Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.03.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982 4 7 allar bólfestu í líkamanum sjálfum. Það er sem sé líkaminn sjálfur sem elur af sér krabbameinið, ef þessi kenning er rétt, en ekki meinið sem ræðst á líkamann. Þar sem Interferon er komið úr líkamanum sjálfum má treysta því til að fá líkamann til að hætta að éta upp sjálfan sig. Þannig er hin einfalda röksemdafærsla þessa máls. Talið er að Interferon efli á ný ónæmiskerfi líkamans þannig að hinar eðlilegu varnarfrumur (þessar sem taka viðbragð þegar aðskotahlutur kemur í lík- amann) dragist að krabbameinssvæðinu og ráðist þar á illkynjuðu frumurnar og leggi þær að velli. Krabbameinsfrumur virðast undir venjulegum kringumstæðum draga úr baráttuþreki varnarfrumanna en Interferonið eflir þær og styrkir þannig að þær ganga í endurnýjun lífdaganna og verða hinar herskáustu. En þar sem krabbameinssjúkdómar eru eins margvíslegir og þeir eru fjölmargir þýðir ekki að gera ráð fyrir því að hægt sé að lækna þá í eitt skipti fyrir öll. Skyn- samlegra er að beina athyglinni að því hvernig hægt er að meðhöndla þá. Þær aðferðir sem tiltækar eru koma að veru- legu gagni þegar um það er að ræða að minnka æxli og hefta útbreiðslu þeirra. En ókostirnir eru hrikalegir. Aukaverkanir eru margvíslegar og lítt þolanlegar. Þær valda í senn mjög miklum óþægindum og veikja líkamann. Lyfin hafa að mörgu leyti neikvæð áhrif, þau vinna ekki síður á heilbrigðum frumum en krabbameins- frumum, og hið sama er að segja um geislameðferðina sem iðulega er jafnmikil raun og sjúkdómurinn sjálfur. Interferon drepur ekkert og það er ekki geislavirkt. Það er ný tegund krabba- meinsmeðferðar og henni fylgir enginn svimi, engin uppköst, engar meltingar- truflanir og yfirleitt ekkert af því sem fylgir lyfjameðferðinni. Þar að auki kemur efnið í veg fyrir að sjúklingurinn veikist af veirusjúkdómum, en það atriði skiptir mjög miklu máli þar sem dánarorsök meirihluta krabbameinssjúklinga eru slík- ir sjúkdómar. Þetta eitt er ærin ástæða til að setja Interferon á oddinn. En hvaða aukaverkanir hefur Interferon þá? Meginuppistaðan í því er eggjahvítu- efni og það hefur sín áhrif á líkamann. Áhrifin eru þau helzt að sjúklingamir kenna máttleysis og lystarleysis. Eftir að hafa fengið efnið í viku finna margir sjúkl- ingar fyrir þróttleysi. Þeir hafa ekki lyst á mat og hafa ekki áhuga á að taka sér neitt fyrir hendur. Margir fara í geðlægð og mók sígur á þá auðveldlega. Tilraunir með músarunga sem fá Inter- feron frá því að þeir koma úr móðurkviði hafa leitt í Ijós, að fái þeir tiltekið magn af efninu hefur það áhrif á lifrina með þeim afleiðingum að flestir geispa golunni eftir um það bil viku. Lykillinn að þessu virðist vera hversu mikið af efninu er gefið músarungunum, en enn sem komið er hefur ekki verið leitt í ljós hvað það er sem gerist fái þeir of mikið af þvi. Önnur spurning sem ekki er búið að svara varðar áhrif Interferons á Kið nátt- úrulega varnarkerfi líkamans, en eitt og annað bendir til þess að efnið geti haft áhrif á hvorn veginn sem er — allt eftir því hversu mikið er gefið af því og hvenær það er — þannig að það dragi úr starfsemi varnarkerfisins eða örvi það. Þá hefur komið í ljós að Interferon hef- ur mjög mikil áhrif á ákveðna tegund efnakljúfa í lifrinni, einkum þegar ung- bðrn eiga í hlut. Ekki virðist þetta hafa skaðleg áhrif á heilsu barnanna, auk þess sem auðvelt var að færa starfsemi efna- kljúfanna í samt lag. En sú staðreynd að of mikið Interferon orsakar alvarlega lifrarskemmd í músum bendir til þess að efnið geti haft alvarleg skaðsemdaráhrif á lifur manna, enda þótt vísbending um slíkt hafi hingað til aðeins komið fram hjá ungbörnum. Afstaðan milli Interferons og einstakra fruma felur í sér mestu vandkvæðin á langtímameðferð, um leið og það er hún sem gefur tilefni til björtustu vonanna um hlutverk Interferons í framtíðinni. Inter- feron nær frumunum á sitt vald. Það virkjar frumurnar, hægir á því að þær skipti sér og breytir efnasamsetningu þeirra innbyrðis. Miðað við starfsemi lík- amans eru þessar breytingar mjög tíma- bundnar, en regluleg Interferon-gjöf hefur þó slík áhrif á sumar frumur til lang- frama. Hvaða óæskilegu aukaáhrif gæti slík breyting orsakað? Einn er sá eiginleiki efnisins sem menn hafa áhyggjur af, sem sé að það virðist draga úr myndun mergsins í beinunum. í mergnum myndast blóðkornin og efni sem bægir frá sýkingu blóðsins. Þegar Inter- feron kemur til skjalanna dregur úr æxlun mergfrumanna. Það sama gerist reyndar við lyfjagjöf og það í meiri mæli. Þetta getur valdið því að sjúklingur sem fær Int- erferon verður ónýtari við að verjast sýk- ingu, auk þess sem hætta er á blóðleysi þar sem færri rauð blóðkorn myndast í mergn- um en ella. Þegar sjúklingur hefur fengið Interfer- on í tiltölulega vægum skömmtum og með- ferð síðan verið hætt hafa öll slík einkenni horfið í þeim rannsóknum sem hingað til hafa verið gerðar, en enginn veit með vissu hversu lengi þau mundu láta á sér bera ef sjúklingurinn fengi mikið af efninu. Þegar allt kemur til alls verða þessir neikvæðu möguleikar ekki til þess að draga úr vonum manna varðandi Interfer- on. Þvert á móti. Á sama hátt og þeir sem móta hernaðarstefnu verða að kynna sér hvert smáatriði í sambandi við kjarnorku- sprengjur komast vísindamenn ekki hjá því að taka til gaumgæfilegrar athugunar hvert smáatriði i sambandi við öll efni sem þeir vilja koma í gagnið. Við ákveðnar kringumstæður getur allt verið lífshættu- legt. Tilteknir annmarkar efnis eins og Interferons gefa vísbendingu um hugsan- leg vancjamál sem það kann að valda, veita mikilvægar leiðbeiningar um notkun þess og benda á hinn æskilega jafnvægispunkt hámarksnotagildis og hámarksöryggis. Kari Cantell, finnski vísindamaðurinn sem hefur lagt hvað mest af mörkum á sviði Interferon-rannsókna, er í senn bjartsýnn og varkár þegar rætt er um „ neikvæð áhrif Interferons: „Það er ekki útilokað að aukin notkun Interferons leiði í ljós ýmislegt sem kann að koma óþægilega á óvart. Hvenær sem efnið er notað gegn sjúkdómi sem það hef- ur ekki verið notað gegn fyrr er ástæða til sérstakrar aðgæzlu. I hverju tilfelli þarf að vega og meta kosti og ókosti þess að nota Interferon, rétt eins og gert er með önnur lyf. Ævinlega hlýtur slíkt mat að grundvallast á eðli sjúkdómsins sem ætl- unin er að vinna á. Bæði kvefsótt og hundaæði eru veirusjúkdómar. Vörtur, svo dæmi sé tekið, myndar líkaminn án utan- aðkomandi áhrifa. En þegar um það er að ræða að taka áhættu í viðureign við þessa sjúkdóma er mjög mismunandi hversu mikla áhættu er verjandi að taka. Þótt undarlegt megi virðast virðist þetta aug- ljósa atriði ekki hafa verið tekið nægilega til greina þegar rætt er um frumusam- setningu í sambandi við Interferon-fram- leiðslu. I náinni framtíð verður Interferon ekki notað eins og bóluefni í heilsuvernd almennings. Það verður notað i baráttunni gegn alvarlegum sjúkdómum sem þegar eru farnir að herja á einstaklinga.” Hingað til hefur mest verið rætt og ritað um Interferon sem krabbameinslyf, en mikilvægi þess í baráttu við veirusjúk- dóma er samt sem áður ekki síður fyrir hendi. Efnið heftir athafnasemi hverrar einustu veiru sem tilraunir hafa verið gerðar með, en visindamenn eru samt á einu máli um að miklu ýtarlegri rannsókn- ir verði að fara fram áður en hægt verður að meta til fulls notagildi efnisins í barátt- unni við veirusjúkdóma. (HaiinHd: Th« N*w York Tlmaa Magazin*) ÚRVALS FERÐAKYNNING í BROADWAY SUNNUDAGINN 14. MARZ Vista so'' . ar i sumar Q 31• a9 27 •—- —-— 2 vikur eöípáskaterö«to»xa8 ^^ ^27 ..(i, z'-apr »> 09 25'ma' ..ölskvwunnar. Aöeins .rdaqar- 8- & _ slaöur Br0tt1arada9 sep^ber . ^ 17. aqa^ unga to\KS_jJ^----- ^ ap*1' o^da9at ; ^aösiranö- Ibiza 11 óaga 09'J rnel °9Aqo __— — _——" _ « _—-— # rq 2n*wr*2 573 - „3 aptt' 4 0*ter'we,t'C°r%erö'rákr- , Viö 9° ,«terö aö yoú. UMBODSMENN ORVAL UM ALLT LAND VID AUSTURVOLL SÍMI 26900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.