Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 39

Morgunblaðið - 23.02.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982 47 Menn fylgjast með þegar úrslit einatakra skáka eru færð inn á töflu mótsins. „Get ekki verið annað en sæmilega ánægður“ - sagði Guðmundur Sigurjónsson, stór- meistari, sem varð efstur Islendinganna „ÉG GET ekki verið annað en sæmilega ánægður með árangur minn á þessu móti,“ sagði Guð- mundur Sigurjónsson stórmeistari að Reykjavíkurmótinu loknu, en í siðustu umferðinni vann Guðmund- ur Júgóslavann Ivanovic mjög ör- ugglega. „Eftir þáttökuna í svæðamótinu í Danmörku, sem ég lít reyndar á sem tvö mót, og Reykjavíkurmótinu nú er ég orðinn langþreyttur enda hef ég teflt 28 skákir á um 40 dög- um. Það segir til sín þegar maður hefur ekki teflt ýkja mikið á undan- förnum mánuðum. Skákirnar gegn Höi, Bischoff og Ivanovic þóttu mér skástar af minni hálfu í þessu móti. Af minni hálfu er ekkert út á þær að setja, en andstæðingarnir eru tæpast eins ánægðir með sína frammistöðu. Meðan ég var að að- stoða Húbner tefldi ég lítið og þá sjaldan ég tefldi gekk mér illa, en upp á síðkastið hefur þetta verið að lagast. Um hina íslendingana er það að segja, að mér fannst þeir allir tefla vel á köflum, en svo komu slæmar skákir á milli. Það er sjálfsagt hluti af skýringunni hvað þeir tefla lítið á sterkum mótum þessir strákar. Þessi opnu mót eru líka sérstök að því leyti, að heppni ræður talsverðu um það hverjir tefla saman. Fyrir mitt leyti þá hefur það hentað mér betur að tefla á lokuðum mótum þar sem allir tefla við alla eftir töfluröð. Ég held að við íslend- ingarnir séum sammála um það, að á Reykjavíkurmótunum beri að halda hinu fyrirkomulaginu. Þessi opnu mót verði að minnsta kosti ekki nema í annað hvert skipti. Það var ánægjulegt, og kom mér alls ekki á óvart, að Alburt skyldi sigra á þessu móti. Hann er tiltölu- lega nýkominn að austan og er sjálfsagt ekki alltof fjáður þannig að verðlaunaféð kemur örugglega í góðar þarfir. Af öðrum erlendum keppendum vil ég nefna Svíana Schneider og Wedberg, sem komu mér á óvart í mótinu. Það er greini- iegt að við þurfum aö gæta okkar á þeim í landskeppninni um næstu helgi,“ sagði Guðmundur Sigur- jónsson. Aðspurður um hvað næst tæki við hjá honum í skákinni sagði Guð- mundur, að fátt væri ákveðið í þeim efnum. Þó væri líklegt að hann tæki þátt í stuttu móti í Noregi í byrjun apríl. — áij IKSUT skáka í 10. umfcrð sirn lcfld var á lauKardag: Schneider — Abramovic 'h—'ft Ivanovic — Alburt 0—1 Wedberg — Gurevic 1—0 Sahovic — Shamkovic 'k — 'ft Forintos — Guðmundur 'k — Vt Adorjan — Westerinen 'A — '/t Kaiszauri — Byrne 'k — 'k Helmers — Kogan 0—1 llaukur — Kindermann 0—1 Iskov — DeFirmian 0—1 Zaltsman — Helgi Vi— 'A Mednis — Jón L. 'k — Vt Bajovic — Sævar 0—1 Jóhann H. — Kuligowski 'ft—'/t Jóhannes Gísli — Horvath 'A — 'k Bischoff — Margeir ‘6 — Vt Burger — Hilmar 1—0 Dan — Grunberg Vt — Vt Hði — Friðrik 'A — 'ft Frey — Elvar 0—1 Stefán — Ásgeir 0—1 Jónas — Júlíus 'k — 'k Benedikt — Róbert 'A —'A Savage — Kráhenbiihl 'k — 'k Karl — Goodman 'h — '/t Jóhann Orn — Leifur 1—0 Jóhann Þ. — Magnús Sólm. 0—1 IIRSUT í II. umferð: Alburt — Wedberg 1—0 Abramovic — Shamkovic 'k — 'k Byrne — Schneider 1—0 Gurevich — Kogan 1—0 Sævar — Adorjan 0—1 Guðmundur — Ivanovic 1—0 DeFirmian — Kaiszauri 1—0 Westerincn — Sahovic 0—1 Kindermann — Forintos 'A— 'k Jón L. — Burger 'k — 'k Helgi — Mednis 0—1 Kuligowski — Helmers 0—1 Margeir — Zaltsman 'k — 'A Bajovic — Iskov 'k — 'k Elvar — Bischoff 'k — 'k Ásgeir — Jóhann 0—1 Horvath — Haukur 'k — 'k Friðrik — Dan Hansson 'k — 'k Hilmar — Frey 'k—'k Grunherg — Jóhannes 'k — 'k Goodman — Jónas 'k — 'k Magnús — Höi 'k — 'k Júlíus — Savaue ‘k — 'k Karl — Bonedikt 'k—'k Krahenbuhl — Jóhann Orn 1—0 Iæifur — Stefán 0— 1 Róbert — Jóhann Þórir 'k — 'k Lokastaðan LOKASTADAN f Keykjavíkur skákmótinu: 1. Lev Alburt, Bandarikjunum 8,5 vinningar. 2. A Abramovic, Júgóslaviu 8. 3. Dmitri Gurevich, Bandaríkjunum 7.5 vinningar. 4. -11. Guðmundur Sigurjónsson, Lars-Aake Schneider Svíþjóð, Tom WedberR Sviþjóð. Robert Byrne Banda ríkjunum, Andras Adorjan Ungverja- landi, Nick DeFirmian Bandaríkjun- um, Dragutin Sahovjc Júgóslavíu, lamnid Shamkovic Bandarikjunum, 7 vinningar. 12.—14. Boris Kogan Bandarikj- unum, Gyðsó Forintos Ungverjalandi, Stefan Kindermann V-Þvzkalandi, 6,5 vinningar. 15,—24. B. Ivanovic Júgóslavíu, K. Kaiszauri Svíþjóð, Sævar Bjarnason, Heikki Westerinen Finnlandi, Jón L. Arnason, Karl Burger Bandarikjun- um, Vitaly Zaltsman Bandarikjunum, Knut Helmers Noregi, Jóhann Hjart- arson, hkimar Mednis Bandarikjunum, 6 vinningar. 25.-33. Helgi Ólafsson, Haukur Angantýsson, M. Bajovie Júgóslaviu, Klaus Bischoff V-Þýzkalandi, T. Horv- ath Ungverjalandi, Gert Iskov Dan- mðrku, Jóhannes Gísli Jónsson, Mar- geir Pétursson, Elvar Guðmundsson, 5.5 vinningar. 34.-39. Adam Kuligowski Póllandi, Asgeir Þór Árnason, Dan Hansson, Hilmar Karlsson, R. Grunberg V-Þýzkalandi, Friðrik Ólafssob, 5 vinningar. 40.-45. Carston Höi Danmörku, Jónas P. Erlingsson, Július Friðjóns- son, K. Frey Mexikó, Stefón Briem, G. Krahenbuhl Sviss, 4,5 vinningar. 46,—51. Benedikt Jónasson, A. Sa- vage Bandaríkjunum, Karl Þorsteins, Denis Goodman Englandi, Róbert Harðarson, Magnús Sólmundarson, 4 vinningar. 52. Jóhann Orn Sigurjónsson 3 vinn- ingar. 53. Leifur Jósteinsson 2,5 vinningar 54. Jóhann Þórir Jónsson 1,5 vinn- ingar. Síðasta umferðin var æsispennandi SKÁKIRNAR í síðustu umferðinni glöddu augu hinna fjölmörgu áhorf- enda sem höfðu komið til að fylgjast með lokabaráttunni, því ekkert var gefið eftir og allir tefldu til vinnings að Abramovic undanskildum sem komst snemma að friðarsamningum við Shamkovich. Þar með var Júgó- slavinn ennþá í toppbaráttunni, auk þess sem hann tryggði sér sinn fyrsta stórmeistaraárangur. Þeir voru reyndar fleiri sem voru ekki eingöngu að hugsa um að ná sem hæstu sæti, heldur einnig um stórmeistaraárangur- inn eftirsótta. Svíarnir Wedberg og Schneider þurftu báðir að vinna sínar skákir til að ná hon- um, en andstæðingar þeirra voru ekki af lakara taginu, bandarisku stórmeistararnir Alburt og Byrne. Fljótlega varð Ijóst, að draumur Schneiders myndi ekki rætast, því hann var svo óheppinn að lenda í afbrigði sem Byrne hafði sérstak- lega undirbúið heima fyrir: Hvítt: Byrne (Bandaríkjunum) Svart: Schneider (Svíþjóð) Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bg5 Richter-Rauzer-árásin svo- nefnda. — e6, 7. I)d2 — a6, 8. (HH) — Bd7, 9. f4 — b5, 10. Bxf6 — gxf6, 11. Kbl — Db6, 12. Rxc6 — Bxc6, 13. f5! Byrne uppgötvaði þessa peðs- fórn fyrir tveimur árum, en hefur ekki fengið tækifæri til að beita henni fyrr en nú. Venjulega er hér leikið 13. Bd3. — b4, 14. Re2 — Bxe4, 15. fxe6 — fxe6, 16. Rf4 — d5?! Þessi eðlilegi leikur er að öllum líkindum rangur. Betra er 16. — b3!, 17. axb3 - Dxb3, 18. Bd3 - Bxd3,19. Rxe3 — Dc4 og staðan er mjög óljós. 17. Bd3 — Dc6, 18. Bxe4 — dxe4, 19. De2 — Bg7, 20. Dg4 — KÍ7, 21. Rxe6! Sókn hvíts er orðin óstöðvandi, því 21. — Dxe6 er svarað með 22. Hd7+. — h5, 22. Df5 — Hae8, 23. Rf4 — e3, 24. Hd7+ — Kg8, 25. Rd5 — Kf8, 26. Hc7 — e2, 27. Hel — De6, 28. Dg6 — Bh6, 29. Hxe2! og svart- ur gafst upp. Wedberg fékk að finna fyrir sterkustu hlið Alburts, en það er tvímælalaust endataflið. Svíinn hafði allt að vinna og hafði því teflt byrjunina fulldjarflega, en Alburt tefldi rólega, skipti upp liði og notfærði sér síðan veilur and- stæðingsins í endataflinu: Svart: Wedberg (Svíþjóð) Skák Margeir Pétursson 20. Rd5! — Dxb3, 21. Rxf6+ — gxf6, 22. axb3 — Hfd8, 23. Bd6 — c4, 24. bxc4 — Rxc4, 25. Be7! Nú nær hvítur d-línunni á sitt vald. — Hxdl, 26. Hxdl — Kg7, 27. Hd7 — Hb8, 28. e5! — Bxg2, 29. exf6+ — Kg6, 30. Kxg2 — a5, 31. Hd4! — Rxb2, 32. Hg4+ — Kf5, 33. Hg7 — Rc4, 34. Hxf7 — a4, 35. g4+ — Ke5, 36. Hxh7 — a3, 37. 17 og svartur gafst upp, því framhaldið gæti orðið 37. - a2, 38. f8-D - Hxf8, 29. Bxf8 - al-D, 40. Bg7+ - Kd5, 41. Bxal. Ekki fór það svo að við íslend- ingar ættum ekki fulltrúa á verð- launapallinum. Guðmundur Sig- urjónsson átti mjög góðan enda- sprett og fékk þrjá og hálfan vinn- ing úr fjórum síðustu skákunum. I síðustu umferðinni fór hann mjög ómjúkum höndum um nú- verandi skákmeistara Júgóslavíu, Bozidar Ivanovic. Ilvítt: Guðmundur Sigurjónsson Svart: Ivanovic (Júgóslavíu) Silikeyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. c4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bc4 Sozin-árásin, sem Guðmundur heldur mikið upp á. — e6, 7. Bb3 — Be7, 8. Be3 — 0-0, 9. f4 - Bd7, 10. Df3 — Da5, 11. 0-0 — Had8, 12. f5 — d5? Hámark bjartsýninnar eins og einhver áhorfenda komst að orði. 13. exd5 — exd5, 14. Rxd5 — Rxd5, 15. Bxd5 — Rxd4, 16. Bxd4 — Bxf5, Hugmyndin með 12. leik svarts, en nú á Guðmundur þvingaða leið til að vinna svörtu drottninguna fyrir tvo biskupa og þar með taflið um leið. „ÉG FÉKK mjög góða byrjun í mótinu; hlaut 4‘k vinning úr 5 fyrstu umferðunum en í kjölfarið fylgdu tvö töp og ég missti leikgleð- ina,“ sagði Helgi Olafsson eftir að hann tapaði fyrir Mednis í síðustu umferð Reykjavíkurmótsins á sunnudag. Helgi byrjaði mjög vel og vakti frammistaða hans framan af mótinu mikla athygli; hlaut 4'k vinning úr 5 umferðum en í sex síð- ustu umferðunum hlaut Helgi að- eins 1 vinning. — Sagt er, að þér sé gjarnt að tapa mörgum skákum í röð. Hvað er til í því? „Ég veit ekki hvað fólk á við með þessu. Þetta hefur ekki komið fyrir í svo mörgum mótum. Ég tapaði tveimur skákum með stuttu milli- bili í Randers og einnig á Norður- landamótinu, en vann tvær síðustu. Það má kannski segja að ég hafi lagt of mikið í stöðurnar núna á Reykjavíkurskákmótinu. Ég hefði getað teflt upp á jafntefli, en það er ekki minn stíll. Ég var í sjálfu sér ekki óánægður með skák mína gegn Alburt. Það var að mörgu leyti skemmtileg skák. Ég, Friðrik Ólafsson og Jón L. Árnason eigum allir það sameiginlegt að missa damp í mótinu eftir ósigra, þannig að ég er ekki einn á báti hvað það snertir. 17. Dg3! — Bg6, 18. De5! — Bf6, 19. Bxf7+ — Hxf7, 20. Dxa5 — Bxd4+, 21. Khl — Hfd7, 22. c3 — Bb6, 23. Da4 — h5, 24. Hadl — Hd2, 25. Hxd2 — Hxd2, 26. b3 — Kh7, 27. h3 — He2, 28. Dc4 — Hxa2, 29. Hf8 — Hal+, 30. Kh2 — Hel, 31. Dc8 — Bgl+, 32. Kg3 — He3+, 33. Kh4 — Kh6, 34. g4 — hxg4, 35. Dxg4 — He8, 36. Dg5+ og svartur gafst upp. Að lokum skulum við líta á hvernig Gurevich tryggði sér þriðja sætið: Svart: Kogan (Bandaríkjunum) Hvítt Gurevich (Bandaríkjunum) 25. Rxe6! — fxe6, 26. Hxe6 — Kh8, Ef 26. - Bf7, þá 27. Hxg6+! - hxg6, 28. Dxg6+ - Kh8, 29. Bxf7. 27. g4 — Dd8, 28. Hxe8+! — Dxe8, 29. Rd6 — Re5 Tapar strax, en 29. — De7, 30. Rf7+ — Kg8, 31. Dh6! virðist einn- ig vonlaust. 30. Kg2 — Df8, 31. Dxe5+ — Df6, 32. gxh5 — Dxe5, 33. Rf7+ — Kg7, 34. Rxe5 og hvítur vann. Ég hlaut 5'k vinning, en þrátt fyrir það má segja, að ég hafi teflt í allt öðru móti en aðrir sem hlutu jafnmarga vinninga. Ég tefldi allan tímann við sterkustu menn mótsins á meðan þeir sem hlutu jafnmarga vinninga tefldu við mun veikari andstæðinga. Svona mótafyrir- komulag býður upp á, að menn geti læðst með veggjum, ef svo má að orði komast." — Hvað finnst þér um tafl- mennskuna almennt á mótinu? „Sigur Alburts var verðskuldað- ur. Hann er stórkostlega harður í byrjunum og góður skákmaður og verðskuldaði sigurinn. En aðrir skákmenn hér voru ekki sterkari en beztu íslendingarnir.“ — Hvað um frammistöðu ís- lensku titilhafanna? „Friðrik náði sér engan veginn á strik, enda kannski skiljanlegt. Hann hefur bæði teflt lítið og lítið getað fylgst með fræðunum. Guð- mundur Sigurjónsson er greinilega að ná sér á strik eftir mikla lægð og það er mjög ánægjulegt. Frammi- staða Margeirs Péturssonar og Jóns L. Árnasonar var slök miðað við getu, en Sævar sannaði að hann er í mikilli framför,“ sagði Helgi Ólafsson. H.Halls. „Ekki minn stíll að tefla uppá jafntefli“ * - segir Helgi Olafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.