Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 Stórt hús við Brautarholt. Skuggalegt. Á þriðju hæð stendur letrað á hurð: Saumastofan Kólíbra. Við bönkum uppá. Stór maður og þrekinn birt- ist í gættinni og réttir fram hramminn: Jæja, svo þú hefur fundið þetta! Þetta er Jóhannes Jóhannesson. Hann hefur hreiðrað hér um sig í ágætri stofu. Það er ekki bægslagangurinn á Jóhannesi, sem er eins gott, svo stór sem maðurinn er vexti. Það er ekki færibandavinna á þessu heimili, segir hann: Ég dunda mér við þessar myndir mín- ar: Kannski með tíu í takinu í einu og á nokkrum mánuðum klára ég kannski þrjár — ef vel gengur. Ég er nú ekki búinn að fást við þetta nema í 40 ár, svo það er eðlilegt að maður sé dálítið seinn! Ég vil ekki lifa af því að mála. Blessaður vertu, það er hægur vandi að lifa af málverkinu. Maður þarf aðeins að laga sig lítillega eftir markaðn- um og þá er maður ofaná í lífinu. En ég kæri mig ekki um það. Ég er upptekinn af öðru. En lifibrauðið? Ja, ég hef nú verið viðloðandi Listasafnið í mörg ár og svo sel ég nú alltaf eina og eina mynd. Helst á Septem-sýningum. Svo gleymist maður á milli, nema maður rífi kjaft — eða sé í framboði! Þegar við Valtýr vorum suður á Italíu eitt sinn, þá sagði Valli jafnan um leið og hann opnaði augun á morgnana: Haltu kjafti, Jóhannes! Það var ágætt hjá honum — ég sagði enga vitleysu á meðan. En ég vil vera sjálfráður að rífa kjaft í mínum myndum. Það getur eng- inn bannað mér. Og þar vil ég helst rífa kjaft. I sambandi við lifibrauðið, þá man ég eftir djassmanni sem talað var um í út- varpið nýlega. Hann elti ekki tísk- una sá og sagði: Það er allt í góðu lagi. Það liggur ekkert á. Fólk kann að meta þetta, sem maður er að gera, eftir 10—20 ár. Það er eins í myndlistinni. Nú eru til dæmis gamlar Septem-myndir, sem maður málaði kannski fyrir 20—30 árum, nú eru þær orðnar eftirsóttar. Og það eru myndir sem maður var hundskammaður fyrir að mála á sínum tíma. En auðvitað er æskilegt að geta lifað af málverkinu ... Jóhannes þagnar. Nei, það er andskotann ekkert æskilegt. Það er hreint út sagt bölvað! Ég vil engu fórna í mál- verkinu fyrir afkomuna. Mér myndi finnast sem ég væri að svíkja. En hið breiða pöbblíkum skilur ekki slíkt. Það eru ekki allir eins og Gunnar í Geysi. Stór- merkilegur maður! Við ættum hér góða gagnrýnendur, ef þeir hefðu ekki nema brot í sér af Gunnari heitnum. En hvernig er það? Er ekki annar hver íslendingur far- inn að mála og halda sýningu? í húsi listmálara Morgunblaðið/Emilía Það er svo sem ágætt — en það er leiðinlegt að fólkið skuli ekki hafa meira gaman af því að mála. Það virðist hafa mestan áhuga á því að sýna. Og það er slæmt. Guðmund- ur heitinn Finnbogason sagði að það væri hollt að mála. Og í þá daga var nú ekki farið að tala um stress! En svona þér að segja, þá veit ég nú ekki hversu hollt það er. Það er sko engin skemmtun að mála. Það finnst okkur ekki sem þykjumst taka málverkið alvar- lega. Ef maður heldur að eitthvað hafi lukkast sæmilega hjá sér, sem er nú sjaldan, þá varir sú ánægja bara svo stutt. Það er meinið. Við listmálarar eigum í sí- felldu stríði. Og sigrum aldrei, heldur töpum misjafnlega stórt. Nú tryllist fiskifluga í loftinu og við lítum báðir upp. Hún heldur bara það sé komið vor, þessi, segir Jóhannes: Það er skemmtilegt þegar fer að birta. Það mætti segja mér að það sæist á myndunum mínum. Hér er prýðileg birta, ég er á móti suðri, eins og þú sérð og það er komið svo að maður getur farið að pota á léreftið uppúr klukkan átta á morgnana. Það er orðið svo bjart. Þú ert með heljar miklar hljómflutningsgræjur hér hjá þér? Já, ég hlusta mikið á tónlist meðan ég er að fást við málverkið. Hann sagði nýverið í útvarpið hann Stefán frá Möðrudal að mús- ík og málverk væri skylt. Auðvitað ekki sá fyrsti sem segir það, en hann hefur á réttu að standa kall- inn fyrir því. Einu sinni var fræg sýning á norrænni myndlist í Rómaborg. Skömmu eftir að henni lauk fékk ég upphringingu utanaf Atlantshafi. Þar var þá ítalskur maður um borð í Gullfossi á leið til íslands og hann bað mig að taka á móti sér þegar hann kæmi til Reykjavíkur. Eg fór niður á bryggju og tók á móti skipinu og þessum ítalska manni. Hann kvaðst hafa séð sýninguna í Róm og fljótlega spurði hann mig hvort ég hlustaði mikið á tónlist. Ég kvað já við því og þá spurði hann mig hvort ég hefði hlustað á Boris Guddinof þegar ég málaði tiltekna mynd á sýningunni. Og svo ein- kennilega vildi til að það hafði ég einmitt gert. Mér hefur alltaf fundist skrítið að hann skyldi segja þetta maðurinn. Kjarval hefði sagt að hann væri svo gáfað- ur! J.F.Á. Vonbrigði Hljóm otur EL 3 Finnbogi Marinósson Journey Escape (’BS 85138. Ekki verður annað sagt en að Escape, nýjasta breiðskífa Journey, hafi valdið mér nokkrum vonbrigðum. Þetta er 9. plata hljómsveitarinnar og af henni eru nú þrjú lög sem heiðra vinsældalista vestan hafs með nærveru sinni. Það mætti ætla að þetta væru nóg meðmæli til að halda að hér væri góð plata á ferðinni. En hvað ger- ist þegar platan er komin á spilarann og hann farinn að snúast? „Don’t stop beliving", fyrsta lag plötunnar, gefur til kynna að platan sé þrælgóð. Lagið er þægilegur rokkari sem er grípandi og söngur Steve Perrys gefur laginu sterkan og sérstakan blæ. En næstu lög standa hinu fyrsta langt að baki. Þau eru öll fremur róleg og höfða rriikið til lélegs tónlistarsmekks, eru næstum væmin. Það er ekki fyrr en búið er að snúa plötunni við og lagið „Lay it down“ byrjar að athyglin vex, en þegar líður á seinni hliðina er of seint í rassinn gripið og aðeins eitt annað lag stendur uppúr, „Dead or alive". Tvö síðustu lögin falla svo í sama farveg og flest lög fyrri hliðar. Ekki veit ég hvað veldur að hljómsveit eins og Journey sendir frá sér eins máttlausa plötu og „Escape". Hljóm- sveitin getur gert betur og hefur sýnt það. Að vísu verð- ur að taka tillit til að þeir spila amerískt rokk en samt verður það ekki betra nema því fylgi kraftur og ánægja. í stuttu máli er hægt að segja að platan sé ærið mis- jöfn, annað hvort kraftmikil og skemmtileg eða þung- lamaleg og hræðilega leiðin- leg. FM/AM. „Hef sungið mikið frá því ég var krakki“ - spjallað við Katrínu Sigurðardóttur KATRÍN Sigurðardóttir heitir ung söngkona, og píanóleikari reyndar líka, frá Húsavík, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum í söngleiknum „Meyjarskemm- an“, sem frumsýndur verður í lok næsta mánaðar. Hennar tónlistarnám hófst á Húsavík fyrir Iti árum. Hún kom suður til Keykjavíkur 16 ára að aldri og hóf nám í píanóleik við Tónlistarskóla Reykjavíkur. En hvað kom til að hún fór að læra að syngja? „Til þess að ljúka námi sem tónmenntakennari," sagði Katrín Sigurðardóttir í sam- tali við blm. Morgunblaðsins, „þarf vissa undirstöðumennt- un í söng. Þar af leiðandi þurfti ég að sækja söngtíma í Tónlistarskólanum. Smám saman náði áhuginn á söngn- um yfirhöndinni. Söngurinn höfðaði meira til mín. Af hverju veit ég ekki. Kannski það að mér finnst hann per- sónulegri. Ég hef alltaf sungið mikið frá því ég var krakki og man að það var mikið grín gert að mér því mér lá svo hátt rómur. Eftir námið í Tónlistar- skóla Reykjavíkur fór ég aftur til Húsavíkur og kenndi þar við tónlistarskólann og barna- skólann. Jafnframt því fór ég suður einu sinni í mánuði í söngtíma til hennar Þuríðar Pálsdóttur söngkonu. Eftir tvö og hálft ár fór ég alfarið suður að læra söng við Söngskólann í Reykjavík, og vann þar með, við undirleik. Þaðan útskrifaðist ég í fyrra sem söngkennari." Svo fórst þú út að læra. „Já, ég fór út til Svíþjóðar og var í Stokkhólmi að læra hjá Karin Langebo. Hún söng Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, sem sett var upp í Þjóðleik- húsinu hér um árið.“ Hvenær komstu til íslands aftur? Katrín Sigurðardóttir „Það er mánuður síðan ég kom að utan. Mér var sent bréf út til Stokkhólms þar sem mér var boðið að prufu- syngja fyrir Meyjarskemm- una. Ég sló til og því fór sem fór.“ Varðst þú undrandi þegar þú hafðir verið valin? „Já, undrandi og ánægð. Það var spennandi að taka þátt í prufunni, en svo kom kvíðinn eftir á. Ég hef aldrei tekið þátt í neinu svona.“ Hvert er þitt hlutverk í söngleiknum? „Ég leik Hönnu nokkra Tchöll, en hún er dóttir hirðglermeistarans í Vín. Hann á þrjár dætur og er hún yngst þeirra. Söngleikurinn er að nokkru byggður upp á sannsögulegum atburðum og lýsir þáttum úr lífi tónskálds- ins Schuberts, þar sem Hanna kemur mikið við sögu.“ Hvernig manneskja er Hanna? „Hún er glettin og gáskafull ung Vínarstúlka. Tilfinn- ingarík, kannski." Eruð þið líkar? „Nei. Við erum uppi á ólík- um tíma og þar af leiðandi höfum við ólík sjónarmið," sagði Katrín að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.