Morgunblaðið - 23.02.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982
í safnþró iðnaðarráðuneytis:
Smáiðnaður f sveitum
Steinþór Gestsson (S) mælti ný-
verið fyrir fyrirspurn varamanns
síns, Sigurðar Oskarssonar, til
forsætisráðherra, um smáiðnað í
sveitum. Steinþór minnti á: 1)
Þingsályktun Alþingis frá í maí
1979, þessefnis, að ríkisstjórnin
skuli beita sér fyrir stofnun þjón-
ustuúrvinnsluiðnaðar í sveitum.
Byggðadeild Framkvæmdastofn-
unar átti að rannsaka möguleika
á slíkum smáiðnaði, safna hug-
myndum um framleiðslugreinar,
kanna viðhorf heimaaðila vítt um
land og gera áætlun um fram-
kvæmdir. Athugunin skal ekki
sízt ná til atvinnumöguleika aldr-
aðra, sem samþykkt hefur verið á
Alþingi, lánsfjárhliðar mála o.fl.
2) Áætlun Framkvæmdastofnun-
ar, sem fullbúin var í maí 1980 og
bókun svohljóðandi: „Stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkisins
samþykkir áætlun að eflingu
smáiðnaðar í sveitum. Stjórnin
mun ábyrgjast þær tillögur um
lánveitingar og styrki, sem í
áætluninni felast, enda falli
fyrirgreiðsla að lánsfjárramma
Byggðasjóðs hverju sinni og ein-
stök mál verði metin hvert fyrir
sig.
I tillögum Framkvæmdastofn-
unar vóru 20 smáum iðnfyrir-
tækjum gerðir skórnir þegar á
árinu 1981 en fjármögnun átti að
koma frá Byggðasjóði með fram-
lagi og láni úr Iðnlánasjóði og af
eigin fé heimaaðila. Þá var einnig
gert ráð fyrir „að efla heimilis-
iðnað í sveitum í ýmsum formum,
og gæti ég trúað að það hefði leitt
til hagsbóta og sérstakrar
ánægju fyrir eldra fólk,“ sagði
Steinþór. Steinþór harmaði að
ríkisstjórn hefði enn ekki tekið
afstöðu til þessarar áætlunar um
uppbyggingu smáiðnaðar í sveit-
um, sem þingvilji hefði staðið til
og Framkvæmdastofnun undir-
búið vel.
• Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sagði ríkisstjórnina
hafa rætt þessa áætlun, en henni
hafi verið vísað til iðnaðarráðu-
neytisins til frekari athugunar.
Hún hefði þar verið til umfjöllun-
ar í tengslum við aðrar iðnþróun-
aráætlanir, og hafi starfshópur á
vegum ráðuneytisins, sem annast
tengsl við iðnráðgjafa, unnið að
málinu. Ráðherra fjallaði nokkuð
um starfsemi iðnráðgjafa og
myndun iðnþróunarfélaga og
svæðisbundinna iðnþróunarsjóða
í tengslum við þau, námskeið í
undirbúningi nýrra fyrirtækja og
fleiri hugmyndir. Lokaorð hans
vóru: „Að lokinni endurskoðun á
vissum þáttum áætlunar um efl-
ingu smáiðnaðar í sveitum og í
samræmi við það starf, sem unn-
ið hefur verið á síðasta ári, þá
mun áætlunin tekin fyrir á næst-
unni á ný í ríkisstjórninni."
• Helgi Seljan (Abl) sagði þátt
Framkvæmdastofnunar í undir-
búningi málsins góðan og „ég var
í raun og veru hissa á því, hvað
marga möguleika var þar bent á.
Eg vil taka undir það með fyrir-
spyrjanda," sagði Helgi, „að það
er nauðsynlegt eftir að þessi und-
irbúningsvinna hefur farið fram,
að ríkisstjórnin taki um það end-
anlega ákvörðun, að framkvæmd-
ir í þessa átt verði hafnar svo
sem þingsályktunin segir til um.“
• Steinþór Gestsson (S) sagði
málið hafa dregizt á langinn hjá
ríkisstjórn eða viðkomandi ráðu-
neyti, eftir að það barst frá
Framkvæmdastofnun. Hann
sagði sitt sjónarmið að frum-
kvæði yrði að koma frá heimaað-
ilum, en „ég hefi ítrekað vakið
athygli á því á stjórnarfundum
Framkvæmdastofnunar, að það
hefur ekki verið tekin afstaða til
þeirra áætlana, sem unnar hafa
verið hjá Framkvæmdastofnun-
inni. Mér skilst, að fæstar þeirra
(•unnar
SU‘in|n'>r
P
ms* , ■ ’f
llelgi
#
hafi fengið afgreiðslu hjá ríkis-
stjórninni, hvorki fyrr né síð-
ar ...“ Tímabært er að iðnaðar-
ráðuneytið skili sínum þætti
málsins.
I stuttu máli
Meðal þingmála sem komu
fram í sl. viku eru eftirfarandi:
• Frumvarp til breytinga á
lögum um Innheimtustofnun
sveitarfélaga, sem felur í sér
heimild til að stofnunin geti tek-
ið að sér innheimtu á meðlags-
skuldum erlendra ríkisborgara,
sem búsettir eru hér á landi.
Ennnfremur á meðlögum
greiddum erlendis fyrir íslenzka
ríkisborgara.
• Frumvarp um birtingu laga
og stjórnvaldserinda, sem Kjart-
an Jóhannsson (A) o.fl. flytja.
Frumvarpið felur í sér ákvæði
um, hvern veg ríkisstjórnir skuli
koma fréttatilkynningum á
framfæri varðandi útgáfu bráða-
birgðalaga.
• Stjórnarfrumvörp um
breytingu á sveitarstjórnarlög-
um og lögum um sveitarstjórn-
arkosningar. Fyrra frumvarpið
er hliðstætt frumvarpi sem Sal-
ome Þorkelsdóttir (S) o.fl. flytja,
um laugardagskosningu til sveit-
arstjórna, en hið síðara, að til-
kynningar um aðsetursskipti,
sem berast eftir að kjörskrá er
samin, skuli jafnframt vera
kjörskrárkæra, og að kjörseðlar
við kosningu sýslunefndar-
manna skuli gerðir með sama
hætti og kjörseðlar til hrepps-
nefndarkosninga, en með öðrum
lit.
• Guðmundur G. Þórarinsson
(F) flytur breytingartillögu við
stjórnarfrumvarp um breytta
tekjuöflun ríkissjóðs, þess efnis,
að lækkun launaskatts í 2,5%
(úr 3,5%) skuli ná til fiskverkun-
ar og iðnaðar alfarið, en ekki
hluta iðnaðar, eins og frumvarp-
ið gerir ráð fyrir.
• Sighvatur Björgvinsson og
Magnús H. Magnússon, þing-
menn Alþýðuflokks, hafa flutt
frumvarp um Orlofssjóð aldr-
aðra til stuðnings sumardval-
arstarfsemi fyrir aldrað fólk.
• Þá hefur Kjartan Jóhanns-
son (A) o.fl. flutt frumvarp til
breytinga á orkulögum, þess efn-
is, að orka sú, sem fólgin er í
háhitasvæðum, „sé sameign
þjóðarinnar".
• Árni Gunnarsson og Jó-
hanna Sigurðardóttir, þingmenn
Alþýðuflokks, hafa borið fram
fyrirspurn til dómsmálaráð-
herra í sex liðum, hvernig háttað
sé vistum ósakhæfra afbrota-
manna, hve margir afbrotamenn
hafi verið metnir geðveikir,
hvort mál öryggisgæzlufanga
séu endurskoðuð reglulega,
hvort ráðherra hafi reynt að fá
ósakhæfan geðsjúkling, sem
lengi hefur dvalið í fangelsi, inn-
lagðan á geðsjúkrahús, hvar geð-
rannsókn afbrotamanna fari
fram, hversu oft 62. gr. refsilaga
hafi verið beitt (vistun ósak-
hæfra manna á viðeigandi stofn-
un), til hvaða stofnana hafi verið
leitað, þegar slíkur úrskurður
liggur fyrir.
■
Leikhópurinn sem stendur að Mjallhvíti og dvergunum sjo.
Mjallhvít og dverg-
arnir sjö í Eyjum
LKIKFÉLAG Vestmannaeyja
frumsýna barnaleikritið Mjall-
hvít og dvergarnir sjö laugardag-
inn 13. febrúar, en þetta er 108.
verkefni Leikfélags Vestmanna-
eyja. Barnaleikritið er eftir M.
Kaiser og er í þýðingu Stefáns
Jónssonar. Leikstjóri er Unnur
Guðjónsdóttir og er þetta 5.
verkefnið sem hún leikstýrir hjá
Leikfélagi Vestmannaeyja. llnn-
ur hefur verið einn af aðalburð-
arásum LV í áratugi sem leik-
kona, en í þessu leikriti hefur
hún fengið til liðs við sig fjölda
æskufólks auk nokkurra eldri
leikara félagsins.
Leikmynd gerði Magnús
Magnússon, lýsingu annaðist
Lárus Björnsson. Á lokaæf-
ingu var salur Bæjarleikhúss-
ins þétt setinn gestum, aðal-
lega börnum, sem skemmtu
sér konunglega og þeir full-
orðnu ekki síður, enda greini-
legt að börnin lifðu sig inn í
þetta kunna ævintýri.
Mjallhvít og dvergarnir sjö
er annað verkefni Leikfélags
Vestmannaeyja á þessu leik-
ári.
Mjallhvít í dái og dvergarnir álútir hjá beði hcnnar.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
* NASHUA m
UOSRmiNARVElAR
vinna allt þaö sem ætlast er til af Ijósritunarvélum í hæsta gæöaflokki.
Hafa auk þess lægri bilanatíöni.
Nashua, fyrir mikla, litla og meöalnotkun. Góö viöhaldsþjónusta.
Kynnum nýjar geröir þessa dagana.
Komiö eöa hringiö og fáiö upplýsingar.
Suðurlandsbraut 10 — Simi 84900