Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 Prestsskipti á Þingvöllum: um slíka er að ræða. En ég vil gjarnan vera honum innan handar um ráð, óski hann eftir þeim. En mín von er sú, að eftir- maður minn verði fær um að efla þann þátt til muna, er snýr að námskeiðahaldi fyrir kirkjunnar fólk. Fleiri möguleikar á Þingvöllum en bara að messa yfir þessum 50 Hvers vegna valdir þú Þing- velli, 50 manna sókn, til starfs- Nú um síðustu áramót urðu prestaskipti á Þingvöllum. Ei- ríkur Eiríksson lét af embætti fyrir aldurs sakir, en í hans stað var ráðinn Heimir Steinsson, skólastjóri Skál- holtsskóla. Er hann um þessar mundir að taka við því starfi og setja sig inn í það. Vegna þessara tímamóta var Heimir tekinn tali eg fyrst inntur eftir því, hvort hann væri ánægður eftir 10 ára starf við Skál- holtsskóla, og hvort þær vonir, sem hann hafði í öndverðu, hafi rætzt? — Já, ég er eftir atvikum ánægður. Kom hingað með það fyrir augum að koma þessari stofnun á fót. Var það ónumið land í því tilliti, og byrjaði þetta verk algjörlega frá rótum. Hefur tekizt á þessum 10 árum að koma fyrsta áfanga Skálholts- skóla á leiðarenda. Sett voru lög um skólann og hús byggt. Skól- inn hefur starfað og sýnt hann getur lifað, starfað með ýmsum hætti sumar jafnt sem vetur. Þessi áfangi hefur tekizt og sé í vissum skilningi á enda, og kom- ið að næsta áfanga. Ég get talið mig vera eftir atvikum ánægðan með það, og reyndar fyrir margra hluta sakir mjög ánægð- an. Mínu ætlunarverki hérna lokið Hver er helzta ástæða þess, að þú vilt fara frá Skálholti núna? — Ástæðan er þessi, að ég leit alla tíð á Jætta sem tímabundið verkefni. Ég tók það að mér sem slikt, og ætlaði að vinna það þannig. Mitt verkefni var að koma þessum skóla á laggirnar, skapa þennan skóla, láta hann verða til. Nú er hann orðinn til, þá er rétt að annar og yngri maður taki við. En ef þú hefðir ekki fengið Þingvelli eða horfið héðan um þessi tímamót, hefði það breytt einhverju í starfi skólans? — Ég er nú i rauninni búinn að vera undanfarin misseri að svipast um eftir tækifæri til að skipta um starf. Ef þessi mögu- leiki hefði ekki komið upp, þá hefði ég leitað fyrir mér annars staðar. En um starf skólans þá finnst mér, að vel hafi tekizt til um vetrarstarfið. Hins vegar hefur sumarstarf hér færzt i vöxt, með ráðstefnum námskeið- um og fundahaldi ýmiss konar, innan vébanda íslenzku þjóð- kirkjunnar. Mér er það efst í huga núna, að sá þáttur eflist og verði efldur til muna. Hér rísi í kjölfar þessa lýðháskóla, sem nú er risinn, eins konar kirkjuleg akademía yfir sumarið. Gæti hún uppfyllt þær vonir, sem einnig bjuggu í hugum fjöl- margra í upphafi, auk vonanna um kirkjulegan lýðháskóla. Hvað er það helzt, sem þú leggur eftirmanni þínum þyngst á hjarta? — Ég vil nú vera tiltölulega sagnafár um það, því svona starfsemi byggist ákaflega mikið á þeim manni sem fyrir henni stendur og því samverkafólki, sem honum tekst að fá til liðs við sig hverju sinni, konu hans, ef Þingvallafjölskyldan, Dóra og Heimir, ásamt börnum sínum, Arnþrúði og Þórhalli. í þessari stöðu á lleimir oft eftir að vera í framtíðinni á Þingvöllum. Hér er hann að sýna nemendum í Skálholtsskóla kennileiti á Þingvöllum. Heimir Steinsson akurs, maður ekki eldri en þetta? — Það er nú ýmislegt sem þarna kemur til. Úr því þú minn- ist á þessa 50 manna sókn, þá vona ég nú, að gott vinfengi megi takast á milli mín og allra þeirra, sem þar búa. Við megum ekki gleyma því, að hvar sem 2 eða 3 eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal, segir frelsarinn sjálfur. Sálar- heill þessara 50 manna er ekki minna verð en sálarheill 50 þús- unda í sjálfu sér. Síðan eru margar hliðar á þessu máli. Það eru möguleikar á margs konar kirkjulegu starfi þarna, sem tek- ur til víðari og stærri hóps, held- ur en þarna er að finna. Það vita allir, að Þingvellir eru þjóðar- heimkynni, ekki siður en heim- kynni þeirra sem eru þar heimil- isfastir. Það er gjarnan fjöl- menni á ýmsum tímum árs. Því skyldi ekki mega efla þar ein- hvers konar kristnihald með þátttöku fleiri aðila heldur en þeirra, sem eru búsettir á Þing- völlum. Þetta starf er einnig þjóðgarðsvarðarstarf, og ber við- komandi að sinna hvoru tveggja, því fólki, sem þarna býr, og þeim sem þangað koma. Ég vil að Þingvellir haldi áfram að vera og verði í vaxandi mæli kirkjustaður í vitund þeirra fjölmörgu, sem þangað koma haust, vor og sumar. Ég á mér ýmsa drauma um fram- kvæmd þessa máls. Mér finnst að sumu leyti þetta embætti þarna á Þingvöllum vera próf- steinn á það samfélag ríkis og kirkju, sem hér er við lýði í land- inu. Þingvellir eru helgur staður í vitund allra. Þætti mér ákaf- lega vænt um það, ef hinn kirkjulegi tónn þeirrar helgi gæti orðið sem tærastur. Hinn kirkjulegi dráttur þeirrar mynd- ar, sem þarna er uppteiknaður, gæti orðið sem skýrastur á kom- andi tíma, eins og hann hefur verið alla tíð. Þingvallakirkja er eins konar hjarta Þingvalla. En Þingvellir eins konar hjarta landsins. Og þarna er Guð áþreifanlegur með einhverjum hætti í umhverfinu öllu. En í kirkjunni bezt. Vona ég, að það mannlíf, sem yfirleitt þróast á Þingvöllum sumar og vetur, geti að einhverju leyti fundið kirkj- una og helgihaldið sem sinn samnefnara. Hér við bætist auðvitað hreint persónulegt. Ég hef lengi þráð altarið að nýju. Lengi þráð að tilbiðja Guð í hans helgidómi. Ég kem í helgidóminn að tilbiðja Guð ásamt þeim, sem þangað koma. Fyrir hönd þeirra, sem koma mér í hug, þegar ég legg leið mína þangað. Fyrirbæn í Hefí lengi þráð altarið að nýju - segir Heimir Steinsson nýráðinn Þingvallaprestur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.