Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 43

Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. REBRÚAR 1982 23 Valsmenn fóru létt með lið UMFN VALSLIÐIÐ í körfuknattleik sýndi Njarðvíkingum svo sannarlega í tvo heimana í úrvalsdeildinni á laugar dag. Valsmenn yfirspiluðu UMFN algjörlega og sigrudu 97—87, eftir ad hafa haft örugga forystu í hálf- leik, 49—37. En þrátt fyrir að UMFN hafi tapað leiknum eru litlar líkur á öðru en að liðið verði ís- landsmeistarar. Liðið má nefnilega tapa einum leik til viðbótar en sigrar samt í mótinu. UMFN nægir að sigra ÍS og ÍR. Valsmenn hófu leikinn af mikl- um krafti, jafnt í vörn sem sókn, og léku hraðan og yfirvegaðan bolta. Þeir náðu strax yfirhönd- inni í leiknum og héldu henni allt til loka. Hittni Valsmanna var mjög góð, og hver leikfléttan af annarri gekk upp. Var sem þessi mikli kraftur í Valsmönnum kæmi UMFN alveg úr jafnvægi og lítið púður var í öllum leik þeirra. Sér í lagi í varnarleiknum. Um tíma í síðari hálfleiknum náðu Valsmenn 18 stiga forskoti í leiknum og var sigri þeirra aldrei ógnað. Að vísu tóku leikmenn UMFN smásprett alveg undir lokin en allt kom fyrir ekki. Lið Vals var mjög jafnt og erfitt að gera upp á milli leikmanna. Sama liðið lék lengst af inná vell- inum, þeir Torfi, Kristján, Rík- harður, Jón og Ramsey og stóðu sig allir mjög vel, og skoruðu nokkuð jafnt. Þeir voru mjög sterkir í fráköstum og það heyrði til undantekninga ef leikmaður úr UMFN hirti frákast í leiknum. Valur— UMFN 97-87 Mikil deyfð var í liði UMFN og enginn einn skar sig úr. Að vísu skoraði Danny grimmt en aðrir leikmenn hittu illa. Valur Ingi- mundarson komst á skrið undir lok leiksins og skoraði þá nokkrar fallegar körfur en þær voru seint á ferðinni. Stig Vals: Ramsey 22, Torfi 19, Ríkharður 18, Kristján 18, Jón 14 og Leifur 2. Stig UMFN: Danny 47, Gunnar 9, Valur 14, Ingimar 5, Júlíus 4, Jónas 4, Sturla 2 og Brynjar 2. — ÞR KR seig fr^m úr er villu- vandræði IR sögðu til sín KR SIGKAÐl ÍR nokkuð örugglega með 103 stigum gegn 84 í úrvals- deildinni í körfuknattleik á sunnu- daginn. Staðan í hálfleik var 45—42 fyrir KR. Vesturbæjarliðið hafði yfir leitt yfirhöndina í leiknum, en sára- litlu munaði allt fram á síðustu mín- úturnar og ÍR-ingar veittu liðinu harða og mikla keppni uns lykil- menn fóru að komast í slæm villu- vandræði. Liðin skiptust á um forystuna fyrstu mínúturnar, en síðan náði KR naumri forystu. Síðari hálf- leikurinn hófst ekki gæfulega fyrir IR að því leyti, að strax á fyrstu minútu hans fékk Bob Stanley sína fjórðu villu, og besti maður liðsins, Jón Jörundsson, var skömmu síðar einnig kominn í villuvanda. Við fjórðu villu Stan- leys fór að losna um Stu Johnson, en Stanley hafði haldið honum í járngreipum allt fram að því, oft mikið stríð þeirra á milli. KR-ingar sigu fram úr, en forysta þeirra varð ekki afgerandi fyrr en undir blálok leiksins, er Stanley, Jón og Kristinn voru allir farnir út af. Þá var það snar þáttur í ósigri IR, að leikmenn liðsins eru óskaplega linir í fráköstum, bæði undir eigin körfu og eins undir körfu andstæðingsins. Fjölda stiga skoruðu KR-ingar eftir að hafa hrifsað fráköst án keppni frá ÍR-ingum. Þetta var í heild merkilega góð- ur leikur, góður körfuknattleikur beggja liða og geysileg barátta. Leiðinlegan blett á leikinn settu hins vegar tíð olnbogaskot Amer- íkananna, einnig nöldur ÍR-inga út af dómgæslunni. Þeir Krist- björn og Gunnar voru ekki í essinu sínu að þessu sinni, en framkoma ÍR-inga bar ekki vott um mikinn þroska, það var ekki dómgæslunni að kenna að liðið tapaði leiknum. Valur Torfi Magnússon Kíkharóur Hrafnkelsson Kristján Ágústsson Jón Steingrímsson Leifur (Jústafsson IIMFN Gunnar Þorvarðarson Júlíus Valgeirsson Jónas Jóhannesson Valur Ingimundarson Ingimar Jónsson Sturla Örlygsson Brynjar Sigmundsson 6 5 6 6 5 5 4 STAÐAN Staðan í úrvalsdeild: Valur — Njarðvfk 97:87 KK — ÍR 103:84 Njarðvík 17 13 4 1473:1349 26 Fram 17 11 6 1423:1309 22 Valur 17 11 6 1418:1359 22 KK 17 10 7 1345:1391 20 ÍR 17 5 12 1335:1440 10 1 ÍS 17 1 16 1364:1550 2 ! Lið Fram: Símon Ólafsson Viðar Þorkelsson Þorvaldur Geirsson Omar Þráinsson Steinn Guðjónsson Aðrir léku of lítið. Lið ÍS: Gísli Gíslason Bjami Gunnar Sveinsson Árni Guðmundsson Ingi Stefánsson Þórður Oskarsson Guðmundur Jóhannsson Lið ÍK: Kristinn Jörundsson Jón Jörundsson Hjörtur Oddsson Benedikt Ingþórsson Aðrir léku of lítið. Lið KR: Jón Sigurðsson Ágúst Líndal Garðar Jóhannsson Stefán Jóhannsson Guðjón Þorsteinsson Aðrir léku of lítið. KðrfuknattielRur IR: KR 84:103 Besti maður IR var að þessu sinni Jón Jörundsson, hann röflaði líka manna mest, leitt, því hann sýndi stórleik er hann einbeitti sér að verkefninu. Bob Stanley var furðu atkvæðalítill í sókninni hjá ÍR, en iék vörnina þeim mun bet- ur, hélt Johnson gersamlega niðri allt þar til þreyta og villuvand- ræði fóru að segja til sín. Hjörtur, Benedikt og Kristinn gerðu einnig góða hluti, en sumir þeirra voru einum of uppteknir í nöldrinu. Gaman væri ef IR-ingar gætu sigrast á óvini þessum. Hjá KR var Jón Sigurðsson at- kvæðamestur, en liðið var afar jafnt, helst að Garðar og Johnson stæðu upp úr, en Johnson þó ekki fyrr en líða tók á leikinn. Stig ÍR: Jón Jórundsson 29. Benedikt Ing- þórsson 14, Kristinn Jörundsson 12, Hjörtur Oddsson 10, Bob SUnley 9, Oskar Baldursson 9 og Sigmar Karlsson 2 stig. Stig KR: (írróar Jóhannsson 27, Jón Sigurðs- son 24, Stu Johnson 23, Stefán Jóhannsson 11, Ágúst Líndal, Birgir Mikaelson og (>uðjón l»or steinsson 4 hver, Páll Kolbeinsson, Kristján Oddsson og Kristján Kafnsson 2 hver. - u- Darraðardans undir körfunni í leik Vals og UMFN. Það eru þeir Torfi Magnússon og Kristján Ágústsson, Val, sem stíga sporin. ijósm.: K()K Öruggur sigur ÍBK ÍBK SIGRAÐI Borgarnes örugglega 105—87 í 1. deild Islandsmótsins í Bikarkeppni KKÍ: Tekst ÍBK aö klekkja á Val EINN leikur fer fram í bikarkeppni KKÍ í kvöld, meiri háttar leikur. Það eru Valur og Keflavík sem eigast við í Hagaskólanum og hefst leikurinn klukkan 20.00. Leikurinn gæti orðið tvísýnn. Valsmenn hafa sterku liði á að skipa, en ÍBK er lang efst í 1. deildinni. Einn af lykilmönnum liðs- ins verður líklega fjarri góðu gamni, Viðar Vignisson meiddist nokkuð á æfingu fyrir skömmu. Hins vegar mun Axel Nikulásson að öllum lík- indum leika sinn fyrsta leik eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla. körfuknattleik um helgina. Staðan í hálfleik var 51—39 fyrir ÍBK. Tim Higgins skoraði 45 stig fyrir ÍBK, Þorsteinn Bjarnason 20 stig, Björn Skúlason 12 stig og Jón Kr. Gíslason einnig 12 stig. Carl Pear son skoraði 41 stig fyrir Borgarnes, Hans Egilsson skoraði 16 stig og Bragi Jónsson skoraði 10 stig. Stað- an í 1. deild er nú þessi: ÍBK Haukar UMFG Borgarn. 10 1014—780 20 9 791—819 10 10 891—933 6 11 941—1105 4 IHorflunMnbib innD Þrjú frjálsíþróttaheimsmet slegin á móti í San Diego Þrjú heimsmet í frjalsfþróttum voru sett á innanhússmóti í San Diego, á fóstudagskvöld, hvert öðru betra. í öllum tilvikum voru bandarískir frjálsíþróttamenn að verki. Á mótinu náðist góður árangur auk heimsmet- anna. Bandaríska stúlkan, Mary Deck- er Tabb, náði bezta tíma sem nokkru sinni hefur verið náð í míluhlaupi kvenna, jafnt utanhúss sem innan, er hún hljóp á 4:20,5 mínútum. Var hún 12 sekúndum á undan annarri bandarískri hlaupakonu, Francie Larrieu. Bætti Decker Tabb eigið heims- met, sem var vikugamalt, um 1,2 sekúndur. Heimsmetið utanhúss á sovézka stúlkan Lyudmila Vesel- kova, ,4:20,89 mín, frá því í fyrra. Að vísu hefur Decker Tabb náð betri tíma en þetta, en það var er hún hljóp á 4:17,55 mínútum á innanhússmóti í Houston Astro- dome fyrir tveimur árum, en sá tími verður aldrei viðurkenndur sem innanhússmet, þar sem hiaupabrautin í höllinni er lengri en 200 metrar. Bandaríski stangarstökkvarinn Billy Olson setti heimsmet í stangarstökki í San Diego, stökk 5,77 metra og bætti eigið met, sem hann setti nýlega, um einn senti- metra. Annar varð landi hans Earl Bell með 5,63 sentimetra. Þá setti Willie Banks heimsmet í þrístökki, stökk 17,41 metra, en gamla metið átti Sovétmaðurinn Gennadiy Valyukevich og var það 17,28 metrar. Banks náði stóra stökkinu í fjórða stökki af sex. Hann sigraði með yfirburðum, og afrek hans þótti óvænt, því hann hefur verið frá um tíma vegna meiðsla. Einn litríkasti hlaupari síðasta áratugs, Nýsjálendingurinn John Walker, er enn í toppformi, og jafnvel betri en fyrr, því á mótinu náði hann frábærum árangri í míluhlaupi, hljóp á 3:52,8 mínút- um, sem er næstbezti árangur frá upphafi innanhúss. Annar varð Bandaríkjamaðurinn Tom Byers á 3:53,6 og þriðji írinn Ray Flynn á 3:54,1 mín. Þá er Dwight Stones, fyrrum heimsmethafi í hástökki, ekki af baki dottinn, þvi hann fór léttilega yfir 2,27 metra í San Diego, og sigraði örugglega. Loks stökk Larry Myricks 8,12 metra, en hann á mótsmetið í San Diego, eða 8,38 metra. Á mótinu hljóp Evelyn Ashford á 6,48 sekúndum í 60 stiku hlaupi, sem er betra en gildandi heims- met, en eitthvað voru dómararnir á mótinu óvissir um hvort þjóf- startað hefði verið í hlaupinu, til- kynntu fyrst að úrslitin væru end- anleg, en klukkustundu síðar var tilkynnt, að vegna „tæknilegs mis- skilnings" milli ræsis og þess er gætti tímatökutækjanna, hefðu dómarar úrskurðað, að árangur í hlaupinu væri „óopinber", þ.e. ógildur sem met.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.