Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 45 gerði okkur mikið gagn og ég vann þar eins og hver annar. Þá er ég búinn að vera 50 ár í kirkjukór og hef haft ómælda ánægju af því, en frændi minn, Jónas Sigurgeirsson á Helluvaði, er búinn að vera í kring um 65 ár í kórnum. Hann er áttræður og syngur nú bassa en var lengi vel tenór. Kona hans, Hólmfríður ísfeldsdóttir, er fimm árum eldri en ég og hefur verið nokkru leng- ur en ég í kirkjukór Skútu- staðakirkju. Ég hef mjög gaman af að syngja sálma en við syngj- um margt fleira og gerum sitt- hvað til skemmtunar. Jú, ég hef alltaf haft gaman af vísum þó ég hafi ekki ort sjálfur, hef ekki fundið andann til hvatningar þó maður hafi hnoð- að saman eina og eina. Jón Hin- riksson afi minn var vel hag- mæltur og móðir mín einnig, en það var sagt að ég stæði ekki undir nafni. Ég lærði mikið af vísum eftir Pétur í Reynihlíð, allavega vísur. Oft var hlegið að þeim fyrir hnoð en einnig voru góðar vísur. Geirfinnur bróðir minn var kallaður Finnur af Pétri. Þeir voru einu sinni að byggja hesthús við gangna- mannakofa við Nýjahraun, þetta var 15 hesta hús. Strákur var 15 ára, en Pétur var mikill að manni. Pétur reiknaði út steina- fjöldann í bygginguna og það stóðst. Þeir voru tvær vikur að vinna þetta verk á meðan þeir pössuðu féð.“ „Ég er orðinn angurvær" „Vísur Péturs þurfa umsögn, en hér eru nokkrar. Þó að flísi Finnur stein furðar dísir eigi. Brátt á að rísa bygging ein blakk svo hýsa megi. Þetta finnst mér góð vísa, en hér er ein um Finns-nafnið og Geirfinn: Þó að gamli garpurinn gangi nú ekki meira. Eigum við þó auman Finn í honum litla Geira. Hér er ein um það þegar Pétur beið Geirfinns í kofa: Ég er orðinn angurvær út af neyð og tapi. Finnur horfinn, farnar ær, fann ég tvær í krapi.“ Vináttan hafin yfir ríginn „Jú, oft er mannlífið hér með tilþrifum. Það var talið að hér hafi verið menningarlíf fyrr á árum, enda félagsskapur ýmis- konar og ungmennafélagið hóf félagsstarf árið 1904 þótt það væri ekki stofnað fyrr en 1909. Það má segja að á milli sveit- arhluta hafi verið sveitarrígur, en alltaf hafa þó verið góðir vin- ir handan þeirrar línu ef línu skyldi kalla. Metingur og rígur er að sjálfsögðu fastur liður á sinn hátt, en vináttan hefur ver- ið hafin yfir slíkt að langmestu leyti. Auðvitað hljóma ekki allir saman en það er gott mannlíf hér. Hér var stofnað lestrarfélag 1958 og bókaval kom með því, skandinavískar bækur lásu menn hér hiklaust, á dönsku, norsku og sænsku, þótt þeir hefðu aldrei lært neitt. Mamma las til dæmis öll málin hiklaust." Veiðimadur, en ekkióður veiðimaður „Hér hefur aldrei verið sterk- ríkt fólk, en það hefur heldur aldrei átt við verstu fátækt að glíma og vatnið hefur skilað mörgum bitanum, það er áreið- anlegt. Allir gengu á dorg og margar bröndurnar veiddu þeir ýmsir. Langafabróðir minn sagði að Mývetningar hefðu ekki verið menn með mönnum hér áður ef þeir hefðu ekki átt silunginn, Austurfjöll og Jón Sigurðsson frá Gautlöndum. Jón var ráðrík- ur, ofstopi á sinn hátt, en fram- tak hans til Kaupfélags Þingey- inga er ómetanlegt. Þá hefur sil- ungurinn alla tíð verið ómetan- legur og ég hef aldrei vitað til þess að hér um slóðir hafi farist maður úr hungri eins og algengt var víða um land í hallærum. Vatnið hefur lengi verið lífæðin hér, oft meiri en nú að vísu, því ég tel að um ofveiði hafi verið að ræða í því og illan grun hef ég um að eitthvað komi nú í það frá verksmiðjunum sem spilli því. Ég tel óvarlega farið í þessum efnum og mætti taka þar á miklu fastari tökum. Jú, ég tel mig veiðimann og mest hef ég veitt ásamt öðrum manni um 600 silunga á fyrir- drætti, nánar tiltekið veiddum við 585 silunga í 15 dráttum. Veiðimaður er ég, en ekki óður veiðimaður, ég vil ekki ganga of nærri stofninum." Grein: Árni Johnsen Kristín Guðlaugsdóttir — Kristján Pálsson 79 Björn Friðþjófsson — Jósteinn Kristjónsson 72 Árni Valsson — Pálmi Oddsson 60 Ólafur Jónsson — Daníel Jónsson 57 Meðalskor 0 Afmælishóf Bridgefélags Reykjavíkur Að loknu afmælismóti Bridge- félags Reykjavíkur laugardaginn 13. mars nk. heldur félagið af- mælishóf í Kristalsal Hótels Loftleiða og hefst það með borðhaldi kl. 20.30. Veislustjóri verður Gylfi Baldursson. Krist- inn Bergþórsson syngur einsöng við undirleik Sigfúsar Halldórs- sonar, Jakob R. Möller rekur nokkra þætti úr sögu félagsins á siðari árum og afhent verða verðlaun fyrir afmælismót fé- lagsins. Að lokum leikur hljómsveit Hreiðars Ól. Guð- jónssonar fyrir dansi. Gestir samkomunnar verða hinir þekktu erlendu gestir, sem hér verða á Bridgehátíð 82 í boði fé- lagsins og Flugleiða. Aðgöngumiðar verða seldir í Domus Medica þriðjudaginn 9. mars frá kl. 18.30. Gamlir og ný- ir félagar eru eindregið hvattir til að fjölmenna á hófið. Bridgedeild Breiðfirðinga Nú er aðeins einu kvöldi ólokið í stóra barometernum hjá deild- inni og er staða efstu para nú þessi: Jón G. Jónsson — Magnús Oddsson 719 Jóhann Jóhannesson — Kristján Sigurgeirsson 592 Bergsveinn Breiðfjörð — Tómas Sigurðsson 522 Kristófer Magnússon — Ólafur Gíslason 482 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthíasson 472 Ása Jóhannsdóttir — Sigríður Pálsdóttir 387 Halldór Helgason — Sveinn Helgason 374 Ólafur Valgeirsson — Ragna Olafsdóttir 364 Benedikt Björnsson — Magnús Björnsson 336 Yngvi Guðjónsson — Halldór Jóhannesson 299 Síðustu loturnar verða spilað- ar á fimmtudaginn í Hreyfils- húsinu kl. 19.30 stundvíslega. Hér sést lítill hluti þeirra fjölmörgu og ólfku seglbáta frá sýningunni í Bella Center. Allt sem þarf til siglinga Guðný Bergsdóttir skrifar frá Kaupmannahöfn NÝLEGA var haldin geysistór al- þjóðleg bátasýning { Bella Center í Kaupmannahöfn. Auk allra teg- unda segl- og vélbáta, var þar að fínna hinn margvíslega útbúnað er slíkir bátar þurfa, vélar hverskon- ar, senditæki og annan tækniút- búnað, björgunarútbúnað og svo auðvitað fatnað fyrir sjómenn. Auk hins nauðsynlega björg- unarvestis, sem í dag finnast ótal margar tegundir af, var á sýningunni að finna t.d. regn- og gúmmífatnað og galla, einnig vatnsþétta heilgalla, frakka og jakka, peysur, skyrtur og buxur, svo og nýtískulegan sportklæðn- að bæði fyrir karla og konur. ör- yggið er framar öllu til sjós, hvort sem átt er við frístunda- sjómenn eða atvinnusjómenn. Hlýr, en jafnframt léttur og þægilegur klæðnaður, sem ekki hindrar hreyfingar sjómannsins um borð, er nauðsynlegur hvort sem um er að ræða togarasjó- mann eða seglbátssjómann. Dönsk fyrirtæki hafa um ára- bil staðið framarlega í röð þeirra fyrirtækja sem framleiða fyrsta flokks klæðnað fyrir sjómenn og framleiðslan hefur hlotið lof á alþjóðlegum markaði. Hér yrði of langt mál að telja upp allar nýjungar, er fram komu á þessu sviði á umræddri sýningu, en ein af þessum nýj- ungum er frá fyrirtækinu RUKKA í Roskilde, sem kynnti nýja „seríu“ er hlotið hefur nafnið Race. Þar á meðal er heil- galli í nýju en margreyndu efni, sem er vatnsþétt, en tryggir þó um leið að líkaminn getur „and- að“. Gallinn fæst í mörgum lit- um. í Race-seríunni eru einnig margar tegundir björgunar- vesta, meðal annars eitt er kall- ast „Off-shore“ og er bæði létt, þægilegt og lítur vel út. Það fæst í mörgum litum og heftir hvergi hreyfingar iíkamans. Lítið danskt fyrirtæki, „Sea Stoes“, frá Frederikssund kynnti nýja tegund úlpu eða frakka, „Tensons Himalaya- og Norður- sjávar-frakkinn“ eins og hann hefur verið kallaður. Frakkinn er með áfastri hettu, er hægt er að draga saman og breiður kant- ur á henni varnar að snjór/sjór komi í andlit mannsins. Frakk- inn er með mörgum ásaumuðum vösum, einnig á ermum og lokast bæði með rennilás og hnöppum. Þrátt fyrir þykktina er hann léttur og hentugur við vinnu t.d. um borð í skipi/báti. Tískuklæðnaðurinn er í hinni hefðbundnu „sailor-línu“, þ.e.a.s. mest í dökkbláu og hvítu og t.d. þverröndóttar peysur og blússur í þeim litum. Sýningaraðilar voru um 600 frá rúmlega tuttugu löndum, er sýndu framleiðslu sína í Bella Center. Auðvitað er verðið eins ólíkt og allar þær tegundir báta sem þarna voru, t.d. kostar ódýr- asta róðrar-kænan tæplega 1000 dkr. Og svo var dýrasta snekkjan með öllum nýjasta siglingarút- búnaði, viðarinnréttingum og Tensons Himalaya- og Norðursjávarfrakkinn, nefnist þessi hlýi klæðn- aður, sem um leið er þó léttur og hentugur til útivinnu. Þetta er hið vinsæla seglbretti, „sailboard“, íþrótt sem á vaxandi vinsældum að fagna á Norðurlönd- um. Heimsmeistarinn, Daninn Tim Agesen, sýnir hér listir sínar í rúmlega 20 metra langri laug, er sett var upp í tilefni sýningarinnar. Blástursvél ein mikil sá um, að nógur vindur væri í seglinu! þægilegustu húsgögnum, full- komnu eldhúsi, baðherbergi og svefnplássi fyrir 6—8 manns, hátt upp í milljón danskra króna. Óg svo allt þar í milli. Framfarir á sviði tækninnar eru gífurlegar og þá ekki síst á sviði senditækja. Danska fyrir- tækið SP RADIO kynnti t.d. nýtt tæki fyrir minni báta. Nefnist það Sailor VHF og er gert fyrir 55 alþjóðlegar VHF-rásir. Utan- borðsvélar frá Volvo, Mercury og fleiri öðrum þekktum fyrirtækj- um, eru orðnar svo fullkomnar, litlar og þægilegar, en um leið sterkar, að svo til hver sem er getur sett þær í gang og stjórnað þeim. „Wind-surfing“ er íþrótt sem á vaxandi vinsældum að fagna um alla Evrópu og er þá sérstaklega átt við seglbrettin eða „sail- boards". Allt sem til þarf er svolítill vindur og svo er hægt að standa á seglbrettinu, stýra því og sigla um, en auðvitað helst nálægt ströndum! Það eru nú þegar fjölmargir segl-brettis- klúbbar á Norðurlöndum og á margumræddri sýningu sýndi ungur Dani listir sínar á slíku bretti. Hann nefnist Tim Ágesen og er tvöfaldur heimsmeistari á seglbretti, auk þess Evrópu- meistari, Norðurlandameistari og danskur meistari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.