Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 18
18
MORGUSkEÍÐÍÍi;‘ÞRIÐJUDAGUR-23JEBRtfÁR 1982
Bjðlaöi til óháðra
í Irska lýðveldinu
Dyflinni, 22. febrúar. Al*.
I,KH)T<K;AK stóru flokkanna á fr
landi hafa hafíd tilraunir til að fá til
lids við sig sjö óháóa þingmenn til
þess að mynda nýja ríkisstjórn eftir
þingkosningarnar í sídustu viku.
Charles Haughey fyrrum forsæt-
isráðherra virðist vera í beztri að-
stöðu til að mynda nýja stjórn.
Flokkur hans, Fianna Fail, hlaut 81
þingsæti af 166 og hann lýsti því
yfir í útvarpsviðtali að hann væri
þess fullviss að hann gæti aflað sér
stuðnings meirihluta þingmanna
fyrir 9. marz þegar þingið, Dail,
kemur saman.
En uppi eru almennar bollalegg-
ingar um að aðrar kosningar kunni
að reynast nauðsynlegar, og horf-
urnar á því urðu til þess að „Irish
Times", virtasta blað Írska lýðveld-
isins, sagði að írland ætti það „á
hættu að verða banana-lýðveldi
Vestur-Evrópu".
Fianna Fail skorti aðeins tvö
þingsæti til að fá hreinan meiri-
hluta á þingi, en Haughey virðist
geta treyst á stuðning eins hinna
óháðu, Neil Blaney frá Donnegal.
Bandalag Fine Gael og Verka-
mannaflokksins undir forystu
Garret Fitzgeralds forsætisráð-
herra, hlaut 78 þingsæti og skorti
fimm til að fá meirihluta.
Sjö óháðir þingmenn náðu kosn-
ingu, þar á meðal þrír marxistar úr
flokknum Sinn Fein, sem sleit sam-
bandi sínu við Irska lýðveldisher-
inn (IRA) 1969 og berst gegn
Deng segir af
sér í sumar
Beking, 21. febrúar. AP.
DKNG Xiao-ping, valdamesti maður
í Kína, ætlar að segja af sér sem
varaformaður kommúnistaflokksins
á 12. flokksþinginu, sem haldið
verður á þessu ári. I’essar upplýs-
ingar eru hafðar eftir heimildum í
Kína, sem jafnframt sögðu, að llu
Yao-bang, formaður kommúnista-
ílokksins, hefði sagt frá þessari
akvörðun Dengs á fundi með
frammámönnum æskulýðssamtaka
Hokksins.
Haft var eftir- Hu, að með af-
sögninni vildi Deng rýma til fyrir
yngri mönnum meðal kínverskra
æiðtoga en sjálfur ætlaði hann að
vera í forsvari fyrir ráðgefandi
nefnd á vegum miðstjórnarinnar.
Deng er einnig formaður hernað-
arnefndar flokksins og stjórnmála
nefndarinnar en ekki er vitað
hvort hann segir þeim embættum
af sér.
1980 sagði Deng af sér sem að-
stoðarforsætisráðherra til þess að
létta af sér störfum og sýna með
því gott fordæmi, því að hann
stefnir að þvi að rjúfa hin nánu
tengsl flokks og ríkis. Flokksskír-
teinin eiga ekki að skera úr um
hvort menn eru hæfir til að gegna
embættum á vegum ríkisins, segir
Deng.
í Kína er nú stefnt að því að
draga úr skriffinnskunni og gera
miðstjórnarvaldið virkara en þar í
landi eru nú ráðherrar á annað
þúsund talsins og fjöldi opinberra
starfsmanna sagður í öfugu hlut-
falli við afköstin.
!)eng Xiao-ping, varaformaður kínverska kommúnistaflokksins, sem nú hef-
ur ákveðið að segja af sér.
Fangelsaður fyr-
ir njósnir í Prag
l’rag, 22. febrúar. AP.
DÓMSTÓLL í Prag kvað í dag upp
þann úrskurð að Petr Babinsky,
v-þýskur ríkisborgari, skyldi
uæmdur í 14 og hálfs árs fangels-
isvist fyrir njósnir um hernaðar-
leyndarmál undanfarinn áratug.
Babinsky, sem er fæddur Tékki,
fluttist til V-Þýskalands 1969 og
hefur síðan farið 34 sinnum til
Tékkóslóvakíu til njósna, að sögn
Ostrava-blaðsins, Nova Svoboda.
stjórnmálaarmi IRA, sem einnig
heitir Sinn Fein.
Þar með er Haughey í sömu að-
stöðu og Fitzgerald eftir kosn-
ingarnar í júní í fyrra þegar Fine
Gael og Verkamannaflokkurinn
hlutu 80 þingsæti, Fianna Fail 78
og óháðir átta.
Búizt er að þingmenn Sinn Fein
og einn óháður þingmaður, O’Conn-
ell, muni hvorki styðja Haughey né
Fitzgerald. Afstaða tveggja þing-
manna er mikilvæg, Tony Gregory,
borgarráðsmanns í Dyflinni, sem
er róttækur vinstrisinni, og Jim
Kemmy, sósíalista, sem studdi
Fitzgerald þar til sparnaðarráð-
stafanir hans voru felldar á þingi
með 82 atkvæðum gegn 81 í síðasta
mánuði þannig að stjórnin varð að
segja af sér.
Gregory og Kemmy standa nær
Fine Gael en Fianna Fail, en þeir
gætu átt auðveldara með að sætta
sig við efnahagsmálastefnu
Haugheys, sem hefur hvatt til þess
að skattar verði lagðir á fyrirtæki
og banka til að auka ríkistekjurn-
ar. Fitzgerald hefur m.a. hvatt til
þess að 18% skattur verði lagður á
barnaföt og bjór og tryggingabæt-
ur verði lækkaðar.
Leiðtogi Sinn Fein, Tomas
MacGiolla, segir að hann hafi rætt
við leiðtoga Verkamannaflokksins,
Michael O’Leary, um hugsanlegt
bandalag flokkanna. Þær kröfur
gerast æ háværari í Verkamanna-
flokknum að samstarfinu við Fine
Gael verði slitið og bandalag verði
myndað með Sinn Fein og óháðum
vinstrisinnum til að halda uppi
auknum þrýstingi við mótun efna-
hagsstefnunnar.
Klizabet Taylor
Kichard Burton
Burton sagður
vilja sættast vid
Elízabetu Taylor
Lundúnum, 22. Tebrúar. Al'.
BREZK æsifregnablöð halda því
fram í dag að Kichard Burton
leikari þrái mjög að sættast við
eiginkonu sína sem eitt sinn var,
Elízabetu Taylor. Er fregn þessi
rökstudd með því að maðurinn
hafi ort til hennar eftirfarandi
ástaróð:
„Ég þekki konu svo sæta og
góða, oft hef ég séð hana svífa
hjá. Svei mér ef ég skil hvað er
að gerast í hjarta mínu og samt
mun ég elska hana þar til ég
dey.“
Blaðamaður nokkur, Whitak-
er að nafni, heldur því fram að
skáldagáfan hafi komið yfir
Burton þar sem hann sat að
snæðingi í veitingahúsi einu í
Obdach í Austurríki, en þar
dvelst leikarinn um þessar
mundir og vinnur að kvikmynd
um tónskáldið Richard Wagn-
Elízabet Taylor og Richard
Burton eru bæði nýskilin við
síðustu maka sína, en leikkon-
an á aö baki sex hjónabönd.
Fregnin um sáttavilja Burtons
var borin undir leikkonuna þar
sem hún er að leika á Broadway
og kvað hún allt slíkt úr lausu
lofti gripið.
Lopez Portillo Mexikóforseti:
Nýjar hugmyndir um
frið í Mið-Ameríku
Managua, 22. febrúar. AP.
JOSE Lopez Portillo, forseti Mex-
ikó, sagði í gær, sunnudag, að rík-
isstjórn hans hefði nýjar hug-
myndir um hvernig binda mætti
enda á borgarastyrjöldina í El
Salvador og kvaðst hann vona, að
brátt gætu hafist viðræður Banda-
ríkjamanna og Kúbumanna, með
það fyrir augum að draga úr
spennu í Mið-Ameríku.
Mexikó-forseti, sem er í
opinberri heimsókn í Nicaragua,
greindi frá þessu í ræðu, sem
hann flutti fyrir 40.000 manns í
Managua, höfuðborg landsins,
en útlistaði þessar hugmyndir
ekki frekar. Hann sagði, að það
væri einkum þrennt sem stæði í
veginum fyrir friði í Mið-
Ameríku: Borgarastyrjöldin í E1
Salvador, gagnkvæm tortryggni
stjórnvalda í Bandarikjunum og
Nicaragua og fjandskapurinn,
sem ríkti milli Bandaríkja-
manna og Kúbumanna.
Lopez lét þess getið í ræðu
sinni, að það væru „raunveru-
legar líkur" á því að Bandaríkja-
menn og Kúbumenn hæfu fljótt
viðræður sín í milli og sagði, að
fyrsta skrefið hefði verið stigið í
desember sl. þegar Alexander
Haig, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hitti að máli Carlos
Rafael Rodriquez, varaforseta
Kúbu.
Leiðtogi herstjórnarinnar í
Nicaragua, Daniel Ortega, sagði
á útifundinum í Managua, að
nokkru áður en Mexikó-forseti
kom til landsins hefði sprengja
sprungið í ferðatösku á flugvell-
inum með þeim afleiðingum, að
fjórir menn biðu bana. Sagði
hann, að þarna hefðu Banda-
ríkjamenn verið að verki og
hefði það vakað fyrir þeim að
spilla fyrir heimsókn Mexikó-
forseta.
Uppistand vegna mynda
af Díönu prinsessu
l.undúnum, 22. febrúar. AP.
MIKID írafár er rfkjandi innan
brezka hcimsveldisins vegna
mynda sem æsifréttablöð í Lund-
únum hafa birt af hinni vanfæru
Díönu prinsessu, sem um þessar
Fleiri morð en aftökur í íran
~ segir Tabrizi
Kelgrad, Beirút, 22. febrúar. AP.
JÚGÓSLAVNESKUR blaðamaður
sem er nýkominn frá íran, heldur
því fram í blaðinu Politika í dag að
síðan um mitt síðasta ár hafi um
2.006 andstæðingar byltingar-
stjórnarinnar í íran verið teknir af
lífi opinberlega.
Þá er því haldið fram að í borg
einni i norðurhluta landsins hafi
allmargir vinstri sinnaðir
stjórnarandstæðingar verið
leiddir til aftöku frammi fyrir
þúsundum áhorfenda á íþrótta-
leikvangi. Þess er ekki getið í
greininni í hvaða borg atburður
þessi hafi átt sér stað né heldur
hversu margir menn hafi verið
líflátnir, en hins vegar kemur
fram að þeim hafi verið ekið inn
á leikvanginn í stórum flutn-
ingabílum. Hafi þeir verið með
bundið fyrir augun þar til rétt
áður en aftökusveitin lét kúlna-
hríðina dynja á þeim, um leið og
lýðurinn hrópaði: „Allah er
mestur, Khomeini er leiðtoginn"
og „drepum svikarana".
Teheran-útvarpið hafði það
eftir Hossein Tabrizi um helgina
að um þessar mundir væri meira
um pólitísk morð í íran en
opinberar aftökur, enda hefði
byltingarstjórn Khomeinis ein-
ungis tekið af lífi fólk sem væri
skaðlegt þjóðfélaginu. Tabrizi
stjórnar samanlögðu byltingar-
dómstólakerfi landsins, en dóm-
stólar þessir hafa dæmt þúsund-
ir manna til dauöa fyrir hinar
margvíslegustu sakir frá því að
byltingin var gerð í landinu fyrir
rúmum þremur árum.
mundir dvelst á Bahama-eyjum í
leyfi með eiginmanni sínum, Karli
krónprins.
Svo harkaleg hafa viðbrögðin
orðið, að yfirvöld á eyjunum sáu
ástæðu til að reka úr landi hóp
blaðaljósmyndara sem kom til
eyjanna í kjölfar hjónanna og
hafa elt þau þar á röndum með
aðdráttarlinsur.
í Buckingham-höll var það
tekið óstinnt upp að blöðin
skyldu birta umræddar myndir,
og sagði blaöafulltrúi Elísabetar
drottningar að blöðin hefðu
gerzt sek um smekkleysu sem
væri brezkum blöðum ekki sam-
boðin. Myndirnar eru af prins-
essunni þar sem hún er að spóka
sig á ströndinni í bikini, en
frumburður krónprinshjónanna
er væntanlegur í heiminn í júní-
mánuði.