Morgunblaðið - 23.02.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, WHÐJUDAGUR 23. FEBltífX'ft *982
17
Launaskattur
á iðnfyrirtæki
Opið bréf til alþingismanna frá
stjórn Landssambands iðnaðarmanna
AF HÁLFU Landssambands iðnad-
armanna hefur löngum verið á það
bent, að iðnaðurinn búi við önnur og
lakari starfsskilyrði en aðrir höfuð-
atvinnuvegir landsmanna. Jafnframt
hefur verið á það bent, að stjórnvöld
hafa freistast til þess að gera upp á
milli iðngreina, þegar þau hafa tekið
á sig rögg og leitast við að jafna að
einhverju leyti aðstöðumuninn á
milli atvinnuveganna.
Hafa umbætur í ýmsum að-
stöðumálum oft oltið á því, hvort
iðngreinin teldist útflutnings- eða
samkeppnisiðnaður. Hagsmunir
greina, sem ekki hafa fallið undir
þessa skilgreiningu, t.d. bygg-
ingar- og þjónustuiðnaður ásamt
ýmiss konar verktakastarfsemi,
hafa setið á hakanum. Hefur
Landssamband iðnaðarmanna
margoft vakið athygli á því, að
forsenda árangursríkrar iðn-
þróunarstefnu sé sú, að stjórnvöld
beiti sér fyrir úrbótum í aðbúnað-
armálum alls iðnaðar, hvort sem
hann er í beinni samkeppni eða
óbeinni. Sú víðtæka iðnþróunar-
stefna, sem Landssamband iðnað-
armanna hefur boðað, átti framan
af litlum skilningi að mæta meðal
opinberra aðila. Að undanförnu
virtist þó sem skilningur þeirra
væri þó heldur að aukast, og sem
merki þess má nefna breytingar á
tollskrárlögum, sem Alþingi sam-
þykkti í desembermánuði sl., þar
sem heimilað er að leggja jöfnun-
arálag á tollverð innfluttra
mannvirkja og mannvirkjahluta,
og skuli jöfnunarálagið miðað við
hlutdeild uppsafnaðra aðflutn-
ingsgjalda í verksmiðjuverði eða
byggingarkostnaði sambærilegra
mannvirkja eða mannvirkjahluta,
sem framleitt er hérlendis. Stjórn
Landssambands iðnaðarmanna
túlkaði samþykkt þessara laga
sem nokkurs konar viðurkenningu
á því, að með aðild íslendinga að
EFTA hafi í raun allur iðnaður
hér á landi lent í stóraukinni er-
lendri samkeppni, en ekki aðeins
hluti iðnaðarins. í framtíðinni
yrði því tekið á vandamálum iðn-
aðarins með þetta í huga.
Það er því stjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna gífurlegt
reiðarslag, að sú lækkun launa-
skatts á iðnfyrirtæki úr 3‘/2% af
greiddum vinnulaunum í 2xk%,
sem ríkisstjórn boðar með frum-
varpi sínu um breytta tekjuöflun
ríkissjóðs vegna ráðstafana í efna-
hagsmálum, eigi fyrst og fremst
að ná til útflutningsiðnaðar og
samkeppnisiðnaðar, samkvæmt
þröngri og úreltri skilgreiningu
þess orðs. Stærstur hluti bygg-
ingariðnaðarins, verktakastarf-
semi margs konar og fleiri greinar
eigi aftur á móti að greiða áfram
3 M> % launaskatt.
Nú hefur Guðmundur G. Þórar-
insson, alþingismaður, flutt breyt-
ingartillögu við frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um breytta tekju-
öflun ríkissjóðs, og er þar lagt til
að launaskattur verði 2lk% af
greiddum vinnulaunum í öllum
iðnaði. Hér kemur fram skilning-
ur á vandamálum innlends iðnað-
ar ásamt þeirri víðsýni, sem nauð*
synlegt er raunhæfri iðnþróun hér
á landi. Miðað við efni stefnuskráa
stjórnmálaflokkanna um innlend-
an iðnað og iðnþróun og fyrri yfir-
lýsingar margra þingmanna um
þetta sama málefni, hefði stjórn
Landssambands iðnaðarmanna
búist við því, að breytingartillaga
þessi fengi góðan hljómgrunn
þingheims. Raunin varð því miður
nokkuð á annan veg, því ýmsir
þingmenn, jafnt stjórnarsinnar
sem stjórnarandstæðingar, hafa
séð ástæðu til að skattyrðast
vegna þessarar framkomnu breyt-
ingartillögu. Landssamband iðn-
aðarmanna skorar á alla alþing-
ismenn, hvar í flokki sem þeir eru,
að veita breytingartillögunni
brautargengi.
mmmr
Hér má sjá nokkra leikendur í Stundarfriði
Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga sýnir Stundarfrið
LEIKFLOKKURINN á Hvamms-
tanga hefur að undanförnu æft
leikritið Stundarfrið eftir Guð-
mund Steinsson, undir leikstjórn
Magnúsar Guðmundssonar. Er
þetta í fyrsta skipti, sem leikritið
Stundarfriður er fært upp af
áhugaleikfélagi. Leikendur i
Stundarfriði eru níu, en að sýning-
unni standa yfir 20 manns.
Leikritið verður frumsýnt á
Hvammstanga fðstudaginn 26.
febrúar og önnur sýning verður
sunnudaginn 28. febrúar. Síðan
verður farið með leikritið um
nágrannabyggðarlög og víðar.
Fyrsta sýningin utan Hvamms-
tanga verður á Skagaströnd
sunnudaginn 7. mars.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
TONLISTARHATIÐ
í tilefni 50 ára afmælis Félags íslenzkra hljómlistarmanna
í Reykjavík 22.-27. febrúar 1982.
*
JAZZTONLEIKAR
^hcAet-
ATTHAGASALUR
■
■ - -
I DAG
Kl. 21.00 Big Band Tónlist-
arskóla FÍH. Pétur Öst-
lund og félagar. Sextett
Árna Scheving. Nýja
Kompaniiö. Kvartett
Kristjáns Magnússonar.
Miðvikudaginn 24. febrúar
Kl. 21.00 Big Band Tónlist-
arskóla FIH. Pétur Öst-
lund og felagar Mezzo-
forte. Jazz-sextett Tónlist-
arskola FÍH.
Mídasala og borðapantanir kl. 1—6 og við innganginn að
Laufásvegi 40, skrifstofu FÍH. Aðgöngumiðar kr. 50.-
GJAFAVARA
FRA GUT...