Morgunblaðið - 07.03.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
41
Stefán
frá
Möðrudal
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er nokkuð langt síðan
ég hefi skoðað samsafn mynda
eftir Stefán Jónsson frá Möðru-
dal og upp í huga mér kemur
þá helst ágæt sýning í Galerie
SÚM fyrir allnokkrum árum.
Það var reyndar sýning er
vakti góða athygli og gekk á
allan hátt prýðilega og þykir
mér allfurðulegt að ekki var
haldið áfram að kynna list
Stefáns frá Möðrudal á svip-
uðum grundvelli. Listamaður-
inn er nefnilega á ferðinni
með heilar tvær sýningar í
borginni um þessar mundir.
Önnur sýningin er til húsa í
Galleríinu að Laugavegi 12, en
hin er á Mokka-kaffi.
Myndirnar njóta sín ólíkt
betur á Mokka-kaffi því að þar
hanga þær a.m.k. í einni röð
og ekki óskipulega um alla
veggi líkt og á Laugavegi 12.
— Annars þykir mér bestu
myndirnar frekar eiga heima
á veggjum Nýlistasafnsins og
þykir mér það verðugt við-
fangsefni aðstandenda þess að
draga slíka hluti fram í
dagsljósið. Þó ekki væri fyrir
annað en að menn geta étið
yfir sig af hollenskri nýlist
eins og af öllu andlegu
fóðri...
Stefán Stórval, svo sem
hann nefnir sig á stundum, er
samur við sig í opinskárri,
barnslegri túlkunarþörf og á
ekki til vott af sýndar-
mennsku. Þannig er eitthvað
hrífandi og einlægt við bestu
myndir hans, sem á greiða leið
til skoðandans og þannig
fyllsta tilverurétt.
— Það er annars erfitt að
skrifa um þetta framtak Stef-
áns í sýningarmálum, því að
myndir hans eiga skilið að
njóta sín betur en þær gera að
sinni. Vil ég einkum vísa til
þess hér.
Bragi Asgeirsson
Óraunhæft að Evrópu-
markaður geti sætt
sig við dollaraverð
- segir í athugasemd frá viðskiptaráðuneyt-
inu um nýtt lágmarksverð á grásleppuhrognum
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá við-
skiptaráðuneytinu:
„Vegna umræðna, sem orðið
hafa í fjölmiðlum um sölu á
grásleppuhrognum, þykir rétt
að benda á eftirfarandi:
Akvörðun um nýtt lágmarks-
verð á grásleppuhrognum var
tekin til að bjarga lífsafkomu
margra framleiðenda, sem enn
eiga óseldar birgðir frá síðast-
liðnu ári. Þessi ákvörðun var
ekki tekin fyrr en fyrir lá sam-
þykki stjórnar Samtaka grá-
sleppuhrognaframleiðenda og
þegar í ljós var komið, að er-
lendir kaupendur myndu falla
frá verðlækkunarfyrirvörum í
öllum sölusamningum, sem
gerðir voru á síðastliðnu ári um
framleiðslu, sem var afskipað á
því ári. Tókst að fá fyrirvarana
fellda burt aðeins með einni
undantekningu, sem vegur lítið
þegar á allt er litið. Því var ekki
haldið fram af hálfu viðskipta-
ráðuneytisins í frétt, sem birtist
í Morgunblaðinu síðastliðinn
fimmtudag, að kaupendur hefðu
fallið frá verðlækkunarfyrir-
vörum í hverju einasta tilviki
þó þannig mætti skilja fréttina.
Ákvörðunin um nýtt lág-
marksverð felur í sér viður-
kenningu á þeirri staðreynd, að
óraunhæft sé að ætlast til þess,
að Evrópumarkaður geti sætt
sig við dollaraverð, sem vegna
styrkingar dollarans árið 1981
þýðir raunverulega um 37%
hærra verð milli ára í dönskum
krónum. Þar sem'fallið er frá
dollaraviðmiðun má búast við
því, að stöðugt verð í dönskum
krónum geti verið breytilegt
vegna mismunandi gengis-
þróunar.“
rarsTiam
A VERÐLAUNAAFSLÆTTI
Þar sem við erum söluhæstir umboðsmanna FISHER miðað við
fólksfjölda, hafa þeir hjá FISHER veitt okkur sérstakan
verðlaunaafslátt á 200 myndsegulbandstækjum.
•IACt rn Mw**
m m
COUI'I*
!
—V
7 DAVS f 1PROOPAM
E?:30
VIOEO CASSCTTE RECOROER VBS-T500
”
rTOim
ccc
VBS-7000
VBS-7500
VBS-9000
12.950.00 12.300.00
14.200.00 13.965.00
19.950.00 18.950.00
Beta
ra
LÁGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBÚMN
Eftirtaidar myndbandaleigur eru með Beta myndefni:
KEFLAVÍK:
Video No: 1 • Videoqueen - Videoking - Videobanki Suðurnesja
GRINDAVÍK:
Stefán Þ. Tóniasson Kadiovcr
VESTMANNAEYJAR:
Gunnlaugur Sigurðsson Eyjaprent - Kafeind
HÖFN HORNAFIRÐI:
K.A.S.K.
ESKIFJÖRÐUR:
Trausti Reykdal
AKUREYRI:
Sesar - Video Akureyri
Videoleigan Skipagötu
DALVÍK:
Ýlir hf.
ÍSAFJÖRÐUR:
Pollinn
HELLISANDUR:
Bióið
AKRANES:
Vilniundur Jónsson
REYKJAVÍK:
Hverfisgata 56 - Videomiðstöðin Laugarvegi 27 -
Videospólan Holtsgata 1 - Kvikmyndamarkaðurinn
Skólavörðustig 19 - Videoking Langholtsvegi 176 -
Videohúsið Siðumula 8
.Leigur á vegum kvikmyndahúsanna væntanlegar um land allt"