisvagna fyrir SVR til
viðbótar þeim, sem þegar hefur
verið samið um.
F'elur borgarráð Innkaupastofn-
un að hefja, í samráði við SVR,
samningaviðræður við Nýju bíla-
smiðjuna hf., um yfirbyggingu
slíkra vagna og sömuleiðis við
seljendur Volvo-undirvagna, enda
er þá gert ráð fyrir strætisvögnum
af sömu gerð og þeir 20 vagnar,
sem samið var um við Nýju bíla-
smiðjuna hf.
Óskað er eftir skýrslu Inn-
kaupastofnunar um verð og
greiðsluskilmála yfirbygginga og
undirvagna, áður en endanleg
ákvörðun er tekin um kaupin.
í umræðum um þetta mál benti
Albert Guðmundsson borgar-
fulltrúi á, að þessi tillaga væri
nákvæmlega sú sama og þeir