Morgunblaðið - 07.03.1982, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MARZ 1982
Berlæraður
í 12 stiga gaddi
á hálendinu
Rabbað við Jón bónda á Skútustöðum við Mývatn
l.jósmvnd Mbl. Árni Johnson.
Jón bóndi Þorlák.sson á Skútustöóum viÓ Mývatn í góóra vina hópi.
„Ég er stoltur af því að vera
fæddur Mývetningur, því ekki
það, ég hefði ekki kært mig um
að vera annað þótt maður ráði
því náttúrulega ákaflega lítið
sjálfur," sagði Jón Þorláksson
bóndi á Skútustöðum í upphafi
rabbs okkar einn vetrardaginn
fyrir skömmu þegar himinn og
jörð runnu saman í eina sæng
hvítblámans yfir Mývatni.
„Foreldrar mínir og fleiri
ættliðir að mestu leyti eru Mý-
vetningar og móðir mín í ótal
ættliði. Afi minn í föðurætt var
hins vegar ekki fæddur hér en að
mestu leyti alinn upp. Hann var
skagfirskur í aðra ætt, en ey-
firskur í hina og það hlýtur að
vera nokkuð góð blanda, enda
hafa sumir talið Skagfirðinga og
Þingeyinga á sömu bylgjulengd,
því hvorir tveggja þykja montn-
ir. Það var frægt þegar Hún-
vetningurinn spurði Jónas frá
Hriflu hvor væri montnari,
Þingeyingurinn eða Skagfirðing-
urinn, og Jónas svaraði: Hún-
vetningar."
Langaði til að
læra pínulítið
„Hér hef ég átt heima alla tíð
og hef aldrei farið að heiman
nema frá nýári og fram á vor, en
ég fór í Menntaskólann á Akur-
eyri utan skóla til þess að taka
gagnfræðapróf og naut ég þar
sérstaks velvilja Sigurðar skóla-
meistara. Við vorum tveir
frændur sem höfðum lítinn tíma
en vildum nema og við eyddum
rúmum einum vetri í þetta
þriggja vetra nám og þurftum
vissulega að halda okkur vel við
efnið. Okkur langaði til að læra
pínulítið og það þótti nokkuð
gott að vera gagnfræðingur frá
MA. Maður lærði meðal annars
til gagns í ensku og stærðfræði-
námið var mun meira en frá
Laugaskóla til dæmis.
Bústærðin í minni bernsku var
ekki mikil, 1—2 kýr og örfáar
kindur, en þó var þetta upp í 200
kindur og 3 kýr. Flestir höfðu þó
tvær kýr og á sumum búum voru
menn með geitur. í slíkum tilvik-
um voru sumir með eina kú og
tíu geitur. Geiturnar hurfu þó
með fjárskiptunum hér árið 1945
vegna mæðiveiki, en það vissi
enginn um tengslin þar á milli.
Jú, ég fékk erfðafestu á einum
fjórða af Skútustaðajörðinni, en
einn þriðja af prestsjörðinni.
Faðir minn var þarna á vegum
prestsins, en það var prestslaust
í 3 ár. Faðir minn bjó á Skútu-
stöðum í 17 ár og við bræðurnir
sinntum búinu. Við byggðum svo
síðar en skömmu seinna dó bróð-
ir minn.“
Getur fremur
þvælst í kindunum
„Fyrst var ég með 100 fjár, en
um 185 rollur á vetrum og kýr
var ég alltaf með þar til á síð-
asta ári er ég lógaði tveimur
kúm. Það er miklu meiri binding
að hafa kýrnar þegar maður er
farinn að bila í skrokknum. Mað-
ur þolir þá illa að vera við mjalt-
ir en getur miklu fremur þvælst
i kindunum."
„Þú stundaðir fjallaferðir áð-
ur fyrr.“
„Já, fjallaferðirnar settu svip
á, um skeið höfðum við ær okkar
austan við Nýjahraun og þar
þarf röska smalamenn. Þegar
mæðiveikin kom upp í sveitinni,
kom hún fyrst upp á bæ í
Reykjahlíð og sennilega í einni á
einnig á Skútustöðum sama
haust. Það var tekin ákvörðun
um að reyna að forðast samgang
í austur- og suðurafrétt og við
sunnanmenn urðum að hætta að
fara austur fyrir. Sveitinni var í
raun skipt.
Ég hafði verið oft á ári á þessu
svæði ásamt bróður mínum og
var mjög vel kunnugur þar. Síð-
ast vorum við þar veturinn 1941,
en fyrir fáum árum fór ég í
göngur fyrir nágranna minn,
tveggja daga göngur og það var
forvitnilegt að koma aftur á
svæðið. Eg get fullyrt eftir þá
för að gróðurinn er ekki í aftur-
för á Glæðum og Stykkjum. Ég
tel að gróðurinn þar hafi marg-
faldast, líklega tífaldast. Ég tel
gott að vita þetta, því þarna er
um æði stórt svæði að ræða með
margfalda aukningu á gróðri
miðað við þá rýrnun sem hefur
verið í Borgarmel, en hann hefur
þó færst norður."
Villingsskjátur og
fálstyggdarflennur
„Jú, jú, það rættist vel úr öll-
um þessum fjallaferðum? Við
vorum í Herðubreiðarlindum og
Grafarlöndum og víðar og oft
þurftum við að vaða Grafar-
landaá í krapa og grunnstingul.
Grunnstingull var þegar krapaði
í botn og heldur meira neðan til,
en þetta gerði okkur ekkert til.
Einu sinni hljóp ég þarna lengi
berlæraður í nóvember í 12 stiga
frosti. Ég klæddi mig úr til þess
að bleyta ekki fötin. Ég hljóp
þarna í klukkutíma ber og sama
gerði félagi minn. Hann fór 13
ferðir yfir Grafarlandaá, en ég 8
ferðir. Við bundum síðan féð
saman á hornunum í eina kippu.
Ég var búinn að koma tveimur
yfir þegar ég lenti í miklum elt-
ingaleik. Þetta voru villings-
skjátur og fálstyggðarflennur.
Eina missti ég við skör í ánni, en
ég var þarna með besta fjárhund
sem ég hef vitað um, misseris-
gamlan hvolp og hann náði
flennunni. Ég var búinn að
hlaupa hana uppi áður, því ég
var frár á fæti, en missti hana
aftur þegar ég ætlaði að lúta yfir
hana i grýttu hrauninu. Ég réði
illa við mig vegna kulda og doða
í hnjánum. Þetta var oft slark-
samt á köflum. Við höfðum tjald
með okkur og maðurinn sem var
með mér bar ávallt með sér
dúnsæng en betra varð ekki á
kosið. Þetta sama kvöld kól
menn á Þeystareykjum, þeir
hafa verið blautir og ekki gætt
þess að halda fötunum þurrum.
Við sauðbundum hverja kind
fyrst, bundum alla fætur, en
þurrkuðum okkur siðan áður en
við leystum þær á fótum og
bundum þær saman á hornun-
um, sjö kindur sneru enni að
enni. Þannig voru þær bundnar
yfir nóttina, en síðan tókum við
til við reksturinn. Einu sinni fór
ég með Fjalla-Bensa á heiðar, en
ég held að hann hafi farið 30—40
ferðir upp í Grafarlönd. Hann
var skeytingarlaus, bæði um sig
og aðra, meðalmaður á hæð,
þrekinn, en hafði það mest til
síns ágætis í þessum ferðum að
hann var skeytingarlaus og
hafði þá skoðun að hann myndi
alltaf rétta sig við ef hann gerði
skyssu og það gekk þannig. Sig-
finnur á Grímsstöðum var hins
vegar ófreskur í ratvísi, það var
langt frá því að vera eðlilegt
hvað hann var ótrúlega ratvís.
Fjalla-Bensi var áræðinn og
hafði það með seiglunni, við vor-
um talsvert saman í tíu ár, frá
því að ég var 10 ára. Hann var
mér yfirleitt góður, kallinn."
Rúmlega hálfa
öld í kirkjukór
„Áhugamálin? Þau voru nú öll
tengd búskapnum, en ég starfaði
mikið í ungmennafélaginu mér
til mikillar ánægju. Félagið
Brídge
Arnór Ragnarsson
Afsláttur á flugfari
hjá Flugleiðum
Þættinum hafa borist ýmsar
upplýsingar frá Bridgesambandi
íslands um afslátt í innanlands-
flugi Flugleiða vegna keppnis-
ferða spilara og fara þær hér á
eftir:
I. Flugferðir
Jóhann D. Jónsson, deildar-
stjóri, hefur staðfest, að í keppn-
isferðum á vegum BSI muni
keppendur njóta „ÍSÍ-kjara“, þ.e.
u.þ.b. 50% afsláttur. Þessi far-
gjöid eru nú, fyrir ferð fram og
til baka til Reykjavíkur:
Akureyri kr. 580.
Egilsstaðir kr. 769.
Isafjörður kr. 544.
Hornafjörður kr. 612.
Vestmannaeyjar kr. 387.
Til þess að spilarar njóti þess-
ara fargjalda þarf að koma til
skriflega staðfesting BSÍ hverju
sinni, en þá gilda þau líka alfar-
ið.
2. Helgarpakkar vegna íslands-
móts
Vegna komandi verðhækkana
er ekki enn tímabært að fá verð
á „helgarpökkum" vegna ís-
landsmóta, en mjög sennilegt er,
að þá verði hægt að fá. Þetta
þarf að athugast um miðjan
marz.
3. Framkvæmd
BSÍ ætti að staðfesta
fargjaldakjörin skriflega við
Flugleiðir. Síðan þarf að kynna
þetta fyrir félagsmönnum og
benda á að þetta á eingöngu við
um Bikarkeppni. BSÍ þarf ávallt
að hafa milligöngu og bezt er að
gera það fyrir fram.
Bridgefélag
Sauðárkróks
Laugardaginn 28. febr. var
spilaður aðaltvímenningur fé-
lagsins með þátttöku 18 para.
Spilaður var barometer og spiluð
voru 3 spil milli para.
Eftirtalin pör náðu yfir með-
alskor: stig
Einar Svansson —
Skúli Jónsson 81
Alda Guðbrandsdóttir — Jón Sigurðsson (gestir) Kristján Blöndal — 56
Bjarki Tryggvason Reynir Pálsson — 51
Stefán Benediktsson (gestir)46
Halldór Jónsson —
Gunnar Pétursson 35
Árni Rögnvaldsson —
Jón Jónasson 32
Garðar Guðjónsson —
Páll Hjálmarsson 32
Magnús Friðbjörnsson —
Ingi Tryggvason 18
Þorsteinn Þorsteinsson —
Páll Þorsteinsson 15
Gunnar Þórðarson —
Björn Guðnason 14
Bridgefélag
Reykjavíkur
Nú er lokið 38 umferðum í að-
altvímenningskeppni félagsins
og eru Jón og Símon enn með
forustuna, en næstu pör hafa
nálgast þá talsvert. Síöasta mið-
vikudag tóku Guðmundur og
Jakob mikinn sprett og skutust
upp í annað sæti. Er nú útlit
fyrir hörkubaráttu um efstu
sætin í mótinu, en röð efstu para
er þessi:
Jón Ásbjörnsson —
Símon Símonarson 436
Guðmundur Hermannsson —
Jakob R. Möljer 380
Sigurður Sverrisson —
Þorgeir Eyjólfsson 371
Ásmundur Pálsson —
Karl Sigurhjartarson 369
Guðlaugur Jóhannsson —
Örn Arnþórsson 324
Guðmundur Pétursson —
Hörður Blöndal 299
Karl Logason —
Vigfús Pálsson 272
Björn Eysteinsson —
Guðbrandur Sigurbergsson255
Óli Már Guðmundsson —
Runólfur Pálsson 217
Friðrik Guðmundsson —
Hreinn Hreinsson 201
Síðustu fimm umferðirnar
verða spilaðar í Domus Medica
nk. þriðjudag (ath. breyttan
spiladag) kl. 19.30 stundvíslega.
BSR — Bæjarleiðir
— Hreyfill
Einu kvöldi er ólokið í baro-
meterkeppni bílstjóranna og er
staða efstu para þessi:
Ellert Ólafsson —
Kristján Jóhannesson 267
Guðmundur Magnússon —
Kári Sigurjónsson 201
Guðjón Guðmundsson —
Hjörtur Elíasson 125
Jón Sigurðsson —
Vilhjálmur Guðmundsson 124
Jón Magnússon —
Skjöldur Eyfjörð 111
Guðlaugur Nielsen —
Sveinn Kristjánsson 103
Síðasta umferðin verður spil-
uð mánudagskvöld í Hreyfils-
húsinu og hefst kl. 20.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 4. marz hófst
barometerkeppni hjá TBK, 22
pör taka þátt í keppninni að
þessu sinni.
Eftir 5 umferðir er staða efstu
para:
Björn Karlsson
— Jens Karlsson 55
Árni Magnússon
— Jón Ámundason 30
Helgi Einarsson
— Gunnlaugur Óskarsson 28
Sigfús Árnason
— Jón Páll Sigurjónsson 26
Næstu umferðir verða spilað-
ar á fimmtudag í Domus Medica
og hefst keppni kl. 19.30.
Bridgedeild Víkings
Úrslit í barometerkeppni Vík-
ings urðu þessi:
Viðar Óskarsson
— Agnar Einarsson 157