Morgunblaðið - 23.02.1982, Síða 19
o Olympia
(MlÆUMMy© KJARAIM HF [
ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SlMI 83022
MORGUNBLAEHD, ÞRIDJUDAGUR 23. FEBRtfAR.198?
Vetur í Varsjá
Námamenn í Katowice bera á brott félaga sinn, sem féll í átökum við hermenn 16. desember sl. Herlögin voru
sett í vetrarhörkunum, pólska þjóðin ætlar að þreyja þorrann og góuna því að „vorið er okkar“. Það var
bandarískur blaðamaður sem tók þessa mynd og gat smyglað henni úr landi.
Flett ofan af „free lance“ blaðamanni
Til sölu
Hino-KM 600 árg. 1981 meö Sindra palli og sturt-
um, ekinn 11 þúsund km. 6 mánaöa ábyrgö fylgir
bílnum frá söludegi.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99
/---------------------N
SKÓLARITVÉLAR
Vidurkenndi að hafa
falsað Kampútseugrein
Monica rafritvélin er allt í senn skóla-, feróa- og
heimilisritvél, ótrúlega fyrirferöarlítil, ódýr og fáanleg í
tveimur litum.
Hálft stafabil til leiöréttingar, 44 lyklar, 3
blekbandsstillingar o.m.fl. sem aöeins er á stærri gerðum
ritvéla.
Fullkomin viögeróa-
og varahlutaþjónusta.
New York, 22. febrúar. Al\
„ÞETl'A var áhætta, sem ég tók, og
tapaði,“ sagði Christopher Jones,
sem starfar sem „free-lance“ blaða-
maður. Hann viðurkenndi eftir
þriggja daga yfirheyrslur að hafa
falsað grein um ástandið í Kamp-
útseu, sem birtist í New York Times
Magazine. Greinina skrifaði Jones í
Calpe á Spáni, þar sem hann hefur
aðsetur og viðurkenndi að hann
hefði aldrei farið út úr landinu til að
afla sér nánari upplýsinga um raun-
verulegt ástand mála í Kampútseu.
í greininni hélt Jones því fram,
að hann hefði dvalist í mánaðar-
tíma á meðal Rauðu kmeranna
þar sem þeir börðust við víet-
namska hermenn, sem sóttu að
þeim. Lýsti h^nn í smáatriðum
ákveðnum persónum, svo og
ímynduðum bardaga á milli her-
manna Rauðu kmeranna og Víet-
namanna. Jones hafði um skeið
unnið sem blaðamaður í Asíu og
fór gott orð af honum.
Það var hluti niðurlags greinar
Jones, sem vakti athygli eins les-
anda New York Times. Fannst
honum sem þessi hluti kæmi
kunnuglega fyrir sjónir. Við nán-
ari athugun reyndist hann svo til
samhljóða hluta úr skáldsögu
André Malraux, „The Royal Way“,
og gerist í Kampútseu. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst ritstjór-
um NY Times ekki að ná tali af
Jones fyrr en gerð var ferð til
Calpe. Þar viðurkenndi Jones að
hafa stolið hluta sögunnar í grein
sína til þess að gera hana „lit-
skrúðugri".
Grafhýsi
Tiu fundið
London, 22. febrúar. AP.
BKKZKIR fornleifafræðingar hafa
fundið grafhýsi Tiu prinses.su, syst-
ur Kamsesar II, rétt sunnan við
Kaíró að sögn Sunday Telegraph.
Höggmyndir og áletranir hafa
fundizt síðan uppgröftur hófst á
þessum stað fyrir hálfum mánuði
undir stjórn Geoffrey Martin,
prófessors í egypzkri fornleifa-
fræði við háskólann í London.
Grafhýsið var gert fyrir Tiu
prinsessu um 1300 f.Kr. Ramses
II faraói, bróðir hennar, er
þekktur fyrir að hann lét smíða
hið mikla musteri Abu Simbel og
kúgun hans á gyðingum leiddi til
brottfararinnar frá Egyptalandi
í tíð eftirmanns hans, Mernept-
ah.
Áletranir sýna að Tia var gift
skrifara, sem hafði umsjón með
fjárhirzlum konungs. Fornleifa-
fræðingar vona að uppgröfturinn
leiði til þess að meiri vitneskja
fáist um þessa lítt þekktu prins-
essu.
Einn lést í
brotlendingu
Sciuatc, Khode l.sland, 22. Tebrúar. Al\
EINN farþegi lést og hinir ellefu slös-
uðust í dag er flugvél af Twin Otter
gerð brotlenti rétt sunnan við Þrovi-
dence, Rhode Island.
Kviknaði í hreyfli vélarinnar á
flugi og tilkynntu flugmennirnir
nauðtendingu á Green State-flug-
vellinum í Warwick, en skiptu síðan
um skoðun og brotlentu vélinni á ísi-
lögðu uppistöðulóni rétt sunnan við
Providence. Kafarar voru sendir á
vettvang ef svo illa færi að flugvélin
kynni að sökkva og farþegar reynd-
ust í frekari hættu, en svo reyndist
ekki.
Hæsta kona heims látin
Pcking, 22. febrúar. AP.
STÆRSTA kona heims er látin.
Kínverjinn Zeng Jin-Lian, sem var
2,47 metrar á hæð, lést fyrir
skömmu á heimili sínu eftir lang-
varandi veikindi, aðeins 17 ára
gömul. Hún hafði verið í sjúkrahúsi
síðan í október, en fékk að fara
heim í frí um stutt skeið. Jin-Lian
þjáðist af rangri hormónastarfsemi
og sykursýki.
Vegna veikinda sinna átti hún
bágt með að standa á eigin fótum
lengi í einu og átti í erfiðleikum
með að stjórna hreyfingum sín-
um, stærðarinnar vegna. Yfirvöld
í heimahéraði hennar, Hunan,
borguðu öll lyf fyrir hana svo og
kostnað við klæði á meðan hún
lifði. Heilsa hennar hafði verið
sæmileg, en 9. febrúar sl. fékk
hún háan hita og lést fjórum dög-
um síðar.
Veður
Akureyri
Amsterdam
Aþona
Barcelona
Berlín
Chicago
Dyftinni
Feneyjar
Frankfurt
Færeyjar
Genf
Heisinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahöfn
Kairó
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angelea
Madrld
Malaga
Mallorca
Merikóborg
Miami
Moskva
New York
Nýja Oelhí
Osló
Parfs
Reykjavik '
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
4 Mttskýjað
8 heióskírt
10 rigning
8 rigning
2 heiöskírt
5 heióskfrt
10 heióskirt
2 heióskírt
5 heióskírt
6 skúrir
1 skýjað
2 heiðskirt
17 skýjsð
14 skýjaó
25 heióskírt
1 skýjaó
20 skýjaó
19 skýjaó
vantar
8 heióskírt
30 skýjaó
12 heiðskfrt
16 skýjaó
10 þoka
25 skýjaó
29 skýjaó
-2 heiðskírt
5 skýjaó
23 heiöskírt
-5 skýjað
6 heióskírt
2 skúrír
11 heiöskirt
18 skýjaó
-2 heiðskirt
18 skýjaó
12 heióakfrt
7 skýjaó
-8 heiðakírt
Verður uppreisn
í Póllandi í vor?
I.ondon, 22. fcbrúar. AP.
FRÉTTARITARI BRESKA blaðsins The Daily Telegraph, sem kom í gær, sunnudag, frá
Varsjá til Lundúna, spáir því, að til meiriháttar átaka komi í Póllandi í vor, jafnvel til
vopnaðrar uppreisnar gegn valdhöfunum.
Fréttaritarinn, Robin Gedye,
sem verið hefur víða í Póllandi
síðustu 12 dagana, segir, að her-
lögin hafi fengið því einu áorkað,
að andstaðan við stjórnvöldin,
sem áður var mest meðal félaga í
Samstöðu, hafi nú snúist upp í
ofboðslegt hatur allrar þjóðarinn-
ar á ríkisstjórn landsins. Hvar
sem farið sé, megi líta sömu orðin
skrifuð á húsveggina: „Veturinn er
þeirra, vorið okkar“. „A bensín-
stöðvum, á kaffihúsum og inni á
heimilum fólks var viðkvæðið eitt
og hið sama: „Nú er allt hljótt, en
við þolum þetta ekki miklu lengur.
Þegar vorar og hlýnar í veðri geta
skæruliðar dregið fram lífið á
landinu og þá mun baráttan hefj-
ast,““ segir Gedye í grein sinni.
Gedye segir, að margir Pólverj-
ar virðist standa í þeirri barna-
legu trú, að Vesturveldin muni
ekki sitja hjá aðgerðalaus ef
pólska þjóðin geri uppreisn gegn
kúgurum sínum og þeir líti á það
sem gamla skuld við Pólverja
vegna svikanna í síðari heims-
styrjöld. Hann vitnar í orð konu
einnar, sem segir, að hún vilji
heldur sjá syni sína tvo falla í bar-
áttunni gegn stjórnvöldunum en
að þeir lifi lífinu undir herlögum.
„Það er betra að fáir séu frjálsir
en þúsundir lifi
konan.
í fjötrum," sagði
„Því er almennt trúað, að pólsk-
ir hermenn muni ganga til liðs við
fólkið þegar til uppgjörsins kem-
ur,“ segir Gedye, sem kveðst einn-
ig hafa heyrt orðróm um að her-
menn hafi sest að tedrykkju með
verkfallsmönnum og að á skrið-
drekum fyrir utan Gdansk-skipa-
smíðastöðvarnar hafi mátt sjá
borða með slagorðum Samstöðu.
Það er þessi andi, sem mun
ríkja með þjóðinni þegar frelsis-
baráttan hefst," hefur Gedye eftir
pólskum hermanni.