Morgunblaðið - 07.03.1982, Page 23
Tvær barnabækur
eftir Þröst J.
Karlsson
ÚT ERU komnar tvær barnabæk-
ur eftir Þröst J. Karlsson með
teikninfíum eftir Hörpu Karls-
dóttur. Önnur bókin heitir „Elt-
ingaleikurinn mikli," og segir frá
Snata gamla, sem fer með kunn-
ingjum sínum í kaupstaðinn þar
sem þeir félagar lenda í miklum
æfintýrum. Hin bókin nefnist
„Rolli í kosningaham" og er tólfta
saga Snata gamla. Rolli hefur
ákveðið að gefa kost á sér sem for-
ingjaefni dýranna. Ekki eru allir á
eitt sáttir með það.
Bókaútgáfan Letur gefur bæk-
urnar út.
\l (.1 YSIM. \
slMIW KK
22480
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
Félagsmiðstöðvar gang-
ast fyrir danskeppni
2.500 tonn
á land um
mánaðamót
Olafsvík, 4. marz.
SJOSOKN hefur verið erfið héðan
undanfarnar vikur vegna ótíðar. Afli
línuháta hefur verið mjög þokka-
legur, en fram að þessu hefur verið
lélegur afli í netin. Vonir standa þó
til að afli í net sé að breytast til hins
betra. Hefur afli netabátanna glæðst
síðustu dagana og verið 6—14 tonn
eftir nóttina. I.oðna er í fiskinum og
bendir það til að nú séu öll skilyrði
til að fiskist betur. Svo til allir línu-
bátarnir hafa nú skipt yfir á net og
atvinna er að aukast.
Heildaraflinn var hér í febrú-
arlok 2.480 tonn, en var 2.650 á
sama tíma í fyrra, en þá voru
fleiri sjóferðir að baki. Aflahæsti
línubátur er Gunnar Bjarnason
með 22o tonn í 25 sjóferðum og
næstur er Garðar 2. með 210 tonn,
einnig í 25 sjóferðum. Hæsti neta-
bátur er Matthildur með 100 lestir
í 29 róðrum. Á þessu sést að með-
alafli hæsta línubáts er 8,9 tonn í
róðri, en var í fyrra 8,5 tonnn.
Togarinn Már landaði í fyrra-
dag 126 tonnum og Lárus Sveins-
son landaði í dag 110 tonnum.
Ekki eru góðar horfur með sjóveð-
ur á morgun, því veðurspá gerir
ráð fyrir stormi á miðunum.
Fréttaritari.
SHARP
rísandi merki
Félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík
efna til „freestyle“-danskeppni
næstu tvo lostudaga. Þann 12. mars
fara fram undanúrslit í Tónabæ,
Bústöðum, Fcllahelli. Þróttheimum
og Árseli. Lokakeppnin verður síðan
í Tónabæ 19. mars.
Freestyle, eða frjáls aðferð eins
og heitið hefur verið íslenskað, fel-
ur í sér að þátttakendum er frjálst
að dansa jassdans, diskódans eða
hvaða stíl sem er. Á undanförnum
vetrum hefur ætíð verið boðið upp
á nokkrar keppnir í Reykjavík.
Keppni félagsmiðstöðvanna mun
hins vegar vera sú eina í Reykja-
vík í vetur sem stendur unglingum
til boða að taka þátt í.
Ólafsvík:
Þátttakendur í keppninni verða
að vera á aldrinum 13—17 ára.
Keppt verður bæði í einstaklings-
og hópdansi. Vegna misskilnings
sem orðið hefur við kynningu á
keppninni er tekið fram að fleiri
en tvo þarf til, til að um hóp sé að
ræða. Keppendur eru velkomnir
hvaðanæva að af landinu. Nú þeg-
ar hafa til dæmis hópar frá Akra-
nesi og Keflavík sýnt áhuga á að
koma og vera með. Þátttökugjald
er ekkert og skráning hafin í öll-
um félagsmiðstöðvunum.
(Kréttatilkynning)