Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 11

Morgunblaðið - 23.02.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 11 þinginu, bandalag með verka- lýðsfélögum, samtökum sjó- manna og veiðimanna og tveimur smáflokkum öfgasinnaðra vinstrimanna. Slagorð þeirra var frelsi í stað peninga, þótt það kynni að koma niður á lífsgæðun- um. „Efnahagur okkar er þegar orðinn gegnsýrður af styrkjum og framlögum frá EBE, og því leng- ur sem við verðum í bandalaginu, því háðari því verðum við,“ sagði Motzfeldt nýverið. „Eigum við ekki að gera okkur örlítið minna að góðu og reyna fremur að treysta á eigin mátt og megin.“ Chemnitz er á annarri skoðun, og segir andstæðinga EBE „fífldjarfa" í málflutningi sínum. „Það kostar einnig peninga að byggja eitthvert menningarlegt sjálfstæði. Ef við höfnum aðild að EBE, þá köllum við yfir okkur efnahagslegan glundroða, og það á eftir að virka sem eitur á póli- tískt andrúmsloft um alla fram- tíð,“ sagði hann. Motzfeldt þykist vongóður um að Grænlendingar geti náð við- skiptasamningum við ríki Efna- hagsbandalagsins, þrátt fyrir úr- sögn úr bandalaginu, en í dag fer ríflegur helmingur alls græn- lensks útflutnings til EBE-ríkja. Hann vonast jafnvel til að hljóta ívilnanir og aðstoð frá bandalag- inu á forsendu bandalagsins við Danmörku. Þá er það von Motzfeldts að eftir úrsögnina megi endur- heimta eitthvað af glötuðum fjár- munum, með sölu fiskveiðileyfa. Þá líta andstæðingar aðildarinn- ar einnig hýru auga til íslands, Færeyja og Norður-Ameríku, ekki sízt Alasaka og á norður- slóðir Kanada, þar sem þeir eygja nýja markaði og viðskiptavini. Fylgjendur aðildar að EBE telja það muni reynast erfitt að yfirstíga það, að missa aðstoð EBE. Nauðsynlegt muni reynast að setja á innflutningstolla og hækka verulega beina skatta. Það kemur í hlut Motzfeldts að fara til Kaupmannahafnar til að tilkynna ríkisstjórninni þar formlega úrslit. Hafni Grænlend- ingar aðild, kemur það í hlut danskra embættismanna að semja um breytingar á sáttmál- um bandalagsins og nýja stöðu Grænlands, sem dansks yfirráða- svæðis, og er við því búist, að endaniega verði ekki búið að ganga frá þessum málum fyrr en í árslok 1983. — Davíð Oddsson hefðu lagt fram í borgarráði fyrir skömmu. Lýsti Albert ánægju sinni með það, að meirihlutinn hefði tekið að sér þessa tillögu sjálfstæðismanna og samþykkt hana efnislega óbreytta. Styður frv. um skattadrátt vegna námslána... EITIRFARANDI ályktun var sam- þykkt á stjórnarfundi Sambands ungra sjálfstæðismanna 11. febr. sl. Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna lýsir yfir stuðningi við framkomið frumvarp Friðriks Sophussonar, Halldórs Blöndal og Matthíasar Á. Mathiesen um skattfrádrátt vegna vaxtagjalda, vaxta og gjaldfallinna verðbóta af námslánum. Ungir sjálfstæðismenn telja eðlilegt að litið sé á fjárfestingu í langskólamenntun sömu augum og fjárfestingu í húsnæði og að um vexti að lánum til hvoru tveggja skuli gilda sömu reglur. Skorar stjórn SUS á alþingis- menn að veita máli þessu brautar- gengi og samþykkja umrætt frum- varp um breytingu á lögum nr. 75/1981 um tekjuskatt og eigna- skatt, enda er hér um að ræða mikið hagsmunamál námsmanna sem skiptir ríkissjóð að sama skapi litlu. Nýr kaupfélags- stjóri til Kaupfé- lags Skagfirðinga NÝR kaupfélagsstjóri, Ólafur Frið- riksson, hefur verið ráðinn að Kaup- félagi Skagfirðinga. Ólafur Friðriksson lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1974 og starfaði sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Langnesinga í 2 ár, en var síðan ráðinn kaupfélagsstjóri á Kópaskeri og hefur hann gegnt þeirri stöðu þar til nú. U W.YSIM. VSIMINN I 22«®D Nei, ekki beinlínis veröhrun, en hvaöa orð lýsir betur nýjasta veröinu á Skoda? frá 63.000 kr. Hann Halli svarar í símann eða tekur á móti ykkur með allar upplýsingar á reiðum höndum og býðurjafnvel upp á kaffibolla JÖFUR HF. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 Stjórn SUS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.