Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 26
2 g MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 Vinsældalistar England — Litlar plötur 1. ( 1) TOWN CALLED MALICE — PRECIOUS/Jam 2. ( 6) THE LION SLEEPS TONIGHT/Tight Fit 3. (17) CENTERFOLD/J Geils Band 4. (11) LOVE PLUS ONE/Haircut One Hundred 5. ( 3) SAY HELLO, WAVE GOODBYE/Soft Cell 6. ( 2) GOLDEN BROWN/Stranglers 7. ( 4) MAID OF ORLEANS/OMD 8. (12) I CAN’T GO FOR THAT/Hall and Oates 9. (36) ’T AIN’T WHAT YOU DO/Fun Boy Three 10. (31) SEE YOU/Depeche Mode England — Stórar plötur 1. ( 1) LOVE SONGS/Barbra Streisand 2. (35) DREAMING/Ýmsir listamenn 3. ( 2) PEARLS/Elkie Brooks 4. ( 3) ARCHITECTURE AND MORALITY/OMD 5. (23) ENGLISH SETTLEMENT/XTC 6. ( 5) NON STOP EROTIC CABARET/Soft Cell 7. ( 4) DARE/Human League 8. (12) PRIVATE EYES/Hall and Oates 9. ( 7) DEAD RINGER/Meatloaf 10. ( 6) FRIENDS OF MR. CAIRO/Jon and Vangelis Bandaríkin — Litlar plötur 1. ( 1) CENTERFOLD/J. Geils Band 2. ( 5) OPEN ARMS/Journey 3. ( 3) 4 SHAKE IT UP/Cars 4. ( 6) THAT GIRL/Stevie Wonder 5. ( 2) I CAN’T GO FOR THAT/Hall and Oates 6. (11) I LOVE ROCK’N’ROLL/ Joan Jett and The Blackhearts 7. ( 4) PHYSICAL/Olivia Newton-John 8. (10) MIRROR, MIRROR/Diana Ross 9. ( 8) SWEET DREAMS/Air Supply 10. (13) WE GOT THE BEAT/The Go Go’s Bandaríkin — Stórar plötur 1. ( 1) FREEZE-FRAME/J. Geils Band 2. ( 3) HOOKED ON CLASSICS/ Royal Philharmonic Orchestra 3. ( 2) ESCAPE/Journey 4. ( 4) 4/Foreigner 5. ( 6) PRIVATE EYES/Hall and Oates 6. ( 5) TATTOO YOU/Rolling Stones 7. ( 8) GHOST IN THE MACHINE/Police 8. ( 9) BEAUTY AND THE BEAST/The Go Go’s 9. ( 7) FOR THOSE ABOUT TO ROCK/AC/DC 10. (10) PHYSICAL/Olivia Newton-John John Hall og Daryl Oates gera þaö gott á breiðskífulistunum beggja vegna Atlantsálanna. Kóngur maura- þúfunnar vinsæll Adam yfirmaur hefur í nógu aö snúast Adam vinur okkar Ant, kon- ungur mauraþúfunnar, er hreint út sagt meö ólíkindum vinsæll. Hann og flokkur hans voru þeir, sem stálu senunni gersamlega í útnefningu brezka tónlistartímaritsins Music Week fyrir framlag þeirra á síðasta ári. Er niðurstaðan byggð á bresku sölu- og vin- sældalistunum. Plata mauranna, Kings of the Wild Frontier, var kjörin plata ársins í fyrra og tvö lög af henni, Stand and Deliver og Prince Charming, voru í 2. og 3. sætinu yfir vinsælustu lög ársins. Enn- fremur voru þeir maurar sölu- hæstir allra í Englandi í fyrra — jafnt á stórum plötum sem og litlum. Á hæla þeirra kom Stebbi skjálfandi „Shakin’ Stevens” og í þriöja sæti kom Mannlega deild- in (Human League). Sá flokkur var einnig útnefndur sá efni- legasti i Englandi. Þaö er margt, sem fylgir frægöinni, annaö en álag og áhyggjur. Á meöfylgjandi mynd- um má sjá hvar sjálf Elísabet drottning tekur í spaðann á yfir- maurnum á mikilli skemmtun sem haldin var í Lundúnaborg eigi alls fyrir löngu. Þar var m.a. rakin í stuttu máli saga rokksins sl. 25 ár. Á milli þeirra Betu og Adams er söngkonan Lulu skælbrosandi. Á hinni myndinni sjáum viö Adam yfirmaur með annarri mjög svo frægri, en ekki eins tig- inborinni persónu, Liza Minelli heitir hún, og ekki ber á ööru en Adam meö fjaöraskrautið falli henni vel í geö. — SSv. Tvennir tón- leikar hjá Þrumuvagninutn Þrumuvagninn heldur tvenna tónleika í næstu viku. Þeir fyrri verða í svonefndu Reykholi þeirra menntskælinga viö Sund á miö- vikudag kl. 20.30 og daginn eftir treöur flokkurinn upp í Kvenna- skólanum. Þrumuvagninn lék viö góöar undirtektir á Óöali á fimmtu- dagskvöld. Greinilegt er aö sterk frammistaða hljómsveitarinnar á afmælishátíö FÍH hefur fært henni byr undir báöa vængi, eöa ættum viö kannski aö segja aukiö loft í hjólbarðana. — SSv. Enn ein safnplatan á leiðinni frá Steinum Ozzy Osbourne er stöðugt í frétt- unum. fyrirtækinu. Krefjast þeir greiöslna fyrir tillegg þeirra á nýju plötu Osbourne, Diary of a Mad- man. Eitthvað mun hafa staöiö á þeim til þessa. — O — ABBA-kvartettinn var fyrir skemmstu harölega gagnrýndur í Sovétríkjunum er myndin ABBA The Movie var sýnd þar. Voru skötuhjúin sökuö um að vera ruddaleg, hræsnisfull og ofan á allt legöu þau áherslu á aö pen- ingar skiptu öflu máli í lífinu. Ekki þarf að taka þaö fram aö árás þessi er vafalítiö fram komin vegna þátttöku ABBA i Reagan- þættinum um Pólland. Rússinn gefur sig ekki. — O — Sandur af plötum frægra tón- listarmanna og hljómsveita er væntanlegur á næstunni. Má þar nefna Peter Gabriel, Blondie, Mike Oldfield, Jona Lewie, UFO, Fun Boy Three, svo þaö helsta sé tínt fram. Nú mun vera væntanleg enn ein safnplatan frá Steinum. Fyrir- tækið hefur þegar sent frá sér a.m.k. einar þrjár slíkar og hafa þær fallið í góðan jarðveg, ekki hvað síst vegna lágs verðs. Plata Bodies kemur á mánudag PLATA Bodies, sem menn geröu sér vonir um, að kæmi í verslanir á fimmtudag, taföist örlítið einhverra hluta vegna. Veröur hún hins vegar væntanleg á mánudag ef aö líkum lætur. Eftir því sem tryggar heim- ildir herma er hér um frísklegt framtag aö ræða.. Þá mun plata Þursaflokksins vera á leiöinni nú þessa dagana og síðar er von á breiöskífu Egósins. — SSv. Eftir rúmlega viku mun landslýö- ur eiga von á tveggja plötu albúmi, sem ber nafniö Beint í mark. Á þessum plötum er aö finna mörg af vinsælustu lögunum í dag, bæöi íslensk og erlend. Á meöal flytj- enda eru Madness, Human Leag- ue, Mezzoforte, Start, Leo Sayer, Júnann Helgason, Specials, OMD og fleiri. Þá mun vera aö vænta plötu meö Valla og Víkingunum innan skamms. Leynd hefur hvílt yfir þessum upptökum, en hór mun vera á feröinni lítil plata. Annaö lagiö a.m.k. er af sænskum ættum, Oaa hela natten, og heitir á ís- lensku Uti alla nóttina. Einhver læddi því aö okkur aö Start- flokkurinn heföi sést sniglast í nágrenni viö hljóöveriö á sama tíma og upptökur fóru fram. — SSv. Rokkað við Austurvöll Undarleg þvermóöska dyravaröa Borgarinnar Það var mikið rokkað beggja vegna viö Austurvöll á fimmtudagskvöld. f Óðali vældi í öllum fjórum hjólum Þrumuvagnsins og á Borginni tróðu Spilafífl og Bodies upp. Undirritaður hélt fyrst á Borgina til aö berja Bodies augum. Ekkert varð úr því af ástæðum, sem koma í Ijós hér á eftir. Það voru Spilafífl, sem hófu dagskrána og meö slíkum bravúr að viðstaddir vissu vart hvaðan á þá stóö veðriö. Fram- andi tónlist fjórmenninganna heltók áheyrendur og voru viö- tökurnar í samræmi við það. Greinilegt að Spilafíflin eru engin fífl, heldur drengir sem eru aö gera verulega góöa hluti. Frískleg sviösframkoma Sævars Sverrissonar, söngv- ara, ágætis Ijósa-show svo og öruggur flutningur geröi fram- lag þeirra eftirminnilegt í meira lagi. Frá Borginni var tekið á rás út á Óðal til aö berja Þrumu- vagninn augum. Þótt Hlaðan viröist e.t.v. ekki vera ýkja ákjósanlegur staður til að troða upp í tókst Þrumuvagninum að ná góðu „sándi” og var allt annað aö heyra til flokksins en á Borginni forðum þegar undir- ritaður bölsótaöist sem mest yfir þeim. Rétt er að benda sjónvarpseigendum á þátt í sjónvarpinu í kvöld, sunnudag, frá FlH-hátíöinni þar sem Þrumuvagninn stal senunni með sterku framlagi. Ætlunin var aö fjalla einnig um frammistöðu Bodies á Borginni, en því varð ekki viö komið vegna þvermóösku dyravarða hússins. Þótt hingaö til hafi þaö ekki tíökast, þurfti undirritaður aö greiða sig inn á tónleikana, og er í sjálfu sér ekkert að því aö styrkja hljómsveitirnar. Ég fór hins vegar fram á þaö aö fá miöa til að komast inn aftur er ég yfir- gaf húsið til að skreppa yfir á Óðal, svo ég þyrfti ekki aö greiða mig inn ööru sinni. Þaö var ekki meö nokkru móti hægt. Ég sætti mig ekki viö aö tvíborga mig inn á sömu tón- leikana og því varð ekkert úr því aö ég heyrði í Bodies. — SSv Finnur kominn á kreik á ný Finnur Jóhannsson, fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Cab- aret, hefur nú aö nýju pússaö raddböndin og er tekin til viö aö syngja meö Akranesflokknum Tí- brá. Finnur er ekki eini fyrrverandi meölimur Cabaret í hljómsveitinni. Valgeir Skagfjörö er helsta drif- fjöður hennar og semur flest lög Tíbrár. Tíbrá hefur undanfariö æft stíft og nýveriö lék flokkurinn í Sig- túni viö góöar undirtektir. Hafa þeir sexmenningar hug á að festa lög sín í plast áöur en langt um líður. Ný plata frá Purrki Pillnikk Purrkurinn er iöinn viö kolann um þessar mundir. Þó hljóm- sveitin hafi enn ekki starfað í eitt ár hafa þeir nú þegar gefiö út eina litla og eina stóra plötu. Og ekki nóg meö þaö. Þeir fé- lagar hafa nýlokið viö aö hljóðrita stna þriðju plötu. Hún hefur aö geyma u.þ.b. 13 lög og var tekin upp í hljóöveri Þursanna, Grettis- gati. Ef allt gengur aö óskum ætti sú plata aö koma út í næsta mánuöi og þá ná þeir því aö gefa út þrjár plötur á 12 mánaöa tímabili. Ekki svo lítil afköst þaö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.